Morgunblaðið - 16.01.1979, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.01.1979, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR MEÐ 4 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI 12. tbl. 66. árg. ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Egyptaland — ísrael: Carter býður tiltopp- fundar Atlanta. Tel Aviv, Washington. 15. janúar. AP. JIMMY Carter Bandaríkjaforseti tilkynnti í dag að hann væri fús til þess að bjóða til nýs topp- fundar með leiðtogum ísraels og Egyptalands, þeim Begin og Sadat. til þess að freista þess að koma friðarviðræðum í gang aftur. í framhaldi af tilkynningu forsetans hefur verið ákveðið að Alfred Atherton sendiherra í stjórn Carters fari á fimmtudag til hcggja landanna til að kanna grundvöll fyrir áframhaldandi viðræðum. í Tel Aviv var haft eftir Begin forsætisráðherra Israels að hann teldi góða möguleika á því að friðarviðræður hæfust aftur eftir för Athertons en þá því aðeins að sendinefndir landanna myndu ræðast við. Hann taldi ekki grundvöll fyrir öðrum toppfundi eins og í Camp David á sínum tíma. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum í Tel Aviv er mikill ágreiningur innan stjórnar lands- ins um hvort gefa eigi eitthvað eftir í ágreiningsmálum þeim sem urðu til þess að friöarviðræðurnar strönduðu í síðasta mánuði. Fremstir í flokki þeirra sem vilja slaka á kröfum Israelsmanna eru þeir Moshe Dayan utanríkisráð- herra og Ezer Weizman varnar- málaráðherra. Yfir hundrað þúsund andstæðingar kcisarans fóru í mótmælagöngu um aðalgötur Teheran í gær og hrópuðu „lifi Khomaini"*. Símamynd AP. „Niður með keisarann — Lifi Khomaini” hljómar nú í íran Keisarinn til Egyptalands á fimmtudag til viðræðna við Sadat Teheran, 15. janúar. AP. TIL MIKILLA átaka kom í flestum stærstu borgum írans í dag og létust a.m.k. 20 manns. Þá fóru yfir eitthundrað þús- und mótmælendur um aðalgöt- ur Teheran. höfuðborgar írans, hrópandi slagorð eins og „niður Orrahríð gerð að Callaghan á þingí London, 15. janúar. AP. TIL MIKILLA dcilna kom í breska þinginu 1 dag vegna yfirstandandi verkfalla flutningabifreiðastjóra þegar íhaldsmenn gerðu kröfu um að þegar í stað yrði lýst yfir neyðarástandi í landinu og frekara efnahagstjóni bægt frá. Að sögn fréttaskýrenda er þetta harðasta orrahríð sem gerð hefur verið að Callaghan stjórn Verkamannaflokksins undir forsæti James Callaghans á fimm ára ferli hennar. Callaghan vísaði öllum kröfum íhaldsmanna til föðurhúsanna og ásakaði Margaret Thacher foringja þeirra um að nýta sér ástandið í landinu í pólitískum tilgangi. Jafn- framt sagði forsætisráðherrann að ef í verulegt óefni stefndi myndi hann að sjálfsögðu lýsa yfir neyðar- ástandi. Fréttaskýrendur telja líklegt að hið slæma ástand nú í Bretlandi' muni óhjákvæmilega hafa fylgistap Verkamannaflokksins í för með sér í komandi kosningum og er ástandinu líkt við ástandið 1974 þegar stjórn íhaldsmanna féll í kjölfar deilna við verkalýðsfélög landsins. Að sögn breskra yfirvalda er ekki farið að bera á fæðuskorti að neinu marki í borgum landsins en óttast er að svo muni verða á næstu dögum. — Þá eru tugir þúsunda verka- manna í iðnaði þegar orðnir at- vinnulausir vegna þess að hráefni berst ekki til verksmiðjanna. Búist er við því að um ein milljón manna muni ganga atvinnulaus í lok vikunnar ef verkfallið leysist ekki fyrir þann tíma. Þrátt fyrir það hörmungarástand sem ríkt hefur í landinu að undan- förnu tilkynnti breska stjórnin í dag að viðskiptajöfnuður landsmanna hefði verið hagstæður um 126 milljónir punda eða sem nemur um 80 milljörðum íslenzkra króna í s.l. mánuði. með keisarann“ og „lifi Khomaini“ að því er áreiðanleg- ar fréttir frá Teheran herma. Mohammad Reza Pahlavi keisari landsins mun á fimmtudag fara til egypzku borgarinnar Aswan á leið sinni til Bandaríkjanna að því er fréttir frá keisarahöllinni herma. Keisarinn mun meðan á dvöl hans stendur í Egyptalandi ræða við Sadat forseta um ástandið í Iran að sögn tals- manns hans. Atökin í Iran urðu hörðust í suðausturhluta landsins þar sem herinn greip inn í og skaut á mótmælendur og í borginni Kerman var bandarískur borgari drepinn af andstæðing- um keisarans en að sögn blaðs- ins Kayhan í Teheran var orðsending á líki hans þar sem stóð: „Farðu til þíns heima Kani.“ Seint í gærkvöldi voru fréttir þess efnis að keisarinn myndi hitta Sadat Egyptalandsforseta, staðfestar í Egyptalandi þar sem tilkynnt var að keisarinn yrði sérstakur gestur Sadats eins og hann hefur reyndar verið áður á ferðum sínum. Demantur fór á 3,6 milljarða Jóhannesarbory 15. jan. AP. EITTHUNDRAÐ þrjátíu og sjö karata demantur var í dag seldur óþekktum kaupanda fyrir litla 3.6 milljaróa íslenzkra króna, sem er hæsta verð sem greitt hefur verið fyrir slíkan grip. segir f fréttum frá Jóhannesar- borg í SuðurAfríku í dag. Talsmaður uppboðshaldara sagði í dag að þegar Mouw-fjöl- skyldan tilkynnti í nóvember s.l. að til stæði að selja gripinn hefðu geysimargir aðilar þegar sýnt áhuga. Enn barizt í Kambódíu Bangkok. New York. 15. janúar. AP — Reuter MIKLIR hardagar geisa enn í nokkrum héruðum Kambódíu en ekki hafa borist áreiðanlegar heimildir um mannfall. hvorki í' liði hermanna Pol Pots fyrrum forsætisráðherra né í liði hinna nýju valdhafa. að því er segir í fréttum frá Bangkok í dag. Athygli fréttaskýrenda í Bang- kok hefur vakið hversu fáir hermenn úr lið Pol Pots hafa flúið yfir landamærin og telja þeir það merki þess að Pot og félagar hyggist í framtíðinni stunda skæruhernað gegn hinum nýju valdhöfum landsins eins og þegar hefur verið tilkynnt í Peking. Sovétmenn gáfu það í skyn í dag að þeir myndu beita neitunarvaldi sínu í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna til að koma í veg fyrir að samþykkt verði ályktun sem feli í sér að vopnahlé verði þegar samið í Kambódíu og erlendur her fari á brott, en sjö hinna fimmtán þjóða í ráðinu hafa þegar lagt fram slíka ályktun. Sihanouk prins fyrrum þjóð- höfðingi Kambódíu sem talar máli Pot stjórnarinnar hjá Sameinuðu þjóðunum var í gærkvöldi talinn við þokkalega heilsu, en hann var á sunnudag fluttur á sjúkrahús vegna ofþreytu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.