Morgunblaðið - 16.01.1979, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 16.01.1979, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 1979 7 1 Seg mér hverja þú umgengst... Til er gamalt máltœki sem hljóöar eitthvað á þessa leið: Seg mér hverja t>ú umgengst og ég skal segja Þér hver Þú 1 ert. Þetta máltæki kemur oft í hugann Þegar lesnar eru gagnkvæmar lýsingar núverandi stjórnarflokka, eóa forráóamanna Þeirra, hvers á öórum, sem alla jafna eru bæói neikvæóar og jafnvel meióandi. Svavar Gestsson, núver- andi viðskiptaráóherra, gengur fram fyrir skjöldu í Þessum samstarfs- heilindum í Þjóðviljanum sl. sunnudag. Lýsing hans á einum samstarfs- flokknum, AlÞýóuflokkn- um, er á Þessa leió: „Samstarfió milli stjórnarflokkanna Þriggja hefur ekki gengið alltof vel, eins og frægt er oróið. Spyrnugæjarnir í AIÞýóuflokknum líta á pólitíkina, einnig stjórnarsamstarf, eins og sandspyrnukeppni. Al- Þýóuflokkurinn minnir mig á pólitískan kvartmíluklúbb...“ Ekki nægir Svavari aö lýsa Alpýöuflokknum á Þann hátt, sem hér að framan greinir. Hann snýr sér persónulega að sam- ráöherrum og gefur Þeim sitt undir hvorn í Þessum orðum: „Mér finnst stundum eins og Þú gleymir Því aó í ríkis- stjórn íslands sitja meó okkur menn eins >g til dæmis Benedikt Gröndal og Tómas Árnason. Ekki held ég að Þeir verði léttstígir á Þrengslavegi íslands til sósíalisma. Engum Þarf aó koma á óvart Þó hægt miöi meó slíka háseta á skútunni, Þegar líka kafteinninn hefur í fjögur ár verið í skiprúmi meó Geir Hallgrímssyni, heildsaia.. “ „Hinn ömurlegi og hættulegi draugur“ Eftir aó hafa útdeilt háttvísi sinni á sam- starfsmenn og flokka snýr Svavar sér aó Því sem hann telur ömurleg- ast og hættulegast í; Þjóðlífinu: „Ég verð að taka undir Það hjá Þér, aó stéttasamvinnan er einn sá ömurlegasti og hættu- legasti draugur, sem skotið hefur upp kollin- um á síðari árum. Stétta- samvinnustefnan birtist meö margvíslegum hætti. Þó sýnist mér hún einna ógeöslegust í Því líkínu, Þegar menn setj- ast saman vió borö, fulltrúar stéttanna, og Svavar Gestsson ætla sér aó finna meðaltalið, aö deila ( stéttaandstæöurnar meó tveimur og finna út Þaö sem kallast sanngjarnt...“ „Flokkur okkar á að vera stétta- baráttuflokkur, gegn afturhaldinu, auðvaldinu, borgarastéttinni. Gleymi flokkurinn baráttuskyldu sinni er hann einskis viröi." Ekki skýrir Svavar nánar hvernig Þessi „borgarastétt“ er saman sett, sem leggja Þarf að velli, hvaöa einstaklingar Þaó eru á meóal okkar í Þjóðfélaginu, sem „fjar- lægja“ á. Hins vegar segir hann að „alÞýöan eigi aó eiga framleiðslutækin og stjórna Þjóðfélaginu" og væntanlega á eitthvert miöstýrt alræðis- og flokksvald að hafa „vit fyrir alþýöunni", t.d. með Því að sjá svo um að ekki verði nema einn valkostur í hverjum kosningum, eins og f fyrirmyndarríkjunum. Þá Þarf AlÞýðubandalagið ekki að vinna með mönn- um „eins og til dæmis Benedikt Gröndal og Tómasi Árnasyni", eða ráða sig hjá „kapteini“ sem verið hefur í skips- rúmi hjá Geir Hallgríms- synil Og Þá verður hinn „ömurlegi og hættulegi draugur", stéttasamvinn- an gerð útlæg með og ásamt „foraðsdíki neyzluhyggjunnar", eins og Það er oröaö. „Vítur á flokksfélaga" Á einum stað í sunnu- dagspistli sínum segir ráöherrann: „Hins vegar kannast ég viö pað, að ég á Þessum árum var ákaf- lega duglegur að flytja tillögur um að víta flokks- félaga okkar fyrir hitt og Þetta. Var varla haldinn sá fundur í (Eskulýðs- fylkingunni í Reykjavík á árunum 1962—1963 að viö samÞykktum ekki „vítur" á flokksfélaga okkar fyrir Það sem kallað var óflokkslegt athæfi og greindi frá í lögum Sósíalistaflokks- ins sáluga ...“ Greinilegt er að ráðherrann horfir með söknuði til Þessarar gengnu tíðar, Þegar vítur féllu í garð Þeirra, sem ekki vóru „flokkslegir“ í skoðunum og afstöðu. Hann fer og ekki dult meö að hann vill um- breyta Þjóðfélagi okkar í eina allsherjar „Æsku- lýðsfylkingu" vítuhugar- farsins, Þar sem hver og einn gengur skoðanalega í takt við miðstýrt, flokkslegt alræði, nokkurs konar gæsagang flokksagans inn í framtíð- ina. Byko býður þilplötur I þúsundum! Þilplötuúrvalið hjá okkur hefur aldrei verið annaö eins, og þá er mikið sagt. Þú kemur aðeins með málin og færð þá þilplöturnar afgreiddar, beint úr upphituðu húsnæðinu, i þeim stærðum sem þú óskar. Úrval og þjónusta sem fagmenn meta mikils. Þvi er þér alveg óhætt. BYKO BYGGINGAVÚRUVERSLUN KÓPAVOGS SF. SÍMI41000 Dömur og herrar athugið! Heilsulindin Hverfisgötu 50, hefur nú starfaö í 10 ár og á þeim tíma höfum viö kappkostað sem besta þjónustu viö hvern einstakling (Engin hópþjónusta). Enn bjóöum viö upp á okkar vinsælu 10 tíma nuddkúra. Afsláttarverö. Komið í Heilsulindina. Njótið lífsins í Heilsulindinni. Grennist og styrkist í Heilsulindinni, Hverfisgötu 50, sími 18866. Karlatímar á föstudögum. Hagbeit í hagbeitarlöndum okkar, eru nokkrir hestar enn, Eigendur þeirra eru vinsamlega beönir, aö hafa samband viö skrifstofu félagsins í dag, eöa síðasta lagi á morgun, miövikudag, kl. 2—5. Athugið mjög áríðandi. Hestamannafélagið Fákur. eigendur: sparið benzín! — og komiö með bílinn reglulega í 10.000 km. skoðun eins og framleiðandi Mazda mælir með. í þessari skoðun er bíllinn allur yfirfarinn og vélin stillt þannig aö benzíneyðsla verður í lágmarki. Þetta er mikilvægt atriði með stórhækkandi benzínverði. BÍLABORG HF. Smiöshöfða 23 Verkstæði sími 81225 NEW Y4 — bílasýning FYRSTA HOPFERÐIN MEÐ DCIO 27.jan,- 3.feb. TÆKIFÆRI SEM ENGINN BÍLAÁHUGAMAOUR LÆTUR FRAM HJÁ SÉR FARA. Á SÝNINGUNNI VERÐA; * Allir amerisku bilarnir 1979 * Flestir ef ekki allir evrópsku og japönsku - bíiarnir 1979 *Sendiferóa og vörubílar Gamlir bilar (antik) *Hot rods„ ♦Verkfœri, fylgihlutir, og margt fleira. ÍSLENSKUR FARARTJÓRI — VERÐ AÐEINS 146.600.oo! — Innifalió flug, gisting, morgunveröur, og feröir milli flugvallar og hótels. FERÐASKRIFSTOFAN Norðurveri v/Nóatún - Sími 29930

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.