Morgunblaðið - 21.11.1978, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 21.11.1978, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 1978 47 Ungfrú Heimur, Silvana Suarez frá Argentínu, eftir krýningu hennar í Royal Albert Hall í London. Aðrar sem komust í úrslit voru frá Mexíkó, Svíþjóð, Ástralíu og Spáni. mínútum til að sækja morgunpóst- inn og hefði þá allt verið með eðlilegum hætti í sendiráðinu. Lögreglumenn vopnaðir rifflum og skammbyssum komu fljótlega á staðinn og brutu upp hurðina og handtóku stúdentana eins og fyrr sagði án verulegrar mótspyrnu. Á leiðinni út í lögreglubílana hrópuðu stúdentarnir slagorð á bjagaðri ensku og bjagaðri sænsku þar sem þeir sögðu keisarann hið versta vargmenni. Þingmaður í steininn Washington, 20. nóv. AP BANDARÍSKI fulltrúardeildar- þingmaðurinn Charles Diggs var í dag dæmdur í allt að þriggja ára fangelsi og gefið að sök að hafa stundað póstsvindl og gefið út lognar yfirlýsingar, að því er segir í tilkynningu dómsvalda. Ósló, 20. nóvember. AP. NORSKA lögreglan grá fyrir járnum réðst inn í sendiráð írans í dag og handtók 15 íranska stúdenta sem höfðu ráðist inn í sendiráðið f jórum og hálfum tíma áður og neitað að hleypa nokkrum inn. Ekki urðu nein slys á mönnum við innrás lögreglunnar, hvorki á stúdentum né lögreglu, og ekki sakaði sendiherrann, Ali Kheradameh, sem stúdentarnir höfðu í haldi. Stúdentarnir höfðu meðan á dvöl þeirra stóð í sendiráðinu, hent skjölum þess um allt og skvett rauðri og blárri málningu um alla veggi. Þá voru slagorð máluð á Flóttafólkið fer til Vesturlanda Iranssendiráð í Osló hertekið veggi þar sem keisarinn var kallaður fasisti og morðingi. Myndir af keisaranum voru rifnar í tætlur og dreift um allt. Stuttu áður en stúdentarnir réðust inn í sendiráðið hafði ónafngreind stúlka samband við AP-fréttastofuna og tilkynnti um fyrirætlan þeirra. Þegar frétta- maður AP kom á staðinn var búið að læsa öllum hurðum og byrgja glugga. Á sama tíma kom nörskur bílstjóri sendiráðsins og sagði hann við fréttamann AP, að hann hefði yfirgefið staðinn fyrir um 20 Port Klang, Malasíu, 20. nóv. AP FYRSTI hópur flóttamanna af víetnamska flóttaskipinu Hai Homg sem legið hefur í landhelgi Malasíu undanfarnar vikur, mun fljúga til Vesturlanda eftir tvo daga að því er fréttir hér herma. Sagt er að samkomulag hafi náðst á fundum Malasíumanna með fulltrúum, Kanada, Frakk- lands, Bandaríkjanna, Belgíu og Sameinuðu þjóðanna, sem staðið hafa í allan dag, um að flótta- mennirnir fengju að fara í land í Malasíu og fljúga þaðan til vestrænna ríkja sem hafa ákveðið að veita þeim landvistarleyfi. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum ætla Frakkar að taka eitt þúsund þeirra, Kanadamenn 600, Beigir 150 og Bandaríkjamenn 750. Þá segir ennfremur að Vest- ur-þjóðverjar, Bretar og Sviss- lendingar hafi gefið vilyrði fyrir því að þeir flóttamenn sem ættu ættingja í þeim löndum gætu fengið þar landvistarleyfi. Viðræður um fiskveiðimál Moskvu, 20. nóvember. AP. NORSKIR og sovéskir em- bættismenn hófu í dag við- ræður á ný um fiskveiðimál á Noregshafi og í Barents- hafi. Beinast viðræðurnar einkum að svæðinu umhverf- is Svalbarða. Meðal þeirra sem þátt taka í viðræðunum eru sjávarútvegsráðherrar landanna, Jens Evensen og Alexander Ishkov. Sex manns létust í umferðaröngþveiti Verona, 20. nóvember. AP. SEX manns létust og 15 slösuðust í miklu umferðaöngþveiti sem varð á Norður-Ítalíu í gær vegna mikillar þoku, að því er fréttir frá lögreglunni þar herma. Tugir bíla lentu saman í þessu mikla öngþveiti sem gerði það að verkum að enginn komst um hraðbrautina milli Milanó og Feneyja í margar klukkustundir. Þetta er þriðja meiri háttar umferðaróhappið sem verður á Ítalíu á aðeins viku og hafa alls 14 manns látið lífið í þeim. Haft er eftir þátttakanda í viðræðunum að vart sé að búast við samkomulagi land- anna. Sovétmenn hafa alla tíð neitað að viðurkenna rétt Norðmanna til að ákvarða 200 mílna verndunarlögsögu umhverfis Svalbarða. Norð- menn fengu yfirráð yfir Svalbarða árið 1920 sam- kvæmt samningi 39 landa, þeirra á meðal Sovét- ríkjanna. St jórnartap í Suður-Tyrol Róm, 20. nóvember. AP. KOMMÚNISTAR og kristilegir demókratar töpuðu í kosningum í Alpafylkinu Trentino-Alto Adige í gær en nýr vinstriflokkur sem er andvígur samstarfi stóru flokkanna stóð sig óvenjuvel. „Nýi vinstri“-flokkurinn bað kjósendur um stuðning við „annan valkost" en samstarf kristilegra demókrata og kommúnista og náði mörgum atkvæðum frá kommúnistum í kosningunum. Flokkurinn hlaut um fjóra af hundraði atkvæða í sveitarstjórnarkosningunum. Miðað við kosningarnar 1976 minnkaði fylgi kristilegra demó- krata í öllu fylkinu úr 32,8% atkvæða í 30,4% og fylgi kommúnista minnkaði úr 13,2% í 8,9%. Flokkur sósíalista, sem einnig styður ríkisstjórn kristilegra demókrata undir forystu Guilio Andreotti misst einnig fylgi — úr 7,9% atkvæða í 6,3%. Þessi fylgisaukning vinstri- manna sem eru andvígir ríkis- stjórninni og fylgistap ríkis- stjórnarinnar gerir það að verkum að stjórnmálasérfræð- ingar velta því nú fyrir sér hvort flokkar kommúnista og sósíal- ista kunni að endurskoða þá stefnu sína að hjálpa kristileg- um demókrötum. í hinum nýja vinstri flokki eru marxistar sem standa til vinstri við flokk kommúnista. í kosningabaráttunni lagði nýi flokkurinn áherzlu á eindregna andstöðu gegn stjórn Andreottis og stuðning frá kommúnistum. Kristilegir demókratar töp- uðu í fyrsta skipti í 32 ár hreinum meirihluta í Trento og hlutu 49,1% atkvæða miðað við 51% fyrir tveimur árum. Fylgi kommúnista minnkaði úr 16 í 10,7%. í Bolzano jókst fylgi Suður-Tyrolsflokksins úr 59,6% í 61,3% og bæði kommúnistar og kristilegir demókratar töpuðu. Nýi vinstri flokkurinn fékk meira fylgi en sósíalistar, sósíaldemókratar og lýðveldis- sinnar. ERLENT, Veður víða um heim Akureyri +7 skýjaö Amsterdam 10 akýjaö Apena 18 lóttskýjaö Barcelona 12 heiöakírt Berlín 11 skýjaö Bruasel 15 heióskírt Chicago 4 snjókoma Frankfurt 8 skýjað Genf 10 poka Helainki 1 skýjaö Jerúsalem 14 lóttskýjað Jóhannesarb. 25 léttskýjað Kaupmannahöfn 12 skýjaö Lissabon 17 léttskýjað London 15 léttskýjaö Los Angeles 20 skýjaö Madrid 12 léttskýjaö Malaga 18 léttskýjaö Mallorca 16 alskýjað Miami 26 skýjaö Moskva 9 skýjaö New York 13 heiðskírt Ósló 10 heiöskfrt París 12 skýjaö Reykjavík +2 alskýjað Rio De Janeiro 39léttskýjað Rómaborg 17 skýjaö Stokkhólmur 7 skýjað Tel Aviv 23 léttskýjaö Tókýó 17 heiöskfrt Vancouver 5 skýjað Vfnarborg 0 skýjaö Dómarinn, Oliver Gasch, lýsir glæp Diggs þannig að hann hafi á undirförulan hátt stolið fé frá bandarískum borgurum. — Diggs var fundinn sekur í síðasta mánuði fyrir að hafa dregið af launum starfsmanna sinna á ólöglegan hátt og stungið í eigin vasa. Diggs hefur verið einn helzti sérfræðingur fulltrúadeildarinnar í málefnum Afríku og hefur farið fjölda ferða þangað. Hefur hann verið einn helzti baráttumaður gegn stefnu Vorsters fyrrverandi forsætisráðherra Suður-Afríku í kynþáttamálum. Fær Thorpe 20 ára dóm? Minehcad. Englandi, 20. nóvember. AP. JEREMY Thorpe fyrrverandi leiðtogi Frjálslynda flokksins á það á hættu að verða dreginn fyrir Krúnurétt í Lundúnum. takist Peter Taylor rfkissaksókn- ara Bretlands að sannfæra þrjá dómara um þá málsmeðferð, við réttarhöld sem hófust í dag í máli Thorpes. Thorpe er gefið að sök að hafa stofnað til samsæris og hvatt menn til að myrða mann sem hann er sagður hafa átt kynferðislegt samband við. Þrír menn aðrir eru flæktir í málið og krafist er sömu refsingar á hendur þeim öllum. Á Thorpe á hættu að verða dæmdur í allt að 20 ára fangelsi. Mál Thorpes hefur vakið mikla athygli í Bretlandi. Thorpe hefur alltaf haldið fram sakleysi sínu og sagt að sá sem hann er sagður hafa viljað feigan, hafi logið öllu saman frá rótum. Vart er að búast við niðurstöðu úr yfirstandandi réttarhöldum fyrr en eftir 2—3 vikur. A móti stærri kvóta Breta Kaupmannahöfn, 18. nóv. Reuter. DANIR munu beita sér fyrir því að Bretar fái ekki aukna hlut- deild í fiskveiðum Efnahags- bandalagsríkja umfram þá afla- kvóta sem nú eru í gildi, að því er áreiðanlegar heimildir skýrðu frá í dag. Þær sögðu að Svend Jacobsen sjávarútvegsráðherra hefðu verið gefin þau fyrirmæli að gera allt sem í hans valdi stæði til að koma í veg fyrir það innan EBE að Bretum yrði lofað aukinni hlut- deild í fiskveiðum bandalagsríkj- anna í því tilviki að fiskstofnar og veiðisvæði stækkuðu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.