Morgunblaðið - 26.10.1978, Side 22

Morgunblaðið - 26.10.1978, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1978 Villot verð- ur páfaritari Vatikaninu, 25. október. Reuter. AP. JÓHANNES Páll páfi ann- ar setti í dag franska kardinálann Jean Villot í embætti páfaritara, en engu að síður er álitið að páfi sé nú að leggja drög að verulegum breytingum á páfahriðinni. Margir þeirra sem eru í áhrifastöðum innan páfa- hirðarinnar eru komnir til ára sinna og eru heilsuveil- ir. Þá sagði í tilkynningu páfa í dag að Jean Villot hefði verið falið að gegna fyrra embætti „til að byrja með“, og er ráðið af orða- laginu að breytingar séu í vændum. Hermt er að Villot hafi ráðlagt páfa að útnefna ítalskan kardinála í sinn stað, þar sem það hentaði betur undir núver- andi kringumstæðum. • Kunnugir telja að ef páfi færi til Egyptalands eins og Anwar Sadat Egyptaforseti hefur boðið honum, kynni það að baka páfa og Vatikaninu óvinsældir kristinna manna í Sýrlandi, Irak, Líbýu og öðrum arabaríkjum sem voru andsnúin samkomulagi Israels- manna og Egypta í Camp David. Jóhannes Páll páfi annar við embættistöku sína. SÞ-fund- ur um Namibíu New York, 25. október. Reuter. FULLTRÚAR Afríkuríkja á Allsherjarþinginu fóru í dag fram á fund í Öryggis- ráðinu vegna afstöðu Suð- ur-Afríku til áætlunar SÞ um sjálfstæði Namibíu (Suðvestur-Afríku). Fundurinn fer væntan- lega fram um eða eftir helgina. Afríkuríkin ætla að krefjast efnahagslegra refsiaðgerða gegn Suð- ur-Afríku. Tillögum Carters misjafnlega tekió Kurt Waldheim aðalritari mun líklega neita að senda fulltrúa sinn, Martti Ahtisaari, aftur til Namibíu eins og Vesturveldin og Suður-Afríka hafa lagt til vegna andstöðu Afríkuríkja og SWAPO, samtaka blökkumanna í Namibíu. Washintfton, Briissel, 25. okt. Reuter, AP. AÐGERÐIR þær sem Jimmy Carter Bandaríkja- forseti boðaði í gær til í baráttu stjórnar hans við verðbólgu, fengu lítinn hljómgrunn meðal hag- fræðinga og bankamanna í Bandaríkjunum í dag. Sögðu þeir að aðgerðirnar gengju ekki nógu langt og myndu hafa litil eða engin bætandi áhrif á dollarann. Hins vegar spáðu fulltrúar Efnahagsbandalags Evrópu (EBE) því að að- gerðirnar myndu auka hagvöxt í Bandaríkjunum og styrkja stöðu dollarans þegar fram í sækti. Kaupsýslumenn og verkalýðs- leiðtogar voru jafnframt efins um ágæti tillagnanna og í Tókýó féll dollarinn einn daginn enn vegna mikils framboðs. Var dalurinn seldur á allt ofan í 180,55 yen í dag, en í ársbyrjun var verðgildi dalsins 237 yen á japanska gjald- eyrismarkaðinum. Loks lét Bert Lance, fyrrverandi ráðgjafi Cart- ers í fjármálum, það í ljós í dag að verðbólgan og efnahagsmál Bandaríkjanna kynnu að verða forsetanum að falli, og líkti í því sambandi við hvernig styrjöldin í Víetnam varð Lyndon B. Johnson fyrrum forseta að falli. Jimmy Carter Megin atriðin í aðgerðum þeim sem Carter boðaði til í gær er þak á launahækkanir og verðhækkan- ir. Skoraði Carter á alla aðila að takmarka launahækkanir á næsta ári við 7 af hundraði og verðhækk- anir við 5,75 af hundraði. Þeir sem ekki virða þessi mörk verða ekki teknir til greina þegar um útboð á vegum hins opinbera er að ræða. Að vísu verður heimilt að hækka meira laun þeirra sem hafa innan við fjóra dollara í laun á klukku- stund. Ennfremur ná nýju aðgerð- irnar ekki til launahækkana sem Þetta gerðist 1976 — SÞ samþykkir bann við samneyti við Transkei. 1963 — Krúsjeff útilokar þátt- töku Rússa í kapphlaupi til tunglsins. 1962 — Krúsjeff býðst til að flytja rússneskar eldflaugar frá Kúbu ef bandarísltar herstöðvar í Tyrklandi verði lagðar niður. 1957 — Zhukov marskálkur leystur frá starfi landvarnaráð- herra. 1947 — Kasmír sameinað Ind- landi. ^ 1942 — Bandaríska flugvéla- móðurskipinu „Hornet" sökkt við Solomoneyjar. 1911 — Kína lýðveldi. 1905 — Svíþjóð viðurkennir sjálfstæði Noregs. 1896 — ítalskri vernd í Eþíópíu lýkur með samningnum í Addis Ababa. 1860 — Garibaldi lýsir Viktor Emmanúel konung Ítalíu. 1850 — Taiping-uppreisnin í Kína og Hung Siu-tsuen tekur sér keisaranafnbót. 1811 — Hannover konungsdæmi = Bretar segja Gúrkhun. stríð á hendur. 1760 — Georg III krýndur konungur Englands. Afmæli dagsins. Domenico Scarlatti, ítalskt tónskáld (1685—1757) * Heinrich von Stein barón, prússneskur stjórn- málaleiðtogi (1757-1831) » G.J. Danton, franskur byltingarleið- togi (1759—1794) * Helmuth von Moltke, greifi, þýzkur marskálk- ur (1800—1891) * Sjahinn af verða á árinu vegna eldri kjara- samninga. Þá sagðist Carter mundu biðja Bandaríkjaþing að samþykkja sérstakar skattaívilnanir til þeirra stétta sem virtu þak launahækk- ana í því tilfelli að verðbólga færi yfir sjö af hundraði á árinu. Carter sagði að glíman við verðbólguna yrði mál málanna hjá Bandaríkjastjórn á næsta ári. í þessu sambandi yrði það takmark stjórnarinnar að greiðsluhalli ríkissjóðs verði innan við 30 milljarðar dollara Ji árinu 1979. Einnig sagði forsetinn að aðeins yrði ráðið í eina af hverjum tveimur opinberum stöðum sem losnuðu. Hann sagðist einnig mundu beita neitunarvaldi sínu við frekari lækkun tekjuskatts þar til að árangur af baráttunni við verðbólguna yrði áþreifanlegur. Loks sagði forsetinn að hann mundi béita sér fyrir löggjöf sem leiddi til meiri samkeppni í járnbrautarflutningum og flutn- ingum langferðabifreiða. í sjónvarpsræðu sinni lagði Carter hart að þjóð sinni og bað hana um að gefa hugmyndum sínum tækifæri. „Við verðum að leggja á okkur meinlæti,“ sagði forsetinn. Hann sagði að ef áætlanir stjórnarinnar næðu fram að ganga yrði verðbólgan á næsta ári sex af hundraði, eða talsvert fyrir neðan núverandi stig sem er átta af hundraði. íran (1919---). Innlent. Eldgos í Öskju 1961 — Menntaskóli á Akureyri 1927. — Framsókn tapar tveimur þing- sætum 1959. — Afhjúpun margra ára svikamiðilsstarf- semi 1940. — F. Ingvar Vil- hjálmsson útgm. 1899. Orð dagsins. Það er óþarfi að trúa á yfirnáttúrulega undirrót hins illa; mennirnir eru einir fullfærir um hvers konar vonzku — Joseph Conrad — enskur skáldsagnahöfundur (1857-1924). Fyrsta myndin sem Vesturlandamenn ná af nýjustu hljóðfráu orrustuþotu Sovétmanna, Tupolev 26. Orrustuþotan gengur undir nafninu „Backfire“. Vængir flugvélarinnar eru hreyfaniegir og er hún knúin tveimur þrýstiloftshreyflum. Myndina tóku flugmenn á sænskri eftirlitsflugvél í júni, en þá fóru fram miklar æfingar sovéska hersins á Eystrasalti. Veður víða um heim Akureyri 2 léttskýjaó Amsterdam 13 skýjað Apena 20 heiðskírt Barcetona 20 lóttskýjað Berlín 12 léttskýjað Brussel 15 rtgning Chicago 13 skýjað Frankfurt 11 poka Genf 10 poka Helsinki 7 skýjað Jerúsalem 26 skýjað Jóhannesborg 23 skýjað Kaupmannah. 12 léttskýjað Lissabon 25 léttskýjað London 19 léttskýjaö Los Angeles 24 skýjað Madríd 23 léttskýjað Malaga 21 léttskýjað Mallorca vantar Miami 26 skýjað Moskva 4 rigning New York 12 léttskýjað Osló 11 léttskýjað París 15 akýjað Reykjavtk 1 slydda Rio Oe Janeiro 23 léttskýjaö Rómaborg 18 heiðskirt Stokkhólmur 11 léttskýjað Tel Aviv 27 skýjað Tókýó 23 skýjað Vancouver 11 heiðskkírt Vínarborg 13 heiðskirt Skógareldarnir_______ í Kaliforníu: íkveikju- maður að verki Los Angeles, Kaliforníu. 25. okt. — AP íkveikjumaður kom af stað stærsta skógareldinum af þeim eldum sem geisað hafa á 38.000 ekrum lands og eyðilagt 186 heimili í nágrenni Los Angeles að undan- förnu, að því er lögregla tilkynnti í dag. I skógareldunum, sem heftir hafa verið að mestu, eyðilögðust hús margra þekktra manna úr skemmtanaiðnaðinum. T.d. eyðilögð- ust hús leikaranna Jack Lemmon, Nick Nolte, Clint Walker, Ali McGraw, Katharine Ross, svo og hús söngvarans Neil Yong. Leysist verkfallid Ósló. 25. okt. Frá Jan Erik Laure fréttamanni Mbl. STARFSMENN áfengisverzlunar ríkisins sem verið hafa í verkfalii drógu í dag úr launakröfum sínum og er talið að það kunni að leiða skjótt til lykta, en það hcfur nú staðið yfir í einn mánuð. Drógu starfsmennirnir úr iauna- kröfum sínum sem nemur 88 af hundraði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.