Morgunblaðið - 21.11.1978, Síða 46

Morgunblaðið - 21.11.1978, Síða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 1978 3-400 félagar fyrirfara sér í kjölfarið Flugufregnir fóru þegar að berast þess efnis að fjöldi safnaðarfélaga hefði fyrirfarið sér í kjölfar morðanna á þingmannin- um og fylgarliði hans og fengust þær staðfestar þegar lögregla og her kom á staðinn. — Þar blasti við hin hræðilegasta sýn, milli 3—500 manns lágu þar í blóði sínu, börn og fullorðnir. Þegar lögreglan og herinn komu á staðinn var búið að raða upp nokkrum hluta líkanna í einfalda röð og sögðu aðkomumenn að yfir svip líkanna hefði hvílt friður og ró. Stofnandi sértrúarflokksins er séra James Jones, hvítur Banda- ríkjamaður, sem hefur þó fengið til liðs við sig mest blökkumenn en ekki hvíta og þegar flest var voru félagar í söfnuðinum í kringum 20 þúsund. A síðasta ári ákvað svo stjórn safnaðarins að flytja búferlum til Gyuana frá Kaliforníu í Banda- ríkjunum og hafa félagarnir stundað akuryrkju þar. Fljótlega eftir búferla flutninga safnaðarins fóru að berast fréttir til Bandaríkjanna þess efnis að bandarískir þegnar væru látnir vinna nauðungarvinnu myrkranna á milli og beittir þar að auki ýmiss konar pyntingum. Því ákvað Ryan að heimsækja höfuðstöðvar safnaðarins og kynna sér ástandið í eigin persónu. Að sögn flugmanns annarrar flugvélarinnar, sem komst undan, var hópurinn að undirbúa sig fyrir að stíga um borð í vélina, þegar einn safnaðarfélaga sem ku hafa ætlað heim með þingmanninum dró byssu úr fórum sínum og hóf skotárás og í kjölfar þess var ekið þar að ökutæki með aftanívagni og úr honum hófst mikil skothríð. Það var svo með vélinni sem komst undan sem fyrstu fréttir af þessum hryllilega atburði bárust til byggða. Simamynd Ar VígvöIIurinn í frumskógi Gyuana þar sem Leo Ryan þingmaður frá Bandaríkjunum var myrtur ásamt fylgdarliði sínu á föstudag. Myndin er tekin í þann mund sem önnur flugvélin slapp undan morðingjunum. Þingmaðurinn Leo Ryan skömmu áður en hann var myrtur. Myndina tók einn félaga Ryans sem komst undan. Símamynd AP Georgetown, Guyana, Washington, 20. nóvember. AP. Reuter. BANDARÍSKI þingmaðurinn Leo Ryan og fjórir landar hans voru myrtir í frumskógabyggð sértrúarflokks nokkurs í Suður-Ameríku ríkinu Guyana 8.1. föstudagskvöld, Gyuana sagði um helgina. Þingmanninum og fylgdarliði hans var gerð fyrirsát þegar hann var um það bil að komast á afskekktan flugvöll nærri byggð- inni þar sem flugvél beið þess að flytja Ryan og fylgdarfólk hans aftur til Bandaríkjanna. Ryan hafði farið til byggða sértrúarflokksins til þess að kanna sannleiksgildi þess að fólki væri að því er upplýsingamálaráðherra haldið þar gegn vilja sínum, en söfnuðurinn var áður starfandi með aðalstöðvar sínar í Banda- ríkjunum og hafði nýverið flutt höfuðstöðvar sínar suður til Gyuana. Lögreglumenn og hermenn voru sendir til byggða sértrúarflokksins þegar uppvíst var um morðin til að rannsaka þau. Hryðjuverkamönnum vísað frá Júgóslavíu Belgrað, 17. nóvember. AP. VESTUR-ÞÝZKIR embættismenn í Belgrað skýrðu frá því í dag að júgóslavneska utanríkisráðuneytið hefði tiikynnt þeim í dag að fjórir meðlimir úr Baader-Meinhof hryðjuverkamannahópnum hefðu verið iátnir lausir úr haldi og vísað úr landi í Júgóslavíu. Dómstóll í Júgóslavíu kvað nýverið upp þann úrskurð að ekki væru lagalegar forsendur til að framselja fjórmenningana, en yfirvöld ákváðu hins vegar að reka þá úr landi þar sem þeir höfðu komið inn í landið á fölsuðum vegabréfum. Fjórmenningarnir eru þau Brigitte Monhaupt, Rolf Clem- ens Wagner, Peter Bock og Siegliende Hoffman, en þau voru handtekin í sumar. Yfir- völd í Bonn fóru fram á þaö að þau yrðu framseld til V-Þýzka- lands, en júgóslavnesk yfirvöld vildu fá króatíska þjóðernis- sinna í staðinn frá Vest- ur-Þýzkalandi. Stjórnin í Bonn neitaði að framselja króatíska þjóðernissinna í skiptum fyrir hryðjuverkamennina, og mál þeirra fyrrnefndu hafa verið flækt og tafin fyrir dómstólum í V-Þýzkalandi. Dómsmálaráðuneytið í Bonn harmaði í dag ákvörðun yfir- valda í Júgóslavíu og sagði að ákvörðunin yrði ekki til þess fallin að auðvelda framsöl á glæpamönnum milli landanna. Búist hafði verið við þessari ákvörðun yfirvalda í Belgrað þar sem stjórnin í Bonn neitaði að framselja króatíska þjóðern- issinna í skiptum fyrir hryðju- verkamennina. Baskar skjóta á búðir úr launsátri Þingmaður drepinn af sértrúarflokksmönnum Vín aftur á boó- stólum í N oregi Bilbao. 20. nóvember. AP. Reuter. HRYÐJUVERKAMENN úr að- skilnaðarhreyfingu Baska gerðu skotárás í dag á hóp lögreglu- manna sem voru að leika knatt- spyrnu við búðir sínar í dag og tveir þeirra biðu bana en níu slösuðust. Hryðjuverkamennirnir gerðu árásina úr bifreiðum á þjóðvegi í um 20 metra fjarlægð. Þeir skutu alls rúmlega 130 vélbyssu- og riffilkúlum á lögregluna og óku á brott í bílum sínum á þjóðveginum milli Bilbao og San Sebastian. Bílarnir fundust síðan yfirgefn- ir. Aðskilnaðarhreyfingin ETA lýsti því seinna yfir að hún bæri ábyrgð á verknaðinum og kvaðst þar með hafa drepið 31 lögreglu- mann á þessu ári. Launsátrið jók enn þá spennu sem hefur ríkt í Madrid síðan ríkisstjórnin tilkynnti fyrir tveim- ur sólarhringum að hún hefði bælt niður samsæri hægrimanna í hernum um að steypa henni af stóli. Reiðir hægrimenn fylktu í dag liði við grafhýsi Francos hershöfð- ingja sem lézt fyrir þremur árum og héldu í gær fjölmennan fund þar sem hrópað var að herinn ætti að taka völdin. Þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram eftir hálfan mánuð um drög að lýðræðislegri stjórnarskrá og um- bótasinnuð ríkisstjórn Adolfo Suarezar forsætisráðherra reynir að sigla því máli í höfn þrátt fyrir harða andstöðu öfgamanna til hægri og vinstri. Arásir hryðju- verkamanna eru orðnar daglegt brauð á Spáni og samsærið sem var bælt niður sýnir að alvarleg ókyrrð er í hernum. Að minnsta kosti 100.000 manns tóku þátt í fundinum í gær. Arásin í Baskahéruðunum er sú alvarleg- asta sem hryðjuverkamenn hafa gert á þessu ári. Nú hafa verið framin 74 pólitísk morð á Spáni á þessu ári. Skotmark árásarinnar í dag voru herbúðir þar sem nokkur hundruð vopnaðir lögreglumenn gerðu stutta uppreisn í síðasta mánuði til að mótmæla annarri árás ETA á starfsbræður þeirra. Við útför tvéggja lögreglumanna sem biðu bana í árásinni hrópuðu lögreglumenn ókvæðisorð að yfir- mönnum sínum og embættismönn- um. Frá fróttaritara Mbl.. Jan Erik Lauri, f Ósló, 20. nóvember. VERKFALLI starísmanna áfeng- isverzlunarinnar norsku lauk í dag og munu þeir snúa aftur til vinnu sinnar á morgun, nema hvað ein áfengisútsalan mun opna í' dag. Flugufréttir fóru að berast út um iausn deilunnar í morgun og staðfesting kom svo í útvarpinu um hádegi. Mjög almenn ánægja og gleði varð þegar tilkynningin kom og fylltust veitingahús og barir þegar af þyrstu fólki. Eftir langa og stranga fundi í 8.1. viku tókst samninganefndum deiluaðila að koma sér saman um flest atriði og var síðan gengið frá þeim um helgina. Talið er að beint tap áfengis- verzlunarinnar hafi numið sem svarar 500 milljónum íslenzkra króna á dag en ofan á það bætist svo ýmis kostnaður sem ekki er kominn fram ennþá. Þeir' sem fegnastir verða þessum samningum eru án efa sölumenn í verzlunum sænsku áfengis- verzlunarinnar í bæjum á landa- mærum ríkjanna, en þeir hafa unnið undir gífurlegu álagi undan- farnar vikur og mánuði. Norskir hafa farið í stórum flokkum yfir landamærin til að birgja sig upp af víni. Vilja SÁS á Heathrow London. 20. nóvember AP BRESKA stjórnin hefur afþakk- að tilboð SAS um að flugfélagið flytji alla starfsmenn sína á Heathrow-flugvelli yfir á Gatwick-flugvöll. Tilboðið kom fram á fundi fulitrúa ríkisstjórna Svíþjóðar, Noregs og Danmerkur með fulltrúum brezka stjórnvalda í London. Viðræður þessar hafa staðið yfir í um tvær vikur ^og náist ekki árangur í viðræðunum um flugsáttmáia milli iandanna fyrir 31. desember n.k. eru líkur á því að allt flug milli Bretlands og Skandinavíu leggist niður. 78 farast í flug- slysi á Indlandi Nýja Delhi, 20. nóv. AP — Reuter INDVERSK herflutningavél fórst í fjalllendi skammt frá landamær- um Indlands og Kína í gær og með henni 77 manns, allt hermenn og einn maður á jörðu niðri, að því er segir í frétt frá indverska flughernum idag. þangað er aðeins hægt að ná með loftskeytasambandi sem var mjög slæmt í dag. Þetta er annað stórslysið sem flugvélar indverska flughersins lenda í á einu ári, en í fyrra fórst sams konar vél með Morarji Desai forsætisráðherra Indlands innan- borðs, en hann slapp lífs af. Fimm manna áhöfn vélarinnar fórst. Hin rússneska Anatov-12 her- flutningavél var að flytja landa- mærahermenn aftur til stöðva sinna eftir að þeir höfðu verið í leyfi. Þegar vélin fórst var hún í aðflugi við Lehflugvöll sem er einn hæsti í veröldinni. Ekki tókst að fá neinar frekari fregnir af slysinu vegna iélegs sambands við Lehflugvöll, en

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.