Morgunblaðið - 16.01.1979, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 16.01.1979, Blaðsíða 36
 A Verzlið t sérverzlun með litasjónvorp og hljómtæki. fc^ Skipholti 19. BUÐIN sími y 29800 ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 1979 Reykjavík: Atvinnulausum fjölgar um 78 á háJfum mánuði í (i.KR VORU 209 manns á atvinnuleysisskrá í Reykjavík og haíði þeim fjölgað um 78 á s.l. hálfum mánuði. samkvæmt upplýsingum (lunnars Ifelgasonar. forstöðumanns Ráðningarskrifstofunnar. Um síðustu áramót var 191 á atvinnuleysisskrá, þar af 154 karlmenn og 37 konur, en í gær voru 216 karlar komnir á atvinnu- leysisskrá og 49 konur. Hjá konum er mest atvinnuleysi hjá verkakonum, en hjá karlmönn- unum er skiptingin sú að verka- menn eru fjölmennastir, 65, bíl- stjórar eru 62, aðallega vörubíl- stjórar, trésmiðir 20, málarar 12 og múrarar 12 talsins. Leita tveggja rækju- báta með 4 mönnum TVEGGJA rækjubáta frá Húsavfk var saknað í gærkvöldi og hófst leit að þeim um kl. 20. Gengnar voru fjörur frá Saltvík og út að Tjörnestorfu, og bátar lýstu upp fjöruna úti fyrir, en um 50 manns tóku þátt í leitinni. Björgunarsveitin Garðar hóf skipulagningu leitar þegar um kvöldmatarleytið þegar ljóst var að 2 af 10 rækjubátum er héldu á veiðar í gærmorgun komu ekki í heimahöfn. Tveir menn eru á hvorum báti, en þeir eru Þistill ÞH 88 og Guðrún ÞH 14, 7 og 8 tonna bátar. Hvassviðri að vestan skall á síðdegis í gær úti fyrir Norðurlandi, en heldur lægði um kvöldið. Halda átti áfram leit í nótt, en ekki höfðu borizt nánari fréttir er Mbl. fór í prentun uppúr miðnætti. Stefnir í fjárþrot húsnæðismála- stjómar vegna vanskila rítósins Forsvarsmenn byggingasjóds telja hann eiga um milljarð hjá ríkissjóði - Neita að taka við 810 millj. kr. skuldabréfi FORSVARSMENN Húsnæðismála- stofnunar ríkisins halda því nú fram að Byggingarsjóður ríkisins eigi um þessar mundir um einn milljarð króna hjá ríkissjóði, en þessa fjárhæð hafi rikissjóður innheimt lögum samkvæmt fyrir byggingarsjóð á siðasta ári. m.a. f formi launaskatts, sem er einn af tekjustofnum Byggingarsjóðs ríkis- ins. Ilúsnæðismálastjórn hefur hins vegar tekið nú þegar skuldbindandi ákvarðanir um að borga út ián úr byggingarsjóði til húsbyggjenda í landinu á næstu þremur mánuðum fyrir nokkuð á áttunda hundrað milljónir króna. Sigurður E. Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Húsnæðismálastofn- unar ríkisins, sagði í samtali við Mbl. í gær að yrði einhver dráttur á skilum af hálfu ríkissjóðs, kæmi til fjárþrots hjá húsnæðismálastofnun. „Við höfum ekki fjármagn til að standa við gerðar skuldbindingar við húsbyggjendur, sem mun aftur leiða til þess að þeirra skuldbindingar rofna og það getur leitt til atvinnu- skorts eða atvinnuleysis í byggingar- iðnaðinum,1' sagði Sigurður. I framhaldi af þessu gerðist það í sl. viku að Húsnæðismálastjórn neitaði að byggingarsjóður tæki við skuldabréfi frá Framkvæmdasjóði íslands að fjárhæð 810 milljónir króna en í tilkynningu fjármála- ráðuneytis til Seðlabankans um þetta bréf hefði komið fram að þetta bréf fengi byggingasjóður í stað þeirra tekna sem launaskatturinn væri. Forsvarsmenn byggingarsjóðs telja ekki á valdi fjármálaráðu- neytisins að gera ráðstafanir af þessu tagi og endursendu því bréfið. Talsmaður fjármálaráðuneytisins hefur sagt að þessi viðbrögð hús- næðismálastjórnar komi honum á óvart, því að þessi millifærsla milli byggingarsjóðs og framkvæmdasjóðs hafi verið í samræmi við lánsfjár- áætlun síðasta árs og samþykkt ríkisstjórnar í desember sl. Sjá „Ágreiningur í kerfinu“ bls. 21. Skipverja tók út af Sif HU 39: „Mátti ekki tœpara standa” Skagaströnd. 15. 1. — Sif IIU 39 69 tonn, sem gerður er út frá Hvammstanga á Iínuveiðar, var að leggja línu sína sl. laugardagsmorgun í 5 vindstigum að austan og talsverðum sjó í Reykjafjarðarál þegar straumhnútur skall á skipið stjórnborðs- megin. Stýrimaður. Vilhjálmur Skaptason. var að flytja lóðarbala að línurennunni þegar sjórinn skellur á skipið að baki hans og lcndir Vilhjálmur ofan á balanum um leið og báturinn leggst á hliðina. Báturinn rétti sig strax aftur. en um leið kastaðist ílhjalmur ut fyrir sem hann flæktist í. Sif var á lítilli ferð og tókst strax að stöðva hana og bakka að manninum og eftir 3—4 mínútur var hann kominn um borð og inní stýrishús, en meðvitundarlaus, og var andardráttur ekki merkjan- legur. Fljótlega tókst að ná miklum sjó uppúr honum og eftir nokkrar lífgunartilraunir, blástursaðferð og hjartahnoð, tók hann að anda aftur, en komst ekki til meðvitundar fyrr en eftir langa stund og var þá alls ekki sem ánægðastur með afskipti björgunarmanna. ásamt lóðabalanum og línunni Sif sneri strax eftir að Vilhjálmur hafði náðst til Skaga- strandar og kom þangað um kl. 15, en þar tók héraðslæknirinn, Sigursteinn Guðmundsson, á móti þeim og var sjúklingurinn þegar fluttur á sjúkrahúsið á Blönduósi. Aðrir skipverjar urðu ekki fyrir áföllum og báturinn er óskemmdur, hins vegar fór öll línan í einn hnút. Vilhjálmur Skaptason segir: „Um leið og ég féll í sjóinn kallaði ég til félaga minna því ég hélt að þeir hefðu ekki orðið þess varir að ég fór út, en mér fannst báturinn fjarlægjast mjög þar sem ég synti í sjónum. Strax á eftir flæktist ég í línunni og hún dró mig niður. Eg saup mikinn sjó og varð þess fullviss að nú væri úti um mig og var búinn að sætta mig við það, en vildi samt að ég fyndist svo ég reyndi að flækja mig meira í línunni. Kulda fann ég alls engan. Eftir þetta man ég ekkert fyrr en skipstjór- inn segir við mig að eftir sé klukkutíma sthn til Skagastrand- ar. Eg var mjög ruglaður fyrst á eftir og á mig sótti gífurlegur þorsti og ég býst við að ég hafi meiðst í baki. Eg er mjög þakklátur skip- félögum mínum fyrir snarræði þeirra við björgunina, þetta mátti ekki tæpara standa." Skipstjóri á Sif er Oddgeir Þorsteinsson. Fréttaritari. Vilhjálmur Skaptason stýrimaður. Tœplegá 40 kílóa hrygna frá Halaman Skuttogarinn Arnar HU 1 aflaði rúm þrjúþúsund tonn á sl. ári en hann hóf veiðar í febrúar eftir brunann sem varð í hon- um í nóvember 1977. Er skipið kom úr fyrstu veiðiferð þessa árs 13.1 með 140 tonn af góðum fiski var í aflanum þessi þorskur sem myndin er af, en hann reyndist vera 158 sm og 38,4 kg hrygna. Þorskur af þessari stærð hefur af ýmsum verið talinn útdauður, en alltaf öðru hvoru verður þó vart við einn og einn, sennilega er þetta 12—14 ára fiskur, en það verður þó ekki að fullu ljóst fyrr en kvarn- irnar hafa verið athugað- ar hjá Hafrannsókna- stofnuninni. Fiskurinn veiddist á Halanum. — Fréttaritari. Soðning hœkkar VERÐLAGSNEFND hefur samþykkt hækkun á nýjum fiski til neytenda til samræmis við nýlega samþykkta fisk- verðshækkun. Hefur samþykkt- in hlotið staðfestingu í ríkis- stjórninni. Samkvæmt þessu hækka ýsuflök úr 590 í 653 krónur kg. eða um 10.7% en þorskflök hækka úr 560 kr. kg. í 622 krónur eða sem næst 11%. Sambærileg hækkun verður á öðrum fisktegundum. Gosdrykkir hœkka um eina krónu SAMÞYKKT hefur verið einnar krónu hækkun á flestum algeng- ustu gosdrykkjategundum til sam- ræmis við hækkun á vörugjaldi. Hækkunin er sem næst 1—1,5%. Samþykkt á Akranesi Kvennadeild Verkalýðsfélags Akraness samþykkti á félagsfundi í gærkvöldi með yfirgnæfandi meiri- hluta atkvæða samninga er gerðir höfðu verið milli Akraneskaupstaðar og Kvennadeildarinnar. Var verk- falli á Sjúkrahúsi Akraness því aflýst og vinna hafin með eðlilegum hætti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.