Morgunblaðið - 16.01.1979, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 1979
fUtogtiitfrlftfrft
Utgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúí
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjórn og afgreiðsla
Auglýsingar
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson.
Björn Jóhannsson.
Baldvin Jónsson
Aóalstræti 6, sími 10100.
Aöalstrœti 6, stmi 22480.
Áskriftargjald 2500.00 kr. á mánuöi innanlands.
I lausasölu 125 kr. eintakiö.
Þjóðin var blekkt
Loforðadúett Alþýðuflokks og Alþýðubandalags, sem sunginn var
fyrir kosningar á liðnu vori, hljómaði snoturlega í eyrum
þjóðarinnar, enda textinn fyrirheit við flestra hæfi, sem ekki fóru
náið ofan í saumana á röksemdafærslunni. Kosningar eru
kjarabarátta, samningar í gildi, afnám tekjuskatta á almenn laun,
efnahagsstefna til lengri tíma, hjöðnun verðbólgu — og margt fleira
af líkum toga — hljómaði í síbylju. Heitstrengingar og háfleyg orð,
sem ýmsir tóku alvarlega í góðri trú. En sólarsöngurinn, sem
sunginn var fyrir kosningar, hljómar einhvern veginn á annan hátt
nú í skammdeginu, þegar veruleikinn hefur tekið hinar skrautlegu
umbúðir utan af vonbrigðunum, sem reyndust eina innihaldið í
loforðapakkanum.
Tekjuskattar af almennum launum vóru ekki afnumdir. Þvert á
móti. Hækkun tekju- og eignaskatta á einstaklinga milli
fjárlagaáranna 1978 og 1979 nemur 94.2%. Nýtt 50% skattþrep hefur
komið á jaðartekjur. Vörugjald á innfluttar vörur hefur verið
hækkað úr 16% í 18% — og í ýmsum tilfellum í 30%. Og margs
konar ný og aukin skattheimta á atvinnuvegi þjóðarinnar stefnir
rekstraröryggi þeirra í hættu — og þár með atvinnuöryggi
almennings. Vinstri meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur bætir
svo gráu ofan á svart með hækkuðum fasteignagjöldum, sem þar að
auki koma á hærri gjaldstofn en áður, hækkuðum aðstöðugjöldum og
lóðarleigum. Um næstu mánaðamót gjaldfellur fyrsta afborgun
ríkisskatta samkvæmt nýrri 75%-innheimtureglu, stórhækkuð
fasteignagjöld og síðasta afborgun afturvirkra viðbótarskatta liðins
árs. Hætt er því við, að lítið verði eftir í launaumslögum margra í
ráðstöfunartekjur heimila og einstaklinga, þegar vinstri stefnan
hefur tekið sinn skattheimtuhlut.
Önnur loforð, eins og samningar í gildi, efnahagsstefna til lengri
tíma og hjöðnun verðbólgu, hafa fengið svipaðar efndir og
fyrirheitið um afnám tekjuskatta á almenn laun. Og það er hæpin
aðgerð til verðhjöðnunar að hækka fjárlög milli ára um 70.000 m.kr.
eða 50%, á sama tíma og framkvæmdaliðir fjárlaga sæta verulegri
magnminnkun.
Svavar Gestsson, viðskiptaráðherra, sat fyrir svörum á beinni línu
ríkisútvarpsins sl. sunnudag. Þar var hann m.a. spurður þess af
ellilífeyrisþega, sem ekki hafði atvinnutekjur upp á að hlaupa, hvern
veg hann ætti að mæta stórhækkuðum fasteignagjöldum.
Ráðherranum vafðist tunga um tönn. Fyrirspyrjandinn sagði þá, að
flokkur ráðherrans hefði svikið öll sín fyrirheit frá því fyrir
kosningar.
Þessi ellilífeyrisþegi hafði lög að mæla. Þjóðin var blekkt í
kosningaáróðri vinstri flokkanna. Það er þess vegna sem
Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú efnt til fundarhalda um land allt
undir kjörorðunum: „Þjóðin var blekkt — snúum vörn í sókn“. Það er
rík ástæða til að hvetja allt frjálshyggjufólk í landinu til að sækja
þessa fundi og gera þá að upphafi gagnsóknar á hendur
skattheimtuflokkunum. Oft var þörf en nú er nauðsyn að
almenningur bregðist við til varnar ofsköttun í þjóðfélaginu.
Átökin í Alþýðu-
bandalaginu
Langt er síðan pólitískt gönuhlaup stjórnmálamanna hefur
runnið jafn kyrfilega út í sandinn og fum og fuður
Alþýðubandalagsins gagnvart takmörkuðum veiðiheimildum
Færeyinga.
I fyrsta lagi er ljóst að ráðherrar Alþýðubandalagsins höfðu ekki
annað til þessara mála að leggja, er utanríkisráðherra bar málið upp
í ríkisstjórn, en að haft yrði samráð við utanríkismálanefnd Alþingis
varðandi samningagerðina. Frásögn utanríkisráðherra af þessum
ríkisstjórnarfundi hefur verið staðfest af forsætisráðherra.
I öðru lagi segir Svavar Gestsson, viðskiptaráðherra, í viðtali við
Mbl., að hann hafi gert ráð fyrir „allverulegri takmörkun“ á
veiðiheimildum, sem engu að síður staðfestir, að ráðherrar
Alþýðubandalagsins hafa gert ráð fyrir einhverjum veiðiheimildum
til Færeyinga.
I þriðja lagi lagði annar fulltrúi Alþýðubandalagsins í
utanríkismálanefnd, Gils Guðmundsson, það til í umræðu í
nefndinni, að Færeyingar fengju leyfi til að veiða 25000 tonn af
loðnu, sem er verulega meira magn en um var samið (17000 tonn),
í ljósi framangreindra staðreynda verður upphlaup þeirra Ólafs
Ragnars Grímssonar og Lúðvíks Jósepssonar gegn þessum
samningum hið furðulegasta. Það berar hins vegar betur en margt
annað þann þverbrest sem kominn er í Alþýðubandalagið í
stjórnarsamvinnunni. Engu er líkara en að formaður Alþýðubanda-
Litgsins telji ráðherra þess hreina axarskaftasmiði i húsmennskunni
hja Ólafi Jóhannessyni. Aðild Ólafs Ragnars Grímssonar að
upphlaupinu ber hins vegar svip þeirrar auglýsingastarfsemi, sem
hann hefur sérhæft sig í. Alþýðubandalagið hefar til þessa haldið
heimiliserjum sínum vandlega leyndum fyrir almannasjónum. Það
hlýtur því meir en lítið að ganga á innan þess þegar ágreiningurinn
er borinn á torg með þeim hætti, sem þeir Lúðvík Jósepsson og
Ólafur Ragnar Grímsson hafa nú gert.
Snjómoksturiim hefur
kostað Reykvíkinga
nœr 70 millj. á árinu
í ÓFÆRÐINNI í Reykjavík um
helgina voru milli 15 og 20
stúrvirkar vinnuvélar í nær
stanzlausum snjóruðningi.
Víða var mjög þungfært í
úthverfum Reykjavíkur og
annars staðar á höfuðborgar-
svæðinu og sums staðar alveg
ófært um tíma á laugardaginn.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Mbl. fékk í gær á skrifstofu
gatnamálastjóra hefur
kostnaöur við snjómoksturinn
verið milli 60 og 70 milljónir 15
fyrstu daga þessa árs og þótt
aðeins sé skammt liðið vetrar er
langt gengið á þá fjárveitingu,
sem borgin hugðist veita til
eftír ófærð helgarínnar
Færð lagast
FÆRÐ á vegum varð mjög erfið
víðast hvar á suðvesturhorni
landsins, allt austur í
Vestur-Skaftafellssýslu er byl
gerði og skafrenning um helgina,
aðafiféga sl. laugardag. Viírð
ófært um Reykjanes að mestu
leyti aðfararnótt laugardags og
fram eftir degi en tókst að opna á
sunnudagsmorgun.
Að sögn Hjörleifs Ólafssonar
vegaeftirlitsmsnns gerði byl syðra
á föstudagskvöld, en úrkoma var
ekki mikil þannig að tiltölulega
fljótfært var að opna vegi eftir að
veður gekk niður. Hins vegar var
erfitt um vik t.d. á Reykjanesbraut
og Vesturlands^fei þar sem tugir
lítilla bíla höfðu verið skildir eftir.
I gær var orðið vel fært víða um
land á Suðurlandi til Horna-
fjarðar, til Akureyrar og Siglu-
fjarðar, frá Akureyri um Dals-
mynni til Húsavíkur, Tjörnes
Reyklausi dagurinr
Fólk á vin
hyggst stan
EFTIR rétta viku eða þriðjudag-
inn 23. janúar verður efnt til
svonefnds reyklauss dags og er
það Samstarfsnefnd um
reykingavarnir sem hyggst fá
reykingamenn tii að standa sam-
an um að leggja niður reykingar
þennan dag og helzt fyrir fullt og
allt.
lokað, en fært innansveitar í
Kelduhverfi. Verið var að moka á
Héraði í gær og í dag er ráðgert að
leiðin frá Egilsstöðum allt til
Hornafjarðar opnist verði veður
óbreytt. Þá var þungfært víðast á
Snæfellsnesi en þar á að moka í
dag og fært er í Heydal stærri
bílum. Þá er ráðgert að moka
heiðar á Vestfjörðum, m.a. Breið-
dals- og Botnsheiðar, Hálfdán,
leiðina frá Patreksfirði á Barða-
strönd.