Morgunblaðið - 26.10.1978, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1978 7
„Alþýðubanda-
lag karla“
AlÞýöubandalagið er
mikill línuflokkur í peim
skilningi, að Þar eru
menn önnum kafnir viö
aö draga „stefnumót-
andi“ linur um allt milli
himins og jarðar, bæði
inn á við og út á við, pótt
reynslan hafi á hinn
bóginn sýnt, að í verki
hafi Því miður tekizt að
halda sitt strik. Þannig
hefur verið hamrað á Því
undanfarin ár, að í Al-
Þýöubandalaginu eigi
konur jafnauövelda leið
til frama og karlmenn, —
en verkin sýna merkin:
„Öll skilyrði voru fyrir
hendi til aö auka opinber
áhrif kvenna í samræmi
við stefnu flokksins. Þau
tækifæri hefur AlÞýðu-
bandalagið látið ónotuö,“
eins og segir í yfirskrift
greinar í Þjóðviljanum í
gær, sem ber fyrirsögn-
ina „AlÞýðubandalag
karla“ og er rituð af tveim
einstaklingum, sem nota
tækifæriö til Þess að
harma Það sérstaklega,
að ekki sé „búið að koma
á sósíalisma á Íslandi".
Með hliðsjón af Því
verður skiljanlegt Það
ofstæki, sem felst í um-
mælum eins og Þeim, að
„aukin opinber áhrif
kvenna innan hægri
flokks séu einatt gagns-
iítil, Þar sem Þær setji
ekki jafnréttisbaráttu
kvenna í víðara Þjóð-
félagslegt samhengi"
o.s.frv. Þvílíkt viðhorf
opinberar einungis, aö
fyrir marxistum er jafn-
réttisbarátta kvenna al-
gjört aukaatriöi hjá hinu,
aö nota jafnréttisbarátt-
una sem slíka sér til
pólitísks framdráttar
undir fölsku yfirskini.
Þetta er viðlíka
merkingarfölsun eins og
Þegar marxistar og Al-
Þýðubandalagsmenn
nota orðið Þjóðfrelsi til að
lýsa ástandinu í Sovet-
ríkjunum eða Kambódíu.
Og svo byrjar
raunatalan
Einstaklingarnir í Þjóð-
viljanum rökstyðja grein
sína um kvenfyrirlitningu
AlÞýðubandalagsins
mörgum dæmum, og
skulu nokkur tilfærð hér:
„Með tillítí til Þess, að
konur áttu tvímælalaust
drjúgan Þátt í glæsileg-
um kosníngasigri Al-
Þýðubandalagsins í
Reykjavík, virtist liggja
nokkuð beint við að kona
yrði kjörin forseti borgar-
stjórnar. Það tækifæri lét
AlÞýöubandalagiö ónot-
að.“
„Snúum okkur Þá aö
alÞingiskosningunum. Á
framboðslistum AlÞýöu-
bandalagsins skipuðu
konur fimmta hvert sæti
Þar sem fæst var, en
Þriðja hvert sæti Þar sem i
hlutfallið var hæst. í
Þessu efni var Þó um enn
meiri sýndarmennsku aö
ræða en í sveitarstjórnar-
kosningunum, Því að af
Þeim 29 konum sem
skipuðu framboðslista
flokksins var aðeins ein
sem hafði raunhæfa
möguleika á Því að ná
kjöri.“
„Ekki heföi mátt minna
vera en að eitt ráðherra-
sæti í níu manna vinstri
stjórn væri skipað konu.
Það tækifæri lét AlÞýöu-
bandalagið ónotað."
„í höfuðvígi AlÞýöu-
bandalagsins, Neskaup-
stað, virðist karlaveldi
vera mest; Þar var aöeins
ein kona í sex efstu
sætum listans."
„Eða Þjóðviljinn sjálfur.
Lengi hafa konur starfað
viö Það blað og e.t.v.
aldrei fleiri en núna. En í
hvert skipti sem Þurft
hefur að ráða nýja rit-
stjóra eða fréttastjóra —
og Þess hefur Þurft æði
oft síðustu árin — hafa
karlar verið ráðnir í störf-
in, Þó að völ væri á
færum konum. Einnig Þar
hefur AlÞýðubandalagið
látið tækifærið ónotaö."
Þessi ummæli lýsa öll
vonbrigðum einstaklinga,
sem hafa tekið yfirlýsing-
ar og áróður AlÞýðu-
bandalagsins og Þjóðvilj-
ans alvarlega, — trúað
Þeim eins og nýju neti og
munu ugglaust halda
áfram að gera Það. Út af
fyrir sig er tilbreytíng að
Þesa greinar eftir fólk,
sem Þannig er hugsandi.
Lúxusskatt-
arnir og ungu
mennirnir
Enn er orð á Því haft,
hvað ungu Þingmennirnir
í AlÞýðuflokknum tóku
sig vel út fyrir framan
kosningaspegilinn í vor,
eins og Þar væri pólitísk-
ur Clark Gable í hverju
kjördæmi. Og vitaskuld
höfðu peir mikið
aðdráttarafl, ekki sízt Þar
sem kjósendum sýndust
Þeir í fljótu bragöi hafa
öðru vísi bros en gömlu
Þingmennirnir, sem Þeir
voru svo vanir.
En tíminn er stundum
fljótur að líða, — og í
pólitískum næðingum
máist glansinn stundum
furöu fljótt af.
Nú er svo komið fyrir
hinum ungu Þingmönn-
um AlÞýöuflokksins.
Þannig má taka Það til
dæmis, hver viðbrögð
Þeirra hafa orðið við
hinni ósvífnu hækkun
beinu skattanna. í
staðinn fyrir að standa
við gefin fyrirheit í Þeim
efnum, eru Þeir nú orðnir
sérstakir talsmenn Þess,
að „lúxus“-skattar veröi á
ný teknir upp hér á landi
til viöbótar skattavið-
aukunum og Þannig tekin
upp haftastefnan frá Því
fyrir viðreisn. Inni i Þess-
um „lúxus“-varningi eru
vörur eins og hljómplötur
eöa salernispappír, svo
að nokkuð sé nefnt úr
aldeilis furðulegri upp-
talningu.
Er ekki ástæöa til að
vekja athygli á pví í
Þessu sambandi, aö ein-
mitt undir slíkum
kringumstæðum hefur
neðanjarðarhagkerfið
hans Vilmundar dafnað
bezt? Það er í slíkum
jarðvegi sem smygl og
svartur markaður festir
rætur, svo aö um munar.
Hentug fyrir skóla og
heimaverkefni
Vatnsþéttur
krossviður
nýkominn
Stæröir: 122x244 cm.
Þykktir: 4 — 9 — 12 — 15 og 18 mm.
Á mjög hagstSeöu verði.
áTá Timburverzlunin
Volundur hf.
KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19, SIMI 85244
Geldinganes
Veröur smalaö laugardaginn 28. október og
veröa hestar í rétt kl. 9—10.
Hestaeigendur sem eru meö hesta sína þar, eru
beönir aö flytja þá í annað hagbeitarland á
Kjalarnesi. Bílar veröa á staönum til flutninga.
Hestamannafélagiö Fákur.
Sími 83211
Stjórnunarfélag Islands
Hvað er stjórnun
Stjórnunarfélag íslands gengst fyrir
námskeiði í STJÓRNUN I, dagana
30., 31. okt. og 1. nóv. að Hótel
Esju. Námskeiðið stendur dag hvern
frá kl. 15—18.45.
Fjallað verður um:
— Stjórnskipulag fyrirtækja
— Stjórnunaraðferðir
— Setningu starfsmarkmiða.
Námskeiðiö er ætlaö þeim sem vilja
kynnast nútíma stjórnunarháttum og
stjórnskipulagningu fyrirtækja.
Leiöbeinendur verða rekstrarhag-
fræöingarnir Hans Kr. Árnason og
Stefán Friðfinnsson.
Allar nánari upplýsingar og skráning
þátttakenda fer fram á skrifstofu
Stjórnunarfélags íslands aö Skip-
holti 37, sími 82930.
Hringiö og biðjið um aö fá sendan
ókeypis kynningarbækling um
Stjórnunarfræöslu SFl.
BOSCH raf geymar
Verið tílbúin í vetrar-
kuldum og frostum.
Öruggari gangsetning
með BOSCH rafgeymi.
BOSCH
BRÆÐURNIR ORMSSON %
LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820