Morgunblaðið - 26.10.1978, Side 31

Morgunblaðið - 26.10.1978, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1978___31 „Jákvœðar umsagnir um Sinfóníu- hljómsveitina mega líka hegrast” MORGUNBLAÐIÐ hefur leitaö til nokkurra tónskálda og spurt pá, hvaö peir vildu segja um pá gagnrýni, sem Vladimir Askhenazy lét frá sér fara í viðtali við „Gramophone“ og pau blaðaskrif, sem orðið hafa vegna ummæla píanósnillings- ins. Fara hér á eftir svör peirra Atla Heimis Sveinssonar, Fjölnis Stefánssonar og Þor- kelS SÍgUrbjÖmSSOnar. Atll Heimir Fjölnir Þorkell Sveinsson Stefánsson Sigurbjörnsson Þorkell Sigurbjörnsson: B jóðum Vladimir heim úr útlegðinni í Sviss Vladimir Ashkenazy hefur margoft sýnt, að hann ber tónlistarlíf hér fyrir brjósti, bæði í orðum og gerðum, á sinn hátt. Við höfum gagnrýnt hann, og hann okkur, í von um umbætur. íslendingar eru þekktari aö öðru en agasemi, og stofnanir okkar eru sjálfsagt sama marki brenndar. Það er bæði kostur og galli að láta illa að stjórn. Mér finnst full mikið veður gert út af þessum ummælum Vladimirs í útlöndum, — hef að vísu ekki séð þau á frummálinu. Ekki er t.d. við hann að sakast, þótt Sinfóníuhljómsveitin sé „semi-proffesional“ — sem þýð- ir EKKI, að menn séu amatörar, heldur það eitt, að hljómsveit- armenn lifa ekki eingöngu á starfi sínu í hljómsveitinni. Ef reynsla hans af hljómsveitinni væri ekki umtalsverð, þá hefði verið meiri ástæða að ergjast. Jákvæðar umsagnir um Sin- fóníuhljómsveitina mega líka heyrast. Sjálfur hef ég reynslu af samanburði á flutningi eigin verka af erlendum atvinnu- hljómsveitum (þar sem menn eru þrefalt hærra launaðir en hér). Sá samanburður hefur oft verið okkar hljómsveit í hag — eins og t.d. fyrir skömmu, þegar 115 manna hljómsveit sullaðist í gegn um verk, sem Sinfóníu- hljómsveit íslands frumflutti vel á sínum tíma við erfiðar aðstæður, þá hugsaði ég með hlýhug heim til hennar — og ég gæti kallað til vitnis nokkur önnur tónskáld, innlend og erlend, sem hafa svipaða sögu að segja. Við getum líka tekið mark á því hrósi og gert það umtalsvert í blöðum — rétt eins og gagnrýni Vladimirs. Við skulum bara bjóða honum sem fyrst heim frá útlegð í Sviss, og jafnframt halda áfram að efla Sinfóníuhljómsveitina sem mest við megum. Fjölnir Stefánsson: Ég hef ekki séð viðtalið sem hið víðlesna tímarit Gramophone átti við Vladimir Ashkenazy, en eins og það birtist í Morgunblaðinu þá kem ég ekki auga á tilganginn með þessum neikvæða tón í yfir- lýsingum hans um Sinfóníu- hljómsveit íslands. í viðtalinu segir m.a.: „Stundum verður leikur þeirra áhugaverður, en tæknilega séð eru þeir ekki mjög færir“. Sem fagmaður er eðlilegt að hann láti frá sér fara slíkar athuga- semdir. Einnig segir um hljóðfæra- leikarana: „Það þarf að fara að Kennsla tónlistarmanna ómissandi þáttur tónlistarlifs þeim eins og börnum, og gæta þess að ósiðir komist ekki upp í vana“. Þetta eru hinsvegar niðrandi ummæli og órökstudd og fagmanni ekki sæmandi. Ennfremur segir V.A.: „Þegar ég byrjaði var ég vægast sagt ömurlegur". Ekki veit ég til að hljóðfæraleikararnir hafi þá kvartað undan honum sem stjórnanda á opinberum vett- vangi. Þar með sýndu þeir V.A. meira umburðarlyndi en hann sýnir þeim nú. Tónlistarmenn á Islandi búa við margháttaða sérstöðu. I viðtali blaðamanns Morgun- blaðsins við V.A. kemur fram eftirfarandi: „Hljóðfæra- leikararnir gera ýmislegt annað en að einbeita sér að hljómsveit- inni sem ekki kann góðri lukku að stýra“. Hér hlýtur að vera átt við það að hljóðfæraleikararnir stunda einnig kennslustörf margir hverjir. Eins og málum er háttað er þetta framlag meðlima hljómsveitarinnar ómissandi þáttur í uppbyggingu tónlistarlífs hér á landi Sú staðreynd að hér í okkar fámenna þjóðfélagi er starfandi sinfóníuhljómsveit eru hreint ekki svo lítil tíðindi út af fyrir sig. Einnig sá fjöldi tónleika sem haldnir eru á hennar vegum og hin góða aðsókn að þeim. Á þetta ber fyrst og fremst að leggja þunga áherzlu gagnvart umheiminum. Atli Heimir Sveinsson: „Það má alltaf gera betur í listinni” Blaðamaður Morgunblaðsins hringdi til mín, og bað mig að segja álit mitt á viðtali Ashken- azys í tímaritinu Grammaphone sem mjög, hefur verið til um- ræðu í blöðum undanfarið. Ég náði í tímaritið og las viðtalið. Þrjár staðhæfingar, sem þar koma fram virðast fara í taugarnar á mönnum hér heima: að Sinfóníuhljómsveitin sé hálf- gerð áhugamannahljómsveit, að Ashkenazy þurfi að umgangast hljóðfæraleikarana eins og börn og að hljómsveitin sé ekki mjög góð tæknilega. Um fyrstu tvær fullyrð- ingarnar hef ég þetta að segja: ómerkilegur þvættingur. Sinfóníuhljómsveitin er góð hljómsveit atvinnumanna, og spilararnir eru skarpir, prýði- lega agaðir og áhugasamir. Um þriðju staðhæfinguna er þetta að segja: það má alltaf gera betur í listinni, og þar gera menn aldrei nógar kröfur, hvorkrtil sjálfra sín né annarra. I því Ijósi er rétt að hljómsveitin verður að vera tæknilega betri. Sinfóníuhljómsveitin á við ýmis vandamál að stríða eins og allar aðrar hljómsveitir. Ég hef bent á þau vandamál og ýmsir fleiri, án þess að blöð hafi rokið upp til handa og fóta. Fremur ósmekk- legt viðtal í erlendu tímariti virðist þurfa til að menn grípi við sér hér heima. Ashkenazy er mikill píanóleikari, en hann er hjálparlaus hljómsveitarstjóri. Sinfóníuhljómsveitin hefur gef- ið honum meira en hann henni. Og verði Ashkenazy einhvern tíma góður hljómsveitarstjóri er það ekki Sinfóníuhljómsveitinni síst að þakka. Hann hefur fengið einstakt tækifæri að æfa sig á henni og læra fagið. Og þá var hún nógu góð handa honum. Ég vona að áhugi blaðanna á Sinfóníuhljómsveitinni og tón- list á íslandi sé varanlegur, en ekki tímabundið tilhaf ómerki- legu tilefni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.