Morgunblaðið - 19.09.1978, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 1978
Aðal verslunargatan á
ísafirði, Hafnarstræti.
Illa gengur að fá fólk
til vinnu i verslunum á
ísafirði vegna þess hve
hátt kaupfólk fær i
fiskvinnu.
Mikil spenna í atvinnulífi á ísafirði
MIKILL afli hríur borist á land á Vostíjörðum undanfarna mánuði. ok hcfur það leitt
til mikillar vinnu í landi. svo að so«ja má. að allir þoir or vottlinKÍ Kota valdið starfi
nú í fiskverkun af einhverju ta«i. VoKna broyttra voiða hin síðari ár or nú mikil vinna
í fiski allt árið um kring. og lítill munur árstíða írá því scm áður var. og
votrarvortíðin var aðal athafnatíminn. Núna ronna voiðar togara. línubáta.
handfarabáta ok ra'kjubáta saman í oina allshcrjar vortíð som engan enda tekur. A
Vestfjörðum or því mikil vinna við verkun sjávarafla af ýmsu tagi allan ársins hring.
þó að annað só upp á toningnum í öðrum byggðarlögum.
Þossi mikla atvinna hofur að sjálfsögðu þær jákvæðu hliðar, að tokjur íólks eru
miklar og tiltiiluloga jafnar. og að lítil hætta or á að Vestfirðingar þurfi að fara brott
frá sínum heimaslóðum í atvinnuloit. — Fari til dæmis ungt fólk frá Vestfjörðum til
annarra landshluta í atvinnuleit or það ckki gort af illri nauðsyn. holdur til þess að
hlcypa hoimdraganum og sjá hvornig mannlifið or í öðrum byggðarlögum.
Én þossi mikla atvinna hofur oinnig slæmar aukaverkanir. svo ótrúlegt som það
kann að virðast. Tokjur fólks som vinnur í landi við vinnslu sjávarafla cða við veiðar á
sjó oru það miklu botri on unnt or að greiða fólki í öðrum störfum. að þar or mikill
vinnuaflsskortur. Som da'mi má nofna, að konur som vinna eftir bónuskerfi í
fiskvinnslu hafa gjarna mun moira kaup on oiginmonn þeirra. jafnvol þótt þeir þyki
okki illa launaðir iðnaðarmonn. Einnig má nofna. að mjög illa gengur að fá fólk til
verslunarstarfa. því að þrátt fyrir að yfirborganir tíðkist í þoirri atvinnugrein. þá cr
langt frá því að verslunin goti koppt við fiskvinnslufyrirtækin. Því or það. til dæmis á
ísafirði. að illmögulegt or að fá verkamenn til starfa við byggingarvinnu. gatnagorð
oða önnur slík störf. — þakkað or fyrir ef iðnaðarmonn fást. Þá or ástandið þannig í
verslunum. að þar fæst ekki fólk til starfa þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. heldur verða
vorslunarstjórar og kaupmcnn að annast alla afgroiðslu frá morgni til kvölds ásamt
fjölskyldum sínum oftir atvikum hvorju sinni.
Þannig or ástandið á ísafirði þossa dagana. og raunar mun það som hér segir að
framan oinkum oiga við ísafjarðarkaupstað. cn okki alla Vestfirði eins og þeir loggja
sig. þó að þar sé nær alls staðar gott atvinnuástand þessa dagana.
En til þoss að kynnast þossum málum betur. lagði blaðamaður Morgunblaðsins leið
sína vostur til ísafjarðar og hitti þar m.a. að máli Guðmund Þórðarson
trósmíðameistara hjá Kubb h.f. á ísafirði.
„Gífurleg eftirspurn eftir nýju húsnæði,
en illa gengur að fá fólk til starfa”
— segir Guðmundur Þórdarson hjá Kubb h.f. á ísafirði
„Það er mikill skortur á
vinnuafli hér á Isafirði, að
minnsta kosti til starfa við
byggingariðnaðinn,“ sagði
Guðmundur Þórðarson, einn
eigenda byggingarfyrirtækis-
ins Kubbs h.f. á Isafirði er
blaðamaður Morgunblaðsins
hitti hann að máli fyrir stuttu.
Guðmundur á og rekur fyrir-
tækið Kubb ásamt fjórum
öðrum, en það var stofnað fyrir
fimm árum síðan. Hluthafar
eru auk Guðmundar þau Jens
Kristmannsson, Magnús
Kristjánsson, Jón Gunnarsson
og Elín Þóra Magnúsdóttir.
Guðmundur sagði, að ástæða
þess hve illa gengi að fá fólk til
starfa, væri velgengni frysti-
húsanna, þau gætu greitt það
hátt kaup með bónusfyrir-
komulagi og mikilli vinnu, að
erfitt væri að keppa við þau.
„En það verður að sjálfsögðu
að hafa í huga,“ sagði
Guðmundur ennfremur, „að
þessi velgengni frystihúsanna
er að sjálfsögðu undirstaða
velgengninnar hér á staðnum,
hin mikla eftirspurn eftir
húsnæði og mikil gróska í
byggingu nýrra húsa og íbúða
stafar að sjálfsögðu að miklu
leyti af þeirri grósku sem hér
er í atvinnulífinu."
Að sögn Guðmundar vinna
nú alls um 15 manns hjá
fyrirtækinu, og er aðallega
unnið við nýbyggingar, breyt-
ingar á eldra húsnæði og svo
við smíði innréttinga. Hefur
Kubbur h.f. komið sér upp
ágætis verkstæðishúsnæði,
einkum til þess að geta unnið
að ýmsum verkefnum yfir
vetrarmánuðina, en veturinn
er langur á Isafirði og oft erfitt
með vinnu utan dyra við
byggingar.
„Hér er gífurleg eftirspurn
eftir nýju húsnæði, og raunar
eftir gömlu einnig," sagði
Guðmundur, „og vegna hinnar
miklu eftirspurnar er verðlag
hér svipað og það er í Reykja-
vík og nágrenni. Húsnæðis-
skortur er hér tilfinnanlegur,
og það kemur meðal annars í
veg fyrir að unnt sé að ráða
fólk hingað frá öðrum lands-
hlutum, þó að mannskapur sé
fyrir hendi.“
Sem dæmi um það', hver
munurinn er á kaupi eftir
atvinnugreinum á Isafirði, þá
sagði Guðmundur, að verka-
menn væru nú með um 1000
krónur á tímann, en trésmiðir
væru með um 1500 krónur. —
Til samanburðar kvaðst Guð-
mundur hafa heyrt, að ekki
væri óalgengt, að konur sem
ynnu eftir bónusfyrirkomulagi
í frystihúsum, hefðu allt að 17
til 1800 krónur á tímann, og
því væri auðséð, að ekki væri
auðvelt að keppa við fiskverk-
endur um vinnuafl. „Jafnvel
þótt við yfirborgum fólki til að
halda því, þá getum við ekki
greitt nægilega hátt kaup,“
sagði Guðmundur Þórðarson
að lokum.
— All
Guðmundur Þórðarson, oinn oi(?onda Kuhbs h.f. á ísafirði fyrir framan hið nýja ok glæsilega húsnæði
fyrirtækisins.