Morgunblaðið - 17.10.1978, Page 38
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 1978.
Hækkun v-þýzka marksins:
Nauðsynleg fyrir
gjaldeyrismarkaði
Bonn. I.uxemhoUrK.
16. október. Reuter — AP.
IIANS Matthiifer fjármálaráð-
horra Vostur-Þýzkalands sasði í
dajf að hækkun þýzka marksins
KaKnvart uðrum KjaldmidÍum
„snáksins" svonofnda hofði vorið
nauösynloK til að lækka öldurnar
á orlondum sjaldoyrismiirkuöum
ok til að minnka flóð erlondra
Kjaldmiðla inn í Vostur-Þý/.ka-
land. Matthöfor sasði að hækkun
marksins skipti útflutningsat-
vinnuvoxina litlu máli. on mundi
hins vo>?ar skapa grundvöll fyrir
samoÍKÍnlosan Evrópujíjaldmiðil.
Það voru fjármálaráðherrar
landa Efnahagsbandalagsins sem
tilheyra „snákinum" er tóku
ákvörðunina um hækkun marks-
ins, en þeir hittust a. laun í
Luxembourg um helgina og til-
kynntu ákvörðunina seint á sunnu-
dagskvöldið. Var markið hækkað
um tvo af hundraði gagnvart
danskri og norskri krónu, en um
fjóra af hundraði gagnvart hol-
lenzka gyllininu, Belgíu- og
Lúxembourgarfranka.
Vegna hækkunar marksins
Aukið frelsi
í flugmálum
Washington. 16. októher. AP.
BANDARÍKJAÞING samþykkti
á sunnudag liig som voita handa-
rískum flugfóliigum aukið frolsi
til fargjaldalækkana og til opn-
unar nýrra flugloiða. on Jimmy
Carter forsoti lagði tilliigur í
þossa átt fyrir þingið fyrr á
árinu.
Samkvæmt nýju lögunum fá
flugfélög heimild til að lækka
fargjöld sín um allt að 50 af
hundraði upp á eigið eindæmi.
Þurfa þau ekki að sækja um
lækkunina til bandaríska flug-
málaráðsins. Jafnframt geta flug-
félög hafið áætlunarflug tl ákveð-
ins fjölda borga á ári hverju án
þess að þurfa að sækja um það.
Ennfremur er gert ráð fyrir því að
flugmálaráðið verði lagt niður
1985.
Brock Adams samgönguráð-
herra Bandaríkjanna sagði í dag,
að nýju lögin væru snar þáttur í
aðgerðum Carters forseta gegn
verðbólgu. Þau mundu kynda
undir aukinni samkeppni flug-
félaga og leiða þar með til
lækkandi fargjalda sem svo þýddi
að milljónir þandarískra fjöl-
skyldna ættu í fyrsta sinn kost á
að ferðast með flugvélum.
N óbelsver ðlaun
í hagfræði veitt
Stokkhúlmi. 16. okt. Rcuter — AP.
SyENSKA akadomían voitti í dag
bandarí.ska prófossornum Hor-
bort A. Simon Nóholsverðlaunin í
hagfræði fyrir árið 1978. Herbort
A. Simon er sagður hafa lagt
grundvöllinn að nútíma rekstrar-
hagfra'ði. on hann er 62 ára að
aldri og prófessor við Carnegie-
Mollon háskólann í Pittsburgh í
Pensylvania-fylki.
Prófessor Simon hefur í fræðum
sínum einkum rannsakað þá þróun
sem orðið hefur í seinni tíð á
stjórnun og stefnumótun fyrir-
tækja. Hefur hann einkum endur-
bætt og unnið út frá þeim
kenningum að fyrirtæki hafi það
eitt markmið að ná sem mestum
hagnaði. I tilkynningu sænsku
akademíunnar segir að kenningar
og rannsóknir Simons nái yfir
skipulagsmá), fjármálastjórn og
rekstrarstjórn fyrirtækja.
Kattarvmur
drap kött
Vrrdun. Frakklandi lfi. okt. AP.
KONA nokkur, sögð 27 ára að
aldri, sem á fimmtán heimilis-
ketti, var í dag dæmd til að greiða
143 dollara (um 47 þús. ísl. krónur)
í sekt fyrir að lúberja kött
nágranna síns sem beið bana af.
Réttinum var skýrt frá því, að
konan hefði ráðizt gegn viðkom-
andi ketti vegna þess að hann
hefði verið að reyna að stela mat
frá hennar köttum. Ekki féllust
dómendur á að það réttlætti
athæfi hennar og sögðu í dóms-
orði, að hún hefði gerzt sek um
„ruddalega misþyrmingu á heimil-
isdýri". Auk þess var konunni
gjört að greiða sem svaraði þrjú
þúsund krónur í málskostnað.
„Ég efast um að nokkur haldi
fyrirfram að hann hljóti þessi
verðlaun og þar af leiðandi er ég
afar ánægður," sagði Herbert A.
Simon í dag, þegar hann frétti um
ákvörðun sænsku akademíunnar.
Veður
víða um heim
Akureyri 5 skýjaó
Amsterdam 14 skýjaó
Apena 24 heiðskírt
Barcelona 25 skýjaó
Berlín 14 skýjaó
BrUssel 17 skýjaó
Chicago 11 skýjað
Frankfurt 11 Doka
Genf 11 léttskýjaó
Helsinki 7 léttskýjaó
Jerúsalem 24 skýjaó
Jóhannesarb. 25 skýjað
Kaupmannah. 12 rigning
Lissabon 25 léttskýjaó
London 18 skýjaö
Los Angeles 28 skýjað
Madrid 23 skýjað
Malaga 22 alskýjaó
Mallorca 24 léttskýjaó
Miami 25 heióskírt
Moskva 15 heióskírt
New York 12 skýjaó
Ósló 10 rigning
París 16 léttskýjað
Reykjavík 5 skýjað
Rio De Janeiro 31 skýjaó
Rómaborg 16 heióskírt
Stokkhólmur 9 skýjaó
Tel Aviv 30 skýjað
Tókýó 23 heiðskírt
Vancouver 18 skýjaó
Vínarborg 14 mistur
Þingið f éllst á
orkuáætlunina
WashinKton. 16. október, AP—Reuter.
JIMMY Cartor Bandaríkjaforseti
vann sinn mosta sigur í innanrík-
ismálum þogar þing landsins
samþykkti orkuáætlun hans við
lok 95. löggjafarsamkundunnar í
gær. Þingið samþykkti einnig
skattalækkanir sem noma um
18.7 milljörðum Bandarikjadala
som þýðir lækkun skatta ein-
staklinga um að jafnaði sex af
hundraði.
Orkuáætlunin gerir ráð fyrir því
að innan tíðar verði öllu opinberu
eftirliti með verði á jarðgasi hætt.
Jafnframt veitir hún skattaíviln-
anir þeim sem einangra hús sín og
einnig þeim sem nýta orku sólar
við upphitun. Ennfremur gerir
áætlunin ráð fyrir því að eigendur
eyðslumikilla bifreiða verði skatt-
lagðir sérstaklega.
Sú áætlun sem forsetinn lagði
fyrir þingið í apríl 1977 tók
nokkrum breytingum í meðförum
þingsins, en engu að síður fagnaði
Carter afgreiðslu þingsins í gær.
Hugmyndin að baki áætluninni er
að móta eina heildarstefnu í
orkumálum. Eitt af takmörkum
áætlunarinnar er að minnka olíu-
innflutning. Daglega eru notaðar
16 milljónir tunnur af olíu í
Bandaríkjunum, en sérfræðingar
Carters segja að orkuáætlunin
muni minnka notkunina um 2,5
milljónir tunna á dag. Við það ætti
staða dalsins á erlendum mörkuð-
um að batna.
Ennfremur samþykkti Banda-
ríkjaþing í gær tillögur forsetans
um sérstakt orkumálaráðuneyti og
um meiri háttar breytingar á hinu
opinbera þjónustukerfi. Hins veg-
ar felldi þingið tillögur Carters um
sérstakt menntamálaráðuneyti og
tillögur hans um opinbert eftirlit
með rekstri sjúkrahúsa vegna ört
vaxandi sjúkragjalda.
ákváðu dönsk stjórnvöld að lækka
gengi dönsku krónunnar um fjóra
af hundraði. Talsmenn dansks
landbúnaðar voru ekki sérlega
ánægðir með þessa ákvörðun þar
sem tekjumissir verður af útflutn-
ingi danskra landbúnaðarafurða
til Vestur-Þýzkalands. Verði
hækkun marksins hins vegar til að
bæta stöðu Bandaríkjadals mun
landbúnaðurinn hagnast á lækkun
dönsku krónunnar því til Banda-
ríkjanna er seld skinka fyrir um
einn milljarð danskra króna.
Bandaríkjadalur sýndi bata--
merki á 'gjaldeyrismörkuðum í
Evrópu í upphafi viðskipta í dag.
Þegar á daginn leið féll hann aftur
í verði þrátt fyrir hækkun marks-
ins og að Bandaríkjaþing sam-
þykkt orkuáætlun Jimmy Carters
forseta í gær.
Þá var frá því skýrt í Stokk-
hólmi í dag að hækkun marksins
kæmi til með að hafa lítil áhrif á
sænsku krónuna og útflutning
Svía. Hins vegar ákváðu Austur-
ríkismenn að fella skilding sinn
um einn af hundraði gagnvart
þýzka markinu vegna hækkunar
marksins.
Flokkur
Strauss
enn í
meirihluta
Miinchen. 16. okt. Reuter — AP.
FLOKKUR Franz Jósefs Strauss,
Kristilega sósíalsambandið (CSU),
hélt völdum sínum á þingi Bæjara-
lands í kosningunum til þingsins í
gær. Hlaut flokkurinn 59,1 af
hundraði atkvæða, en úrslit kosn-
inganna eru þó fyrst og fremst
talin vænka hag Helmut Schmidts
kanzlara því stjórnarflokkarnir
minnkuðu þingmeirihluta CSU í
Bæjaralandi.
Samkvæmt endanlegum úrslit-
um tapaði CSU þremur af hundr-
aði atkvæða miðað við kosningarn-
ar 1974, en þá hlaut flokkurinn
62,1 af hundraði atkvæða.
Jafnaðarmenn juku fylgi sitt frá
1974 um 1,2 af hundraði, en þeir
hlutu 31,4 af hundraði atkvæða í
kosningunum í gær. Frjálsir
demókratar hlutu 6,2 af hundraði
sem er fylgisaukning um einn af
hundraði frá 1974. Óttast hafði
verið að flokkur frjálsra demó-
krata þurrkaðist út af þingi
Ræjaralands.
I kosningunum í gær hlutu
kommúnistar og nýnasistar innan
við einn af hundraði atkvæða.
Sjö komust
á Mount
Everest
Katmandu. Nepal.
16. okt. - AP.
ÞRÍR Vestur-Þjóðverjar, þrír
Frakkar og einn Austurríkis-
maður náöu tindi Mount Ever-
est, hinum hæsta í heimi, um
helgina. Þetta eru fyrstu
Frakkarnir sem komast á tind-
inn sem er 8.848 m hár og
komust þeir upp á sunnudaginn
og með þeim var austurrískur
Ijósmyndari frá Salzburg. A
laugardaginn höfðu Vest-
ur-Þjóðverjarnir þrír náð tind-
inum.
Af þessum sjö mönnum var
einn þeirra frönsku elztur allra
þeirra sent komist hafa á
Mount Everest, 49 ára gamall.
Mennirnir voru allir félagar í
sama hópnum sem skipaður var
einvörðungu Þjóðverjum og
Frökkum. Þann 11. maí sl.
komst f.vrsti Vestur-Þjóðverj-
inn á tindinn.
Nýr forseti
kjörinn í
Brasilíu
Brasilia. Brazilía. 16. okt. AP.
JOAO Baptista Figureiredo.
fyrrverandi hershöfðingi. var
um helgina kosinn forseti
Brasilíu. Ilann er fimmti
forseti Brasiltu úr riiðum
hersins á fjórtán árum. Figur-
eiredo er sextugur að aldri og
bar sigurorð af öðrum hers-
höfðingja og er talið hafa
ráðið mestu að fráfarandi
forseti. Ernesto Geisel. studdi
hann og sótti mjög fast að
hann yrði kjiirinn. Hann tekur
ekki við embætti fyrr en í
marz n.k. Hann hefur heitið
þvt. að almennar forsetakosn-
ingar fari stðan fram í landinu
t lok sjö ára kjörtímabiis hans.
Theodorakis
fékk rúm 16% í
borgarstjóra-
kosningum
Aþonti 16. ukt. AP.
ENDURTAKA verður víða t
Grikklandi bæjar- og sveitar-
stjórnarkosningar vegna þess
hve niðurstaða í kosningunum
á sunnudaginn var óljós. Mjög
lítil kjörsókn var og víða í
stórum kjördæmum greiddi
rétt rúmlega helmingur
atkvæðisbærra manna atkvæði.
Sérfræðingar segja að niður-
staðan í kosningunum sé ákveð-
in vísbending um hver sé
styrkur og staða stjórnarinnar.
Víða fóru kosningar svo að
enginn frambjóöenda fékk til-
skilinn meirihluta og verður að
greiða atkvæði á ný, gerðist það
til dæmis í Píreus, næst
stsérsta kjördæmi Grikklands.
Það vakti þó athygli þar að
Skylitsis sem var borgarstjóri
þar við miklar vinsældir meðan
herforingjastjórnin sat að völd-
um og þar til hún féll 1974,
hafði fengið flest atkvæða eða
um 48'Æ .
Utan Grikklands var víða
beðið með eftirvæntingu eftir
úrslitum í borgarstjórnarkosn-
ingunt í Aþenu þar sem tón-
skáldið Mikis Theodorakis bauð
sig fram. Hann hlaut 16.37%
atkvæða en þeir tveir sem flest
atkvæði fengu tnunu leiða hesta
sína saman næsta sunnudag.
Plytas, fulltrúi flokks
Karamanlis, Nýja lýðræðis-
flokksins, fékk flest atkvæði
eða um 40% og næstur honum
Beis, sem studdur var af
PASOK-flokki Papandreus og
ýmsunt hópum kommúnista.