Morgunblaðið - 26.10.1978, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1978
15
Sævar Bjarnason
skákmeistari TR
IIAUSTMÓTI Taflfélags
Reykjavíkur 1978 er nú lokið.
SÍBurveKari á mótinu varð
unKur ok efnilexur skákmaður.
Sævar Bjarnason. Sævar hlaut
9‘/> vinnins? af 11 mögulegum.
sem er glæsilegur árangur og
hæsta vinningshlutfall sem
fengist hefur síðan byrjað var
að tefla Ilaustmótið og Skák-
þing Reykjavíkur árið 1974.
Sævar tók forystu í mótinu
strax í upphafi og greinilegt
var að eini hættulegi keppi-
nautur hans var Björn Þor-
steinsson. fyrrverandi íslands-
meistari. Svo skemmtilega vildi
til að þeir Sævar og Björn
mættust innbyris í síðustu
umferð mótsins og varð það
hrein úrslitaskák. því að Sævar
hafði 8‘/> v. en Björn 8 v. Sævar
vann skákina sannfærandi og
Björn varð því að láta sér
nægja annað sætið.
Sigur Sævars á mótinu kemur
vafalaust mörgum á óvart, því
að hann hefur mjög lítið teflt að
undanförnu. I sumar var hann
þó með í tveim mótum í
Bandaríkjunum og stóð sig mjög
vel á því síðara. I þeirri ferð
hefur hann greinilega öðlast
hagnýta reynslu, því að á
haustmótinu tefldi hann mjög
sannfærandi og lenti aldrei í
taphættu.
Af öðrum þátttakendum er
það að segja að Björn Þorsteins-
son tefldi hvasst að vanda,
jafnvel þó að honum hafi
brugðist bogalistin í síðustu
umferð gegn Sævari. Frammi-
staða „gömlu mannanna", þeirra
Jóns Þorsteinssonar og Guð-
mundar Agústssonar, var von-
um framar. Þeir eru eins og
gefur að skilja ekki vel heima í
nýjustu teóríum, en bæta það
ríflega upp meö harðfylgni í
mið- og endatöflum. Frammi-
staða Guðmundar var einnig
mjögathyglisverð að því leyti að
hann lét sér ekki nægja að taka
þátt í Haustmótinu, heldur sótti
hann einnig æfingar á þriðju-
dögum og fimmtudögum af
miklum krafti. Ef ýmsir af ungu
skákmönnunum okkar hefðu
slíkan áhuga væri ekki vafi á því
að þeir næðu langt. Frammi-
staða stigahæstu þátttakend-
anna í flokknum, þeirra Asgeirs
Þ. Árnasonar og Jóhanns Hjart-
arsonar, veldur vonbrigðum, því
að þeir hafa oft gert betur.
Heildarúrslit í A-flokki urðu
annars þessi:
1. Sævar Bjarnason V. 9>/2
2. Björn Þorst.son 8 ‘Á
3.-4. Ásgeir Þ. Árnas, 6‘/2
3.-4. Jón Þorsteinss. 6'/2
5.-6. Guðm. Ágústss. 6
5.-6. Jóhann Hjartars. 6
7. Júlíus Friðj.ss. 5'/2
8. Björn Halldórss. og ein ótefld skák. 4>/2
9.-10. Benedikt Jónasson 4
9.-10. Þórir Olafsson 4
11. Leifur Jósteinss. 2 v%
12. Stefán Þormar og ein ótefld skák. 2
í B-flokki stóð baráttan á
milli nokkurra kornungra og
efnilegra skákmanna. Hin ör-
uggi sigurvegari arð þó Jó-
hannes Gísli Jónsson (Þor-
steinssonar), hann vann níu
skákir og gerði aðeins tvö
jafntefli.
B-flokkuri
1. Jóhannes G. Jónss. 10 v.
2. Elvar Guðmundsson 8V2 v.
3. Torfi Stefánsson 8 v.
4. Karl Þorsteins 7‘/2 v.
Cflokkuri
1. Árni Á. Árnason 9(4 v.
2. Ágúst Karlsson 8 v.
3. Björn Karlsson 7 Vi v.
4. Gísli Stefánsson 6 v.
D-flokkuri
1. Ragnr Magnússon 10 v.
2. Róbert Harðarson 8 v.
3. Skúli Magnússon 7 v.
4. Jón Magnússon 6xk
E-flokkuri
1. Páll Þórhallsson 8V2 v.
2. Matthías Þorvaldss. 8 v.
og ein ótefld skák.
3.-4. Jóhann Helgason 8 v.
3.-4. Birgir Ö. Steingrímss. 8 v.
Unglingaflokkurt
1. Karl Þorsteins 9 v.
af 9 mögulegum.
2. Arnór Björnsson 7 v.
3.—5. Lárus Jóhanness. 6 v.
3.-5. Hrafn Loftsson 6 v.
3.-5. Páll Þórhallsson 6 y.'
Skák
eftir MARGEIR
PÉTURSSON
Að iokum skulum við líta á
úrslitaskákina á milli þeirra
Sævars og Björns úr síðustu
umferð:
Ilvítti Björn Þorsteinsson
Svarti Sævar Bjarnason
Frönsk vörn
1. e l — efi. 2. dl - d5.3. Rc3 -
Bhl. 4. e5 - Re7. 5. a3 -
Bxc3+. G. bxc3 — c5. 7. Rf3
- Rbcfi. 8. a l - Da5. 9. Bd2 -
Bd7. 10. g3í? - 0-0-0. 11. Bh3
- hfi!
(I skák þeirra Guðmundar
Sigurjónssonar og Watsons í
New York í fyrra lék sá
síðarnefndi hér 11. ... Hdf8, en
fékk verri stöðu eftir 12. 0-0 —
Dc7, 13. De2 - Rg6, 14. Bcl -
f6,15. Ba3!)
12. 0-0 - c l. 13. De2 - Kb8.
14. Ilfbl - Rc8. 15. Hb5 -
Dc7. lfi. Ilahl - Ra5. 17. H5b4
- Rbfi 18. Del
(18. Bcl kom hér ekki síður tii
greina)
Ka8 19. Ilal - Rc6. 20. IIb2?
(Eftir þennan leik nær
svartur smám saman undir-
tökunum. Betra var 20. a5! —
Rc8, 21. Hb5 — a6, 22. Hc5 og
staðan er í jafnvægi)
Ra5 21. Dbl - Hb8 22. IIb4
IIbe8 23. Bcl - Í5 24. exf6
(framhjáhlaup) gxf6 25. Bf l —
e5. 2fi. Bxd7 - Rxd7. 27. dxe5
- Íxe5 28. Be3 - Hhf8. 29.
Ddl - Rcfi. 30. IIb5 - Rf6. 31.
Ilabl - bfi. 32. Bxhfi?! - Hh8.
33. Bg5 - Re4. 34. Bd2 - Df7.
35. Bel - IIhf8. 36. Kg2 -
IId8. 37. De2 - Ildfi
38. Rgl?
(Hvítur varð að reyna 38.
Hdl)
Hffi 39. f3 - Rdfi!
(Einfaldara en 39. ... Rg5, 40.
Hdl) '
40. II5b2 - e4. 41. Í4 - d4!
(Biðleikur svarts)
42. cxdl — Rxd l 43. DQE/ -
Dd5. 44. c3 - R6d5, 45. Dcl -
Rb3.46. IIxb3 - cxb3.47. c4 -
Dd3. 48. IIb2 - Re3+, 49. Khl
— Rxcl og hér féll hvítur á
tíma, en staða hans er að
sjálfsögðu vonlaus.
LÆRIÐ AD PRJÓNA Á
SINGER
PRJÓNAVÉLAR
Singer prjónavél 2100.
Prjónar fínt og gróft garn, með jafnri og
fallegri áferð (einnig lopa).
Margvísleg munsturprjón og litaprjón.
Hringprjón og klukkuprjón. Prjónar
sokka, heila í hæl og tá. Hefur tvö nála-
borð úr málmi með 360 nálum alls. Hefur
einnig tvöfaldan bandleiðir.
Singer prjónavél 2200.
Hefur alia þá eiginleika sem 2100
prjónavélin hefur, að auki sjálfvirkt
munsturprjón sem stýrist af munstur-
banka (memo martik), sem tengdur er
vélinni. Og jafnframt fylgir vélinni gata-
sleði og hægt er að setja rafmótor við
báðar vélarnar. 6 tíma kennsla fylgfr vél-
unum.
Sýnikennsla verður í Ármúla 3
fimmtudaginn 26. október frá kl. 2—5 e.h.
/s Véladeild
Sambandsins
Ármúla 3 Reykjavik Simi 38900
Unimetric 1080 VHF bátatalstöðvar
• 108 rása. • Uppiýst rásaletur-
• 25 wött. borö.
• Tölvulykilborð. • Fjöldi annarra eigin-
• Innbyggt kallkerfi, leika.
• Sérbyggt simtæki.
Unimetric Sandpiper
2500 VHF bátatalstöð
• 14 rásir
• 25 wött.
• Innbyggt kallkerfi.
• Greinilegt rásaleturborð.
• Fjöldi annarra eiginleika.
Unimetric
Sea Hawk VHF bátatalstöð
• 12 rásir.
• 25 wött.
• Upplýst rásaleturborð.
• Fjöldi annarra eiginieika.
Mest seldu
talstöövar á
íslandi
Til notkunar í báta, bíla
og á heimitum.
Allir tytgihlutar ávallt
fyrirlíggjandi.
Beriö saman verö og
Frábær reynsla og bandarísk gæðaframleiðsla tryggir góð kaup.
Sérlega hagstætt verö.
Heildsala — smásala
TÝSGÖTU 1
SÍMI-10450
PÓSTHÓLF-1071
REYKJAVÍK - ICELAND
AUGLÝSINGASTOFA SAMBANDSINS