Morgunblaðið - 26.09.1978, Side 19
ffiorflimlilntnft
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1978
llprdtllrl
Ætlar bæði
að leika og
dæmaí 1. deild
SÁ LEIKMAÐUR sem verið hefur
lengst í eldlínunni í handknattleikn-
um og leikur enn með af fullum
krafti er Karl Jóhannsson. í vetur
kemur Karl til með að leika í 1. deild
aftur eftir langt hlé. Síöast er Karl
lék í 1. deild lék hann með KR, en
nú leikur hann með HK. Karl
Jóhannsson er ekki aðeins Þekktur
sem góður handknattleiksmaður
heldur einnig sem einn af okkar
bestu handknattleiksdómurum. Nú
hlýtur Karl að lenda í vandræöum,
hvernig ætlar hann að samræma
dómarastörfin jafnframt Því sem
hann leikur í 1. deildinni.
Fer Ólafur
út aftur?
MARKVÖRÐURINN KÓ(V
kunni Ólafur Boncdiktsson.
sem lék í fyrra í Svíþjóð með
Olympia. fór utan til Svíþjóðar
í gær. Ólafur var ákveðinn í að
leika hér hcima í vetur með
sínu gamla félagi. Val. en fékk
síðan svo freistandi tilboð frá
Olympia. að hann ákvað að
fara út í boði félagsins og
kynna sér málin niður í
kjölinn. Reynist tilboðið vera
mjög gott hyggst Ólafur slá til
og leika í vetur í Svíþjóð.
Ólafur kemur heim í lok
vikunnar og þá munu málin
skýrast. þr.
Til að fá svör við þessari spurningu
og fleirum spjölluðum við lítillega við
Karl.
Við spurðum Karl fyrst hvort hann
hefði í hyggju að dæma í vetur
jafnframt því sem hann léki í 1. deild.
— Þetta er vandamál sem ég hef
verið að hugsa um. Hér áður fyrr lék
ég í 1. deild með KR og dæmdi líka.
Á stundum var það ekki vel séð, en
gekk nú samt alveg prýðilega fyrir
sig. Allavega dæmi ég í 2. deild og
Reykjavíkurmótinu svo og bikar-
keppninni. Það er álit mitt að 1.
deildin eigi eftir að skiptast í tvo hluta
í vetur. Annars vegar fjögur lið í
toppbaráttunni og hins vegar fjögur
lið í fallbaráttunni. Lið mitt HK verður
líklega í botnbaráttunni, svo að
hugsanlega gæti ég dæmt leiki hjá
efstu fjórum liöunum.
Hefur þú trú á að breytingin á
niðurröðuninni á leikjum 1. deildar
verði til góðs? — Nei, síður en svo.
Mér líst ekkert á þetta nýja fyrir-
komulag, sem á aö taka upp.
Aðsóknin að leikjum á eftir að
minnka enn frekar en verið hefur.
Það er mikið sama fólkið sem sækir
leiki, og það fer ekki tvisvar sama
daginn, hvað þá þrisvar.
Álítur þú, Karl, aö handknattleikur-
inn verði góður i vetur?
— Já, ég hef trú á því, það eru
margir ungir og efnilegir drengir að
koma fram og þeir eiga eftir að gera
góða hluti, sagði Karl að lokum.
Þr.
Skúli óheppinn
SKÚLI Óskarsson setti nýtt
Norðurlandamet í hnébeygju í
kraftlyftingum í Borgas í Finn-
landi um helgina. lyfti 282.5 kg.
Skúli keppti í 75 kg flokknum. en
met hans nægði ekki til þess að
komast á verðlaunapall. því að
honum mistókst í bekkpressunni.
Helgi Jónsson krækti sér í brons í
100 kg flokki. lyfti samtals 670
kg. Öskar Sigurpálsson setti
íslandsmet í hnébeygju. lyfti 315
kg og varð nr. 4. Sverrir Hjalta-
son varð sjötti í sínum flokki.
• Bandaríkjamennirnir. sem voru í sviðsljósinu í körfunni um helgina. en með tilkomu þeirra. hefur
körfuknattleikurinn farið batnandi hérlendis. Þessir kappar heita. f.v. Stewart Johnson Armanni.
Paul Stewart ÍR, John Hudson KR og John Johnson Fram.
(Ljósm. GI)
Hart barist í körfunni
REVKJAVÍKURMÓTIÐ í
körfuknattleik hófst í Haga-
skóla um helgina. Að loknum
se.\ leikjum verður ekki annað
sagt en að þeir lofi góðu um
framhaldið. Allir voru leikirnir
spennandi og skemmtilegir á
að horfa fyrir þá fjölmörgu
áhorfendur sem lögðu leið sína
f Hagaskólann um helgina.
Va>ri óskandi að framhald yrði
á slíku.
Nú hafa fjórir bandarískir
körfuknattleiksmenn bæst í hóp
þeirra sem fyrir voru og er nú
svo komið, að þær raddir eru
þagnaðar, sem á sínum tíma
mæltu gegn þessum innflutningi
á leikmönnum. Eitt er víst,
tilkoma Bandaríkjamanna á
stóran þátt í því að jafna
keppnina, á því er enginn vafi,
eins og leikirnir um helgina
báru glögglega með sér.
Vegna þrengsla í blaðinu
verður frásögn af leikjum að
bíða, en úrslit leikja um helgina
urðu þessi:
Fram — Armann 91—83
KR — ÍR 71—65
ÍS — Yalur 57—59
KR — Árrnann 90—82
ÍS - ÍR 100-88
Fram — Yalur 81 — 71
Teitur sænskur meistari?
LIÐ Teits Þórðarsonar heldur
áfram sigurgöngu sinni í 1.
deildinni samsku. Um helgina
sigruðu þeir Landskrona 2—0.
Getur nú fátt komið í veg fvrir að
titillinn verði þeirra. þurfa þeir
aðeins að fá 3 stig úr næstu fimm
leikjum.
Teitur Þórðarson sagði í viðtal-
inu við Mbl. í gær, að leikurinn á
móti Landskrona um helgina hefði
verið þeirra slakasti í allt sumar.
Leikið var við slæmar aðstæður,
rok og rigningu, og hentar það
okkur ekki vel sagði Teitur.
— Við eigum heimaleik í næstu
umferð og leikum þá við AIK,
okkur ætti ekki að verða skota-
skuld úr því að sigra í þeim leik og
krækja okkur i tvö stig. Keppnis-
tímabilið endar hér í okt., og þá
hefur liðinu verið boðið í skemmti-
ferð ásamt eiginkonum til Banda-
rikjanna og Jamaica og leikum við
einn leik í New York og tvo leiki á
Jamaica. Er þetta hugsað sem
verðlaun fyrir góða frammistöðu í
sumar. Frammistaða liðsins hefur
komið mjög á óvart. Og ríkir mikil
ánægja með hana hér.
Aðspurður, hvort hann léki með
í Austur-Þýskalandi, sagði Teitur,
að enginn hefði enn sett sig í
samband við sig úr iandsliðsnefnd,
en hann væri tilbúinn, svo frekast
sem óskað væri eftir því, að hann
léki með.
þr.
Sigfús 35.
af 8.000
SIGFÚS Jónsson ÍR tók Þátt í
maraÞonhlaupi í Chicago á- sunnu-
dag og varð í 35. sæti, en rúmlega
8.000 manns luku hlaupinu. Alls
voru 10 Þúsund manns skráðir til
leiks en hundruð manna hættu á
leiðinni vegna mikils hita pegar
hlaupið tór fram. Ekki er enn vitað
hvaða tíma Sigfús náði, en nánar
verður sagt frá hlaupi Sigfúsar í
Mbl. síðar.
„LEIKUM TIL VINNINGS", SEGIR KIRBY
180 stuðningsmenn Kölnar mæta á leikinn
ÞEKKTASTA knatt-
spyrnufélaK Vest-
ur-Þýzkalands, FC Köln,
leikur á móti Akurnes-
injgum í Evrópukeppni
meistaraliða á Laugar-
dalsvellinum annað
kvöld. Hefst leikurinn kl.
17.
FC Köln státar af
tvöíöldum sigri á síðast-
liðnu ári, sigruðu bæði í
deildarkeppninni og bik-
arnum, það er því það
besta í þýskri knatt-
spyrnu sem við fáum að
sjá á Laugardalsvellinum
á miðvikudag.
Lið Kölnar kemur til landsins
í dag í sérstakri leiguvél, ásamt
52 félagsmönnum FC Kölnar,
það er að segja stjórnarmönnum
og öðrum virtum stuðnings-
mönnum. Þá konta um 180
áhangendur liðsins, og er ekki
vafi á að þeir munu láta vel í sér
heyra á miðvikudaginn. Það er
því ekki úr vegi að íslenskir
áhorfendur mæti vel og styðji
við bakið á ÍA með hvatningar-
hrópum um leið og þeir sjá það
besta í þýskri knattspyrnu.
Kirby þjálfari Skagamanna
sagði á blaðamannafundi í gær
að Skagamenn myndu leika til
vinnings í leiknum og ættu góðir
möguleikar á því að vera fyrir
hendi.
Akranesliðið er með mikla
reynslu og í leik sínum ytra
konui þeir Þjóðverjunum mjög í
opna skjöldu með góðum leik
sínum. Leikmenn Akraness
niunu halda til Þingvalla í dag
og dvelja þar við æfingar fram
að leiknum. Ekki vildi Kirby spá
um úrslit leiksins, en formaður
knattspyrnuráðs Akraness
Gunnar Sigurðsson var hins
vegar sannfærður að IA sigraði
-með einu marki. þr.
Sjá nánar á miðopnu.
• Littbarski skorar fyrsta mark Kölnar í fyrri leik liðanna í Köln,
án þess að Jóhannes fái vörnum við komið.