Morgunblaðið - 26.10.1978, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1978
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins:
Breytingatillögumarþyngja
stjómun hjáveitustomunum
BORGARFULLTRÚAR deildu nokkud um samþykkt fyrir stjórnarnefnd veitustofnana á síðasta fundi
borgarstjórnar. Það sem aðallega var deilt um var 1. gr., 2. gr. og 5. gr. í 1. gr. segir m.a. -Stjórn
veitustofnana Reykjavíkurborgar fer í umboði borgarstjómar með málefni HR, RR og VR ...“. 1 2. gr.
segir m.a. „... Einnig kjósa starfsmenn hverrar stofnunar tvo fulltrúa úr sínum hópi.
Starfsmannafulltrúar hverrar stofnunar sitja aðeins þá fundi sem fjalla sérstaklega um þá stofnun sem
þeir starfa hjá og hafa málfrelsi og tillögurétt. „Það var Adda Bára Sigfúsdóttir, sem hafði framsögu af
hálfu meirihlutans og lagði til, að tillögurnar yrðu samþykktar. Birgir ísleifur Gunnarsson (S) las síðan
bókun sjálfstæðismanna en þar segir m.a. „Vegna þeirrar tillögu að nýrri samþykkt fyrir stjórn
veitustofnana Reykjavíkur sem hér er til afgreiðslu viljum við taka fram eftirfarandi varðandi
tillögurnar í heild.
Við teljum fram komnar breyt-
ingatillögur óþarfar og einungis
til þess fallnar að gera stjórn
veitustofnana þyngri í vöfum.
Kjarni tillagnanna virðist í því
fólginn að flytja skuli fram-
kvæmdastjórn veitnanna úr
höndum borgarráðs í hendur
sérstakrar stjórnar sem heyri
beint undir borgarstjórn. Engu að
síður á stjórnin eins og stjórn-
arnefndin áður að vera ráðgef-’
andi hlutverki í veigamestu
málum gagnvart borgarráði þ.e.
gera tillögur um framkvæmdir,
fjármál og gjaldskrárbreytingar.
Raunveruleg breyting á hlutverki
og stöðu stjórnar samanborið við
stjórnarnefndar áður virðist því í
orði en ekki á borði. Með skírskot-
un til þessarar bókunar greiðum
H16688
Miklabraut
3ja herb. 76 fm góð kjallara-
íbúö. Laus fijótlega.
Hringbraut
2ja herb. góö íbúð með bílskúr.
Kelduland
3ja herb. mjög sérstök íbúö á
jarðhæö. Sérhannaðar innrétt-
ingar í stofu og svefnherb.
Holtsgata tilb. u. trév.
3ja herb. 90 fm íbúð á tveimur
hæöum. íbúöin er rúmlega tilb.
undir tréverk.
Hrauntunga
3ja herb. 90 fm góð narðhæð.
Allar innréttingar nýjar.
Kópavogsbraut
3ja herb. 70 fm risíbúð í
forsköluðu timburhúsi.
Nökkvavogur
4ra herb. 110 fm góð kjallara-
íbúð í tvíbýlishúsi.
Vesturberg
5 herb. 110 fm skemmtileg
íbúð á jarðhæð. Sér garður.
Tilb. undir trév.
Vorum að fá í sölu 2ja og 3ja
herb. íbúðir í miðbæ Kópavogs.
Ibúðirnar afhendast í okt. 1979.
Greiðslutími 20 mán. Fast verð.
Traustir byggingaaöilar. Bílskýli
fylgja íbúðunum.
Til sölu lóð í Arnarnesi.
EIGMdV
umBODiDin
LAUGAVEGI 87, S: 13837 //CiCjPjP
Heimir Lárusson s. 10399 'Vl/WO
Ingileifur Einarsson s. 31361
Ingoífur Hiartarson hdl Asgeir Thoroddssen hdl
við fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
atkvæði á móti tillögunum.
Varðandi 2. grein viljum við gera
svofellda bókun: Meirihluti
borgarstjórnar hefur nú tekið
frumkvæði í að borgarstjórn
ákveði einhliða, að starfsmenn
taki sæti í stjórn borgarstofnana
með tillögurétti og málfrelsi. I því
sambandi vakna ýmsar spurning-
ar. Hefur verið haft samráð við
Starfsmannafélag Reykjavíkur-
borgar? Hvers vegna eiga slíkir
fulltrúar ekki að fá réttindi sem
fullgildir stjórnamenn? Hvers
vegna skulu þeir vera 2 í veitu-
stofnunum, en 1 í SVR? Hvað um
upplýsingaskyldu þessara full-
trúa gagnvart starfsmönnum,
sem þeir hafa kjörið? Eiga þeir
ófrávíkjanlega að hafa rétt til
fundarsetu undir öllum kringum-
stæðum? Hafa aðrar leiðir til
áhrifa starfsmanna á stjórn og
rekstur borgarfyrirtækja verið
athugaðar t.d. samstarfsnefndir.
Þessi atriði hefur meirihluti
borgarstjórnar ekki viljað ræða á
málefnalegan hátt, heldur knúið
fram ákvörðun varðandi stjórnir
Borgarbókasafns og stjórn SVR
og nú varðandi stjórn veitustofn-
ana.
Við hefðum kosið annað sam-
starfsform og hefðum talið það
vænlegra til árangurs að stofna
samstarfsnefndir í hinum ýmsu
fyrirtækjum og stofnunum. En
fyrst þetta starfsform er valið
teljum við eðlilegra, að fulltrúar
starfsfólks sitji i stjórnunum með
fullum réttindum. Meirihluti
borgarstjórnar hefur þegar hafn-
að þeirri stefnu í borgarstjórn.
Sjáum við ekki ástæðu til að
flytja sérstaka tillögu um það hér
og sitjum hjá í atkvæðagreiðslu
um þessa grein.“ Nokkrar frekari
umræður urðu en við atkvæða-
greiðslu samþykkti meirihlutinn
sínar tillögur.
Jón Ólafsson, efnafræðingur, lengst til vinstri, nýkominn um borð í
hafrannsóknarskipið Bjarna Sæmundsson eftir að hafa tekið sýni af
kræklingunum f Hvalfirði. (ljósm. óskar Sæmundsson).
Kanna áhrif meng-
unar á sjávarlífið
AF HÁLFU Hafrannsóknarstofn-
unarinnar hefur frá því í vor verið
unnið að tilraunum, sem miða að
því að afla gagna um þungmálma í
sjó í Hvalfirði. Eru þessar tilraunir
hluti af umhverfisrannsóknum sem
Næstkomandi iaugardag þann 28.
okt. kl. 4, verður opnuð sýning
Bjarna II. Þórarinssonar í Gallerí
Suðurgötu 7. Ennfremur opnar
Bjarni sýningu í „Galleryi“, en
það er sérsmíðuð taska. Ilafa nú
þegar nokkrir sýnt verk þar.
Verk þau er Bjarni sýnir eru all
fjölbreytt að gerð. og höfða mjög
til umhverfis (environment).
Unnið er beint í náttúruna og
ásamt henni.
Bjarni stundaði nám við Mynd-
lista- og handiðaskóla íslands í
fjögur ár, útskrifaðist þaðan
vorið 1977. Þetta er fyrsta
einkasvning höfundar, en hann
hefur tekið þátt í nokkrum
samsýningum. Er hann einn af
stofnendum Gallerís Suðurgötu 7.
Sýningin er opin frá 4 — 10 virka
daga en um helgar 2—10. Sýning-
in stendur til 12. nóv.
verið er að gera í Hvalfirði vegna
tilkomu Járnblendiverksmiðjunnar
á Grundartanga. Þaö er Jón Ólafs-
son, sjóefnafræðingur hjá Ilafrann-
sóknastofnuninni, sem hefur með
þessar tilraunir að gera.
Kræklingur er ræktaður á baujum
úti í Firðinum á um 25 metra
botndýpi, en kræklingurinn er 4—5
metra undir sjávarmáli á flóði. Hann
er athugaður með vissu millibili og
fylgst með þeim breytingum sem
verða á kræklingnum og sjónum í
kring. Kræklingurinn er hafður á
þremur stöðum í nánd við verksmiðj-
una og þær upplýsingar sem fengist
hafa í ár verða notaðuar til viðmið-
unar síðar eftir að verksmiðjan
hefur tekið til starfa.
Slíkar tilraunir hafa ekki verið
gerðar hér á landi áður, en að sögn
Jóns er víða erlendis unnið að
svipuðum rannsóknum á skeldýrum
til að kanna hver áhrif mengun
hefur á sjávarlíf.
Lýsa yfir stuðn-
ingi við
stundakennara
Almennur fundur í Samfélaginu,
félagi þjóðfélagsfræðinema í Há-
skóla Islands, var haldinn 16.
október s.l., segir í frétt félagsins. Þá
segir að samþykkt hafi verið sam-
hljóða að lýsa yfir fullum stuðningi
við baráttu stundakennara við HÍ
fyrir bættum kjörum og atvinnu-
öryggi.
Fundurinn ályktaði að .kom i til
aðgerða stundakennara í baráttu
þeirra, þ.e. verkfalls, muni félagar í
Samfélaginu í einu og öllu styðja
þær.
Verslunarhusnæði
ca. 200 fm. til sölu
í verslanasamstæöu viö Hagamel.
Upplýsingar gefur Agnar Gústafsson hrl. Hafnar-
stræti 11, símar 12600 og 21750.
Ágæt skemmt-
un í Garðinum
Garði 25. okt.
í GÆRKVÖLDI fór fram í sam-
komuhúsinu kynning á verkum
Jóhanns Jónssonar. Sér Litla
leikfélagið um kynninguna sem
er tekin saman í tilefni þess, að
Jóhann varð sextugur 27. sept, sl.
Var dagskrá mjög fjölþætt og
hófst með því að Bergmann
Þorleifsson kynnti höfundinn.
Síðan var leikþáttur sem ber
nafnið Allt fyrir knattspyrnuna
sem Jóhannes Steinsson leikstýrði.
Leikendur voru fjórir, Magnús
Eyjólfsson, Ðagný Hildisdóttir,
Herbert Guðmundsson og Bragi
Andrésson, og skiluðu þau hlut-
verkum sínum með ágætum. Þá
var lesinn upp mikill fjöldi ljóða
og þess á milli söng tríóið Bót
texta eftir höfundinn. Um ljóða-
lesturinn sáu fjórar ungar konur,
Guðný Helga Jóhannsdóttir, Sig-
ríður Halldórsdóttir, Kristbjörg
Hallsdóttir og Guðrún Steinþórs-
dóttir. Tríóið Bót er skipað þremur
ungum mönnum úr Garðinum,
Torfa Steinssyni, Ómari Jóhanns-
syni og Hólmberg Magnússyni.
í lokin kom svo höfundurinn
fram, las ferskeytlur og ljóð og
söng síðan gamanvísur við góðar
undirtektir.
Að lokinni sýningu voru Jóhanni
Jóhann Jónsson
og konu hans, Ónnu Björnsdóttur,
færð blóm svo og leikstjóra
leikþáttarins Jóhannesi Steins-
syni.
Sýningin verður endurtekin
fimmtudagskvöld.
Fréttaritari