Morgunblaðið - 26.10.1978, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1978
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10— 11
FRÁ MÁNUDEGI
þar sem hundahald er bannað.
Þessari sérstöðu verður að leggja
kapp á að halda enda leikur vart
nokkur vafi á því að mikill meiri
hluti borgarbúa er andvígur al-
mennu hundahaldi.
Eftir hverju eru borgaryfirvöld
að bíða?
Gamall hundavinur.“
• Misskilningur
í „Network?“
„Kæri Velvakandi,
í dálki þínum í dag (24.10) gera
forráðamenn Tónabíós því skóna,
að mig skorti dómgreind, af því ég
skrifa þér undir dulnefninu „K“.
Þeir um það
Tilneyddur af skrifum þessara
forráðamanna nefni ég eitt dæmi
urn misskilning í þýðingunni á
„Network".
Kvikmyndin snýst að verulegu
leyti um það vandamál, að sjón-
varpsstöðvar í Bandaríkjunum
beri sig fjárhagslega. Hvernig á sá
boðsk^mr að komast til skila,
þegar „national" sjónvarpsstöð í
kvikmyndinni, þ.e. sú stöð, sem
myndin snýst um, er sögð „ríkis-
styrkt“ ef ekki „ríkisrekin". í
myndinni er auðvitað verið að ‘
ræða um sjónvarpsstöð, sem nær
til allra Bandaríkjanna með orð-
inu „national.“
Eg vil færa Sigurði Sverri
Pálssyni kvikmyndagagnrýnanda
Morgunblaðsins þakkir fyrir
undirtektir hans undir athuga-
semd mína í gagnrýni um kvik-
myndina um síðustu helgi.
Að lokum vil ég eindregið hvetja
fólk til að sjá kvikmyndina
Network. Þótt efni hennar miðist
eðlilega fyrst og fremst við
Bandaríkin, á það erindi til okkar
allra á þessum tímum sjónvarps-
dýrkunar. Myndin vekur til um-
hugsunar um mörg mál og sýnir
ekki síst þrek þess þjóðfélags, sem
verðlaunar jafn hárbeitta gagn-
rýni á sjálft sig. Væri til vottur að
slíkri sjálfsgagnrýni hér,
kynnidýmislegt að vera í betra
horfi.
K.“
Þessir hringdu . . .
• Þjónustuklúbbar
— sauðfjárveiki-
varnir
S.A.i
„Núna er mikið rætt og ritað um
riðu í sauðfé og ekki að ástæðu-
lausu. í þessum umræðum hefur
meðal annars komið fram að
sauðfjárveikivarnir hafa orðið að
stækka mjög varnarhólfin þar sem
næg fjárveiting hefur ekki fengist
til viðhalds varnargirðingum. All-
ir, sem gefa gaum að þessu, sjá
hvert lífsspursmál er að girðingar
þessar séu traustar. Því vil ég
varpa fram þeirri hugmynd hvort
einhverjir þjónustuklúbbanna, þ.e.
Rotary, Kiwanis eða Lions, sem
eru í flestum byggðarlögum,
fengju ekki hér verðugt verkefni,
t.d. með vinnuframlagi hver á sínu
svæði.
Að lokum er hér áskorun til
forráðamanna í Arnessýslu og
Vegagerðarinnar. Látið ekki drag-
ast lengur að setja niður rimla-
hliðið á þjóðveginum við Ölfusá,
þar er slitinn hlekkur í varnar-
keðjunni."
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á alþjóðlegu skákmóti í Dört-
mund í vor kom þessi staða upp í
meistaraflokki í skák þeirra
Krúgers. V-Þýzkalandi, sem hafði
hvítt og átti leik, og danans
I.skovs.
HÖGNI HREKKVÍSI
BHFirT AÐ'rÁ HUDTI 'I
ím/onA LAfeAO...Í“
Vicious
sker sig
á púls
New York, 23. október. Reuter.
BREZKI ræflarokkarinn Sid
Vicious skar sig á púls í dag og
sagði vinum sínum að hann vildi
binda enda á líf sitt og sameinast
í dauðanum konunnisem hann er
ákamður fyrir að hafa myrt að
sögn lögregiunnar.
Hann dvaldist á geðdeild Bell-
evue-sjúkrahúss þar sem hann var
í geðrannsókn en var áður í
meðferð vegna sára á báðum
handleggjum.
Vicious hefur beðið eftir því að
réttarhöld fari fram gegn honum
vegna morðsins á bandarískri
vinkonu hans, Nancy Spungen,
fyrir tíu dögum. Hann var látinn
laus gegn 50.000 dollara tryggingu.
SLOTTSLISTEN
Látið okkur þétta fyrir yður opnanlega glugga og
hurðir með SLOTTSLISTEN-innfræstum þéttilistum
og lækkið með því hitakostnað.
Ólafur Kr. Sigurðsson & Co.
Tranavogi 1. simi 83484-83499
■
■
■
■
Vandervell
vélalegur
I
Ford 4-6-8 strokka
benzin og diesel vélar
Austin Mini
Bedford
B.M.W.
Buick
Chevrolet
4-6-8 strokka
Chrysler
Citroen
Oatsun benzín
og diesel
' Dodge — Plymouth
Fiat
Lada — Moskvitch
Landrover
benzin og diesei
Mazda
Mercedes Benz
benziri og diesei
Opel
Peugout
Pontlac
Rambler
Range Rover
Renault
Saab
Scania Vabis
Scout
Simca
Sunbeam
Tékkneskar
bifreiðar
Toyota
Vauxhall
Volga
Volkswagen
Volvo benzin
og diesel
I
ÞJÓNSSON&CO
Skeifan 17 s. 84515 — 84516
Lærið
vélritun
Ný námskeið hefjast fimmtudaginn 2. nóvember.
Kennsla eingöngu á rafmagnsritvélar, engin heimavinna.
Innritun og upplýsingar í síma 41311 eftir kl. 13.
VálritunarskQlinn
Suðurlandsbraut 20
Nauðungaruppboð
Samkvæmt kröfu bæjarsjóðs Kópavogs, skattheimtu ríkissjóðs í
Kópavogi, Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Jóns Finnssonar hrl., Jóns
Magnússonar hdl. f/h Steypustöðvarinnar, Jón Þorsteinsson hrl.
v/Vélaleigunnar Gröfur s/f., veröa eftirgreindar bifreiðir seldar á
nauöungaruppboöi, sem haldið veröur við bæjarfógetaskrifstofuna í
Kópavogi, að Auðbrekku 57, föstudaginn 3. nóvember 1978 kl.
16.00.
Y-286 Y-2417 Y-2976
Y-3531 Y-3728 Y-4809
Y-5010 Y-5031 Y-5602
Y-6233 Y-6557 Y-6948
Y-6742 R-19708 R-24016
R-50160 R-56509 G-2477
og birgðatankar, og Volkswagen pick-up árgerð 1968, óskráð. Þá
verður einnig seld nauðungarsölu til slita á sameign kranabifreiðin
Y-5038.
Uppboðsskilmálar liggja frammi á skrifstofu uppboðshaldara.
Greiðsla fari fram viö hamarshögg. Bæjarfógetinn í Kópavogi
23. október 1978.
16. Bg5! — hxg5, 17. hxg5 —
Dxg5, 18. Dh5! — Rxd3+ (Efttir
18. ..Dxh5, 19. Re7+ - Kh7, 20.
Hxh5 er svartur mát) 19. Kíl —
Dxg2+, 20. Kxg2 - RÍ4+, 21. KÍ3
og svartur gafst upp. Eftir
21.. • Rxh5, 22. Re7+ - Kh7, 23.
Hxh5 er hann mát.
MANNI OG KONNA
HAGTRYGGING HF
BÖRN LEGGJA OFT ANNAN SKILNING í ÖKUTÆKI EN FULLORÐNIR.