Morgunblaðið - 17.10.1978, Qupperneq 21
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 1978.
29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 1978.
--------------X------------------------
pJíir0MimMa!>iíb
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjórn og afgreiðsla
Auglýsingar
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Björn Jóhannsson.
Baldvin Jónsson
Aóalstræti 6, sími 10100.
Aóalstræti 6, símí 22480.
Áskriftargjald 2200.00 kr. á mánuði innanlands.
í lausasölu 110 kr. eintakið.
Skattastefna og
almenningshagur
Forystumenn svokallaðra vinstri stjórna hafa jafnan haft
hátt um, að þær væru brjóstvörn verkalýðs og vinnandi
stétta, eins og það hefur verið orðað. Engu að síður hefur
reynslan orðið sú, að slíkar stjórnir hafa gengið harðar fram
en aðrar í aðgerðum, sem beinlínis hafa skert almannahag,
einkum á sviði skattamála. Á árunum 1956 til 1958 sat hér að
völdum vinstri stjórn eins saman sett flokkslega séð og sú er
nú situr. Sú ríkisstjórn gekk svo langt í aðgerðum, sem
Alþýðusamband íslands taldi ganga á hagsmuni meðlima
sinna, .að hún var beinlínis afsögð á ASI-þingi — er það
hafnaði kröfum þáverandi forsætisráðherra um frestun
verðbóta á laun, sem frægt var á sínum tíma.
Sú vinstri stjórn, sem hér um ræðir, greip ítrekað til
gengislækkunar, samhliða margs konar nýrri skattheimtu. Sú
skattheimta kom m.a. fram , í söluskattsauka, hækkun
innflutningsgjalda, sérstökum skatti á farmiða og ferðagjald-
eyri, álagi á tryggingariðgjöld, álagi á gjaldeyrisleyfi,
stórhækkuðu leyfisgjaldi af bílum og sköttum gegnum
benzínverð. Samhliða þessum stjórnunaraðgerðum, sem allar
verkuðu í þá átt að skerða kaupgetu, var verðlagsuppbót á laun
bundin. I endaðan feril þessarar ríkisstjórnar, sem aðeins sat í
rúm 2 ár, lýsti fráfarandi forsætisráðherra því yfir, að ný
verðbólgualda væri skollin yfir, að ASI-þing hefði neitað beiðni
um frestun á framkvæmd vísitöluákvæða, að „í ríkisstjórninni
væri ekki samstaða" um úrræði í efnahagsmálum og að hann
hefði beðizt lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt.
Hér er vitnað til vinstri stjórnar Hermanns Jónassonar
sökum þess, að hún er eins mynduð, flokkslega séð, og
núverandi stjórn, en einnig vegna þess, að núverandi stjórn
hefur gripið til keimlíkra aðgerða, einkum í skattheimtu. í
millitíð sat fyrri vinstri stjórn Ólafs Jóhannessonar,
1971 — 1973. Hún entist ekki heilt kjörtímabil fremur en vinstri
stjórnin 1956—58, vegna innbyrðis sundurþykkju, einkum á
sviði efnahagsmála.
Jón Hákon Magnússon fjallar í rabbi í síðustu Lesbók Mbl.
um vinstri stjórnir Ólafs Jóhannessonar. Hann segir m.a. „að
það undarlega við þessar stjórnir sé að þær virðist ætíð beina
spjótum sínum gegn fólkinu sjálfu, þótt þær þykist vera að
eltast við skugga einhverra annarra". Vinstri stjórnin 1971—73
hafi innleitt hér „einhverja hina mestu verðbólgutíð, sem
þekkst hefur utan frægra bananalýðvelda Suður-Ameríku. Og
þessi, sem nú ríkir", segir Jón Hákon, „kann engin önnur ráð
við vandanum en ofsköttun þegnanna, fólksins sjálfs, sem kom
þessum ráðalausu „leiðtogum" alþýðunnar til valda“.
Greinarhöfundur segir að skattapostular nýrrar ríkisstjórnar
telji sig vera á eftir „verðbólgubröskurum" og „skattsvikurum"
en gjörðir þeirra bitni einvörðungu á heiðarlegum framteljend-
um, sem skilað hafi drjúgri vinnu í þágu þjóðarinnar.
Hér er komið að mikilvægu atriði. Fámenni .þjóðarinnar og
sérstaða undirstöðuatvinnuvega krefst þess að hver þjóðfélags-
þegn sé virkur á vinnumarkaði og skili helzt lengri vinnudegi
en tíðkast með öðrum þjóðum. Sjó verður að sækja og vinna
afla þegar á land berst, án tillits til 8 stunda vinnudags, svo
dæmi sé tekið. Hér eru aðeins milli 90 og 95 þúsund vinnandi
karlar og konur, sem tekizt hefur með miklu vinnuálagi að búa
sér sambærileg lífskjör við grónar iðnaðarþjóðir. Það getur
beinlínis verið mjög varasamt að setja hér skattareglur, sem
verka letjandi á vinnuáhuga og framtak fólks. Það er rétt að
ofsköttun má líkja við yfirgang stjórnvalda, sem stríðir gegn
frelsi einstaklings. Ríki og sveitarfélög eiga kröfu til hóflegrar
skattheimtu, innan skynsamlegs hlutfalls af þjóðartekjum, en
skattheimtan má ekki þróast í hlekki, er slævi vinnuáhuga
fólks og dragi þann veg úr verðmætasköpun í þjóðfélaginu, sem
endanlega hlýtur að bera uppi lífskjör þjóðarinnar.
Skattheimta sem dregur úr verðmætasköpun virkar, þegar til
lengri tíma er litið, gegn tekjuþörf samfélagsins, ríkis og
sveitarfélaga. Skattheimta, sem örvar framtak og vinnuáhuga,
skilar í raun og endanlega meiru í ríkissjóð og til
samfélagsþarfa en niðurdrepandi ofsköttun. Þetta eru einföld
sannindi þó ekki komi heim og saman við skattagleði vinstri
stjórna. Það gagnar ekki stjórnarherrum að segjast brjóstvörn
alþýðu, ef þeir eiga ekki annað erindi við hana en ná í fleiri
krónur úr launaumslögum hennar.
Séö yfir hluta af farþegarými DC-10 breiðþotu Flugleiða.
en hún verður meö sæti fyrir 300 farþega. Tveir gangar
eru eftir vélinni sem er mjög rúmgóð. Fremri hluti
farþegarýmisins er fyrir framan milliþilið sem sést á
myndinni og síðan er aukiö farþegarými enn framar.
DC IO breiðþota Flugleiða í búnintíi ONA sem fékk vélina fyrr á árinu
frá verksmiðjunum. Vélin verður máluð í búning Flugleiða um miðjan
desember. Þessi mynd er tekin á flu>?i yfir Bandarfkjunum.
I vélinni er m.a. sérstakt útvarpskerfi fyrir hvern farþega og aðstaða er til þess að sýna kvikmyndir á
skermum í vélinni eins og sjá má á myndinni.
DC-10
breiðþota
FLUGLEIDAMENN hafa nú hafið undirbúniny affullum krafti
fyrir komu DC-10 breiðþotunnar semfélagið hefur keypt og mun
hefja flug á vegum Flugleiða i jafnúar. Margs konar tæknilegur
undirbúningur er hafinn og félagið hefur fengið tilboð í þjálfun
áhafna. Er verið að kanna það nánar, en meðfylgjandi myndir
eru teknar af og í hinni nýju þotu félagsins. Vélin kom frá
verksmiðjunum á þessu ári og á efstu myndinni er hún merkt því
flugfélagi sem átti hana hluta úr árinu. Fram i desember verður
vélin í leiguflugi með pílagríma og að því loknu verður hún
máluð i litum Flugleiða.
Heildaraflinn meiri en
á sama tíma í fyrra
IIEILDARAFLINN er nokkru meiri fyrstu níu mánuði þessa árs en var á sama tíma í fyrra. Botnfiskaflinn
hefur þó minnkað um tæp 2 þúsund tonn miðað við síðasta ár. en samkvæmt tölum frá Fiskifélagi íslands
er hann orðinn 391.322 tonn í ár.
mest á Austfjörðum.
Loðnuaflinn var um síðustú
mánaðamót rúmlega 710 þúsund
tonn, en var á sama tíma í fyrra
695.877 tonn. Síldaraflinn var um
mánaðamótin 2 þúsund lestum
minni en í fyrra, rækjuaflinn var
heldur meiri í ár, en humaraflinn
hins vegar minni. I ár veiddust
24.526 lestir af kolmunna, en 9455
lestir í fyrra. Samkvæmt bráða-
taaflinn hefur minnkað lítillejía. en
birgðatölum Fiskifélagsins var
heildarafli landsmanna 1.177.189
lestir fyrstu 9 mánuði þessa árs,
en endanlegar tölur yfir sama
tímabil frá í fyrra voru 1.136.151
tonn.
Heildaraflinn í síðasta mánuði
var 139.188 tonn, en í september-
mánuði í fyrra 95.683 lestir. Mest
togaraaflinn aukist í heildina og
er aukningin í mánuðinum á loðnu
en í síðasta mánuði veiddust
104.409 lestir af loðnu á móti
57.520 lestum í sarna mánuði í
fyrra.
Botnfiskaflinn var í mánuð-
inum 26.905 tonn, í septeniber í
fyrra 26.769 tonn. Síldaraflinn var
í síðasta mánuði 2672 lestir, en
3264 í september í fyrra.
Fjármálaráðherra á landsþingi FÍB:
10 ára áætlun um bundið
slitlag á hringveginn —
Snæfellsnes og Vestfirði
- væri hæfileg með samvinnu við erlenda aðila um kunnáttu og fjármagn
..EITT aí forgangsverkefnum
na'stu ára er að leggja bundið
slitlag á hringveginn og einnig til
Snæfellsness og Vestfjarða. Það
væri hæfilegt að gera 10 ára
áadlun til framkvæmda á þessu
verkeíni. I því efni álít ég
skynsamlegast að leita samvinnu
við erlenda aðila um kunnáttu og
fjármagn. að hluta til. Við
þurfum að dreifa kostnaði við
þessa framkvæmd á 25—30 ár svo
hún verði okkur ekki um megn."
sagði Tómas Árnason fjármála-
ráðherra m.a. í ra'ðu sem hann
hélt á landsþingi Félags ís-
lenzkra bifreiðaeigenda um
helgina.
Samgönguráðherra, Ragnar
Arnalds, hélt einnig ræðu á
þinginu og segir í fréttatilkynn-
ingu FIB að hann hafi m.a. sagt,
að hans fyrsta verkefni í vegamál-
um yrði varðandi vegafram-
kvæmdir 1979 „að reyna að hindra
að þessi niðurskurðaralda sópi
nýframkvæmdum í vegamálum
langt aftur á það stig sem við
stóöum á fyrir kannski heilum
áratug síðan.
Landsþing FÍB samþykkti síðan
ályktun þar sem lýst var fyllsta
stuðningi við hugmynd fjármála-
ráðherra „um að lokið verði við
lagningu varanlegs slitlags á
helztu vegi landsins á næstu 10
árum og verði það fjármagnað ma.
með erlendum lánum til 25—30
ára“. Einnig tók þingið „undir álit
bæði samgönguráðherra og fjár-
málaráðherra um að erlendar
lántökur séu ekki úr hófi og beri
að nýta slíka fjármögnunarmögu-
leika til vegagerðar“.
Samgönguráðherra, Ragnar
Arnalds, sagði að til aðgerða gegn
verðbólgunni yrði varið um 10% af
útgjöldum fjárlaga næsta árs eða
liðlega 20 milljörðum króna. Segir
í fréttatilkynningu FIB að ráð-
herrann hafi vegna þessara ráð-
stafana talið lítið svigrúm til
framkvæmda og að um niðurskurð
yrði að ræða bæði í framkvæmd-
BORGARRÁÐ heimilaði borgar-
stjóra í síðustu viku-að undirrita
fyrir hönd borgarsjóðs lánsskjiil
frá Landsbanka Islands vegna
láns að jafnvirði 500 þúsund
Bandaríkjadala til 6 mánaða.
Lánið er tekið til vörukaupa
fyrir Innkaupastofnun Reykja-
um hins opinbera og einstaklinga.
Þó væri hugsanleg magnaukning
framkvæmda á einhverju sviði og
þannig myndi hans fyrsta verkefni
í vegamálum verða að reyna að
hindra „að þessi niðurskurðar-
alda“ kæmi um of niður á vega-
framkvæmdum.
I fréttatilkynningu FÍB segir að
samgönguráðherra hafi lýst áhuga
sínum á lagningu bundins slitlags
á þjóðvegi landsins ásamt alhliða
uppbyggingu þeirra með tilliti til
snjóa, enda í samræmi við sam-
starfsyfirlýsingu núverandi
stjórnarflokka. Einnig benti hann
á að ekki mætti gleymast lagning
bundins slitlags á götur þéttbýlis-
svæða.
víkurborgar. Eftir upplýsingum,
sem Mbl. hefur aflað sér, hefur
slíkt lán ekki áður verið tekið, en
er nú tekið vegna fjárhagserfið-
leika borgarsjóðs. Upphæðin jafn-
gildir rúmlega 150 milljónum
íslenzkra króna.
Marga-jógarnir sem kennt hafa
Korchnoi þessa list, cn þeir voru
í sumar látnir lausir gegn
tryggingu meðan beðið er eftir
nýjum réttarhöldum yfir þeim,
en þeir voru í undirrétti fundnir
sekir um morð.
Dómstóll einvígisins hefur
verið kallaður saman til að
fjalla uni málið. Mér finnst það
hart og til niðurlægingar að
bryddað skyldi upp á þessu nú
þegar margt bendir til þess að
skákmennirnir séu í þann mund
að tefla síðustu skák einvígisins.
Það senr af er einvíginu hefur
farið alltof mikill tími í að
þrátta um mál sem eru alls
óskyld skáklistinni. Sú spurning
leitar á hug manna hvort þessi
mótmæli Rússanna hefðu verið
borin upp ef Karpov hefði unnið
þrjár síðustu skákir í stað þess
að taþá þeim. Eða hvort Karpov
hefði béðið um þeksi mótmæli ef
hann gengi öruggur til leiks í 32.
skákinni?
Miðað við síðustu skákir þá
finnst manni undarlegt hversu
Karpov hefur miðað illa í
endataflinu. Og það er undar-
legt hvað aðstoðarmenn hans
virðast vera lítils megnugir í að
finna leiðir út úr ógöngum þeim
sem hann hefur ratað í. En
Korchnoi hefur hins vegar sýnt
snilldarleg tilþrif í endataflinu
og því hlakka ég til 32. skákar-
innar.
Úrslitin gætu
ráðist í dag
Heimsmeistaraeinvíginu
verður fram haldið í dag og
heíur Karpov heimsmeistari þá
hvítt. Þar sem staðan er nú sú.
að báðir skákmennirnir hafa
hlotið fimm vinninga. gæti
skákin í dag ráðið úrslitum. Og
þess vegna er það til mikils
ama og raunar óskiljanlegt.
hverjir svo sem stjórna sovézku
sveitinni í raun. að aðrið hlutir
en skáklistin skuli valda deil-
um á svo þýðingarmiklu augna-
bliki.
Það sem um er að ræða er að
Balashov stórmeistari, að-
stoðarmaður Karpovs, sendi
Keene stórmeistara bréf i dag
þar sem hann kvartar undan því
að Korchnoi hafi komið óorði á
einvígið með því að eiga sam-
neyti við þekkta afbrotamenn.
Balashov sendi bréfið því að í
gær sýndi Korchnoi blaðamönn-
um, kvikmyndamönnum og ljós-
myndurum þá list sem felst í
jóga og hugleiðslu með því að
leika alls kyns kúnstir. Viö-
staddir voru Ananda
Han if Golornbek
skrifar fyrir
Morqun blaöiö
Borgin tekur 150
milljón króna lán