Morgunblaðið - 26.10.1978, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1978
23
i
SVIPMYNDIR ÚR UMFERÐINNI:
Fjórtán árekstrar
í Reykjavík
þrír á slysadeild
— Árkestrarnir í dag eru orðnir 12. sagði
varðstjóri lögreglunnar í samtali við Mbl. í
garkvöldi. og verið er að mæla upp tvo á þessari
stundu. þannig að þcir eru 14 eftir daginn, og má
e.t.v. segja það sé nokkuð mikið við svo góð
skilyrði sem voru í dag.
í tveimur tilvikum var
um slys að ræða. var þrennt flutt á slysadeild
samtals. Varðstjórinn sagði að flestir árekstr-
anna hefðu orðið síðdegis eða kringum kl. 17, en
aðeins tveir höfðu verið skráðir um hádegisbilið.
Hér fylgja nokkrar svipmyndir úr umferðinni í
Reykjavík í gær, teknar á ýmsum stöðum af
vegfarcndum og gefa þær e.t.v. hugmynd um við
hvaða vandamál er að glíma þegar umferðin er
mikil og allir virðast vera að flýta sér, næstum
þannig að fáir aka á lögboðnum hraða, því að sé
ekið á löglegum hraða er það ekki fátítt að aðrir
ökumenn hraði ferð sinni framúr og telji hina
löghlýðnu svifaseina.
Á horni Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbrautar er oft mjög mikil umferð og á gatnamótum sem
þessum er ekki ætlast til að tvöföld röð bíla myndist á beygjunni, eins og hér hefur gerzt.
' Gangandi vegfarendur virða
oft ekki ljós og hér eru tveir á
ferð á rauðu ljósi, en gra'nt
kviknaði um það leyti sem
** mm ' komið var yfir götuna. Ljósm.
Stórir bílar „svína“ gjarnan. en er það alltaf nauðsynlegt? Kristján.
í árekstri sem varð á Reykjanesbraut við Þóroddsstaði var einn fluttur á slysadeild.
Magnús Á. Árnason gerði þessa styttu sem er á leiði Sigurbjörns í
kirkjugarðinum í Vestmannaeyjum.
Siyurbjörns Sveinssonar
barnabókahöfundar
minnst í Vestmannaeyjum
OPNUÐ hefur verið sýning í Vest-
mannaeyjum á frumútgáfum Sigur-
bjarnar Sveinssonar barnabókahöf-
undar og ýmsum persónulegum
munum hans, en um þessar mundir
eru liðin 100 ár frá fæðingu hans og
minntust Vestmannaeyingar þess
með Sigurbjarnarkvöldi í barnadeild
Bókasafnsins í Eyjum.
Að sögn Helga Bernódussonar
nýskipaðs bókavarðar sóttu rúmlega
100 manns samkomuna og flutti
Haraldur Guðnason fyrrum bóka-
vörður erindi um Sigurbjörn, Hlíf
Gylfadóttir, nemandi í Barnaskólan-
um, og Sveinn Tómasson, forseti
bæjarstjórnar, fluttu sögur og kvæði
eftir Sigurbjörn og kór Landakirkju
söng lög við texta hans undir stjórn
Guðmundar Guðjónssonar organ-
ista. Þá voru flutt af segulbandi
nokkur orð Jóhönnu Herdísar Svein-
björnsdóttur, sem bjó lengi í næsta
húsi við Sigurbjörn, og minntist hún
hans á persónulegan hátt.
Sigurbjörn Sveinsson var fæddur
19. október 1878, húnvetningur, og
þegar hann var 15 ára hóf hann
skósmíðanám í Reykjavík, stundaði
iðn sína um tíma á Akureyri, fluttist
Opnuð var sýning á
frumútgáfum og per-
sónulegum munum
Sigurbjörns og
lýkur henni n.k.
sunnudag.
Heiðursgestur á samkomunni var
Guðríður Guðmundsdóttir,
frænka skáldsins.
til ísafjarðar og tók hann í kringum
aldamótin þátt í starfi Hjálpræðis-
hersins. Síðar gerðist hann kennari í
Reykjavík og sinnti því starfi sínu
meira að skrifa sögur handa börn-
um, en hann fluttist til Vestmanna-
eyja árið 1919. Þar fékkst hann við
kennslu fyrst í stað, síðar einka-
kennslu og kenndi m.a. á fiðlu.
Sigurbjörn Sveinsson var þekktur
textahöfundur, sagði Helgi Bernód-
usson, og af helztu bókum hans má
nefna Bernskan I og II, Geislar,
Æskudraumar, Skeljar og ritsafn
hans kom út í tveimur bindum 1948
og aftur 1971, en Sigurbjörn var
kjörinn heiðursborgari Vestmanna-
eyja 1948. Sigurbjörn kvæntist 1901
Hólmfríði Hermannsdóttur og eign-
uðust þau tvær dætur. Hann lézt
1950.
Haraldur Guðnason fyrrum bókavörður í Eyjum flutti erindi um
Sigurbjörn Sveinsson. Kirkjukór Landakirkju söng undir stjórn
Guðmundar Guðjónssonar. Ljósm. Sigurgeir.