Morgunblaðið - 26.10.1978, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1978
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
t
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
Handknattleikurinn á íslandi er of hæg
ur segir hinn pólski þjálfari Víkings
í fyrsta skipti í sögu handknattleiksins á íslandi hafa
félagslið ráðið sér erlenda þjálfara. Bæði Víkingur og
FII hafa fengið til starfa pólska þjálfara. Og er það von
manna að þeir hleypi nýju blóði í þjálfun hér á landi og
komi með nýjar ferskar aðferðir í sambandi við þjálfun.
Þjálfari Vflíinga heitir Bodan Kowalzcky, ungur og
ákveðinn maður með mikla reynslu í handknattleiks-
þjálfun þótt ungur sé að árum. Bodan starfaði sem
þjálfari hjá hinu kunna pólska liði Slask í sex ár og var
reyndar leikmaður með liðinu líka í f jögur ár. Lék með
sem markvörður. Það er frekar óvanalegt að svo ungir
menn fáist við að þjálfa meistaraflokkslið í Póllandi.
Árangur Bodan með Slask var frábær, öll árin sem hann
var með liðið varð það Póllandsmeistari. Tvisvar tókst
liðinu að komast í átta liða úrslit í Evrópukeppni
meistaraliða, og einu sinni lék liðið til úrslita í
Evrópukeppni bikarhafa. Lék liðið þá á móti aust-
ur-þýsku meisturunum Magdeburg og tapaði naumlega.
Þar sem Bodan Kowalzcky hafði
staðið sig vel heima fyrir í
sambandi við þjálfun, fékk hann
leyfi til að starfa við þjálfun utan
heimalands síns. Fékk hann tilboð
frá Austurríki og Belgíu, ásamt
Islandi. Þá fékk hann tilboð um að
þjálfa pólska landsliðið en hafnaði
því.
Við hefjum spjall okkar við
Bodan á því að spyrja hann af
hverju hann kom til starfa á
íslandi?
— Eg hafði komið til íslands
með liði mínu er Slask lék á móti
FH í Evrópukeppni meistaraliða.
Þá fékk ég einnig tækifæri til að
dveljast hér í nokkra daga er lið
mitt dvaldist hér vegna æfinga
landsliðsins í handknattleik, en
það var að undirbúa sig fyrir
B-keppnina í Austurríki. Mér leist
mjög vei á mig hér á landi, fólkið
var vinalegt og ég kunni vel við
mig. — Ég var því ekki í
vandræðum með að gera upp á
milli þeirra tilboða sem ég fékk,
jafnvel þótt ég ætti að fá hærri
laun í Austurríki.
Nú þjálfar þú alla flokka
Víkings í handknattleik. Ilver
finnst þér vera mesti munur á að
fást við þjálfun hér á landi og í
Póllandi. Og hver eru helstu
vandamálin f sambandi við þjálf-
un hér á landi?
— Hér eru mörg vandamál, og
skal ég telja þau helstu upp án
þess að vera of langorður. Fyrst er
það að hér er ekki æft nægilega
mikið. Þá á ég við eldri flokkana.
Það þarf að æfa svo til allt árið um
kring, ekki minna en ellefu mán-
uði, til þess að góður árangur
náist. Þá er aginn hér ekki
nægilega mikill. Agaleysið kemur
fram í mörgum hlutum sem
leikmenn hér leyfa sér. Allflesta
leikmenn sem komnir eru í meist-
araflokk skortir knatttækni og
boltameðferð er áfátt. Það hefur
verið vanrækt í yngri flokkunum.
Þar er gert of mikið af því að
skipta í tvö lið og spila handknatt-
leik á kostnað grunnþjálfunar,
sem bitnar svo illa á leikmönnum
þegar komið er upp í eldri flokka.
Eitt er það atriði sem ég hef tekið
eftir hér og er mikilvægt að það sé
lagfært. I yngri flokkunum er
notast við of stóra knetti. Dreng-
irnir ráða ekki nægilega vel við
knettina og það kemur illa við alla
boltameðferð sem verið er að
reyna að kenna. Það sem fyrst og
fremst þarf að leggja áherslu á í
þjálfuninni hér á landi er góð
grunnþjálfun, æfa sendingar, skot
og knattmeðferð. Ég hef lagt
áherslu á að Víkingsliðið leiki
hraðan handknattleik en leik-
mönnum gengur ekki alltof vel að
ráða við mikinn hraða þegar
grunnþjálfun skortir.
Finnst þér erfitt að fá íþrótta-
fólkið til að leggja hart að sér við
æfingar hér?
— Nei, síður sn svo. En hins
vegar get ég fundið að því að hafa
ekki fleiri á æfingum. Ég hef
góðan kjarna í Víkingi, 10 manns,
en þeir mættu gjarnan vera
„Takiði almennilega á þeim strákar,“ gæti hann verið að segja
í þessu tilviki. Ljósm. Mbl. RAX.
16—19. Ég get ekki kvartað yfir
áhugaleysi og unga kynslóðin er
sérlega áhugasöm um æfingar
sínar.
Hvað finnst þér hclst vera að
leikskipulagi íslenskra liða?
— Mér finnst að liðin mættu
nota vallarbreiddina betur. Liðin
verða að geta ógnað hvar sem er á
vellinum. Það verður að leggja
mikla áherslu á góða hornamenn,
leikaðferðir liðsins takmarkast
séu þeir ekki góðir.
Þú talaðir um agaleysi hér á
landi. Er það fyrir hendi í
Víkingi?
— Nei, það hef ég ekki fundið
svo heitið geti.
Ilvað með tóbaks- og áfengis-
neyslu, bannar þú slíkt?
— Það á ekki að þurfa að
minnast á slíkt. Allir þeir sem
ætla sér að ná langt í íþróttum
hreyfa hvorki viö tóbaki né áfengi.
Dómaramálin cru alltaf í sviðs-
ljósinu. Ilvað finnst þér um
íslensku dómarana?
— Mér finnst gæta of mikils
ósamræmis í dómgæslunni hér. Þá
þykir mér dómararnir ekki skil-
greina nægilega vel, hvað það er að
spila fastan og harðan varnarleik,
eða grófan og hreinlega háskaleg-
an varnarleik. Þá er eitt atriði sem
ég hef orðið áþreifanlega var við.
Hornamenn fá ekki nægilega oft
dæmd vítaköst þegar þeir fara inn
úr horninu í góðu marktækifæri.
Það er eins og dómarar séu á
þeirri skoðun hér að það sé ekki
eins gott að skora úr horninu og
annars staðar frá af vellinum og
þess vegna ástæðulaust að dæma
víti. Þessu þarf að breyta. En ég
vil að það komi skýrt fram að ég
legg ríka áherslu á það við
leikmenn Víkings að mótmæla
ekki dómum og bera fulla virðingu
fyrir dómurum í starfi sínu.
Framfylgi þeir ekki þeirri reglu
mun ég setja þá í leikbann. Nú
þegar hef ég sent einn leikmann til
búningsherbergja vegna mótmæla
við dómara.
Ég hef tekið eftir því að þú
la*tur óspart í þér heyra af
bekknum í leikjum og ert sífellt
að gefa skipanir til leikmanna.
Hefur þetta ekki slæm áhrif á
leikmenn?
— Ég er búinn að starfa hér svo
stutt að ég er ekki enn sem komið
er búinn að ná nægilegu sambandi
við leikmenn og af því stafar þetta.
Ég er ekki taugaóstyrkur, heldur
er ég að einbeita mér að leiknum.
Að hverju stefnir þú hér með
þjálfun þinni?
— Fyrst og fremst vonast ég til
að geta gert íslenskan handknatt-
leik betri en hann er í dag.
Hefur þú trú á að lið þitt
Víkingur sigri í íslandsmótinu?
— Við getum sigrað en til þess
að það takist verðum við að vinna
vel saman.
Hvaða lið telur þú vera erfið-
asta keppinautinn?
Val, en Hafnarfjarðarliðin FH
og Haukar verða líka erfið. Þá
finnst mér ÍR hafa gott lið, en
þeim hættir til að vera mjög
misjafnir í leikjum sínum.
Leggið þið í Víkingi sérstaka
áherslu á Evrópuleikina sem
framundan eru?
Eigið þið möguleika?
— Allir leikir eru jafn mikil-
vægir. Við tökum aðeins einn leik
fyrir í einu. Möguleikar okkar í
Evrópukeppninni fara að sjálf-
sögðu eftir því hvaða liði við
lendum á móti í annarri umferð.
Bodan, cr eitthvað sem þú vilt
að komi fram að lokum í þessu
spjalli okkar?
— Það er helst það að mér
finnst handknattleikurinn sem
leikinn er hér of hægur, og það
stafar einfaldlega af því að
leikmenn hafa ekki yfir nægilegri
tækni að ráða, grunnþjálfunin er
ekki í lagi. Verði leikinn hraðari
handknattleikur verður hann
skemmtilegri og fleiri áhorfendur
koma til með að sækja leikina.
ÞR.
ÍS og Njarð-
vík ikvöld
• Bodan hrópar ábendingar til ieikmanna sinna og allt er það á þýsku.
EINN leikur verður í úr-
valsdeildinni í köríuknatt-
leik í kvöld. ÍS og UMFN
leika í íþróttahúsi Kenn-
araháskólans og hefst leik-
urinn kl. 20.00.
Það þarf vart að taka það
fram, að um hörkuleik
verður að ræða, en bæði lið
hafa hlotið tvö stig í tveim-
ur leikjum. ÍS tapaði sínum
fyrsta leik fyrir KR, en
sigraði Val sannfærandi.
UMFN hefur ekki komið
eins sterkt til leiks eins og
búist hafði verið við. Njarð-
víkingar sigruðu ÍR með
aðeins þriggja stiga mun á
heimavelli, en töpuðu síðan
illa fyrir KR um síðustu
helgi. Bæði lið hafa banda-
ríska leikmenn í sínum
röðum, Dirk Dunbar og Ted
Bee, og verður vafalaust
gaman að fylgjast með
viðureign þeirra.