Morgunblaðið - 21.11.1978, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 1978
31
| smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Atvinna óskast
Maður um fimmtugt óskar eftir
atvinnu frá áramótum. Hef
starfaö viö innheimtu-, gjald-
kera- og skrifstofustörf. Margt
kemur til greina, t.d. hálft starf.
Þeir, sem vildu sinna þessu
vinsamlega leggi nöfn sín inn á
afgr. Mbl. merkt: „G — 221".
Umboð — Sala
Sænskt umboösfyrirtæki óskar
etir aö komast í samband viö
íslenzkt umboösfyrirtæki, til aö
selja í heildsölu hluti til tóm-
stundaiökana. Vara þessi hefur
náö miklum vinsældum í
Miö-Evróþu. Gott fyrirtæki fær
góöan ágóöa af sölu þessari.
Skrifiö:
Balifa a.b.,
Murkelvaagen 134,
S-184 00 Akersberga,
Sweden.
Munið sérverzlunina
meö ódýran fatnaö.
Verölistinn, Laugarnesvegi 82,
S. 3133Q
Atvinnuhúsnæði
í Kópavogi
Tii sölu ca. 200 ferm. jaröhæö
við Auöbrekku.
Lögfræöi- og endurskoðunar-
stofa Ragnars Ólafssonar og
Ólafs Ragnarssonar, sími
22293.
Skrifstofuhúsnæöi
Til leigu 80—120 fm skrifstofu-
húsnæöi viö Borgartún á 2.
hæö. Tilbúiö til afhendingar.
Lögfræöi- og endurskoöunar-
skrifstofa Ragnars Ólafssonar
og Ólafs Ragnarssonar hrl., sími
22293.
Keflavík — Suðurnes
Til sölu m.a.
Keflavík
2ja, 3ja, 4ra og 5 herb. íbúöir og
góöar sér hæöir. Sumar lausar
strax.
Höfum kaupendur aö raöhús-
um, einbýlishúsum og viölaga-
sjóöshúsum. Ennfremur aö
flestum gerðum íbúöa. Mikil
eftirspurn.
Sandgerði
4ra herb. nýleg íbúö í fjölbýlis-
húsi.
4ra herb. efri hæð í tvíbýlishúsi.
Bílskúr.
Njarðvík
4ra herb. neöri hæö. Laus strax.
3ja herb. neöri hæö. Laus strax.
Eigna- og verðbréfasalan,
Hringbraut 90, Keflavík, sími
92-3222.
Brotamálmur
er fluttur aö Ármúla, sími 37033.
Kaupi allan brotamálm lang-
hæsta veröi. Staögreiösla.
Hilmar Foss
lögg. skjalaþýö. og dómt. Hafn-
arstræti 11, sími 14824.
Freyjugötu 37, sími 12105.
IOOF Rb.4. = 12811218VÍ —
IOOF8=16010228’/4=III
IOOF = Ob.1P. = 16011218'/2 —
Ð.st.
Farfuglar
Leöurvinnunámskeiö
miövikudag kl. 8—10 á Far-
fuglaheimilinu, Laufásvegi 41.
UTIViSTARFERÐIR
K.F.U.K. AD
Saumatundur í kvöld kl. 8.30 aö
Amtmannstíg 2B. Efni: Söngur-
inn sem blessaöi mig. Vitnis-
burður. Kaffi. Allar konur hjart-
anlega velkomnar. Viö viljum
svo minna allar fétagskonur á aö
vinna vel fyrir bazarinn, sem
veröur laugardaginn 2. desem-
ber.
Fíladelfía
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30. Jóhann Pálsson frá
Akureyri talar.
Utivistaferðir
Þriðjudagur 21/11 kl. 20.30.
Hornsfrandamyndakvöld í
Snorrabæ (uppi f Austurbæjar-
bíói) aðg. ókeypis, allir vel-
komnir, frjálsar veitingar. Jón
Freyr Þórarinsson sýnir lit-
skyggnur. Komiö og kynnist
náttúrufegurð Hornstranda og
feröum þangaö. Hittiö gamla
ferðafélaga og rifjiö upp minn-
ingar úr feröum.
Útivist.
RÚSARKROSSREGLAN
V ATLANTIS PRONAOS
Pósthólf 7072, 107 Reykjavík.
Hjálpræðisherinn
Þriöjudag kl. 20.00 biblíulestur
og bæn. Herb. 119. Allir vel-
komnir.
Povl C. Ammendrup
—Minningarorð
Fæddur 7. febrúar 1896.
Dáinn 12. nóvember 1978
Kær mágur, er horfinn frá
okkur. Þá hrannast minningarnar
upp í huga mér, bjartar og fagrar,
frá löngum kynnum okkar.
Povl þráði mjög að ferðast og
sjá sig um í heiminum, þegar hann
var ungur maður og af tilviljun
barst honum upp í hendurnar
tækifæri til íslandsferðar vorið
1921.
Tveir félagar hans úr herþjón-
ustu höfðu útvegað sér ódýrar
ferðir til íslands og eins og
hálfsmánaðar uppihald hér, og
buðu Povl að slást með í förina.
Þessir þrír ungu menn komu svo
til íslands, kunnu ekki orð í
íslensku og vissu lítið um land og
þjóð.
Félagar Povls héldu heim á
tilskildum tíma, en forlögin höfðu
ætlað Povl annað, hann hafði
aðeins dvalið hér í hálfan mánuð,
þegar hann sá í fyrsta sinn á
kvikmyndasýoingu í Nýja Bíó,
unga íslenska stúlku, sem átti eftir
að verða lífsförunautur hans.
Það þarf ekki að orðlengja það,
en þarna varð ást við fyrstu sýn,
sem entist meðan bæði lifðu.
Áramótin 1921—1922 opin-
beruðu þau trúlofun sína og gengu
í hjónaband 22. júlí 1922 í
Kaupmannahöfn.
Þessi unga stúlka var systir mín,
María, dóttir Samúels Guðmunds-
sonar múrara, og konu hans
Ingibjargar Danivalsdóttur. For-
eldrar mínir voru ekki sérlega
ánægð með að sjá á eftir elstu
dóttur sinni, aðeins átján ára, til
framandi lands, einkum þar sem
hún hafði aldrei áður verið að
heiman. Starf beið Povls í heima-
landi hans, en þau festu þar ekki
rætur og fluttust alkomin aftur
hingað til lands eftir eins og hálfs
árs dvöl þar ytra.
Móðir mín gleymdi aldrei þeirri
fórnfýsi tengdasonar síns, að
setjast að hér á landi, fyrir konu
sína, og reyndist honum, sem
besta móðir, enda kallaði hann,
hana ávallt „mömmu“ og kom
fram við hana sem besti sonur.
Mágur minn setti á stofn
klæðskerasaumastofu hér í bæ,
fyrst að Laugavegi 19, og síðar að
Laugavegi 58, Maja rak aftur á
móti verslunina Drangey, fyrst á
Grettisgötu og svo að Laugavegi
58.
Povl hætti síðar rekstri sauma-
stofunnar, en sneri sér að
vðrzunarstörfum, við hlið konu
sinnar.
Eftir fimm ára hjúskap
eignuðust þau son, Tage
Ammendrup, og sjö árum síðar
dóttur, Jane Ingibjörgu, en hana
misstu þau eins og hálfs árs
gamla.
Eins og ævinlega stóðu þau
saman, og studdu hvort annað í
þeirra miklu sorg við dótturmiss-
inn.
Samheldni Maju og Povls í
hjónabandinu var einstök í þau 53
ár, sem það stóð og bæði lifðu,
enda áttu þau mörg sameiginleg
áhugamál, bæði í starfi og
frístundum. Glöggt vitni um ást
þeirra á blóma- og trjárækt ber
garðurinn þeirra fallegi, við
sumarhúsið Dalakofann í Mos-
fellssveit. Þar áttu þau Maja og
Povl margar hamingjustundir með
syni sínum, tengdadóttur og
barnabörnum sinum þremur, Povl,
Axel og Maríu.
Povl var sérlega aðlaðandi
maður, sviphreinn og prúðmann-
legur, kátur og skemmtilegur í
vinahópi og gæddur ríkri kímni-
gáfu, og hló hátt og innilega að
græskulausu gamni.
I raun og veru var Povl sérlega
viðkvæmur og tilfinninganæmur
maður, en dulur við aðra en sína
nánustu. Það var oft glatt á hjalla
á bernskuheimili mínu, mikið
spilað og sungið og var Povl þar
góður liðsmaður, hafði alla tíð
yndi af söng og hljómlist.
Fyrir réttum þremur árum
missti Povl sinn elskaða lífsföru-
naut yfir móðuna miklu.
Sorg hans var mikil, enda hafði
allt þeirra líf verið umvafið ást og
umhyggju, hvors fyrir öðru, synin-
um og barnabörnunum. Eg tel að
mágur minn hafi verið mikill
gæfumaður er alltaf var umvafinn
ást og kærleika, fyrst af konu sinni
og síðustu þrjú árin af elskulegum
syni sínum, tengdadóttur og
barnabörnum.
Ég bið guð að styrkja Tage, konu
hans og börnin í sorg þeirra, og
sendi sérstaka samúðarkveðju til
Páls, Þórdísar og barna þeirra, en
þau dveljast erlendis.
Ég þakka elskulegum mági fyrir
allt, megi guð blessa minningu
hans.
Emilía Samúelsdóttir.
Við erum harmi slegin. Afi er
dáinn. Hann sem ávallt var
miðpunkturinn, hin trausta undir-
staða fjölskyldunnar. Þetta bar
svo brátt að, við erum ekki enn
búin að gera okkur grein fyrir hve
mikið við höfum misst.
Þegar við vorum lítil, svæfði
hann okkur á kvöldin, strauk tárin
af hvörmum þegar eitthvað amaði
að og hló góðlátlega að okkur
þegar við vorum óþekk. Þegar við
uxum úr grasi kenndi hann okkur
muninn á réttu og röngu og hver
væru hin sönnu verðmæti lífsins,
verðmætin, sem möl og ryð fá ekki
grandað.
Hlýju hans og góðmennsku
gleymum við ekki, né einurð hans
og heiðarleika, sem verður okkur
að leiðarljósi í lífinu.
Andlát elskulegrar ömmu okkar
var afa þung raun, svo þung að
honum fannst lífið verða lítils
virði óg tómlegt er hún hvarf frá.
En hann æðraðist aldrei, gafst
aldrei upp.
Við þökkum elskulegum afa
okkar samfylgdina. Minningin um
hann mun aldrei gleymast.
Barnabörnin.
Yfir heimilið að Tunguvegi 7,
hefir dregið skugga mikillar sorg-
ar, er höfuð ættarinnar, Povl
Ammendrup, er svo snögglega
burtu kallaður, en útför hans fer
fram í dag frá Fossvogskapellu kl.
1.30.
Povl var fæddur í Kaupmanna-
höfn 7/2 1896 og var því 82 ára er
hann lést. Foreldrar hans voru
Jane og Peder Ammendrup, bæði
af góðum bændaættum. Systkinin
voru 6 og því oft þröngt í búi á svo
stóru heimili, en móðir hans var
glaðlynd og gestrisin við menn og
dýr svo í minnum var haft.
Árið 1921 flyzt hann til íslands.
Er hann síðar sagði frá því,
hvernig viðbrögð móður hans voru
við því að hann færi að heiman og
það alla leið norður til Islands,
sagði hún að hún gæti vel sætt sig
við að hann færi til íslands, því
þaðan myndi hann snúa hið
bráðasta aftur og ekki una sér.
Er til íslands kom, ræöst hann
til starfa hjá Andersen og Lauth
og kynnist þar .konuefni sínu,
Maríu, dóttur Samúels Guðmunds-
sonar og Ingibjargar Danivals-
dóttur. Arið 1922 fluttust þau til
Danmerkur og giftast þar, fór
vígslan fram í Hans Ravsens
kirkju á Islandsbryggju í Kaup-
mannahöfn. Þau eignast son árið
1924, en hann lázt í fæðingu og
varð María um tíma mjög veik og
vart hugað líf. Eftir þetta festu
þau ekki yndi í Danmörku og
fluttust til íslands. Bjuggu þau
fyrst í Borgarnesi í eitt ár en
fluttust síðan til Reykjavíkur, þar
sem Povl opnaði eigin saumastofu
og rak hana síðan allt þar til árið
1955, er hann hóf að vinna við
verzlun þeirra hjóna, Verzlunina
Drangey, en María hafði keypt þá
verzlun árið 1936. Ráku þau
verzlunina alla tíð, en María lézt
fyrir 3 árum og var það honum
mikill missir.
María og Povl eignuðust eina
dóttur, Jane, en hún lézt ung að
aldri og var þeim mikill harm-
dauði.
Sonur þeirra er Tage, giftur
Maríu Magnúsdóttur, og eiga þau
þrjú börn, Pál, sem er við nám í
Bandaríkjunum og er giftur Þór-
dísi Hallgrímsdóttur, eiga þau
tvær dætur, Sigrúnu og Fríðu;
Axel, sem er blaðamaður og
Maríu, sem er við menntaskóla-
nám.
Povl og María keyptu húsið að
Laugavegi 58 árið 1940 og hafa
rekið þar verzlun alla tíð, og
bjuggu þau þar einnig fyrstu 20
árin, en hin síðari ár bjuggu þau
að Tunguvegi 7, ásamt syninum
Tage og fjölskyldu.
Fjölskyldan var mjög samrýnd
og kært með þeim öllum, ást
þeirra og umhyggja fyrir gróðri
var mikil, og ber hinn mikli
gróðurreitur við sumarbústað
þeirra í Mosfellssveit þess glöggt
vitni, þar sem áður var melur, er
nú unaðsreitur með trjám og
blómum.
Það var mikil gæfa fyrir Povl að
fjölskylda Maríu hafði hann í
miklu uppáhaldi. Þótti honum
mjög vænt um Ingibjörgu og
Samúel tengdaforeldra sína, svo
og dætur þeirra tvær, Jóhönnu,
sem dó á besta aldri og Emelíu
sem er gift Baldvin Jónssyni hrl.
En aldrei missti hann þó samband
við fjölskyldu sína í Danmörku.
Harmar nú lát mágs síns, mág-
kona hans Ebba, háöldruð kona.
Povl átti því láni að fagna í
lífinu, að eiga góða konu, sem var
honum mikill harmdauði, og þá
ekki síður að eiga góðan og
ástríkan son og tengdadóttur, sem
ávallt hafa staðið við hiið hans
tilbúin að rétta fram hjálparhönd,
og styðja hann og styrkja ef
eitthvað bjátaði á. Hann var
elskaður af barnabörnum og
barnabarnabörnum sínum og öll-
um sem til hans þekktu, hann
miðlaði öðrum af hjartagæsku
sinni og hlýju.
Hann fór í sína daglegu göngu-
ferð sem varð hans hinsta, og ég
trúi að þannig hafi hann viljað
kveðja, og halda á fund þeirra sem
á undan voru gengnir sama veg.
Það ríkir mikill söknuður er við
kveðjum góðan og mikilhæfan
mann. Við vottum fjölskyldu hans
innilegustu hluttekningu, missir
þeirra er mikill en þau eiga
dýrmætar minningar um sam-
eiginlegar stundir og störf.
S.Ó., H.G.
Ung stúlka
týndi veski
UM áttaleytið s.l. sunnudagskvöld
tapaði ung stúlka grænu seðla-
veski fyrir utan Laugaveg 76 eða í
stigagangi þess húss. I veskinu
voru 80 þúsund krónur í peningum
og einnig umslag með einhverjum
peningum, en umslagið var stílað á
Gunnar Kristjánsson. Einnig voru
skilríki í veskinu. Veskið er merkt
Ingibjörgu Kristjánsdóttur,
Dílahæð 11, sem er í Borgarnesi.
Skilvís finnándi er vinsamlega
beðinn að skila veskinu til lögregl-
unnar í Reykjavík.
Heidradur
RÍKISSTJÓRN Spánar hefur
sæmt Lúðvíg Hjálmtýsson ferða-
málastjóra heiðursmerkinu med-
alla al Mérito Tueristico, fyrir
störf að ferðamálum á Islandi og
samvinnu um ferðamál á Norður-
löndum.
Afhenti
trúnaðarbréf
HINN 17. nóvember afhenti Pétur
Eggerz sendiherra Walter Scheel
forseta Sambandslýðveldisins
Þýskalands trúnaðarbréf sitt sem
sendiherra íslands í Sambandslýð-
veldinu Þýzkalandi.
Lítið
barn
rfíf*
sjónsvið