Morgunblaðið - 26.10.1978, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1978
Hafa náð tökum á vél-
Flutningaskipið Karlsey, sem notað er til að flytja þangið í
land meðan það er unnið, en siðan gert að þaraöflunarskipi.
Verksmiðjan á Reykhólum.
Panf'skurAi cr um þaA bil aA
Ijúka á þcssu sumri hjá
lúirungaverksmiAjunni á Reyk-
hólum ofí aA heljast nýr þáttur
í starfseminni. þaravinnsla. Er
þaranum náA upp meA sér-
stakri þarakló úr skipi.
UanuskurAarmenn hafa nú
náA tiikum á vélskurAi. þanniií
aA þeir stunda í sumar þan«-
sláttinn meA pramma einfjiinKu
oK hafa vaktaskipti. Skila þeir
nú 25—30 tonnum á dag aA
meAaltali eAa rúmletía þaA. sem
upphafleKa var gert ráA fvrir í
áa’tlunum um verksmiAjuna. og
einstaka gensi hafa fariA upp í
50—60 tonn á dají. I*aA hefur
orAiA til þess aA þetta verAur aA
likindum fvrsta áriA. sem
reksturshajínaAur verAur af
verksmiAjunni.
— Þetta eru auðvitaó Kjör-
hreytt viðhorf, sögðu þeir Vil-
hjálmur Lúðvíksson, stjórnar-
formaður Þörungavinnslunnar,
o>; Omar Hannesson, fram-
kvæmdastjóri, er fréttamaður
ræddi við þá uni þennan árang-
ur. Þeir kváðust vonast til þess
að framleiðsluverðmæti þessa
árs’ yrði um 300 milljónir króna
og fengjust þá í fvrsta skipti
upp í afborganir og vexti um 100
milljónir. Vaxta- og afborgana-
byrðin er, vegna erfiðleikanna,
orðin um 160 niillj. kr., en á
árinu sem er að líða náðist enn
ekki nema hluti af afkastaget-
Þaravinnsla
til viðbótar
Til viðbótar kemur svo þara-
vinnslan, sem nú er verið að
leita markaða fyrir. Tilraunir
hafa verið gerðar með öflunar-
tækni þarans og búið að smíða
nýja þarakló, sem getur aflað
þess er verksmiðjan þarf á dag.
En þarans er aflað jafnóðum á
15—20 m dýpi. Reiknað er með
að 8 tonn þurfi í hvert þurrtonn
og verksmiðjan vinni 80 tonn á
dag, að því er Ómar sagði. Er
flutningaskip Þörungavinnsl-
unnar notað til jjaraöflunar.
Fyrstu tilraunir til þaratöku á
árinu 1976 gengu erfiðlega
vegna þess að mikið Krjót kom
upp með þaranum. Með betri
útbúnaði og nýrri kló hefur
tekist að ráða bót á því og auka
afköstin. Það litla grjót, sem nú
kemur upp, er skorið í sjóinn
aftur við skipshlið. Er gert ráð
fyrir að unnið verði að þara-
vinnslu fram að jólum, ef veður
verða skapleg. Og vonast til að
(íeta byrjað aftur í febrúar, en
það fer eftir ísalögum.
Kemur þaravinnslan þá til
viðbótar þangvinnslunni. Er nú
unnið að markaðskönnun víða
um lönd og verið gerður kynn-
ingarbæklinKur. — Við erum að
leita að mörkuðum, sem geta
greitt okkur hærra verð en er á
almenna markaðinum fyrir
þaramjöl, á grundvelli þess að
Þarinn er tekinn upp með sérstakri kló af 15—20 metra
dýpi og kemur beint um borð í Karlsey, flutningaskip
þörungavinnslunnar.
Handsláttur. Meðan vélslátturinn gekk sem verst, var
þangið handskorið og prammarnir tóku svo við því og
pokuðu.
skurðinum á Reykhólum
Þaravinnsla að hefjast
unni. En við sjáum nú fram á að
það muni takast, sögðu þeir.
Vinnslan komin
í 3000 tonn
Þörungavinnslan mun nú
komin yfir byrjunarerfiðleik-
ana, sem voru fólgnir í þang-
öfluninni og því að heitt vatn
skorti. Við borun á sl. vori
fékkst nauðsyniegt vatnsmagn
fyrir verksmiðjuna er heit æð
opnaðist í borholunni á 936 m
dýpi, þegar aðeins voru eftir
tvær borstangir.
Nú, þegar búið er að ná þeirri
áætlun um jrangskurð, sem
miðað var við, er verksmiðjan
var byggð, hefur hvort tveggja
verið leyst. Er þangframleiðsla
komin upp í 3000 tonn og
reiknað með að hún fari í
4500—5000 tonn á næsta ári eða
næstu árum, sem er það magn
sem samningurinn við Skota
segir til um, en það eru tryggð
kaup á ákveðnu verðtryggðu
verði.
Þangvinnsla. Pramminn að poka þangið.
við teljum okkur vera með mjög
gott efni vegna jarðhita-
þurrkunarinnar, útskýrði Vi 1 -
hjálmur. Til dæmis er sumt af
jraranum okkar mjög auðugt af
joði. Við erum að reyna að koma
því inn á manneldismarkað sem
hráéfni í þarapillur og þaramjöl
og blandað í súpúefni og búð-
inga. Við höfum ekki áhuga á að
keppa á markaði, þar sem
þaramjölið er notað til dýraeldis
eða jafnvel til áburðar, því á því
sviði er mikið af ódýrum efnum
á markaðinum. Við vorum t.d.
að senda 6 tonn í prufusendingu
til Bandaríkjanna, ætluð í
fóðurblöndur fyrir veðhlaupa-
hesta.
Svo sem kunnugt er, gekk
þangskurðurinn erfiðlega í upp-
hafi, en nú hafa orðið á alger
umskipti, svo sem fyrr er sagt.
Fyrstu þrjú árin eða á árunum
1973—76 var árangurinn af
skurðinum alltaf að versna. En
fyrirtækið byggði á reynslu af
vélskurði erlendis frá, og vél-
tækní í þangöflun. Tilraunir frá
Kanada sýndu staðfestan árang-
ur á árinu 1973. En handskurður
var talinn óvænlegur til að
standa undir svo stóru fyrir-
tæki. Var gert ráð fvrir að vinna
mætti 23,5 tonn af þangi á dag
að meðaltali.
Þangskurðurinn
þróaðist
Meðan verksmiðjan var í
byggingu var hafinn þangskurð-
ur með einum pramma til
reynslu og fór árangur versn-
andi, allt niður í 13,5 tonn, þrátt
fyrir lengri vinnudag. Um
haustið var prömmunum vegna
þessa fjölgað og samið við,
Skotana um hækkað verð fyrir
afurðir til að standa undir
þessu. 1975 og 1976 gerðist það
furðulega, að því er Vilhjálmur
sagði, að með meiri reynslu og
lengri vinnudegi fór afkastaget-
an minnkandi, úr 13,5 tonnum á
dag niður í 8,5 tonn 1976. Þá um
haustið var byrjað á hand-
skurði, þó þannig að prammi var
notaður til að taka við og flytja
um borð í flutningaskipið.
Reynslan af því var viðunandi
og gerði stjórnin á þeim grund-
velli tiliögu um áframhaldandi
rekstur. Með þessari aðferð
skiluðu skurðarmenn 3 tonnum
á dag, á móti 1,5 tonnurn, sem
reynsla var fyrir áður, þegar
ein^öngu var handskorið.
Arið 1977 var þangskurðurinn
unninn með þessari aðferð á
vegum heimamanna og var
árangurinn kominn upp í 4,5
tonn á mann eftir sumarið.
Þáttur prammans kom þarna
inn í, en hann var nýttur til að
skera, auk þess sem hann var
látinn poka það þang, sem
handskurðarmennirnir skáru og
voru 3—4 menn um prammann.
í apríl í vor, þegar þang-
skurðurinn hófst, var sami
háttur hafður á. En um miðjan
maí voru menn farnir að ná
fullum árangri með pramman-
um. Hafa þeir náð tökum á
verkinu að farið er að stunda
þangslátt með prammanum ein-
göngu og á vaktaskiptum. Kom-
ið hefur í Ijós að allir þeir
þættir, sem í upphafi unnu á
móti árangri vegna séraðstæðna
á íslandi, nýtast nú betur, og má
þar nefna aðfall og útfall,
fjöruna og veðuraðstæður. Hef-
ur pramminn því skilað 25—30
tonnum á dag að meðaltali í
sumar og einstök gengi farið
upp í 50—60 tonn. Heimamenn
vinna verkið sem fyrr. í upphafi
voru þeir á kaupi hjá verksmiðj-
unni, en nú er þangið keypt af
þeim.
Búist var við að síðustu
þangskurðarmenn hættu nú um
helgina. Þrír flokkar voru enn
að í sl. viku. Flestir voru
flokkarnir í sumar 8 talsins. Og
þá tekur þaravinnslan við. Svo
nú nær starfsemi Þangvinnsl-
unnar á Reykhólum yfir nær
allt árið.
- E. Pá.