Morgunblaðið - 26.10.1978, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1978 19
Rannsóknanefnd sjóslysa:
Óhjákvæmilegt að taka gömlu
bómullarbátana úr umferð
— og kanna hvort rétt sé að setja reglur um hámarksaldur gúmbáta
Iiannsóknarnefnd sjóslysa
hofur skilað skýrslu um störf eins
oK Mhl. skýrði frá í frétt á
laujtardajíinn. Tíu ferðir voru
íarnar til tilrauna á reki gúm-
hjörjfunarháta og voru gerðar 13
slfkar tilraunir. sem stóðu allt frá
klukkustund upp í liðlega sólar-
hrinjj. Hér fara á eftir niðurstöð-
ur tilraunanna. eins ok þær eru
fram settar í skýrslu nefndarinn-
ar ásamt helztu ábendinjcum um
úrbæturi
Rekið
Niðurstöður tilraunanna á reki
jlúmbjörgunarbátanna sýna
Kreinilega, að þá rekur beint
undan vindi um 1—2 hnúta hraða í
7—10 vindstigum. Miðað við að-
stæður á úfnum sæ verður að telja
þessa niðurstöðu áreiðanlega og
gilda fyrir t.d. leit að skipbrots-
mönnum. Þessi rekhraði er nokkru
meiri en erlendar mælingar gefa
til kynna, hvort heldur gúmbát-
Slitinn hanafótur af rekankeri, en
rannsóknirnar leiddu i Ijós aó
rekankerin sem fylgja bótunum eru
ótraust og slitna fljótt fró peim. Bœói
er festingu ankerisins óbótavant og
svo er línan of veik.
arnir eru með rekankeri eða ekki.
Það skal tekið fram, að erlendar
mælingar ná ekki nema að 7
vindstigum og oftast aðeins að 5
vindstigum.
Rekankerin
Þá hafa tilraunirnar einnig
sýnt, svo ekki verður um villst, að
þau rekankeri, sem fylgja bátun-
um, þjóna ekki tilætluðu hlutverki.
Þau eru ótraust og slitna fljótt'frá
bátunum, en við það eykst hættan
mjög á því, að bátunum hvolfi.
Kemur hér bæði til, að festingu
rekankerisins er ábótavant, svo og
að línan sjálf er of veik.
Nokkrar tilraunir með sérhönn-
uð rekankeri virtust benda til þess,
að stærð ankerisins og op skipti
miklu máli, bæði fyrir rekhraða og
átak á gúmbátinn og kann tjald
bátsins að rifna í miklum veðrum,
ef rekankerið er of stórt. Traust
rekankeri eru forsenda notkunar á
bátunum, a.m.k. ef veður-hæð er
meiri en 5 vindstig. An ankeris
hvolfir bátnum auðveldlega hvað
eftir annað.
Aldur
Aldur gúmbátanna virðist
skipta verulegu máli. Hefur ekki
farið á milli mála, að eldri
tegundir gúmbáta, svonefndir
bómullarbátar, hafa reynst var-
hugaverðir. Virðist sem fúi mynd-
ist í þeim og verða þeir að skoðast
ónothæfir sem björgunartæki.
Kemur þetta heim og saman við
niðurstöður athugana nágranna-
þjóða okkar, sem sumar eru að
innkalla þessa báta, að því er best
er vitað. Allmargir slíkir bátar
munu vera í notkun hérlendis.
Endurskinsmerki
og toppljós
Meðan á tilraunum stóð kom oft
berlega í ljós, hve erfitt er að
greina gúmbátana í myrkri og
slæmu skyggni, jafnvel þótt þeir
væru útbúnir endurskinsmerkjum
og ljóstýru á þaki. Kom fyrir að
þeir hreinlega týndust, þrátt fyrir
að reynt væri að fylgjast með þeim
úr lí'tilli fjarlægð. Eru góð endur-
skinsmerki ómetanleg við leit í
myrkri, svo og skært toppljós.
Abendingar
nefndarinnar
1. Niðurstöður tilraunanna sýna
enn ljósar en áður, að leggja
verður höfuðáherslu á, að hægt
verði að staðsetja og finna
gúmbátana sem allra fyrst eftir
að þeir hafa verið sjósettir.
Takist það má koma í veg fyrir
hrakningar skipbrotsmanna um
ótiltekinn tíma og þá um leið
má fyrirbyggja, að mikill kostn-
aður og tími fari í að leita að
gúmbátum, eins og dæmin sýna.
Til þess að takast megi að
staðsetja gúmbáta. og finna þá
við erfið skilyrði þarf að áthuga
eftirfarandi:
a. Útbúa þarf alla gúmbáta
sjálfvirkum neyðarsendum,
þannig að miða megi bátana
út, jafnt úr lofti sem af sjó.
b. Ljósstyrk á toppljósi gúm-
bátanna þarf að auka veru-
lega.
c. Stórauka þarf endurskins-
merkingar á bátunum, bæði á
botni þeirra sem og annars
staðar.
d. Útbúa þyrfti gúmbátana
radarsvörum.
2. Náuðsynlega þarf að endur-
skoða gerð rekankera. Enn
fremur þarf að styrkja línu
þeirra og festingar.
3. Koma þarf fyrir góðum báru-
fleygum í gúmbátum, svo sem
ætíð hefur verið skylda að hafa
í lífbátum.
4. Óhjákvæmilegt virðist að inn-
kalla og taka úr umferð alla
gömlu bómullarbátana og jafn-
framt athugað, hvort ekki sé
rétt að setja reglur um há-
marksaldur gúmbáta.
5. Stöðugt þarf að fylgjast með
endurbótum og nýjungum varð-
andi gúmbáta og jafnframt að
huga að öðrum samsvarandi
bjargtækjum.
6. Haft verði stöðugt og vakandi
eftirlit með þeim ýmsu gerðum
gýmbáta, sem fluttir eru til
landsins, áður en sala þeirra er
leyfð.
Björgunarbít hvolfir eftir aö rekankeriö alitnar. Veðurhæð 9 vindstig.
7. Niðurstöður þessar um rek og
hegðan gúmbáta í sjó verði
rækilega kynntar sjófarendum
og öðrum hlutaðeigandi aðilum.
8. Leiðbeiningaspjöld til sjófar-
enda um gúmbáta og notkun
þeirra virðist í sumum meginat-
riðum röng eða ófullnægjandi
miðað við niðurstöður tilraun-
anna, t.d. um stöðugleika bát-
anna og notkun rekankeris.
Þetta þarf að leiðrétta án tafar.
skakknr stafur
gerir ekki svo mikid til, ef þú notar
kúluritvél med leidréttingarbiinadi
Leiprétt ^
tKsrís' .uSJÉÉHÉBi
-LL
... ^rétt
Sé ritarfur skakkur stafur------
er sleginn þ.t.g. leidréttingar-
lykill. Ritkúlan færist yfir
skakka stafinn
sem er sleginn a ný, og
sogast þö of blaéinu svo
leiáréttingin sést ekki
Réttur stafur er sleginn..
og haldið öfram þar sem
frö var horfirf
aukin afköst — minna erfidi
SKRIFSTOFUVELAR H.F.
e/A
Yfirbreiðsla björgunarbéta rifin um boga, an rannsóknirnar sýndu aó
yfirbreiöslurnar slóöust ekki sltem veður.
^ÉLK^
Hverfisgötu 33 Sími 20560
tijja.iiljiU iu^-É.i V.UJ .