Morgunblaðið - 21.11.1978, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 1978
MARGT manna var saman komið
á Reykjavíkurflugvelli þegar
Boeing 727 þota Flugleiða lenti
þar á sunnudagskvöldið með lík
sjö íslendinga sem fórust f
flugslysinu á Sri Lanka í fyrri
viku. Meðal viðstaddra voru
nánustu vinir og ættingjar hinna
látnu. stjórnarmenn Flugleiða,
samgönguráðherra, ýmsir
embættismenn og fjöldi
einkennisklæddra flugfreyja og
flugliða Flugleiða sem stóðu
heiðursvörð. Lúðrasveit lék
sorgarlög þegar líkkistunum
hafði verið raðað upp fyrir utan
flugvélina. Ekki var -komið með
lík Þórarins Jónssonar, en það
verður flutt til landsins siðar.
Móttökuathöfnin á Reykjavíkur-
flugvelli var virðuleg og vel
skipulögð af hálfu Flugleiða.
Flugvöllurinn var girtur af og inn
um annað hliðið fyrir aftan
Loftleiðahótelið var eingöngu
hleypt vinum og ættingjum hinna
látnu. Aðstandendurnir röðuðu sér
upp við hiið líkbifreiðanna sjö sem
fluttu líkkisturnar til sérstakrar
minningarathafnar í Fossvogskap-
ellu. Svæðið þar sem móttöku-
athöfnin fór fram var sérstaklega
flóðlýst.
Kisturnar, sem sveipaðar voru
íslenzka fánanum, voru færðar úr
vélinni tvær og tvær í senn.
Kisturnar voru greinilega merktar
nöfnum hinna látnu. Þegar kistun-
um hafði verið komið fyrir á
börum fyrir utan flugvélina var
slökkt á hreyflum þotunnar og
Lúðras.veit Reykjavíkur lék
sorgarlög. Við svo búið gengu
flugliðar fram og báru líkkisturn-
ar að líkbifreiðunum.
Frá Reykjavíkurflugvelli hélt
líkfylgdin að Fossvogskapellu, þar
sem um 100 nánustu ættingjar og
vinir þeirra sem fórust voru
saman komnir. Líkmenn úr röðum
starfsfólks Flugleiða báru kisturn-
ar sjö inn í kór kapellunnar. Séra
Ólafur Skúlason dómprófastur
flutti hugleiðingu og bæn við
athöfnina.
Frá móttökuathöfninni á Reykjavíkurflugvelli á sunnudagskvöld þegar þota FÍugleiða kom heim með lík sjö tslendinganna sem
fórust í flugsiysinu á Sri Lanka í fyrri viku. Ljósm. MbL. Kristján.
Flugliðar mynda heiðursvörð við þotu Flugleiða meðan kisturnar eru Einkennisklæddar flugfreyjur voru viðstaddar móttökuathöfnina.
teknar út úr flugvélinni og komið fyrir á börum fyrir utan vélina.