Morgunblaðið - 21.11.1978, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 1978
35
Að hjálpa fólki til að
velja sér nám og störf
Fyrir rúmu ári var samþykkt í borgarstjórn Reykjavíkur tillaga frá Elínu Pálmadóttur um að
koma á námsráðgjöf og starfsfræðslu fullorðinna við Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur. Og í haust var
ráðin í það starf Anna G. Jónsdóttir. Hefur hún tekið til starfa og er til viðtals á fræðsluskrifstofu
Reykjavíkur kl. 1—3 á daginn. Þetta er fyrsti námsráðgjafi af þessu tagi. Hvergi í skólakerfinu er
ráðgjöf nema við tvo einstaka skóla, í Hamrahlíðarskóla og Fjölbrautarskólanum í Breiðholti. Af því
tilefni átti Mbl. tal við Önnu G. Jónsdóttur, svo og Guðrúnu Halldórsdóttur, skólastjóra Námsflokka
Reykjavíkur, sem hefur á hendi fjölbreyttustu fullorðinsfræðsluna í Reykjavík.
I greinargerð með samþykkt-
inni um námsráðgjöf og starfs-
fræðslu fyrir fullorðna sagði
m.a.: „Á undanförnum árum
hefur komið í ljós mikil þörf
fyrir þjónustu af því tagi, sem
lagt er til. Þeir sem koma út á
vinnumarkaðinn, eða af ein-
hverjum ástæðum þurfa eða
vilja skipta um starf, eiga í
erfiðleikum með að vita, hvar
þeir eiga að leita fyrir sér til að
fá vitneskju um, hvort starfið
sjálft muni henta, hvers það
krefst, hvernig undirbúningi
fyrir það er háttað og hvar hann
er að fá. Á þetta ekki síst við um
konur, sem eru að skipta frá
heimilisstörfum og í störf úti á
vinnumarkaðinum. I fræðslu-
kerfinu bjóðast nú víða mögu-
leikar á endurmenntun og
fræðslu til að fylla upp í eyður í
þeim tilgangi að standast kröfur
og samkeppni á vinnumarkaðin-
um. Er t.d. mjög áberandi í
Námsflokkum Reykjavíkur, hve
ört vaxandi ásókn er í allar
greinar, sem veita viðurkenn-
ingu um starfshæfni eða búa
undir próf. En hvergi í fræðslu-
kerfinu er, eins og er, gert ráð
fyrir því að veitt,sé aðstoð við
starfsval eða leiðbeiningar um
námstækifæri eftir að grunn-
skóla lýkur. Miðar tillagan við
að sú ráðgjöf fari fram á
fræðsluskrifstofunni og nái til
framhaldsnámsins alls og full-
orðinsfræðslunar í borginni.
Miðar hún að því að veita
einstaklingunum hjálp til að
finna sér starf við sitt hæfi,
enda er það borginni í hag, að
sem flestir einstaklingar séu
ánægðir í starfi sínu, séu það
sem kallað er á réttri hillu."
Tækifærin hafa
margfaldast
— Þörfin á slíkri ráðgjöf er
vissulega fyrir hendi, sagði
Guðrún. Á hverju ári komu
fjöldi manns til mín, einkum
konur og oft unglingar, og ræða
um hvað þá langar til að verða
og um innkomuleiðir til að af
því geti orðið. Þetta fólk er blátt
áfram að leita að ráðgjöf, sem
ekki er í rauninni í verkahring
skólastjóra, þótt maður hafi
reynt að leiðbeina eftir því sem
tök voru á. Um allt land er fólk í
leit að slíkri ráðgjöf, sem
skólastjórar geta ekki veitt. Það
er byrjað að velta fyrir sér
starfi og er að kanna hvar það
geti fengið aðstöðu til að búa sig
undir það og kynnast því.
Samfélagið er í dag svo opið, að
möguleikar til slíks hafa marg-
faldast fyrir fólk á öllum
aldursskeiðum.
Anna sagði, að þótt þetta
starf hefði enn ekkert verið
auglýst, þá hefði þegar leitað til
hennar fólk á öllum aldri, konur
og karlar, unglingar og fullorðið
fólk. Hún kvaðst túlka sitt
hlutverk á þann veg að þar á sé
ekki um aldursmörk að ræða.
Sömu skólar og sömu möguleik-
ar bjóðast fólki á öllum aldri,
hvort sem er til grunnmenntun-
ar eða starfsmenntunar. Aðstoð
í þessum efnum þurfi hvort sem
er þeir, sem lokið hafa grunn-
skóla eða aðrir, sem hætt hafa
fyrr í skólakerfinu og í skóla-
kerfi við aðrar aðstæður.
— Það sem þetta hlutverk
felur í sér, er að velja námsleiðir
með fólki og hjálpa því til að
gera sér grein fyrir og velja sér
nám og störf í samræmi við sitt
áhugasvið. í nútímaþjóðfélagi,
sem er mjög flókið, er ekki hægt
að ætlast til þess að fólk geti
vitað um öll tækifæri til náms
og starfs. Hér kemur ýmislegt
til. Ekki aðeins að fólk sé sér
lítið meðvitandi um áhugasvið
sitt, heldur hafa líka aðrir
þættir áhrif á valið, svo sem
heimilisástæður, heilsufar,
áhugasviö jafnaldra, skynjun á
kynhlutverki viðkomandi o.fl.
Slíkt hefur gífurleg áhrif á
náms- og starfsval. Þessir þætt-
ir geta auðveldlega ráðið vali
einstaklingsins, án þess að
ástæða sé í rauninni til þess.
— I öðru lagi getur ráðgjafi
veitt fólki aðstoð við að færast
hæfilega mikið í fang, ekki of
mikið og ekki of lítið, heldur
Anna áfram. Og Guðrún skýtur
inn í, að þessi þáttur sé einn sá
mikilvægasti þar sem fólki
hætti til ofmats eða vannjats
vegna óvissunnar um eigin getu.
Og Anna bætir við, að oft geti
það villt fólki sýn um hvað það
getur færst í fang, ef langt er
um liðið síðan það var í skóla.
Þarna komi mat ráðgjafa að
góðu gagni. Markmið ráðgjafans
er að mínum dómi að hjálpa
fólki til að hjálpa sér sjálft,
segir Anna. Að veita því aðstoð
við að velja og taka sjálft
ákvörðun. Þetta er persónuleg
Guðrún Halldórsdóttir skólastjóri og Anna G. Jónsdóttir, hinn nýi
náms- og starfsráðgjafi fullorðinna á Fræðsluskrifstofu
Reykjavíkur.
ráðgjöf sem fram fer í viðtölum.
Aftur á móti sagði hún að til
væru próf, sem notuð eru í
Bandaríkjunum, sem hún hefði
m.a. kynnt sér meðan hún var í
námi, en Anna hefur BA—próf í
sálarfræði og uppeldisfræði, og
þau mætti kannski nýta til
lauslegrar viðmiðunar.
Annars kvaðst Anna fram að
þessu hafa notað tímann til að
afla sér upplýsinga. — Það er
gífurlegt verk að afla upplýs-
inga um störf og nám, einkum
væri það þó erfitt þegar um
störf væri að ræða. í Svíþjóð er
sérstakt starfsfólk, sem hefur
slíka upplýsingasöfnun á hendi
og setur upp spjaldskrá, sem
námsráðgjafar geta leitað til.
En mér finnst þetta ákaflega
áhugavert starf og finnst gaman
að fá tækifæri til að taka þátt í
að móta það og helypa því af
stokkunum, sagði hún.
Að lokum var lauslega spjall-
að við Guðrúnu Halldórsdóttur
um nám fyrir fullorðna. Hún
sagði, að aldrei fyrr hefðu verið
eins miklir möguleikar til náms.
Þegar upp kemur þörf fyrir
einhver konar fræðslu, er til
dæmis oft komið upp flokkum í
Námsflokkum Reykjavíkur fyrir
það fólk, í samvinnu við þær
stofnanir, sem fólkið ætlar að
starfa hjá, eða skóla þá sem það
hyggst komast í. Sem dæmi tók
Guðrún skrifstofudeildirnar
fyrir fólk sem ætlar út í störf og
flokka til undirbúnings fóstru-
skóla, sjúkraliðaskóla eða nám
einstaklinga, sem hyggja á
hjúkrunarnám. En þetta sé
lausn, sem hafi gefist ákaflega
vel.
Guðrún sagði að í námsflokk-
ana leitaði líka fólk, sem í
framhaldi af því ætlaði að taka
ýmis próf, sem ekki voru fyrir
hendi þegar það var við nám eða
það tók aldrei, svo sem grunn-
skólápróf, en í því er nú stór
hópur. Einnig að búa sig undir
iðnskóla og í fyrsta árs námi
framhaldsstigsins. Og í fyrra
var í fyrsta skipti flokkur fólks,
sem á sínum tíma tók aldrei
nema barnaskólapróf. Sagði
Guðrún að það gleddi sig
sérstaklega að flestir væru þeir
einstaklingar á annars árs námi
í vetur. — Það er ekki bara
Anna, sem sendir til mín fólk,
heldur líka iðnfræðsluráð og
menntamálaráðuneytið, sagði
hún.
MEÐ
FLOBIÐH
Flórida í allan vetur.
Seljum farseöla um
allan heim.
FERÐA
MIDSTÖÐINNI
Ferðamiðstoðin nf.
ixj NOR
ncui\r
rlortliNU
Nor fishing
Oslo 20—26 nóv.
KANARÍ
FYJAD
Kanaríeyjar í allan vetur.
Aöalstræti 9 - S.'mar 11255 - 12940