Morgunblaðið - 22.08.1978, Side 33

Morgunblaðið - 22.08.1978, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 1978 41 VELVAKANDI SVARAR j SÍMA 0100KL 10—11 FRÁ MÁNUDEGI að menn eigi að hafa frið um nætur þá er ekki hægt að ganga svo langt að menn megi ekki gera við og sinna húsum sínum." Lögreglan sagði enn fremur að það væri ómögulegt að líta á þetta mál sem hávaða og drykkjulæti. • Afengisneyzla Gömul kona. Ég sá í einu blaði uni daginn að spurt var um það hvar ungling- ar fengju vín. Þaö liggur ljóst fyrir, að mér finnst, að þar sem þeir hafa ekki aðgang að áfengis- verzlunum þá hljóta það að vera þeir fullorðnu sem útvega þeim áfengið. Mér finnst það nokkuð kaldranalegt að hugsa til þess að þeir sem eru fullorðnir og ættu að hafa vit fyrir þeim sem eru yngri hjálpi þeim til þess að koma sjálfum sér á kaldan klaka. Fólk ætti að hugsa meira um það hvað hlotist hefur af áfengisneyzlu áður en það gefur öðrum áfengi. Það eru margir sem hafa hlotið stór og mikil sár vegna þeirra sem neyta áfengis eða vegna sinnar eigin neyzlu. Ég ætla því að leyfa mér að skora á þá sem áður hafa hjálpað unglingum til að verða sér úti um áfengi að taka sig á og hugsa um stund hvað þeir eru að gera. Þeir gætu nefnilega verið að stuðla að því að þetta fólk eyðileggi framtíð sína. Þessir hringdu . . . • Endursýnið Bob Marley B.S.i „Mig langar til þess að biðja sjónvarpið að endursýna þáttinn með Bob Marley en hann var sýndur um verzlunarmannahelg- ina. Um þá helgi er fólk yfirleitt ekki heima en notar hana til ferðalaga. Það voru einnig margir sem ekki vissu um þennan þátt þar eð þeir voru lagðir af stað út úr bænum er sjónvarpsdagskráin birtist í blöðunum. Mér þætti vænt um ef sjónvarpið tæki það til greina að hann var sýndur á vondum tíma fyrir ungt fólk. Velvakandi hafði samband við Sjónvarpið og þar fengust þau svör að ekkert hefði verið ákveðiði ennþá hvort hann yrði endursýnd- ur eða ekki en ákvörðun yrði tekin fljótlega. Það ætti því að koma í ljós fljótlega hvort svo verður. • Gleðistund Maria. Ég vildi gjarnan koma á framfæri þökkum til útvarpsins fyrir þáttinn Gleðistund. Hann á mjög vel inn í dagskrána þar sem svipaður þáttur hefur ekki verið á SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Fyrir stuttu fór fram í Esbjerg í Danmörku allsterkt alþjóðlegt skákmót með þátttöku margra titilhafa. Bent Larsen sigraði örugglega á mótinu, tapaði aðeins einni skák fyrir Jonathan Mestel frá Englandi. Við skulum nú sjá hvernig það gerðist: Mestel hefur svart og á leik, síðasti leikur hvíts var 21. Rf3—h4?? 21. .. Rd3+! 22. Hxd3 - Bxd3. Nú gengur 23. Dxd3 auðvitað ekki vegna 23. ... Dxg5+ og 24. ... Dxh4. Larsen varð því að leika 23. Rf3 og með skiptamun yfir vann Mestel auðveldlega. dagskrá mjög lengi. En ég er ekki á sama hátt ánægð með lagaval í þættinum. Mér finnst það vera of einhæft. Það eru til margar tegundir tónlistar með kristilegum textum og því væri vel við hæfi að reyna að hafa svolítið brot af hverri tegund þar sem ekki er öðrum þáttum að dreifa þar sem spilaðar eru plötur með kristileg- um textum. Ég viðurkenni að ég er nú kannski örlítið gamaldags, enda komin yfir minn besta aldur, en ég veit einnig að það er margt ungt fólk sem er heldur ekki ánægt með lagavalið. Það er því eindregin ósk mín að stjórnendur þáttarins reyni að gera sem flestum eitthvað til hæfis þótt að það sé ef til vill ekki hægt að gera öllum til hæfis. Að lokum vil ég endurtaka þakkir mínar til útvarpsins. Þessi þáttur hefur glatt marga og á án efa eftir að gleðja fleiri, ég tala nú ekki um ef að stjórnendurnir vilja vera svo góðir að taka tillit til þess sem ég hef komið hér á framfæri. • Símatíminn Velvakandi vill vekja athygli lesenda á símatímanum, sem er daglega kl. 10—11 f.h. frá mánu- degi til föstudags. Þá geta menn hringt og borið upp erindi sín, sem þeir vilja koma á framfæri, ábendingum, hugmyndum, kvört- unum eða þökkum fyrir eitthvað sem þeir telja þakkarvert o.s.frv. Ekki er nauðsynlegt að búið sé að skrifa það sem koma skal á framfæri, nóg er að geta um hvert málefnið er. Þeir sem hafa hins vegar tilbúinn pistil geta lesið hann upp og verður hann þá birtur orðréttur. Sem fyrr er nauðsynlegt að viðmælendur geti nafns síns, en óskum um nafnleynd er sinnt sé þess eindregið óskað, en slíkt er alfarið á ábyrgð ritstjóra og verður því að vera innan ramma meiðyrðalöggjafarinnar. En skemmtilegast er þegar fólk skrif- ar undir fullu nafni. HÖGNI HREKKVÍSI „Fyrst lætur hann Tappa Jósefs hita upp áheyrend- urna sína!“ Það er nauðsynlegt að hafa bragðgóðar sósur með hrásalatinu, og þó flestir eigi eflaust einhverja uppáhalds uppskrift. er ekki úr vegi að reyna eitthvað nýtt til tilbreytingar. bessar sósur, sem hér birtast á eftir, eru auðveldar í tilbúningi. og eru eiginlega allar búnar til úr sömu grunnuppskriftinni. Olíu- og edikssósa ‘/2 bolli góð salatolía 'k bolli edik 1 tsk. salt V\ tsk. pipar. Hristist saman í lokuðu glasi. Kryddsósa Einn skammtur olíu-ediks- sósu og í hana bætt: 1 matsk. saxaðri persilju, 1 tsk. muldu thyme-laufi, V\ tsk basil, Vt tsk. rosemary og V\ tsk, oregano. Einnig góður lögur til að marinera kjöt í. Sýrð sósa Einn skammtur af olíu-ediks- sósu og í hana bætt: V* bolla sýrðum rjóma, 2 matsk. bacon-bitum (fást í kryddglös- um) og V\ tsk. smátt söxuðu persille. Sósan er einnig góð með sjávarréttum. ftölsk sósa Einn skammtur af grunn-sós- unni en án ediks, þ.e.a.s. 'k bolli salatolía V* bolli sítrónusafi 1 tsk. salt, Vi tsk. pipar, V\ tsk. ítalskt krydd og Vt tsk. hvítlauksduft. Afbragðs-sósa Einn skammtur af olíu-ediks- sósu og í hana bætt: !4 bolla hunangi 1 tsk. papriku, 'k tsk. „seasoned“ salt, 1k tsk. selleri-flögur (fást í kryddglös- um). Gott að hafa appelsínurif í salatinu, ef þessi sósa er notuð. Kreóla-sósa Einn skammtur af grunn-sós- unni, nema settur er V\ bolli af sítrónusafa í stað ediksins. Bætt er í: V\ bolla tómatsósu, 1 tsk. Worcester-sósu og dálitlu af Tabascosósu. Sósan er einnig góð með sjávarréttum. Frönsk sósa Einn skammtur af olíu-ediks- sósu. Bætt er í: 'k bolla tómats- sósu., 2 matsk. sykur, 1 tsk. smátt söxuðum lauk og V\ tsk. „seasoned" salt. Bragðgóð sósa Einn skammtur af olíu-ediks- sósu og í hana bætt: 1 matsk. bacon-bitum (fást í krydd glös- um) 1 tsk. lauksalti og 1 tsk. hvítlaukssalti. Chiffonade-sósa Einn skammtur af olíu-ediks- sóu og bætt í: einu harðsoðnu eggi, smátt söxuðu, 'k bolla af smátt saxaðri, hrárri rauðrófu og 'k bolla smátt söxuðum lauk. Gráðostssósa Einn skammtur af olíu-ediks- sósu og út í er bætt þrem matsk. af muldum gráðosti. Það eru margir, sem Þyrftu að hressa svolítíð upp á magavöövana með einhverskonar líkamsæfingum. Sundið er par áreiðanlega pað besta, sem hægt er aö gera fyrir sjálfan sig í peim efnum. En œfingar má líka gera heima hjá sér og ein góð er sýnd hér á myndinni. Leggist á gólfið og stingið tánum undir brúnina á sófa, stól eða ööru pví, sem er í réttri hæð. Þ.e. að hægt sé að liggja flatur á gólfinu. Höndum er brugðið aftur fyrir höfuðið og síðan á aö reisa sig upp, eins langt og hægt er, nokkrum sinnum. Æfingin reynir talsvert á magavöðvana. J Sósur með salatinu Umsjón: Bergljót Ingólfadóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.