Morgunblaðið - 07.01.1979, Side 34
81.5
34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 1979
VEL HEPPNUÐ
VERTIÐ
MEO
VKHJRKENNDUM
FISKIDÆLUSLÖNGUM
ÓfíML OG ÞJÓNUSTA.
Við státum okkur af mesta úrvali iandsins
af viðurkenndum fiskidæluslöngum. Þær
eru i stærðunum 10, 12 og 14 tommur,
tveggja, fjögurra og sex styrktarlaga. Auk
rómaðrar þjónustu, sem miðast ekki aðeins við
háannatimann, heldur allt árið.
STÆRÐARVAL OG ÞRÝSTIÞOL.
Við ráðleggjum þér val á réttum tegundum
með tilliti til notkunar og aðstæðna og
nauðsynlegs þrýstiþols.
Rétt stærðarval og mátulegt þrýstiþol
tryggja áfallalausa notkun og endingu.
FYRIRHYGGJA EÐA VINNUTAP.
Til þess aö forðast dýrar veiði- eða vinnu-
tafir er vel til fundið að eiga aukaslöngur
i verksmiðjunni eða um borð.
Með þvi að sýna fyrirhyggju og vanda valið
á fiskidæluslöngum gætir þú sparað stórfé.
SÉRH/EFÐ ÞOÓNUSTA TILLANDS 06 SJÁVAR
Smiójuveg 66. Sími:(91)-76600
LAHDWÍLAR HF.
Bruna
útsala
Brunaútsalan
hefst
mánudaginn
8. janúar
að Laugavegi 51,
2. hæð
Minning:
Ingólfur Sigurðsson
skiposkoðunarmaður
Aðfaranótt nýársdags, er árið
1979 var nýgengið í garð, lést á
heimili sínu í Reykjavík Ingólfur
Sigurðsson skipaskoðunarmaður.
Útför hans fer fram á morgun,
mánudag, frá Fossvogskirkju.
Ingólfur var fæddur á Þingeyri
við Dýrafjörð 11. júní árið 1905,
sonur hjónanna Sigurðar Jóhann-
essonar og Sigurbjargar Einars-
dóttur. Ingólfur var næstelstur
átta systkina, en tveir bræður
hans eru enn á lífi.
Svo sem títt var um Vestfirð-
inga áður fyrr og er reyndar enn,
lá það fyrir honum að hefja störf
við sjómennsku. Það var hans
aðalskóli eins og flestra ungra
manna á þeim tima. Hóf hann
sjósókn þegar á fermingaraldri og
stundaði hana óslitið um þrjátíu
ára skeið frá Þingeyri, Isafirði og
síðast frá Reykjavík, ýmist sem
háseti, stýrimaður eða skipstjóri.
Við þau störf sýndi hann, sem
jafnan annars staðar, áræði og
atorku, enda vel liðinn af sínum
samstarfsmönnum. Til marks um
það má þess geta að hann réðst til
starfa hjá ýmsum þekktum skip-
stjórnarmönnum, eins og Torfa
Halldórssyni, Guðmundi í Tungu
og Bjarna Ingimarssyni.
Þegar Ingólfur hætti sjó-
mennsku um 1950 voru störf hans í
landi alla tíð tengd sjávarútvegi.
Gerðist hann verkstjóri í Hrað-
frystistöð Reykjavíkur, síðar Fisk-
iðjuveri ríkisins og loks í frysti-
húsi Bæjarútgerðar Reykjavíkur,
þegar hún yfirtók þann rekstur.
Þar sýndi hann enn að hann var
farsæll í störfum og stjórnsamur
enda vel liðinn, jafnt af undir-
mönnum og yfirboðurum. Störf að
erilsamri verkstjórn í frystihúsum
stundaði Ingólfur því næst óslitið
um 16 ára skeið, eða þar til hann
réðst sem skoðunarmaður hjá
Skipaeftirliti ríkisins, síðar Sigl-
ingamálastofnun ríkisins, en því
starfi gegndi hann þar til hann
varð að hætta fyrir aldurs sakir á
árinu 1976. Um jiað leyti tók
heilsan að bresta. Atti hann síðan
við vanheilsu að stríða, þar til yfir
lauk á mótum ára. Þar með var
lokið starfsamri ævi vel gerðs
manns, sem ekki mátti vamm sitt
vita og leysti hvert það verk, sem
hann tók sér fyrir hendur, af
trúnaði og samviskusemi.
Árið 1939 kvæntist Ingólfur
eftirlifandi konu sinni, Viktoríu
Sveinsdóttur, Sigurðssonar og
Hólmfríðar Kristjánsdóttur frá
Arnardal. Eignuðust þau fjögur
mannvænleg börn, en þau eru:
Arnar, framkvæmdastjóri búsett-
ur í Reykjavík, kvæntur Herdísi
Kristjánsdóttur hjúkrunarkonu;
Sveinn, framkvæmdastjóri, bú-
settur á Skagaströnd, kvæntur
Helgu Jóhannesdóttur húsmóður;
Einar, lögfræðingur, búsettur í
Reykjavík, kvæntur Gunnþórunni
Jónasdóttur, hjúkrunarkonu, og
Kolbrún kennari, búsett á Reyk-
hólum við Breiðafjörð, gift Her-
manni Jóhannessyni, kennara.
Fyrir hjónaband eignaðist Ingólf-
ur einn son, Andrés hljómlistar-
mann, búsettan í Reykjavík.
Ég kynntist Ingólfi Sigurðssyni
þegar ég hóf skólagöngu hér í
Reykjavík fyrir liðlega þrjátíu
árum, en þá gerði ég mér oft erindi
til frænku minnar Viktoríu og
naut gestrisni þeirra hjóna, enda
fann ég fljótlega að þar var ég
ávallt velkominn, bæði fyrr og
síðar. Ég minnist Ingólfs sem
sérstaklega glaðværs, ljúflegs og
viðræðugóðs manns. Hann kunni
frá mörgu að segja af lífi og starfi
þess manns, er helgaði krafta sína
sjávarútvegi og fiskvinnslu. Með
honum er genginn mætur maður,
sem skilað hefur miklu ævistarfi.
Um leið og ég þakka vináttu
hans í minn garð og fjölskyldu
minnar færi ég eftirlifandi eigin-
konu, börnum, barnabörnum og
öðrum aðstandendum innilegar
samúðarkveðjur.
Þorvarður Alfonsson.
t
Móöir okkar og tengdamóöir
SIGURRÓS GUDLAUGSDOTTIR,
Hveramörk 6, Hverageröi,
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju, miövikudaginn 10. janúar kl. 3 e.h.
Börn og tengdabörn.
t
Eiginmaður minn
INGÓLFUR SIGURÐSSON
Braaöraborgarstíg 32,
veröur jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 8. janúar kl. 3.
Blóm vinsamlega afþökkuö, en þeim sem vildu minnast hans er bent á
líknarstofnanir.
Fyrir mína hönd og vandamanna
Viktoría Sveinsdöttir.
t
Þökkum auösýnda samúö viö fráfall
HELGA GÍSLASONAR
Stigahlíð 6,
Reykjavik.
Alúöar þakkir, færum viö einnig starfsfólki Landspítalans, deildar 8, fyrir góöa
hjúkrun og umönnun.
Bogi Hetgason, Gíslína Vigdís Guönadóttir,
Hilmar Helgason, Ingibjörg Jónsdóttir,
Guðríöur Helgadóttir Crispino, James Crispino.