Morgunblaðið - 26.10.1978, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 26.10.1978, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1978 t Faöir okkar, tengdafaöir og afi, BESSI GÍSLASON frá Kýrholti, sem andaöist 19. október veröur jarösunginn frá Viðvíkurkirkju, laugardaginn 28. október kl. 2 e.h. Börn, tengdabörn og barnabörn. t Móöir okkar og tengdamóöir, SARA HERMANNSDÓTTIR, er iézt 18. október í Vífilsstaöaspítala veröur jarösungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 27. október kl. 13.30. Erla H. Þorsteinedóttir, Þoreteinn Siguröeeon, Margrét Þorsteinsdóttir, Benedikt Bachmann. t Útför HELGA ÞORVARDARSONAR, aóstoöarlyfjafraeóings, Grettisgötu 86, veröur gerö frá Fossvogskapellu föstudaginn 27. október kl. 10.30. Fyrir hönd vandamanna, Listasafn íslands. Útför ADOLFS KARLSSONAR, framkvmmdastjóra, Eskihlíó 26, fer fram frá Dómkirkju Krists Konungs, Landakoti, laugardaginn 28. október kl. 10.30. Blóm vinsamlegast afþökkuö, en þeim sem vildu minnast hans er bent á Minningarsjóð Landakotskirkju. Fyrir hönd systkina og vandamanna, Garóar Karlsaon, Erla Einarsdóttir. + Eiginmaöur minn, sonur, faöir, tengdafaöir og afi, EIRÍKUR GUÐLAUGSSON, frá Meióastöóum, Hagaflöt 3 veröur jarösunginn frá Garöakirkju föstudaginn 27. október kl. 10.30. Aóalheióur Halldórsdóttir, Björg Erlendsdóttir, Björg Eiríksdóttir, Sigríóur Eiríksdóttir, Guórún Eiríksdóttir, Guðlaugur Eiríkason, Ásta Ellen Eiríksdóttir, tengdasynir og barnabörn. t Maðurinn minn ANDRI HEIÐBERG, flugmaóur, Laufáavegi 2A, verður jarösunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 27. október kl. 10.30 f.h. Fyrir hönd móöur, systkina, barna og barnabarna Elfn Högnadóttir. t Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaðir og afi, SVAVAR KR. KRISTJÁNSSON, veitingamaóur, írabakka 8, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 27. október kl. 13.30. Ingibjörg Sumarlíóadóttir, Garóar Svavarsson, Halla Júlíusdóttir, Hreiðar Svavarsson, Erla Bjarnadóttir, Edda Svavarsdóttir, Björn Þorsteinsson, Sunna Hildur Svavarsdóttír, Helga Nína Svavaradóttir, Svava Björg Svavarsdóttir, og barnabörn. Bjarni Andrésson kennari -Minning Fæddur 16. soptombor 1017 Dáinn 16. október 1978 Klaðr ok reifr skyldi Kumna hverr. unz sinn híðr hana. (Hávamál) Hefði éjí beðið Bjarna Andrés- son að velja sér eftirmæli, tel ég fullvíst að þessi myndi orðanna hljóðaii hafa verið. Hann hugsaði svona og hann lifði svona meðan leiðir okkar lágu það nálægt að hvort okkar vissi um hitt, það er þannig sem ég man hann. Það var stórkostlegt að eiga frænda- og vinahópinn í Brekkudalnum þar sem Bjarni fæddist 16. sept. 1917. Hann var elsta barn foreldra sinna en þau voru sjö og hann það fyrsta sem kveður. Hann var sonur Andrésar J. Giiðmundssonar og konu hans Soffíu Ásgeirsdóttur, hún var ættuð úr Bolungavík en Andrés fæddur á Brekku, sonur Guðmundar Jenssonar skiptstj. og konu hans Jónínu Jónsdóttur. I foreldrahúsum ólst hann upp og leiddi systkinahópinn. í eldhúsið hjá Soffíu var gott að koma. Þar var oft þröngt á þingi, en aldrei þraut kleinurnar úr kassanum og margur góður bitinn borinn börn- unum og hverjum er að garði bar. Sú saga lifir nú í minningu okkar sem komum þarna oft og hún lifir í manndómi þessara barna og afkomendum þeirra. Það er sagan, sú síðasta á undan hraðanum og hávaðanum. Það var fagurt vor í lofti á fjórða áratugnum í Dýrafirði, á þriðja tug unglinga og ungs fólks lék þar við lömb og stekk. Silungur synti í ánni og söngfuglar kvökuðu í mó. Allt var þetta fólk náskylt og ættingjar, fætt í dalnum og stutt á milli bæja. Ég held jafnvel að þar hafi margur lítt gert sér grein fyrir hvort hann var heima eða heiman. Þar var margt brallað, mikið talað og hlegið. Á þessum ljúfu árum dvaldi ég þar hjá ömmu minni og var tekin í hópinn sem innfædd. Það eru 40 ár síðan, langur tími af mannsævh Engan veginn gæti ég sagt að ég gæti gert upp þennan hóp eða sundurgreint hvað það er sem gerir minninguná svo ljúfa þegar þessi óvænti dauðdagi leitar fast á hana, og ég spyr hvers vegna sakna ég Bjarna. — Jú, við urðum einmitt samferða úr Núpsskóla þessa haustdaga fyrir réttum 40 árum. Við vorum valin sem húsbændur í nemenda- búðunum. Við skiptumst á meiningum og jafnvel svo að þaut í skjánum, en hversu gott var ekki að finna að við vörum ekki bara með sameiginlega ábyrgð, heldur líka sannir vinir. Svo skildu leiðir. Hann hélt til lengra náms, lauk kennaraprófi 1943 og hóf kennslu á Varmalandi í Borgarfirði, síðar við barna- og miðskóla Stykkishólms og Ólafs- víkur. Hann tók einnig íþrótta- t Þökkum hjartanlega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför mannsins míns, föður okkar, tengdafööur og afa, SIGURDAR JÓHANNSSONAR, Hraunba 51. Sylvía Sigfúsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. Hann var félagslyndur og átti gott með að láta meiningu sína í ljós. Veitti formennsku tveim UMF á Snæfellsnesi og stjórnaði karlakór Stykkishólms frá stofnun hans. Það var ríkur eðlisþáttur Bjarna að syngja, kannski er það söngurinn sem við munum lengst, úr hópnum í dalnum. Bjárni söng allan daginn úti og inni og rödd hvans var falleg og einkar blíð. Hann lagði mikla alúð við að samræma lag og texta. Hann söng með karlakórnum Þresti á Þing- eyri og er mér minnisstætt hvað við vorum stolt af honum, þessi næstum móabarðahópur, sem stukkum um tún og engi án þess að ígrunda mikið listir og menningu. Atorka og áræði Bjarna var það svar sem hann veitti óvenju fjölbreyttum hæfileikum sínum og hann lét aldrei sitja við orðin tóm. Þessi ár í Brekkudalnum gleymast aldrei svo fögur og hrein voru þau. Kannski voru þau samt svana- söngur dalsins, þótt börn væru enn að fæðast þar og elskendur horfðu fram á veginn. Þá syrti í loft 11. mars 1941 og dauðinn hjó stórt skarð í hópinn og „vættunum góðum féllust hendur“. Þeir sem ekki dóu fóru smátt og smátt í burtu og í dag er dalurinn auður og einn. Búseta er þar nú engin. Grösugur, gjöfull og fagur fæddi hann og ól stóran hóp af mann- dómsríku fólki. Kanski er það þannig að andlát Bjarna ýfir líka upp óm þeirra strengja, sem óneitanlega bresta smátt og smátt, þegar maður hugsar til fyrri tíma og hefur fylgst með hinum nýju sem skera þvert. á hina alla. Enginn gleymir kvöldfegurðinni þegar sólin flaut rétt yfir Arnarnúpinn og hneig við hafsbrún í mynni Brekkudalsins. Það er fegurðin eins og sólarlag getur orðið best á Islandi. Sá sem úti var á slíkri stundu hljóp oft í bæinn og sagði „sjáið þið“ og aldrei sat ég af mér að fara út. Ekki finnst mér neitt dularfullt við það að hugsa sér að einmitt þannig beri að líta á þau umskipti sem við köllum dauða. Sólin hnígur til viðar og þá kemur myrkur yfir það líf sem hún vermdi um daginn. En hún heldur áfram og er áfram til, tekur að verma nýjar lendur. Sálin sem unni og vermdi það líf sem hún tengdist fastast hún hlýtur að verða áfram til eins og sólin. Á nýjum morgni kemur hún upp, annað væri ekki raunhæft, þá skín hún á ný. Nóttin er okkur öllum jafnvel mismunandi löng, mismunandi erfið og köld en morguns verðum við að bíða eigi að síður. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför EINARS KÁRA SIGURÐSSONAR, Háholtl, Sérstakar þakkir til allra þeirra, sem styrktu okkur á elnn eöa annan hátt í veikindum hans. Guö blessi 7kkur' Margrét Steinþöradóttir og börn, Siguröur Einarsson, Ellen Stafánsdóttir, og systkini hins látna. t Fósturmóöir mín og systír okkar, JÓFRÍÐUR JÓHANNESDÓTTIR, Suöurgötu 45, Hafnarfirði, veröur jarösett frá Þjóökirkjunni í Hafnarfiröi, föstudaginn 27. okt. kl. 14. Guömundur E. Bryde, Steinunn Jóhannasdóttir, Ragnar Jóhannasson, Guömundur Jóhannasson. Bjarni Sigurður Andrésson kvæntist 21. sept. 1946 eftirlifandi konu sinni Guðrúnu Emilsdóttur Vestfjörðs, bónda að Hóli í Tálknafirði. Börn þeirra eru 6 og af þeim tvö látin en fjögur á lífi og uppkomin. Barnabörnin voru kom- in og afi.og amma umvöfðu þau af kærleika, og þar var sól að rísa yfir akurlendi ævistarfs fyrir sín eigin börn. Starfsdag og heimilis- háttu þessara hjóna legg ég ekki á vogarskálar, enda vogar og víkur sem skildu okkur að. Hann er geymdur hjá þeim sem nutu, en ekkert veit ég ólíkara Bjarna en að dvelja um of fyrir utan það sem skyldan bauð. Sú nótt sem reynd- ist svo lengi að líða og sá morgunn sem harmafregnina bar að heimili hans, er hann kvaddi glaður og hress, hún styttist ekki og hana mælir aðeins sú stika sem felst í þreki og vilja sem hefur í heiðri það sem gefið var og notið. Hvort sem við höldum til fjalla eða hafs erum við samt á leið til einnar áttar, hins síðasta sólarlags. Sú ganga er án miskunnar en kristin trú bendir á að hennar sé von í nýjum heimi. Síðasta sumardag var hinsta kveðjustundin og kist- unni var lokað. Ferðin yfir landa- mærin var hafin. Kona hans og börn taka sína göngu og hefja sína baráttu fyrir aðlögun breyttra viðhorfa. Ég votta þeim innilega samúð mína og bið þeim styrks með þessum orðum Krists: „Ég lifi og þér munuð lifa.“ Hinum látna frænda og vini mínum flyt ég þakkir fyrir órofa tryggð og vináttu sem aldrei bar skugga á. Nína. Kveðja Bjarni Andrésson lést um aldur fram hinn 16. október s.l. og vil ég minnast hans með fáum orðum. Kynni okkar hófust er stofnað var til hjónabands með börnum okkar fyrir nokkrum árum. Ungu hjónin hófust handa um að koma sér upp húsnæði og völdu til þess stað í nágrenni við Bjarg. Þarna kom Bjarni strax til skjalana, boðinn og búinn til aðstoðar við byggingu framtíðarheimilis sonar síns og tengdadóttur. Frístundir sínar notaöi hann óspart til þess að aðstoða þau og hafði af því mikla ánægju að starfa að þessu og kom það glöggt í ljós því að yfirleitt söng hann við byggingarvinnuna. Hann gerði það heldur ekki endasleppt, því að síðustu dagana sem hann lifði vann hann við að koma upp bílskúrnum við heimili ungu hjónanna, og hafði hugsað sér að ljúka því verki næstu daga, en til þess entist honum ekki aldur. Bjarni hefir frá byrjun okkar vináttu verið mikill aufúsugestur á heimili okkar hjónanna að Bjargi, ræðinn og vakandi um þau mál sem efst voru á baugi hverju sinni. Við tengdafólkið viljum senda Guðrúnu og börnunum hugheilar samúðarkveðjur á þessum erfiðu tímamótum. Við vonum að minn- ingin um þennan ágæta dreng verði huggun harmi gegn. Ég þakka honum fyrir hönd dóttur minnar hlýju og hjálpsemi sem hann hefir látið í té henni til handa og heimili hennar hefir hann reynst henni frábær tengda- faðir alla tíð. Sveinn Guðmundsson. I dag verður jarðsunginn Bjarni Andrésson fyrrverandi skólastjóri og nú hin síðari ár byggingaeftir- litsmaður. Ég kynntist Bjarna Andréssyni fyrst, þegar byggingadeild var stofnsett við menntamálaráðu- neytið. Þáverandi ráðherra menntamála hringdi til mín og tilkynnti mér, að hann hefði ráðið Bjarna til mín sem byggingaeftir- litsmann. Bjarni heitinn kom síðan til mín og við ræddum saman og komst ég þá að raun um það, að hann hafði verið skólastjóri í Ólafsvík og hafði ekki mikla reyn af byfegingamálum. Þa^ at iciuand.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.