Morgunblaðið - 26.10.1978, Page 33

Morgunblaðið - 26.10.1978, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1978 33 Frá tvimenninRskeppni Bridgedeildar BreiAfirðingafélaí'sins sem lauk sl. fimmtudag. Brldge Umsjón: ARNÓR RAGNARSSON Bridgefélag Akureyrar Akureyrarmótinu í tvímenn- ingi lauk sl. þriðjudaK meó sigri Alfreðs Pálssonar ok Mikhaels Jónssonar. Vermdu þeir efsta sætið mestan hluta keppninnar og sijfruðu með nokkrum yfirburðum. Alfreð og Mikhael eru meðal eldri ok reyndari spilurum félaK-sins oj; hafa margsinnis stýrt sveitum til sigurs í Akureyrarmótum fyrri ára. Röð efstu para: Alfreð Pálsson — Mikhael Jónsson Magnús Aðajbjörnss. — 556 Gunnl. Guðmundsson Páll Jónsson — 534 Þórarinn B. Jónss. Baldur Árnason — 517 Soffía Guðmundsd. Pétur Guðjónsson — 513 Stefán Ragnarsson Ármann Helgason — 512 Jóhann Helgason Jóhann Gauti — 502 Ingim. Árnason Arnar Daníelsson — 502 Jón Friðriksson Arnald Reykdal — 493 Gylfi Pálsson 490 Friðf. Gíslason — Júlíus Thorarensen 485 Meðalárangur 468 Næstkomandi þriðjudag hefst Akureyrarmótið í sveitakeppni. Skráning er hafin og eru v'æntanlegir þátttakendur beðn- ir að láta skrá sig hjá stjórninni í síðasta lagi á laugardag. Barðstrendinga- félagið í Rvík. Fyrir síðustu umferðina í tvímenningskeppninni eru efstu pörin þessi: stig. Ari Þórðarson — Díana Kristjánsd. 508 Eggert Kjartansson — Ragnar Þorsteinss. 480 Þórður Guðlaugss. — Þorsteinn Þorsteinss. 455 Sigurður Kristjánss. — Hermann Ólafsson 453 Þórarinn Arnason — Finnbogi Finnbogass. 451 Helgi Ehnarsson — Erla Lorange 450 Hermann Finnbogason — Hörður Davíðsson 448 Gunnl. Þorsteinss. — Stefán E.vfjörð 447 Þegar tvímenningskeppninni lýkur verður spiluð Ilraðsveitarkeppni 5 kvöld og hefst hún 6. nóvember. Tilkynn- ið þátttöku í síma 41806 (Ragn- ar) eða síma 81904 (Sigurður). Bridgefé- lag kvenna Staða efstu para að 12 um- ferðum loknum: Kristjana/Halla 288 Aðalheiður/Kristín 256 Gunnþórunn/Ingunn 217 Ása/Laufey 197 Júlíana/Margrét 162 Kristín/Guðríður 153 Hugborg/Vigdís 146 Gróa/Valgerður 143 Á mánudaginn kemur verða spilaðar 4 umferðir. Bridgefélag Kópavogs Síðasta fimmtudag hóíst 5 kvölda hraðsveitakeppni hjá Bridgcfélagi Kópavogs. Níu sveitir eru skráðar til leiks. Árangur efstu sveita varð þessi: stig Ármann J. Lárusson 684 Sigurður Sigurjónss. 645 Grímur Thorarensen 614 Böðvar Magnússon 581 Friðjón Margeirsson 572 Meðalskor 576 stig. Önnur umferð verður spiluð í kvöld, fimmtudag, og hefst kl. 20.00 í Þinghóli, Hamraborg 11. Opið bréf til hundaeig- enda og annarra hundavina allir mjög fráhverfir alræðis- hyggju; hafa í meginatriðum sömu skoðanir á stjórnmálum og íslenzkir sjálfstæðismenn töldu sér enga minnkun að í kringum árið 1930. Harðsnúinn keppinautur Framannefndur Mostapha Tolba hefir án nokkurs efa gefið „ríku þjóðunum" ráðleggingar af heilum hug. Hann virðist taka verkefni sitt alvarlega og hafa fullan vilja til að gott eitt leiði af stofnun sinni þó að henni séu stjúpmóðurlega skammtaðir fjár- munir (Arin 1973—1977: $100.000.000; fjárveiting árin 1978-1981: $150.000.000). Mér er kunnugt um, að hann hefir gefið fleirum en þeim góð ráð, þ.á m. nokkrum, sem ekki hafa haft þeirra síðri þörf, t.d. Indverjum. Um ráð hans til Indverja veit ég því miður ekki nærri nóg, en gizka á, að hann hljóti m.a. að hafa bent þeim á, að arðvænlegra yrði að mjólka kýr en tilbiðja, skynsam- legra að skjóta nokkrar milljónir apa en að láta þá eyða skógum og öðrum gróðri með því að slíta og kroppa niður í rót, og — last but not least — beinlínis lífsnauðsyn að drepa með öllum aðferðum ca. 2—3 milljarða af rottustofni sínum í stað þess að tigna. Rottuskarar Indlands eru nefni- lega ekki neinn smáflokkur; gizkað er á töluna 4.800.000.000, eða nálægt 6—8 sinnum hærri en íbúatala Indlands. Og Indland er rotturíkasta land heims. Brasilía er talin koma næst með rösklega 3.000.000.000, að því er brasilíski líffræðingurinn Antonio Cavalcante áætlar. Sérfræðingar telja sig hafa komizt að þeirri niðurstöðu, að rottumergð heims éti og eyðileggi árlega matvæli að verðmæti um $23.000.000.000. í Indlandi er talið að 6 rottur torgi árlega matarskammti, sem nægja myndi fullorðnum Indverja til viðurværis í eitt ár. Rottur eru óseðjandi og ekkert, sem manneskjan þarfnast til næringar, er óhult fyrir þeim. Þær éta ekki bara 20% af hveiti- og hrísgrjónauppskeru heimsins. Þeim velgir ekki vitund við sykurreyr. Af sykurreyrsuppskeru Egypta éta þær 20%, Flórída 11%, stundum 100% á Java. Ennfremur háma þær í sig 23% af byggupp- skeru Kenía, naga upp 50% af terunnum Indlands, gleypa 11% af sojabaunum Kóreu, gæða ser m.a.s. á bómull; 30% af þeirri egypzku og 57% af hinni ind- versku. í Indlandi a.m.k. vofir ekki nein útrýmingarhætta yfir hinum dygga fylgifénaði mannsins. „Ef einhver veikist í fjölskyldunni,“ segir einn hinna stjórnskipuðu rottubana, „hellir húsmóðirinn úr skálum reiði sinnar yfir eigin- manninn og segir ólánið eingöngu því að kenna, að hann drepi rottur!" Og enn fóðra Indverja rottu- milljarða sína af sömu natni og jafnan fyrr. í stórborgunum fleygja þeir sorpi og skarni samvizkusámlega út um gluggana og gleðja þannig rotturnar, sem bíða fyrir neðan þá. „Af þessum sökum," segir yfirrottubaninn Deobhankar í Bombay, „leita 20.000 manns læknishjálpar á ári vegna sára eftir rottubit. Daglega hreinsum við sorpið burt. Daginn eftir er allt orðið fullt af skarni á ný, og í því rotturnar." Löngum hafa vinstrimenn smjattað á rógi og níði um Evrópumenn og „meðferð" þeirra á nýlenduþjóðum, og talið allan ósóma, sem þær búa við, þeim að kenna. Sannleikskorn hafa, oftast af tilviljun, flækzt með. Hingað til hafa þeir þó ekki treyst sér til að halda því fram, að Evrópumenn hafi komið með rottupláguna, enda væri slíkt fulllangt gengið — — því að rottan er ein af dætrum Asíu. Eins og flestum ykkar að minnsta kosti mun kunnugt, þá er starfandi félagsskapur er nefnist Hundavinafélag íslands. Þetta félag er því miður alltof fámennt enda stendur mikill fjöldi ykkar ennþá utan samtakanna. Þetta er ömurleg staðreynd, sem erfitt er að skilja eða sætta sig við. Því aðeins er einhver von til þess að yfirvöld láti af gerræðis- legri afstöðu sinni að við höfum með okkur öflug og þá auðvitað um leið vel virk samtök, allavega myndum við þá koma í veg fyrir að þessir bannpostular næðu umtals- verðum árangri. Þetta að banna fólki að hafa hjá sér hund er alveg forkastanlegt, en stór hluti þjóðar- innar býr nú við það hlutskipti. Þessi forheimska þekkist heldur hvergi annars staðar í víðri veröld, ekki einu sinni hjá Ugandaforseta og virðast því þó lítil takmörk sett hvað þeim manni dettur í hug. Þið, sem nú búið í bæjarfélögum þar sem hundahald er ennþá leyft, ættuð að hugleiða það að þið gætuð vaknað upp við það ein- hvern morguninn að slíkt bann væri komið á, það eru nefnilegá ekki lengi að skipast veður í lofti hjá þessari bannglöðu þjóð. Ég vil svo í leiðinni þakka Hundaræktar- félaginu fyrir ágæta sýningu hinn 22. október s.l. og sjávarútvegsráð- herra fyrir að heiðra sýninguna með nærveru sinni. Vonandi má túlka komu hans á sýninguna þannig að hann sé velviljaður hundahaldi. Vonandi kemur að því og það fyrr en seinna að við fáum að sjá fleiri tegundir hunda eins og t.d. Grand Danois og St. Bernhards. Svo að lokum þið sem enn hafið ekki gengið í félagið, drífið nú í því strax. Sameinumst í því að tryggja að maðurinn geti um ókomin ár notið samvistar við þetta sérstæða dýr. Upplýsingasími Hundavina- félagsins er 33431. Með óskum um góðar undirtekt- ir og bestu kveðjum. Guðjón V. Guðmundsson varaform. Ilundavinafélagsins Húsgagnavika 20-29 október GLÆSILEG SYNING ÍÁG HÚSINU' ÁRTÚNSHÖFDA Skoóió nýjungar innlendra framleiðenda: húsgögn, áklceöi og innre'ttingar. Opió virka daga kl. 17 — 22 Laugardaga og sunnudaga kl. 14—22 argus

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.