Morgunblaðið - 26.10.1978, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1978
Háhymingam-
ir í hrakning-
um í Winnipeg
Kerin láku og rafkerfi Boeing-þotunnar sló út
FLUTNINGUR á háhyrningunum sex vestur til San Diego í
Bandaríkjunum gekk ekki alveg klakklaust fyrir sig. Boeing-þota
Flugfélagsins, sem háhyrningana flutti, hafði nývcrið tekið sig á loft
frá Winnipeg, þar sem hún millilenti. þegar rafmagn fór skyndilega af
vélinni, svo að Bragi Nordahl flugstjóri ákvað að lenda þegar í stað
aftur í Winnipeg. Við athugun þar kom í ljós að leki var í kerjum þeim
sem háhyrningarnir voru í og hafði raki komizt í rafkerfi vélarinnar.
Morgunblaðið náði í gær tali af
Jóni G. Steindórssyni flugstjóra
sem flaug vélinni fyrsta áfangann
frá íslandi til Winnipeg, en hann
fylgdist með viðgerðinni í Winni-
peg. Jón sagði, að svo virtist sem
öll kerin hefðu lekið meira og
minna, því að bæði hefði verið
töluvert mikið í sumum kerunum
og þau ekki nægilega góð.
„Það var skömmu eftir flugtak.
Fiskur fcest
án miUitiða
-og fisksalar mótmæla
í BíEJARRÁÐI Ilafnarfjarðar
hcfur verið lagt fram bréf Fisk-
salafélags Reykjavíkur og
Ilafnarfjarðar. þar sem því er
mótmælt að yfirviild skuli leyfa
að sjómenn og jafnvel aðrir selji
fisk þarna á götum úti. Kom fram
í bhéfinu að fisksalar telja að
þessi verzlun hafi dregið frá þeim
viðskipti.
Bæjarráð vísaði þessu erindi til
umsagnar heilbrigðisráðs. Tölu-
vert hefur veriö um það að
Hafnfirðingar og íbúar úr
nágrannabyggðunum geri sér ferð
í suðurhöfnina í Hafnarfirði, þar
sem smábátarnir eru og kaupi þar
fisk við bátshlið. Þarna hefur
þannig verið að myndast vísir að
fiskmarkaði. Morgunblaðið spurði
Árna Grétar Finnsson, bæjarráðs-
mann í Hafnarfirði, hvort hann
teldi að banna ætti þessa verzlun,
en hann svaraði því til að honum
þætti fiskverzlunin í suðurhöfn-
inni lífga upp á bæjarbraginn,
hann hefði gaman af þessu og saéi
ekki ástæðu til að amast við því.
að rafmagnið sló út,“ sagði Jón.
„Það var þá orðið bjart, svo að það
skapaðist aldrei nein hætta af
þessu og Bragi lenti strax aftur í
Winnipeg. Við byrjuðum þá strax
að reyna að finna út úr þessu og þá
kom lekinn í ljós.“
Jón kvað vera búið að þurrka öll
tæki vélarinnar, þar sem slegið
hafði saman, og búið væri að tæma
öll kerin, og þar sem þeir treystu
ekki kerunum lengur hefði verið
afráðið að setja ís í stað vatnsins.
Jón sagði, að fulltrúar sædýra-
safnsins bandaríska vikju ekki frá
skepnunum, sem ekki hefði orðið
neitt meint af þessum hrakning-
um.
Jón sagði, að hann vonaðist til
að flugvélin gæti lagt af stað á
nýjan leik innan 2—4 tíma (klukk-
an var um áttaleytið þegar Mbl.
náði tali af honum í gærkvöldi) en
að sjálfsögðu myndi vélin ekki
verða hreyfð nema það sýndi sig
að öll tæki og búnaður virkaði eins
og vera bæri. Flugið frá Winnipeg
til San Diego tekur innan við 4
klukkustundir.
Öldruð kona fyr-
ir bíl á Akranesi
UMFERÐARSLYS varð á Akranesi í
gær um kl. 18.45 og slasaðist þar
kona um sjötugt töluvert alvarlega.
Slysið varð með þeim hætti að
verið var að hleypa fólki úr fólks-
flutningabíl og gekk konan út á
götuna en um leið kom bifreið
aðvífandi og varð konan fyrir henni.
Ær og lömb úr
Rangárvalla-
sýslu fundust
við eftirleit í
Mývatnssveit
BJORK, Mývatnssveit, 25. okt.
— I gær var gerð eftirleit í
Grafarlönd og Herðubreiðar-
lindir. Alls fundust 8 kindur, 4
voru úr Mývatnssveit, eitt lamb
úr Bárðardal og ær með tvö
lömb frá Þjórsártúni í Rangár-
vallasýslu. Lömbin voru vel
væn og virtist svo sem þau
hefðu gengið á sæmilegu landi í
sumar. Til fróðleiks geta menn
svo dundað við að gizka á hvað
þessi ær og lömb hafa gengið
marga kílómetra á liðnu sumri.
Haft var samband við eiganda
ærinnar. Ölvi Karlsson oddvita
í Þjórsártúni og að hans beiðni
var ánni og lömbunum slátrað
á Húsavík í dag. — Kristján.
Verið að koma kerjunum fyrir um borð í þotuna, en þau reyndust ekki nægilega
traust þegar til kom.
Miög góð loðnuueiði
MJÖG góð loðnuveiði var síðasta
sólarhring á miðunum útaf Horni
cnda veður gott. 10 skip höfðu
tilkynnt loðnuncfnd afla um
hádegið í ga'r, samtals 7000
lestir. og í gærkvöldi höfðu
nokkrir bátar tilkynnt að þeir
væru að fylla sig og myndu halda
til hafnar, en ekki var vitað
nákvæmlega um afla þeirra.
Bátarnir, sem tilkynntu afla í
gær, voru Örn 550 lestir, Gísli
Árni 630, Fífill 580, Árni Sigurður
800, Börkur 1100, Hákon 750,
Víkingur 1350, Ársæll 430, Helga
Guðmundsdóttir 300 og Rauðsey
510. Þessir bátar voru í þann
veginn að fylla sig af loðnu í
gærkvöldi og halda til hafnar:
Huginn, Harpa, Bergur II, Pétur
Jónsson, Kap II og Sigurður.
Hæstu bátarnir á sumar- og
haustloðnuvertíðinni eru nú þess-
ir, miðað við hádegi í gær: |,,slir
Siguróur RE 13.850
Btirkur NK 11.920
Pútur Jónsson RE 10.125
C.ísli Árni RE 10.225
Loftur Haldvinsson EA
Víkingur AK
Skarrtsvík SIl
Súlan EA
Hákon l»ll
Bjarni Ólafsson AK
10.010
9.880
9.175
9.350
9.320
9.100
HilmirSU
Eldhorg Í«K
Örn KE
(ii'gja RE
(•rindvíkingur (ÍK
Huginn VE
8.830
8.800
8.580
8.550
8.550
8,170
Samningsréttar-
nef ndin skipuð
SKIPUÐ hefur verið nefnd full-
trúa opinberra starfsmanna og
rikisvalds til þess að fjalla um
endurskoðun samningsréttar
opinberra starfsmanna, og er
nefndarskipun þessi í samræmi
við ákvæði í samstarfsyfirlýs-
ingu. Af hálfu ríkisstjórnarinnar
er lögð áherzla á að starfi
ncfndarinnar verði hraðað þann-
ig að unnt verði að ganga frá
gcrð nýrra kjarasamninga við
opinbera starfsmenn fyrir 1.
Úraþjófur í
gæzluvarðhald
desember nk„ að því er kemur
fram í fréttatiikynningu frá
fjármálaráðuneytinu.
Leitað var eftir tilnefningum
um fulltrúa í nefndina og á
grundvelli þeirra hafa eftirtaldir
menn verið skipaðir í nefndina. Af
hálfu ríkisstjórnarinnar Arn-
mundur Backmann, Eiður Guðna-
son og Benedikt Sigurjónsson
tilnefndir og er Benedikt jafn-
framt formaður nefndarinnar. Frá
BSRB eru þeir Kristján Thorlac-
ius, Albert Kristinsson, og Einar
Ólafsson, frá BHM Hrafn Braga-
son og frá Sambandi ísl. banka-
manna Sveinbjörn Hafliðason.
RANNSÓKNARLÖGREGLA
ríkisins upplýsti í fyrrinótt úra-
og skartgripaþjófnaðinn f
Hafnarfirði.
Reyndist 26 ára gamall Hafn-
firðingur hafa verið þarna að
verki. Hann viðurkenndi afbrot
sitt og vísaði á þýfið og komst það
mest allt til skila, en verðmæti
þess var um tvær milljónir, eins og
fram kom í Mbl. í gær. Rannsókn
málsins er ekki lokið og var
þjófurinn úrskurðaður í allt að 7
daga gæzluvarðhald í sakadómi
Hafnarfjarðar í gærkvöldi.
Stjómmálaflokkar ósammála
um fjárlagafrumvarpið
EKKERT samkomulag er milli stjórnarflokkanna um fjárlaga-
frumvarpið, sem fyrirhugað er að leggja fyrir Alþingi á
mánudag. Mun vera ákveðið að flokkarnir fjalli ekki frekar um
gerð þess áður en það verður lagt fram, heldur verði rætt um
gerð þess í þinginu sjálfu. Slíkt sem þetta hefur aidrei fyrr gerzt
og mun frumvarp þetta nánast vera frumvarp eins flokks,
flokks fjármálaráðherra. Framsóknarflokksins.
í gær hafði Morgunblaðið
spurnir af því að þingflokkur
Alþýðubandalagsins hefði ætlað
að samþykkja formleg mótmæli
við vinnubrögðum við gerð
frumvarpsins og hvernig að
henni hafði verið staðið. Al-
þýðuflokkurinn hefur hins vegar
mikilvægar athugasemdir að
gera við frumvarpið og telur sig
alls ekki geta samþykkt ýmsa
liði þess, svo sem eins og þann
útgjaldalið, sem renna á til
landbúnaðar og þann tekjulið,
sem er skattlagning.
Sá liður er
að vísu talsvert opinn, en
þingmenn Alþýðuflokksins telja
tekjuskattsálögur fraumvarps-
ins allt of háar.
Ýmsir þingmenn stjórnarliðs-
ins hafa þungar áhyggjur af
þeirri málsmeðferð, sem fjár-
lagafrumvarpið á að fá —
þ.e.a.s. að flokkarnir gangi ekki
frá ágreiningsmálum sínum,
fyrr en opinber umræða um
frumvarpið er hafin og það
hefur verið birt. Telja þeir að
ágreiningur um efni þess sé svo
djúpstæður, að þingið lendi í
ógöngum við afgreiðslu fjárlaga.
I frumvarpinu er m.a. gert ráð
fyrir míkilli skuld ríkissjóðs við
Seðlabankann. Alþýðuflokks-
mönnum hrýs hugur við því
atriði, en Alþýðubandalags-
menn telja það ekki verulegan
ásteytingarstein, unnt sé að
brúa bilið með aukinni seðlaút-
gáfu — eins og einn viðmælenda
Morgunblaðsins orðaði það.
Einkenni frumvarpsins mun
vera, að á flestum liðum er ekki
um neinn niðurskurð útgjalda
að ræða. Hvorki Alþýðuflokks-
menn né Alþýðubandalágsmenn
munu líta á frumvarpið sem sitt
frumvarp, það sé aðeins frum-
varp fjármálaráðherrans,
Tómasar Árnasonar.
Nýir forsvars-
menn BÚH ráðnir
Ráðinn hefur verið nýr forstjóri og
einnig aðstoðarforstjóri að Bæjarút-
gerð Hafnarfjarðar. Nýi forstjórinn
er Björn Olafsson, verkfræðingur,
sem hefur sérmenntun á sviði
fiskiðnaðar. Hann er Hafnfirðingur
að uppruna, sonur Ólafs heitins
Elíassonar, sem lengi veitti Lýsi &
Mjöli í Hafnarfirði forstöðu. Að-
stoðarforstjóri og skrifstofustjóri
BÚH hefur verið ráðinn Björgvin
Hermannsson, sem einnig er Hafn-
firðingur og sonur Hermanns Guð-
mundssonar, fyrrum formanns
Verkalýðsfélagsins Hlífar og fram-
kvæmdastjóra ISI.
Mál Vísis og
Dagblaðsins til
ríkissaksóknara
RANNSÓKN verðlagsdóms á kæru
verðlagsskrifstofunnar vegna
meintrar ólöglegrar hækkunar Vísis
og Dagblaðsins er lokið og hefur
málið verið sent ríkissaksóknara að
sögn Sverris Einarssonar sakadóm-
ara. Mun embætti hans taka afstöðu
til þess hvort blöðin verða ákærð
fyrir brot á verðlagslögunum.