Morgunblaðið - 26.10.1978, Qupperneq 4
4
Börnum mínum, tengdabörn-
um, barnabörnum og barna-
barnabörnum svo og öörum
vinum og venslafóJki þakka ég
hlýhug, kveðjur og gjafir á 80
ára afmæli mínu 1. október s.l.
Sólveig Sigurðardóttir,
Gerdakoti, Ölfusi.
Þakkarávarp
Til allra er glöddu mig með
viðtölum, blómum, skeytum og
stórum gjöfum á afmælisdag-
inn 5. október.
Áskell Norödahl.
Veriö tilbúin vetrarakstri
meö vel stillt Ijós, það
getur gert gæfumuninn.
Sjáum einnig um allar
viðgeröir á Ijósum.
Höfum til luktargler, spegla.
samlokur o.fl. í flestar
gerðir bifreiða.
BRÆÐURNIR ORMSSON %
LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820
VE RZLUNIN
GEísíP"
Danskir
karra innieLnr
VANDAÐ
OG
FJÖLBREYTT
ÚRVAL
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1978
Útvarp í kvöld kl. 23.00:
I>jódlagarokk
ÞÁTTURINN Áfangar í umsjón
Guöna Rúnars Agnarssonar og
Ásmundar Jónssonar er á dag-
skrá útvarps í kvöld klukkan
23.00.
Verður þar fjallað um einn af
höfuðatburðum þeim, sem átt
hafa sér stað á þessu ári í sögu
hins brezka þjóðlagarokks. Að
sögn Guðna Rúnars er ætlunin í
framtíðinni að hafa nokkra
þætti öðru hverju um þróun og
sögu þjóölagarokksins. Rætt
verður um söngkonuna brezku,
Sandy Denny, sem síðastliðin 10
ár hefur verið eitt af stærstu
nöfnunum og átt stóran þátt í
mótun brezka þjóðlagarokksins.
Sandy Denny kemur fyrst
fram að ráði í ýmsum þjóðlaga-
klúbbum um miðbik síðasta
áratugar, en það varð upphafið
að hinu vinsæla þjóðlagarokki.
Starfaði hún sjálfstætt í byrjun,
en gekk seinna meðal annars í
Fairport Convention, sem er
eins konar brezk útgáfa af
Jefferson Airplane, einni af
vinsælustu hljómsveitum
Bandaríkjanna á þessu sviði
tónlistarinnar.
Árið 1970 stofnaði Denny
eigin hljómsveit, Fotheringay,
en leysti síðar upp þá hljóm-
sveit. 1973 gekk hún aftur í
Fairport og starfaði með þeim,
þó ekki sem fastur meðlimur
fyrr en 1974. Ákvað hún í
febrúar 1976 að byrja á nýjan
leik að vinna sjálfstætt, en það
varð ekki úr, því eins og
kunnugt er, lézt Denny fyrr á
þessu ári.
Útvarp í kvöld kl. 22.45:
Ástandið í Líbanon
Víðsjá er í útvarpi klukkan
22.45 í kvöld. Mun þátturinn
fjalla um stöðu kristinna manna
í Líbanon frá því að þjóðarsátt-
máli var gerður í Líbanon 1943.
I því sambandi verður sagt frá
ástandinu í Líbanon nú og
fjallað um yfirlýsingu Giren-
gaud utanríkisráðherra Frakka,
en hann lýsti því nýlega yfir, að
skæruliðar kristinna hægri
manna ættu sök á bardögum í
Beirút fyrir nokkru. Frakkar
hafa yfirleitt stutt kristna
hægri menn og hefur þessi
yfirlýsing ráðherrans vakið gíf-
urlega reiði meðal kristinna
manna í Líbanon. Verður fjallað
um hlut Sýrlendinga að þessu
máli, en kristnir hægri menn
báðu Sýrlendinga um að skerast
í leikinn á sínum tíma.
beir Helgi Skúlason sem Mikhail Astroff og Gísli Halldórsson sem
Vanja í leikriti Tsjekhovs „Vanja frændi“ sem hefst í útvarpi
klukkan 20.00 í kvöld.
/
Utvarp kl. 20.00 í kvöld:
„Vanja frændi
„Vanja frændi“, eftir Anton
Tsjekhov, nefnist leikritið, sem
er á dagskrá útvarps í kvöld. Er
það hið fyrsta í flokki rúss-
neskra leikrita, sm verða flutt í
vetur.
Leikurinn gerist á óðalssetri
Sérébrjakoffs eftir að hann
kemur þangað með unga konu
sína, Elenu. Bróðir fyrri konu
Sérébrjakoffs, Vanja frændi, er
miður hrifinn af þessum eigin-
gjarna og nöldursama prófessor,
en ber hlýjar tilfinningar til
konu hans. Hvorugt þeirra
skilur hugsunarhátt Vanja, og
það kemur bæði niður á þeim og
öðrum sem þau umgangast.
Útvarpið hefur áður flutt
þetta leikrit Tsjekhovs árið
1965, en öll stærri leikrit
Tsjekhovs hafa verið flutt í
útvarpinu, ýmist í heild eða
kaflar úr þeim. Einnig hafa
nokkrir einþáttungar hans verið
fluttir þar.
Helztu leikendur í kvöld eru
Helga Bachmann, Helgi Skúla-
son, Bríet Héðinsdóttir, Gestur
Pálsson og Guðrún Þ. Stephen-
sen og Gísli Halldórsson en
hann er jafnframt leikstjóri.
Þýðingu leikritsins gerði Geir
Kristjánsson, en ISyvindur Er-
lendsson flytur inngangsorð um
höfundinn.
Anton Pavlovitsj Tsjekhov
fæddist í Taganrog í Suð-
ur-Rússlandi árið 1860. Hann
lauk læknisprófi og fór að skrifa
í blöð og tímarit á námsárum
sínum. Fyrsta verk sitt,
„Platonov", skrifaði hann árin
1877—81. Síðar tók hann að
semja einþáttunga, en af þeim
er „Bónorðið“ einna þekktast.
Frægastur er hann þó fyrir
lengri leikrit sín, svo sem
„Máfurinn", „Þrjár systur“,
„Kirsuberjagarðurinn" og
„Vanja frændi", en hið síðast-
talda var frumflutt í Listaleik-
húsinu í Moskvu árið 1899.
Tsjekhov samdi einnig margar
smásögur, skoplegar í einfald- ,
leika sínum og flestar hverjar
skemmtilegar „stúdíur" mann-
gerða og þess umhverfis, sem
fólk lifir og hrærist í.
Tsjekhov veiktist ungur af
tæringu og" barðist löngum við
þann sjúkdóm, en hann lézt í
Badenweiler í Þýzkalandi árið
1904, tæplega hálffimmtugur.
utvarp Reykjavík
FIM/HTUDKGUR
26. OKTÓBER
MORGUNNINN__________________
7.00 Veðurlregnir. Fréttir.
7.10 Leikfimi. 7.20 Bæn.
7.25 Morgunpósturinn. Um-
sjónarmenns Páll Heiðar
Jónsson og Sigmar B.
Ilauksson.
(8.00 Fréttir)
8.15 Veðurfregnir. Forustu-
gr. dagbl. (útdr.). Dagskrá.
8.35 Létt lög og morgunrabb.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna.
Valdís Oskarsdóttir les sögu
sína „Búálfana” (14).
9.20 Leikfimi.
9.30 Tilkynningar. Tónleikar.
9.15 þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
10.25 Létt lög og morgunrabb
(frh.).
11.00 Verzlun og viðskipti.
Umsjónarmaður. Ingvi ^
Ilrafn Jónsson.
11.15 Morguntónleikar. Pro
Musica hljómsveitin í París
leikur „La Solitude”. sinfón-
ískan draum eftir Henri
Sauguet. höf. stjórnar /
Fílharmóníusveitin í Vínar-
borS leikur „Dauða og um-
myndun”. hljómsveitarverk
op. 24 eftir Richard Strauss.
Lorin Maazel stj.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir.
Tilkynningar. Við vinnuna.
Tónleikar.
11.10 Verndun húsa á íslandi.
borvaldur Friðriksson tek-
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Stella og aparnir
Bresk mynd um unga konu í
Vestur-Afríku. sem tekur að
sér munaðarlausa simpansa-
unga og býr þá undir lífið í
skóginum. býðandi og þulur
Ingi Karl Jóhannesson.
21.15 Kastljós
báttur um innlend málefni.
Umsjónarmaður Hclgi E.
Helgason.
ur saman þáttinn og ræðir
við Hjörleif Stefánsson arki-
tekt.
15.00 Miðdegistónleikar.
Hljómsveitin Fílharmónía
leikur „Oberon”. forleik eft-
ir Webert Otto Klemperer
stj. / Útvarpshljómsveitin í
Moskvu leikur Siníóniu f
Es-dúr nr. 1 eftir Borodíni
Gennadi Rozhdestvensky stj.
15.45 „Jóna” smásaga cftir
Pétur Ilraunfjörð. Ilöfundur
les.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Tónleikar.
22.15 Maðurinn frá Laramie
(The Man from Laramie)
Bandarfskur „vestri“ frá
árinu 1955. Leikstjóri.
Anthony Mann. Aðalhlut-
verk. James Stewart og
Arthur Kennedy.
Will Lockhart tekur að sér
að flytja verslunarvarnig til
afskekktrar byggðar í Nýju-
Mexíkó. En brátt kemur í
Ijós að það er ekki vonin um
hagnað. sem dreguc hann
þangað.
býðandi Björn Baldursson.
23.50 Dagskrárlok.
SIÐDEGIÐ
16.10 Lagið mitt. Helga b.
Stephensen kynnir óskalög
barna.
17.20 Sagan. „Erfingi Patr-
icks” eftir K.M. Peyton, Silja
Aðalsteinsdóttir les (13).
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá.
KVÖLDIÐ
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál. Eyvindur
Eiríksson flytur þáttinn.
19.40 íslenzkir einsöngvarar
og kórar syngja.
20.00 Leikrit. „Vanja frændi”
eftir Anton Tsjekhoff. býð-
andi. Geir Kristjánsson. (Að-
ur útv. 1965). Eyvindur
Erlendsson flytur inngangs-
orð. Leikstjóri. Gísli Hall-
dórsson. Persónur og leik-
endur. Alexander Serebrja-
koff / Gestur Pálsson. Elena
Andrejevna / Helga Bach-
mann. Sonja “ Bríet lléðins-
dóttir. María Vojniskij /
Ilildur Kalman. Vanja /
Gísli Ilalldórsson. Mikhail
Astroff / Helgi Skúlason.
Ilja Télégía / Karl Sigurðs-
son. Marína / Guðrún
Stephensen. Verkamaður /
Pétur Einarsson.
22.10 Spænsk tónlist. Sónata í
gömlum spænskum stfl eftir
Gaspar Cassado og Spænskir
dansar op. 5 eftir Enrique
Granados.
22.30 Veðuríregnir. Fréttir.
22.45 Víðsjá. Umsjónarmaður.
Friðrik Páll Jónsson.
23.00 Áíangar. Umsjönar-
menn. Asmundur Jónsson og
Guðni Rúnar Agnarsson.
23.50 Fréttir. Dagskrálok.
FÖSTUDAGUR
27. október 1978.
y