Morgunblaðið - 22.08.1978, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 1978
37
fclk í
fréttum
Þessi blökku-
mannafjöl-
skylda er
ein af mörgum,
sem hef ur flúið
landsvæðin þar
sem átök haf a
orðið hörðust
milli stjórnarher-
manna í Ródesíu
og liðsmanna
skæruliða-
sveita. Hafa
flóttamannabúð-
ir verið settar
upp fyrir blökku-
menn í námunda
við Salisbury,
höfuðborg
Ródesíu.
Þá hafa olíuríkin blandað sér í
slaginn um kaupin á atvinnu-
knattspyrnumönnum og þá er
ekki verið að skera neitt við
nögl. Fótboltafélagið „A1 Hil-
al“ í Saudi Arabíu hefur
nýlega keypt stórstjörnu
Brazilíumanna, Rivelino, og
gert við hann samning upp á 5
til 10 milljónir Bandaríkja-
dala.
Kappaksturs-
hetjur
slökkva þorst-
ann. — Að lok-
inni Grand Prix
kappaksturs-
keppninni
í V-Þýzkalandi
sjást aðalkeppi-
nautarnir
slökkva
þorstann úr risa
kampavíns-
flöskum.
Kapparnir eru
þeir Jody
Scheckter frá
S-Afríku, Banda-
ríkjamaðurinn
Mario
Andreotti, sem
sigraði í Lótus-
bíl, og Frakkinn
Jacques Laffitte.
Biðjast verður afsökunar á
því, að myndin af þessari
konu, er ekki nógu góð. —
Konan heitir Midge Constanza
og hefur verið í starfsliði
Carters forseta í Hvfta húsinu.
Þar var hún ráðgjafi forsetans
um málefni kvenna þar í landi.
— Hún ákvað fyrir skömmu
að lata af störfum. Það hefur
komið alloft fyrir að allskonar
yfirlýsingar hennar hafa vald-
ið óþægindum og fjaðrafoki.
Drengnum á þessari mynd, sem tekin er í gjörgæzludeild á
sjúkrahúsi einu í Washingtonfylki, mistókst herfilega um
daginn. Hann ætlaði þar að leika það eftir rokks'eit einni,
„Kiss“, að spúa eldi, en það gera liðsmenn sveitarinnar á
skemmtunum, sem þeir koma fram á. Drengurinn fékk sér
gúlsopa af benzíni og frussaði þvf yfir opinn eld með þeim
afleiðingum að eldurinn læsti sig upp í munninn og allt ofani
lungu drengsins og hlaut hann slæm brunasár af þessu uppátæki
sínu.
Rekstur frystihúsa á
Vestfjörðum stöðvast
sjálfkrafa á næstunni
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi ályktun, sem sam-
þykkt var á fundi Félags fisk-
vinnslustöðva á Vestfjörðum sl.
miðvikudag.
Síðustu mánuði hafa frystihúsin
á Vestfjörðum verið rekin með
vaxandi rekstrarhalla. Kostnaðar-
liðir fiskvinnslunnar hafa á þessu
tímabili hækkað langt umfram
hækkun söluverðs afurðanna og
fyrirsjáanlegar eru stórfelldar
kostnaðarhækkanir á næstu vik-
um.
Þessi fyrirtæki hafa ekki safnað
sjóðum á undanförnum árum og
eru því ófær um að halda áfram
taprekstri. Einnig liggur fyrir, að
ekki fæst lánsfé til aukinna
rekstrarútgjalda, sem gæti um
tíma frestað stöðvun, og hlýtur
reksturinn því að stöðvast sjálf-
krafa mjög fljótlega. Slíkt ástand
er nú þegar komið hjá nokkrum
fyrirtækjum.
Á Vestfjörðum eru frystihúsin
burðarásinn í atvinnulífinu í
hverju byggðarlagi og því hrein vá
fyrir dyrum, þegar þau stöðvast.
Fundur frystihúsaeigenda á
Vestfjörðum vill því mjög alvar-
lega minna á þá ábyrgð, sem á
stjórnvöldum hvílir og treystir
því, að þau takist á við þann
efnahagsvanda, sem nú blasir við,
svo að afstýrt verði almennu hruni
í fiskiðnaðinum, sem myndi leiða
af sér almennt atvinnuleysi um
allt land.