Morgunblaðið - 26.10.1978, Page 48
AUííI/VSINíiASÍMINN KK:
22480
FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1978
Saksóknari ákveð-
ur frekari rannsókn
á Guðbjartsmálinu
Ágreiningur um hvar eigi að rannsaka málið
RÍKISSAKSÓKNARI hofur ákvcðið að frokari rannsókn skuli fara
fram á nokkrum þáttum svokallaðs Guðbjartsmáls. Ilins voj?ar or
risinn upp ásroininjíur milli omba'ttis ríkissaksóknara og sakadóms
Roykjavíkur um það hvar rannsóknin skuli fara fram og hofur
Ilastiróttur íslands vorið falið að útskurða í málinu.
Svo sem kunnufjt er var Guð-
bjartur heitinn Pálsson handtek-
inn í VoKunum á Vatnsleysuströnd
í desember 1976 og hafði sú
Skáksveitin
mœtt til leiks
í GÆR átti að draga um töfluröð
Ólympiuskákmótsins í Buenos
Aires í Argentínu, en þeirri athöfn
var frestað þar til í dag því
allmargar skáksveitir voru ekki
rnadtar til leiks. í frétt frá Reuter-
fréttastofunni seint í gærkvöldi var
íslenzka sveitin talin í hópi þeirra,
sem ekki voru mættar.
Morgunblaðið hringdi um mið-
nættið til Buenos Aires og náði |
sambandið við Helga Ólafsson skák-
mann. Bar hann þessar fréttir til
baka. Kvað hann íslenzku sveitina
hafa komið til Buenos Aires á
þriðjudag eftir langt og strangt
ferðalag. Hitt væri rétt, að nokkrar
sveitir væru ókomnar og því hefði
drættinum verið frestað. Helgi kvað
aðstæður allar mjög góðar en
skipulag allt heldur laust í reipun-
handtaka mikla eftirmála eins og
menn muna. Nokkru eftir hand-
tökuna hófst rannsókn á meintu
fjármálamisferli Guðbjarts og var
hún rétt nýhafin þegar Guðbjartur
lézt 20. marz 1977. Sakadómur
Reykjavíkur annaðist rannsókn
málsins. Við lát Guðbjarts sendi
sakadómur gögn málsins til ríkis-
saksóknara og óskaði umsagnar
um það hvort rannsókninni skyldi
fram haldið.
Embætti ríkissaksóknara hefur
síðan haft málið til athugunar og
hefur saksóknari nú ákveðið að
láta halda áfram rannsókn á
nokkrum þáttum þess. I millitíð-
inni gerðist það að breytingar voru
gerðar á réttarfarslögunum og
Rannsóknarlögreglu ríkisins falin
frumrannsókn slíkra mála í stað
sakadóms. Ríkissaksóknari taldi
að sakadómur ætti að halda áfram
rannsókn þessa tiltekna máls, þar
sem hann hefði annast frumrann-
sóknina á sínum tíma. Þessu
hafnaði sakadómur og hefur sak-
sóknari kært þann úrskurð til
Hæstaréttar. Er úrskurðar hans
að vænta innan skamms.
Ríkisstjórnarfundur í dag um smjörlíkis- og gosdrykkjamálið:
Segja fulltrúar ASÍ í
verðlagsnefnd af sér?
Góð síldveiði
Ljósm. Snorri Snorrason.
SÍLDIN — Góð síldveiði var í fyrrinótt bæði hjá reknetabátum og nótabátum. Til Hornafjarðar bárust
2000 tunnur í gær og álíka magn til Vestmannaeyja. Þá barst fyrsta síldin til Djúpavogs, 700 tunnur. Var
saltað af kappi á þessum stöðum í gær. Gott veður var á síldarmiðunum í gærkvöldi og búist var við góðri
veiði. Þessi mynd sýnir síldarbáta koma inn til Hafnar í Hornafirði.
Gangbrautarslys á Akureyri:
Sjö ára drengur
slasast hættulega
Akureyri, 25. október
ALVARLEGT umferðarslys
varð á Þingvallastræti
skammt vostan við Hamra-
gorði kl. 12.55 í dag. Sjö ára
drongur som var að fara suður
yfir Þingvallastræti eftir
morktri gangbraut á leið í
skóla var þar fyrir fólksbil og
hiaut alvarlega ávcrka.
Bíll hafði numið staðar við
gangbrautina á hægri akrein til
þess að hleypa drengnum yfir
þegar annar bíll kom á vinstri
akrein og hélt rakleitt áfram
þannig að drengurinn varð
f.vrir honum.
Hann hlaut mjög alvarlega
höfuðáverka auk annarra
meiðsla og var fluttur rænulaus
í sjúkrahús. Þaðan var hann
umsvifalaust fluttur í flugvél
til Reykjavjkur og lagður inn á
sjúkrahús þar. — Sv.P.
SAMKVÆMT upplýsingum, sem Morgunblaðið
hefur aflað sér innan Alþýðusambands íslands eru
mjög sterkar raddir þar um að fulltrúar ASÍ í
verðlagsnefnd, sem eru þrír, Snorri Jónsson,
Ásmundur Stefánsson og Jón Sigurðsson, segi allir
af sér í nefndinni, breyti ríkisstjórnin ekki þeirri
ákvörðun, sem hún tók í sambandi við gosdrykki,
Morgunblaðið átti í gær samtal við
Ásmund Stefánsson hagfræðing,
sem er einn fulltrúa ASI í verðlags-
nefnd. Ásmundur sagði, að það væri
ljóst, að ákvörðun nefndarinnar væri
tekin að athuguðu máli og sú
samþykkt, sem nefndin hafi gert, feli
í sér lausn í málinu að mati
nefndarinnar. Það hafi verið mat
nefndarinnar að þær miklu breyting-
ar, sem orðið hefðu á málinu frá því
er fyrri samþykkt nefndarinnar var
gerð, gengishækkun og launabreyt-
ingar, sem óskað hafði verið eftir að
tekið yrði tillit til í nýjum beiðnum,
hafi breytt málinu svo, að ekki hafi
verið stætt á öðru en samþykkja
frekari hækkun og þær tillögur, sem
verðlagsstjóri lagði fyrir nefndina.
„Við höfum auðvitað margfalda
ábyrgð í þessum málum sem fulltrú-
ar í verðlagsnefnd. Við hljótum að
verða að skoða, hvaða áhrif það
hefur á fyrirtækin, ef ekki er gefin
heimild til hækkunar. Það er fjarri
því að hækkun sé eitthvert markmið
í sjálfu sér, en atvinna fólksins, sem
vinnur við fyrirtækin er í hættu."
Ásmundur Stefánsson kvað það
vera hlutverk fulltrúanna í verðlags-
nefnd að sjá til þess, að hækkanir
verði eins litlar og réttlætanlegt sé.
Það verður alltaf að meta, og oft
verða fulltrúar launþega undir og
atkvæði oddamanns ræður. Því hafa
smjörlíki og flugfargjöld. Ákvörðun ríkisstjórnar
innar sé í raun vantraust á fulltrúa ASÍ f
nefndinni. Ríkisstjórnin samþykkti að heimila
allnokkuð minni hækkun, en verðlagsnefnd hafði
samþykkt, en málið verður í dag tekið upp að nýju
á ríkisstjórnarfundi, sem verðlagsstjóri situr.
hækkanir á stundum orðið meiri en
fulltrúar ASÍ hefðu kosið. í öðrum
tilfellum hafa þeir verið samþykkir
Geir Hallgrímsson:
Eignaskattsauki bitnar
illa á ellilífeyrisþegum
Koma verður í veg fyrir augljóst ranglæti
GEIR Hallgrímsson hvatti til
þess í ræðu á Alþingi í gær, að
eigriaskattsaukinn yrði felldur
niður í meðferð þingsins á
bráðabirgðalögum ríkisstjórnar
innar og sagði ljóst. að þessi
aukaskattur hitnaði mjög illa á
fjölmörgum ellilífeyrisþegum.
Nauðsynlogt væri, að þingnefnd
endurskoðaði þotta ákvæði sér
stakloga og gerði breytingar til
þess að koma í veg fyrir augljóst
ranglæti. Ellilífeyrisþegi, sem á
langri starfsævi hefði eignast
skuldlausa eða skuldiitla húseign
hefði í mörgum tilfellum fengið
lítt viðráðanlogan aukaskatt.
Geir Hallgrímsson gagnrýndi
einnig eignaskattsauka á fyrirtæki
og sagði, að hann mundi draga úr
og rýra eiginfjárstöðu þeirra, auka
eftirspurn þeirra eftir lánsfjár-
magni og fjármagnsspennu og
væri því ekki heppileg leið í
baráttu gegn verðbólgu. Formaður
Sjálfstæðisflokksins sagði, að
tekjuskattsaukinn væri ranglátur,
siðferðilega rangur og lagalega
vafasamur.
I þingræðu sinni vakti Geir
Hallgrímsson athygli á því, að
kaupgjaldsvísitalan mundi hækka
um 10—12% hinn 1. desember
þrátt fyrir vísitöluleik og niður-
greiðslur ríkisstjórnarinnar. Að-
gerðir ríkisstjórnarinnar hafa því
lítinn árangur borið, sagði Geir
Hallgrímsson. Þær hafa mistekizt
í meginatriðum. Þær hafa engan
vanda leyst, heldur aukið á hann.
Sjá nánari frásögn bls. 26.
hækkunum. „Við tökum þar af-
stöðu," sagði Ásmundur, „í samræmi
við það, sem við teljum rétt í hverju
tilviki. I þessu tilfelli tókum við
algjörlega rökstudda ákvörðun, því
að afkoma þessara fyrirtækja
stefndi að öðrum kosti í slíkt óefni,
að atvinna þess fólks, sem þar er í
störfum, var í veði. Þá er það heldur
ekki skynsamlegt að standa í vegi
fyrir því, að hér geti starfað
innlendur atvinnurekstur."
Ásmundur Stefánsson sagði í
sambandi við afgreiðslu ríkisstjórn-
arinnar á málinu, að aðeins ein
tillaga hafi verið í gildi, þegar
ríkisstjórnin hafi tekið ákvörðun
sína, þar sem verðlagsnefnd hafi
numið úr gildi fyrri tillögu sína,
þegar hins síðari var gerð. „Við
teljum því,“ sagði Ásmundur, „að
ekki hafi verið um neinar tvær
tillögur að velja." Þá spurði Morgun-
blaðið Ásmund hvað hann myndi
gera, ef ríkisstjórnin breytti ekki
ákvörðun sinni, hvort hann myndi
segja sig úr nefndinni. Ásmundur
kvaðst ekki geta svarað því á þessari
stundu, hver yrðu viðbrögð sín, hann
hefði enga ákvörðun tekið um það,
hvort hann segði af sér.
Samkvæmt upplýsingum Davíðs
Scheving Thorsteinssonar, formanns
Félags íslenzkra iðnrekenda, starfa
um 500 manns hjá umræddum
fyrirtækjum. Davíð var spurður um
það, hvort hann teldi einhverja von
til þess, að ríkisstjórnin endurskoð-
aði afstöðu sína. Hann sagði: „Ég
geng út frá því sem gefnum hlut, því
að annars er hún ekki stefnu sinni
um samráð við aðila vinnumarkaðar-
ins trú, því að ákvörðun verðlags-
nefndar er samhljóða ákvörðun aðila
vinnumarkaðarins."