Morgunblaðið - 21.11.1978, Side 41

Morgunblaðið - 21.11.1978, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 1978 41 félk í fréttum + ÚR GEIMNUM — Þetta eru rússnesku geimfararnir sem settu nýtt met í geimfari sínu á dögunum, Vladimir Kovalyenok (til v.) og Alexander Ivanchenkov. Þeir eru hér nýlentir í námunda við borgina Dzhezkazgan í Kazakhstan. Heldur fyrirlestra í Norræna húsinu Norski rithöfundurinn Pál Espolin Johnson heldur fyrir- lestra í Norræna húsinu á fimmtudag. 23. nóvember, kl. 20.30 og laugardaginn 25. nóvem- ber kl. 16.30. Á fimmtudaginn mun Pál Espolin Johnson kynna eigin verk en á laugardaginn flytur hann fyrirlestur sem ber nafnið _01av Duuns Juvikfolke.“ Pál er fæddur árið 1940 í Suður-Noregi en kom fyrst til Norður-Noregs árið 1950 og hefur oft síðan leitað á þær slóðir. Pál er málfræðingur og hefur kennt við mennta- og háskóla bæði í Ósló og Tromsö. Fyrsta bók hans kom út árið 1972 en eftir það hefur hann gefið út 5 bækur. Pál Espolin Johnson er ættaður frá íslandi eins og nafnið Espolin bendir til og er hann kominn af Jóni Jakobssyni sýslumanni sem Pál Espolin Johnson, rithöfund- ur. bjó á bænum Espibóli nálægt Akureyri. + NJÓSNARAR - Fyrir nokkru voru þessir náungar dæmdir fyrir njósnir. Þeir eru báðir sovétborgarar, en starfs- menn Sameinuðu þjóðanna í New York. Voru þeir staðnir að njósnum um varnir Banda- ríkjanna. — Höfðu þeir reynt að stela skjölum þar sem uppl. var að finna um þessi mál. Fyrir nokkru gekk dómur í undirrétti í máli þeirra, í borginni Newark. Dómurinn yfir þeim var samhljóðai 50 ára fangelsi. — En bandarísk yfirvöld vildu ekki setja þá inn. En meðan þeir dvöldu þar í landi eftir að dómurinn gekk, skyldi sendiherra Sovétríkj- anna sjálfur bera persónulega ábyrgð á þessum dæmdu dipló- mötum. + Á GRÍMUDANSLEIK — Fyrir nokkru var efnt til grímudansleiks í einu samkomuhúsanna á Broadway í New York. Voru það m.a. leikarar úr söng- og dansmyndinni „The King and I“, sem þar voru fremstir í flokki. — Og það var auðvitað ógerningur að segja hvaða andlit voru á bak við grímurnar og nefin. — En sá sem er lengst til vinstri er alheimsskallinn Yul Brynner, sem leikur annað aðalhlutverkið. Mótleikari hans, Constance Towers, er við hlið hans. Lengst til hægri er ung leikkona, Maureen McGarth, dóttir Constance. (rompton Porkinson VONDUÐ VARA HAGSTÆTT VERÐ Mvald. poulsen ? SUÐURLANDSBRAUTlú — SÍMAR: 38520-31142 Gírmótorar 0.5—7.5 HÖ Enskir rafmótorar einfasa 0.33—3 HÖ þrífasa 0.5—25 HÖ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.