Morgunblaðið - 17.10.1978, Page 30
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 1978.
+ Systir okkar GUÐLAUG GÍSLADÓTTIR, Gunnarssundi 8, Hafnarfiröi, andaöist aö Sólvangi 14. þ.m. Elín Sœmundsdóttir, Gíslína Sæmundsdóttir.
+ BJARNI GUDBJÓRNSSON, frá Arnarnúpi, andaöist að Hrafnistu 15. þessa mánaðar. Fyrir hönd aðstandenda, Guöbjörg Guöbjörnsdóttir.
+ Eiginmaöur minn og faöir okkar, CARL FR. JENSEN, vélstjóri Bergpórugötu 16 a, lést þann 9. október. Útförin hefir farið fram í kyrrþey aö ósk hins látna. Aldís Kristjánsdóttir, Ingunn Biering f Erna Jensen Svanhildur Jensen.
+ Ástkær móöir okkar, tengdamóöir og amma HULDA BRYNJÓLFSDÓTTIR, lést aðfaranótt 16. október. Höröur Magnússon, Ólafía Magnúsdóttir, Pétur G. Pétursson, Guórún Hulda Pétursdóttir, Magnús Garóarsson, Sigríöur Garóarsdóttir, Ólafur Garóarsson, Garðar Garðarsson.
+ Konan mín, SVAVA BERENTSDÓTTIR, lézt í Landspítalanum 14. október. Olafur Jónsson.
+ Eiginmaöur minn og faöir okkar, PÁLL ÞÓRDARSON, sóknarprestur, andaöist á Landakotsspítala 16. okt. Guórún Birna Gísladóttir og synir.
+ Elskulegur bróöir minn SIGURJÓN JÚLÍUSSON, andaöist að sjúkradeild Hrafnistu laugardaginn 14. október s.l. Jóhanna R. Júlíusdóttir.
+ Kveöjuathöfn vegna eiginkonu minnar GUÐRÚNAR JÓNU MARGRÉTAR FINNBOGADÓTTUR, frí Litlu-Hlíö. fer fram í Fossvogskirkju þriöjudaginn 17. október kl. 3. Þorsteinn Ólafsson, Litlu-Hlíð.
+ Hjartkær eiginmaöur minn, sonur okkar og faðir, JOHANN ERASMUS SIGURJÓNSSON, er lézt af slysförum 7. október, veröur jarösunginn, frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfiröi, miövikudaginn 18. okt. kl. 3. Kristrún Bjarnadóttir, Hulda Ámundardóttir, Sigurjón Gíslason, Hulda Sólveig Jóhannsdóttir, Sigurjón M. Jóhannsson, Helga U. Jóhannsdóttir, Atli Mér Jóhannsson, Ragnheióur Ingadóttir, Úlfar Sigurjónsson, Ingi Ó. Ingason.
Pétur Þorsteinsson
fyrrverandi firma-
skrárseijari - Minning
Hinn 26. sept. s.l. andaðist í
Landspítalanum Pétur Þorsteins-
son, fyrrverandi firmaskrársetjari
84 ára að aldri.
Hann var fæddur 1. febr 1894 að
Ytri-Hofdölum í Viðvíkursveit.
Fóreldrar hans voru Þorsteinn
Hannesson og kona hans, Jórunn
Andrésdóttir. Um þessi hjón er
þáttur í Skagfirskum æviskrám
III. bindi bls. 334—336 og er stuðst
við þær upplýsingar, sem þar er að
finna.
Þorsteinn, faðir Péturs, var
fæddur 291 ágúst 1852 á Bjarna-
stöðum í Kolbeinsdal, d. 4. maí
1910 á Hjaltastöðum. Foreldrar
hans voru Hannes bóndi á Bjarna-
stöðum f. 1813 d. 1873, Halldórs-
son, bónda á Skriðulandi,
Guðmundssonar, og Sigurlaug f.
1821 d. 1905, Þorsteinsdóttir frá
Másstöðum í Skíðadal, alsystir
Þorsteins smiðs og fræðimanns á
Upsum, föður Þorsteins Þ. rit-
höfundar. Þorsteinn stundaði
nokkuð sjó á yngri árum. Nam
síðan trésmíðar norður í
Svarfaðardal hjá móðurbróður
sínum, Þorsteini á Upsum. Stund-
aði hann fyrstu árin smíðar
eingöngu, bæði sjálfstætt og undir
stjórn Þorsteins Sigurðssonar á
Sauðárkróki. Bóndi á Ytri-Hofdöl-
um 1888—1899, Hjaltastöðum
1899—1910 eða til dauðadags og
keypti þá jörð. Jórunn ekkja hans
bjó síðan á Hjaltastöðum
1910—1917 og aftur á hluta
jarðarinnar 1919—1923, er hún
brá búi og fór til Margrétar dóttur
sinnar og Sigurðar Einarssonar,
manns hennar, í Stokkhólma og dó
þar.
Þorsteinn mun hafa verið frá-
upphafi búskapar síns bjargálna
bóndi. Eftir að hann kom að
Hjaltastöðum, blómgaðist bú hans
mjög, enda voru þá börn hans að
komast á legg. Með búrekstrinum
vann hann að byggingum og
smíðaði ailmikið af alls konar
búsáhöldum, bæði fyrir sjálfan sig
og aðra. Á Hjaltastöðum smíðaði
hann kornmyllu, knúða vatnsafli,
er reyndist hið mesta þarfa þing. Þá
hóf hann byggingu íbúðarhúss úr
steinsteypu árið 1909. Gróf grunn-
+
Fósturmóöir mín og tengdamóöir
INGIRÍÐUR E. SIGFÚSDÓTTIR THEODÓRS.
veröur jarðsungin frá Fossvogskirkju miövikudaginn 18. október kl. 13.30.
Ólöf Klemensdóttir,
Halldór Haflióason og dstur.
t
Sonur minn, stjúpsonur og bróöir,
KARL BIRGIR VIGBERGSSON,
Skipholti 32,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 19. október kl. 1.30.
Guórún og Ölver Waage,
Helena Brynjólfsdóttir, Valur Waage,
Guörún Lind Waage,
+
Hjartkær eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi,
HJÖRTUR M. HJARTARSON,
frá Hellisholti,
Vesfmannaeyjum,
Hvannhólma 2, Kópavogi,
verður jarðsettur frá Fossvogskirkju miövikudaginn 18. október kl. 10.30.
Sólveig Hróbjartsdóttir
Kristinn Hjartarson Jóhanna Arnórsdóttir
Klara Hjartardóttir Elías Kristjánsson
Marta Hjartardóttir Daníel Guömundsson
Óskar Hjartarson Rut Kristjánsdóttir
Aóalheiður Hjartardóttir Gustav Sigurjónason
Hafsteinn Hjartarson Fríöa Ágústsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir sendum viö öllum þeim sem auðsýndu okkur samúö og
vinarhug viö andlát og jarðarför
SIGFÚSAR GRÍMSSONAR
Reynimel 23, Reykjavík
Sérstakar alúöarþakkir sendum viö þeim sem hjúkruöu honum í langvarandi
veikindum hans.
Jón Sigurösson, Björg Pétursdóttir,
Sigrún Jónsdóttir, Leó M. Jónsson,
Ólafía Jónsdóttir, Hermann Isebarn,
Kolbrún Jónsdóttir, Hróðmar Helgason,
Björg Jónsdóttir, Haraldur Auóunsson.
+
Innilegar þakkir til allra, er sýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og útför
ÁGÚSTU BJARNADÓTTUR,
Furugerói 1.
Felix Pétursson
Höróur Felixson Kolbrún Skaftadóttir
Bjarni Felixson Álfheiður Gísladóttir.
Gunnar Felixson Hilds Guðmundsdóttir
og barnabörn______________________
inn að mestu eða öllu leyti, en entist
ekki aldur til að ljúka við húsið.
Það gerðu ekkja hans og synir. Var
það fyrsta íbúðarhús úr steini þar
í sveit. Þorsteinn var vakandi
umbótamaður fyrir öllu, er til
framfara mátti teljast í búskap.
Hann mun hafa verið með þeim
fyrstu, er notuðu gaddavír til
vörslu túns og byggði skjólgarða í
bithaga fyrir útigönguhross og tók
upp fjölmargar nýjungar, sem hann
sá, að til bóta máttu horfa í búskapn-
um.
Jórunn, móðir Péturs, var dædd
3. júlí 1853 í Stokkhólma d. 21. júní
1933. Foreldrar hennar voru
Andrés f. 1819 d. 1879, bóndi í
Stokkhólma, Björnsson, bónda á
Valabjörgum, Olafssonar í Vala-
dal, Andréssonar. Móðir Andrésar
í Stokkhólma var Margrét
alsystir Ólafs á Auðólfsstöðum,
föður Sr. Arnljóts á Bægisá. Móðir
Jórunnar og kona Andrésar var
Herdís F. 1818 d. 1906, Pálmadótt-
ir. Jórunn var alsystir Péturs
bónda í Stokkhólma (um hann er
þáttur í III. bindi Skagf. æviskráa)
og móðursystir hins kunna
hagyrðings, Andrésar Björnsson-
ar.
Þau Þorsteinn og Jórunn gengu í
hjúskap árið 1886. Börn þeirra
hjóna voru þessi:
1. Halldór f. 23/9 1887. Dáinn
22/1 1924. Stundaði búskap með
móður sinni og síðar sjálfstætt í
Hjaltastaðakoti (Grænumýri)
Okv.
2. Margrét f. 8/1 1889. Eiginmaður
hennar var Sigurður Einarsson
eins og áður er getið. Hann er nú
látinn, en Margrét dvelur nú að
Frostastöðum hjá dóttur sinni
Jórunni Sigurðardóttur og eigin-
manni hennar, Frosta Gíslasyni.
3. Andrés f. 17/4 1890, bóndi á
Hjaltastöðum, síðar vélsmiður á
Siglufirði. Hann er nú látinn og
eins eiginkona hans, Halldóra
Jónsdóttir.
4. Herdís f. 22/6 1891. Og og bl.
Dvelst nú að Frostastöðum eins og
Margrét systir hennar.
5. Jóhannes f. 3/11 1892. Fór til
Vesturheims, ókv. og bl. Hann er
nú látinn.
6. Pétur f. 1/2 1894, sem hér er
minnst og
7. Pálmi f. 1/6 1895. Síðast
starfsmaður hjá Löggildingarstof-
unni í Reykjavík. Nú látinn en
ekkja hans er Sigrún Guðmunds-
dpttir.
Pétur settist í 1. bekk Gagn-
fræðaskólans á Akureyri um
haustið 1912 og útskrifaðist sam
gagnfræðingur frá þeim skóla 28.
maí 1915. Um haustið sama ár
settist hann í 4. bekk Menntaskól-
ans í Reykjavík. Las síðan utan
skóla til stúdentsprófs, sem hann
tók 26. júní 1919. Þetta ár voru
útskrifaðir 29 stúdentar frá
Menntaskólanum í Reykjavík, 17
skólanemendur en utanskólanem-
endur voru óvenjulega margir eða
12 og aldursmunur meir en nú
þekkist, því að tveir þeir yngstu
voru 16 ára og tveir þeir elstu 26
og 27 ára. Engin stúlka var í
þessum hópi.
Hér gætir áhrifa heims-
styrjaldarinnar fyrri, frostavetrar
1918 og spönsku veikinnar.
Mjög margir úr þessum
stúdentaárgangi urðu síðar þjóð-
kunnir menn.
Pétur innritaðist í guðfræðideild
Háskóla íslands haustið 1921 og
lauk þar burtfararprófi hinn 16.
júní 1925 ásamt 3 öðrum nemend-