Morgunblaðið - 22.08.1978, Side 35

Morgunblaðið - 22.08.1978, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGUST 1978 43 ERLENT Teheran — 20. ágúst — AP HRYÐJUVERK ofstækis- manna úr röðum múham- eðstrúarmanna, sem fylgja vilja boðum og bönnum Kóransins í einu og öllu, náðu hámarki sínu á sunudag, er of- stækismennirnir báru eld að kvikmyndahúsi í írönsku borginni Aba- dan. 377 manns brunnu inni, en 20—40 manns náðu að komast út um neyðarútgang á þaki hússins. Lögreglan hefur þegar handtekið tíu manns, sem taldir eru líklegir sökudólgar, en henni hefur ekki enn tekizt að komast að innsta hring samsæris- manna. Benzín var notað við íkveikjuna. Borgin Abadan, sem er olíu- iðnaðarborg við Persaflóa ná- lægt landamærum íraks, er í sárum eftir hörmungarnar á sunnudag. Heilar fjölskyldur, sem flúið höfðu undan sólar- sterkjunni inn í rökkvað og vel kælt kvikmyndahúsið til að sjá myndina „The Deer", þurrkuð- ust út og fjölmargir eiga um sárt að binda. Stjórnin hefur fyrirskipað þjóðarsorg og marg- ir íbúar flykkjast nú í moskur og biðja fyrir látnum ættingjum. Lögreglan hóf þegar handtök- ur vegna brunans og náði nokkrum öfgamönnum, sem vopnaðir voru sprengjum, en ekki hefur fengizt staðfest hvaða hópur trúæsingamanna var hér að verki. Þeir hafa látið mikið að sér kveða undanfarið og m.a. gert hríð að veitingahús- um, vínbúðum og kvikmynda- húsum, sem þeir segja draga hugi fólks frá Kóraninum, heigiriti múhameðstrúarmanna. Hörðust hefur hríðin verið frá því 8. ágúst, en þá byrjaði heilagur föstumánuður mú- hameðstrúarmanna og á þeim tíma hafa fjölmargir særzt og nokkrir látizt af völdum hryðju- verka þeirra og mótmælaað- gerða. Lögreglan handtók einnig eigandá^ig umsjónarmann kvik- myndahússins. I ljós kom að bæði aðalneyðarútgangur og anddyri hússins voru læst af öryggissökum til að koma í veg fyrir að bíógestir yrðu fyrir áreitni öfgamanna, en þessi háttur hefur verið hafður á víða í íran að undanförnu. Einnig kom fram, að fjarstaddur starfsmaður kvikmyndahússins var með lykla að aðalútgangi hússins og þess vegna borin von, að hægt væri að opna hann. Haft er eftir lögreglunni, að hún hafi hvað eftir annað farið fram á það við eiganda kvikmynda- hússins, að hann seldi ekki jafn mörgúm inn og raun var á, en hann virti öll slík tilmæli að vettugi, og setti gróðahyggjuna ofar öryggingu. I yfirheyrslunni kom það líka fram, að slökkvi- tæki voru í kvikmyndahúsinu, en eigandi og starfsmenn þess kunnu ekki á þau, þegar á reyndi. Bruni þessi er hápunktur hryðjuverka, sem trúæsinga- menn hafa staðið fyrir að undanförnu. Frá 8. ágúst, hafa þeir gert hverja atlöguna á fætur annarri að ýmsum almennum samkomustöðum. en þær hafa komið verr niður á almennum borgurum víða í Iran. Reyndar á mótmæla og hryðjuverkastarfsemi þeirra sér lengri sögu og má rekja upphaf hennar allt til þess, er stjórn keisarans tilkynnti þau áform sín fyrir u.þ.b. 8 mán. að leysa íranskar konur úr ánauð og flytja stjórn bæridabýla úr höndum trúarleiðtoga í hendur óbreyttra bænda. írönsk kona í sorgarklæðum syrgir son sinn. sem lézt í brunanum. í bakgrunni er vélskófla að grafa fjöldagröf, en mörg líkanna voru með öllu óþekkjanleg. Símamynd AP. Begin: Carter get- ur gegnt miklu hlutverki New York, Kairó, 21. ág. — Reuter, AP MENACHIM Begin, forsætisráð- herra ísraels, segir í viðtali við Newsweek sem kom út um helg- ina að hann hafi vonir um að Carter Bandaríkjaforseti muni getað gegnt þýðingarmiklu hlut- verki í þeim viðræðum sem fyrirhugaðar eu milli ísraels og Egyptalands í Camp David í septemberbyrjun. Carter Bandar- íkjaforseti sagði á blaðamanna- fundi f sl. viku að hann myndi verða „virkur aðili" á fundinum en Begin sagðist ekki vera viss um hvað forsetinn ætti við og sagði að hann væri þeirrar skoðunar að hlutverk Banda- ríkjaforseta væri það að leiða aðilana tvo saman til beinna viðræðna. Friðaráætlun ætti að vera árangur frjálsra samninga- viðræðna milli ísraela og Egypta, — segir fulltrúi Bandaríkjanna Washington, 20. áglíst. Reuter. NÁIST ekki samkomulag um nýtingu auðlinda á hafsbotni núna, seni talið er líklegt, gæti sú staða komið upp, að iðnaðarríki hæfu auðlindavinnslu á hafsbotni upp á eigin spýtur, lét Elliot Richardson formaður bandarísku sendinefndarinnar á hafréttar- ráðstefnunni hafa eftir sér í blaðaviðtali á sunnudag, en ráð- stefnan hófst í gær. Talið er að helzta ágreiningsefni hennar verði nýting auðlinda á hafsbotni, en iðnaðarríki þrýsta nú mjög á að slíkur samningur verði gerð- ur. Mörg þróunarrfki telja hins vegar ekki hægt að neitt eitt rfki hefji vinnslu á hafsbotni fyrr en hafréttarráðstefnan hafi komið sér saman um tilhögun hennar. Richardson bætti við, að Banda- ríkin væru þegar farin að undir- búa sig undir að hefja vinnslu á hafsbotni og sagði, að þau myndu ekki hægja á ferðinni, þótt samn- ingar á hafréttarráðstefnunni lægju ekki fyrir. Aðspurður um hve langan tíma Bandaríkin myndu fresta að hefja vinnslu á hafsbotni, sagði hann, að ef ekki næðist alþjóðasamkomulag á ráðstefnunni, en margt virðist benda til að svo verði, væri æskilegt að kanna möguleikann á samkomulagi margra iðnríkja á nýtingu hafsbotnsins. Slíkur samningur yrði milli iðnaðarríkja, sem þegar eru farin að undirbúa vinnslu jarðgrýtis á hafsbotni innan 200 mílna efnahagslögsögu. Skilyrðið fyrir slíkum samningi iðnaðarríkja yrði að vera það, að alþjóðlegur samningur á haf- réttarráðstefnunni væri í burðar- liðnum og hliðsjón yrði höfð af honum, þegar þróunarríkin kæmu í spilið. Assad Sýrlandsforseti Assad til V -I>ýzkalands Bonn, Vestur-Þýzkalanúi, 91 Ácrnst - . A p HAFEZ Assad, forseti Sý rlands, mun fara í fyrsta skipti í opinbera heimsókn til Vest- ur-Þýzkalands hinn 11' scptem- ber. Verður hann í boði Walters Scheel forseta, og var gcfin út tilkynning þessa -efnis í Bonn í dag. Vestur-þýzkir emba tt menn sögðu að Miðausturlandamálið og afskipti Sýrlendinga af málefn- um Líbanons myndu vcrða mcgin- efni á fundi Assads og Schmidts kanslara og Hans Dictrich Genschers utanríkisráðherra. Victor Emanúel flæktur í skotárás Ajaccio, Korsíku, 21. ágúst — AP. FRÖNSK lögregluyfirvöld sögðu frá því í dag að þau hefðu haft spurnir af mikil- vægu vitni í máli því sem upp er komið varðandi meinta skotárás Victors prins Emanuels á ungan þýzkan stúdent. Samkvæmt frásögn prinsins var þarna um slys að ræða, en skotið fór í fætur piltsins og varð að taka af honum annan fótinn. Ekki er fullkomlega ljóst hvern- ig þetta slys bar að, en að sögn var Victor prins á bát sínum fáeina km frá innsiglingunni til Bonifacio á Korsíku. Mun hann hafa skotið með riffli að lystisnekkju sem var skammt frá. Vitað er að prinsinn og cigandi lystisnekkjunnar höfðu lent í þrætum nokkru áður en þetta gerðist og prinsinn heldur því fram að hann hafi vitað að ógnuri vofaði yfir honum. Hefur hann gefið í skyn að lystisnekkju- eigandinn sem er ítalskur hafi haft í hótunum við sig. Victor Emmanuel var þarna á ferð með konu sinni og sonum. Hann var erfingi ítölsku krúnunn- ar frá 9. maí til 13. júní 1946 en þá var ítalia lýst lýðveldi. Victor prins Emanuel. Byrjun páfakjörs sjónvarpað Vatikaninu, 21. ágúst — Reuter. KARDINÁLARNIR sem eiga að hefja páfakjör næstkom- andi föstudag ákváðu í dag að leyfa sjónvarpsútsendingu frá setningarathöfninni. Verður því sýnt er þeir ganga í prósessiu frá Paulinukapellu til Sistinekapellu þar sem atkvæðagreiðslan hefst. Þá var í morgun gengið frá ráðningu níu manns sem eiga að vera innan seilingar við páfakjör þar af eru tvær hjúkrunarkonur. Sór fólk þetta eiða að þvf í dag að halda öllu leyndu sem fram fer á kardinálasamkundunni. Hápunktur hryðju- verka trúæsingamanna 377 brunnu inni í kvikmyndahúsi í íran Sérsamningur iðnaðarríkja um hafsbotn ekki útilokaður Forseti Suður Afríku lézt í gær Pretoria 21. ág. Reuter. FORSETI Suður Afríku, Nicolaas Diederichs, lézt í sjúkrahúsi í Höfðaborg í kvöld. Hann varð 74 ára gamall. Hann hafði verið á spítala eftir hjartaáfall. Vorster forsætisráðherra Suður Afríku skýrði frá láti forsetans, og sagði að þjóðin syrgði hann einhuga. Diederichs var áður fjármála- ráðherra en varð þriðji forseti Suður Afríku árið 1975, eftir að Suður Afríka varð lýðveldi árið 1961. Hann var einn af stofnend- um Þjóðernissamtakanna í land- inu og var þó einna þekktastur fyrir baráttu sína fyrir því að gull yrði tekið upp sem alþjóðagjald- miðill. Hann hafði svo mikla trú á gulli og mætti þess að hann fékk viðurnefnið Mr. Gold. Hann var fæddur í Ladybrand í OrangeFree- ríkinu þann 16. nóvember 1903. Hann nam síðar við háskólla víða í Evrópu og tók doktorsgráðu í bókmenntum og heimspeki. Begin sagði Begin og kvaðst draga í efa að Egyptar eða ísraelar myndu sætta sig við of mikla stjórnsemi af hálfu Bandaríkjamanna. I fréttum frá Kairó segir að Sadat Egyptalandsforseti muni leggja fram þrjár megintillögur á fund- unum, og séu tvær þeirra fólgnar í því að benda á leiðir til að útfæra og framkvæma þau sjónarmið sem fram komi. Ekki er tekið fram að öðru leyti hvað í tillögunum felist en ekki þykir fjarri lagi að þær séu mjög í svipuðum dúr og þær sem lagðar hafa verið fram áður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.