Morgunblaðið - 16.01.1979, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 16.01.1979, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 1979 19 ;2tloi*ömuuafcií> w Á II Ibrótllr I I Brautflöskuá ! höfði Svíans I SLAGSMÁL á dönskum næturklúbbi hafa verið í fréttum dönsku £ blaðanna að undanförnu. Fréttirnar hafa verið á íþróttasíðunum, en það er vegna þess, að meðal annarra þátttakenda í I er vegna pess, ao meoai annarra bardaganum voru nokkrir sænsku landsliðsmannanna handknattleik. Kemur fram í dönsku blöðunum, að Svíar eru sjálfir engin lömb að leika sér við, þegar í skemmtanir eftir leiki er komið. Eftir að sænska liðið hafði sigrað B-lið Dana í Baltic-keppninni, fóru flestir leikmenn beggja liðanna á næturklúbb nokkurn ekki langt undan. Samkvæmt frásögn lögreglunnar í Nyköping, voru nokkrir Svíanna að stíga í vængina við nokkrar huggulegar danskar stúlkur, þegar hinir dönsku borðherrar stúlknanna reiddust afskiptum Svíanna. Læddist einn Dani aftan að hinum 2 metra háa Lars Nordgren og sló hann í höfuðið með flösku. Var Nordgren fluttur á sjúkrahús þar sem skurðurinn var saumaður saman. í kjölfarið upphófust töluverðar ryskingar meðal sænskra handbolta- manna og danskra öldurhúsgesta en hvorugir stóðu uppi sigurvegarar vegna þess að lögreglan skakkaði leikinn. Að sögn lögreglunnar, vakti það furðu flestra, að Nordgren skyldi ekki hljóta heilahristing eða slasast meira en raun bar vitni, en hann lék næsta leik Svía eins og ekkert hefði í skorist. Það verður gaman að sjá hvort Wadmark og félagar hans í aganefnd IHF sjá ástæðu til að brjóta mál þetta til mergjar, fordæmið er a.m.k. komið. I Risatilboð í Francis i ! ! S Mikið er rætt þessa dagana um framtíð Trevors Francis, enska landsliðsmannsins hjá Birmingham. Tvö lið hafa lýst áhuga sínum á að borga allt að 900.000 sterlingspund fyrir kappann. Bæði félögin, sem eru Coventry og Manchester Utd. hafa hins vegar hug á að greiða mikið af aurunum með leikmönnum. Coventry býður auk peninga, velska landsliðsfyrirliðann Terry Yorath, markvörðinn unga Les Sealy og varnarmanninn trausta Kieth Osgood. Manchester Utd. býður hins vegar einnig auk peninga, Greenhoff bræðurna Jimmy og Brian, fyrrum enska landsliðsmiðherjann Stuart Pearson og írska landsliðsmanninn David McCreery. Allir leikmennirnir sem að framan eru greindir, eru mjög snjallir leikmenn og það vekur nokkra furðu að stjórarnir séu tilbúnir að sjá á bak sumum þeirra, en hvort sem Birmingham verslar við Man. Utd. eða Coventry, fer félagið varla halloka í viðskiptunum, þó að Francis fari. Þriðja félagið hefur einnig sýnt Francis áhuga, en það er Arsenal. Hvaða leikmenn þeir vilja láta af hendi, eða hvort félagið hyggst borga út í hönd er þó ekki kunnugt á þessu stigi. Eitt verður þó að teljast líklegt og það er, að Francis er líklega á förum frá Birmingham fyrr heldur en síðar. Þessi tilboð eru of góð til að unnt sé að hafna þeim. • Páll Björgvinsson brýst í gegnum vörn Svía og skorar. Mikið mæddi á Páli í öllum leikjum íslands í keppninni þar sem hann er lykilmaður í öllum leikkerfum liðsins. Tékkar sterkir Tékkar, sem leika í riðli með íslendingum á B keppninni á Spáni í febrúar, eru sem óðast að undirbúa lið sitt fyrir átökin. Um helgina léku þeir tvo landsleiki gegn Spánverj- um og sigruðu báða. Fyrri leiknum lauk 23-21 eftir að Spánverjar höfðu haft yfir 13-10 í hálfleik. Síðari leikinn unnu Tékkar stærra, 25-16 en staðan í hálfleik var þá 14-7. Eins og í öðrum maraþon- keppnum í haust og vetur, var hér um fjáröflunarherferð að ræða hjá skfðadeild Ólafsfirð- inga. Safnað var áheitum með góðum árangri og safnaðist með þessum hætti rúmlega ein milljón króna. 506 km á 33 klst Aðfararnótt sunnudags, klukkan 00.15, luku þeir Guð- mundur Garðarsson, Haukur Sigurðsson, Gottlieb Konráðs- son og Jón Konráðsson við að ganga 506,5 km á skíðum. Höfðu þeir gengið vegalengd- ina á 33 klst. og 15 mínútum. Var kominn skafrenningur og versta veður þegar síðasti göngumaður lauk göngunni. Enn tap hjá ÍS Sá óvænti atburður gerðist í blakinu um helgina, að ÍS lá öðru sinni á vetrinum fýrir Laugdælum og minnkuðu möguleikar liðsins á (slands- meistaratitli að sjálfsögðu mik- ið við það. Síðast vann UMFL 3-0, en nú var meiri hasar í spilinu og UMFL vann 3-2. Fyrstu hrinuna unnu Laug- dælir 15-9, ÍS jafnaði 15-13. Næstu hrinu lyktaði með 15-5 sigri Laugdæla, en aftur jöfnuðu stúdentar með 15-7 sigri. I úrslitahrinunni unnu Laugdælir síðan 15-9 og tryggðu þannig frekar óvæntan sigur. Þróttarar léku á sama tíma gegn UMSE fyrir norðan og unnu naumlega 3-2. Ef Þróttur er talinn á undan, lauk hrinun- um þannig: 15-7, 9-15, 6-15,15-13 og 15-8. ! Sveit JFR vann í 6. skipti l SVEIT Júdófélags Reykjavfkur bar sigur úr býtum í sveitaglímu Júdósambands íslands, sem fram fór í íþróttahúsi Kennaraháskól- ans á sunnudaginn. Sveit JFR sigraði f þessari keppni frá upphafi eða 6 sinnum alls. Júdófélagið hafði mikla yfir- burði í keppninni. Fyrst glímdi sveit JFR við B-sveit Ármanns og sigraði með 6 vinningum gegn einum og hlaut 37 tæknistig á móti 5 tæknistigum Ármenninga. Ár- mann A og Ármann B glímdu næst saman og vann A-sveitin öruggan sigur 6:1, 34 tæknistig gegn einu. Loks glímdu saman sveitir JFR og A-sveit Ármanns og var þar um ójafna viðureign að ræða, JFR vann 6:1 og hlaut 39 tæknistig gegn 5. Aðeins Bjarni Friðriksson í sveit Ármanns vann sína glímu A-Þjóðverjar sigurvegarar AUSTUR-Þjóðverjar urðu sig- urvegarar á Baltic-bikarkeppn- inni í Danmörku og unnu þeir nágranna sína, VesturÞjóð- verja, í úrslitaleiknum 18—15. Hefndu þeir þar með ósigursins í Danmörku á sfðasta ári. er þjóðirnar voru saman í riðli á HM í Danmörku. Þetta er fyrsti ieikurinn sem heimsmeistar- arnir frá VesturÞýskalandi tapa frá þvf að þeir hrepptu titilinn. Sigur Austanmanna var allan tímann mjög öruggur og um tfma höfðu þeir 5 mörk yfir vestrið. Danir hlutu það óskemmti- lega hlutskipti sem gestgjafar, að A- og B-lið þeirra léku um botnsætin tvö. A-liðið vann öruggan sigur, 21—8. Lokastaðan í Baltic Cup varð þessi: 1. Austur-Þýskaland 2. Vestur-Þýskaland 3. Sovétríkin 4. Pólland 5. Svíþjóð 6. ísland 7. Danmörk A 8. Danmörk B Mörk íslenska liðsins í leikjunum fjórum skoruðu eftir- farandi leikmenn: Axel Axelsson Páll Björgvinsson Bjarni Guðmundsson Viggó Sigurðsson Jón Pétur Jónsson Ólafur H. Jónsson Ólafur Einarsson Árni Indriðason Ólafur Jónsson Þorbjörn Jensson Steindór Gunnarsson Stefán Gunnarsson Þorbjörn Guðmundsson • Hinn harðskeytti júdómaður Halldór Guðbjörnsson andstæðingi sínum ígólfið. gegn Sigurði Kr. Jóhannssyni og það naumlega. í sigursveit JFR voru Rúnar Guðjónsson, Siguröur Pálsson, Steinþór Skúlason, Hall- dór Guðbjörnsson, Benedikt Páls- son og Svavar Carlsen. í sveit Ármanns vantaði Viðar Guðjohnsen, sem var meiddur og ennfremur Gísla Þorsteinsson, sem er við störf erlendis. Með þá tvo í sveitinni hefðu Ármenningar vafalaust veitt Júdófélagsmönnum verðuga keppni. Sveitakeppnin fer nú fram með öðru sniði en áður. Henni hefur verið breytt í deildarkeppni og hafa 3 félög rétt til að keppa í efstu deild. Ungmennafélag Kefla- víkur átti rétt á að senda sveit í keppnina ásamt JFR og Ármanni varpar en notfæröi sér ekki þann rétt. - SS. Stuttgart náði Kaiserslautern ÞAÐ VAR lítið um að vera í vestur-þýsku knattspyrnunni um helgina, enda leiðindaveður þar eins og víðast hvar annars staðar í Evrópu. Þó voru leiknir þrír leikir og var einkum einn þeirra mjög mikil- vægur, en það var viðureign Kaiserslautern sem skipaði efsta sætið í deildinni og Stuttgart, sem skipaði þriðja sætið. Úrslit leikja urðu þessi: Stuttgart—Kaiserslautern 3:0 Frankfurt—Schalke 04 3:1 Hertha—Darmstadt 1:0 71.000 manns mættu á leik- vanginn í Stuttgart og sáu heimaliðið leika toppliðið sund- ur og saman. Tvö mörk á tveimur mínútum rétt fyrir leikhlé frá þeim Förster og Höness gerðu nánast út um leikinn, en Volkert bætti .þriðja markinu við í síðari hálfleik. Ríidiger Abramzick náði for- ystu fyrir Schalke snemma leiks, en yfirburðir Frankfurt voru ótvíræðir og þeir Lorant (víti), Grabowski og Wenzel svöruðu fyrir Frankfurt áður en yfir lauk. Lélegum leik Herthu og Darmstadt lauk með sigri fyrr- nefnda liðsins. Eitt mark á 90 mínútum var áhorfendum boðið upp á. Nússing skoraði sigur markið á 38. mínútu. |

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.