Morgunblaðið - 16.01.1979, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 1979
Tillögur Framsókn-
ar komnar fram - til-
lögur Alþýðubanda-
lags koma í vikunni
„VID STEFNUM markvisst að
því að hafa að minnsta kosti
málefnalejíar tillögur tilbúnar
um mánaðamótin. en éx er ekki
viss um að tíminn duj?i til að vera
búnir að semja um þau frum-
vörp." sajfði Steingrímur Her-
mannsson dómsmálaráðherra. er
Mbl. spurði hann í gær um störf
ráðherranefndarinnar. sem vinn-
ur að gerð efnahagsáætlunar til
tveggja ára.
„Það hefur mikið verið unnið að
þessum málum,“ sagði Steingrím-
ur. „Við settum okkur í upphafi
nokkurs konar starfsramma, þar
sem við skiptum þessu niður í
flokka, fjárfestingarmál, ríkisfjár-
mál, peningamál, verðlagsmál og
Margeir í 3. sæti
TV/ER umferðir voru tefldar á
Astoría skákmótinu í Noregi í
ga*r og í 6. umferð mótsins gcrði
Margeir Pétursson jafntefli við
Karlsson. Svíþjóð, og Jón L.
Árnason jafntefli við Björk og
urðu allar skákir umferðarinnar
jafntefli nema 2 sem fóru í bið.
Sjöunda umferð var einnig tefld
í gær og gerði Jón L. jafntefli við
Bernarski frá Póllandi og skák
Margeirs og Vásterinens fór í bíð,
en er jafnteflisleg. Staðan eftir 7.
umferð er óljós en í fyrsta og öðru
sæti eru Goodman og Karlsson
með 4'Æ vinning, Margeir í 3. sæti
með 4 vinninga og biðskák og í
4.-7. sæti er Jón L. með 4
vinninga.
Hraðskákmót var haldið um
helgina og var í fyrsta sæti
Karlsson með 6 Vi vinning og Jón
L. í öðru sæti með 5*/2 vinning en
Margeir hafnaði í 4.-6. sæti með
4 Vi vinning.
kjaramál. Alþýðuflokkurinn lagði
fram sínar tillögur og við Fram-
sóknarmenn höfum lagt fram
okkar tillögur í flestum málaflokk-
um og Alþýðubandalagið mun
koma með sínar tillögur í vikunni.
Þá verður nú anzi mikið af
gögnum komið í sarpinn og við
munum síðan fara í að setja það
sem menn eru mest sammála um í
undirnefndir."
Mbl. spurði Steingrím hverjar
væru tillögur framsóknarmanna
og hvort tillit væri tekið til þess
sjónarmiðs Sambands ungra
framsóknarmanna að ekki eigi
aðeins að leggja línurnar til
tveggja ára heldur fimm. Stein-
grímur kvaðst á þessu stigi ekki
vilja skýra frá efni tillagna þeirra
framsóknarmanna, en í dag koma
þingflokkur og framkvæmdastjórn
flokksins saman til fundar, þar
sem þessi mál verða rædd. yarg
andi lengra tímabil en tvö ár sagði
Steing/úmur að í tillögum Fram-
sóknarflokksins væri lagt til að
gerður yrði rammi til 4—5 ára
varðandi lánsfjáráætlun og fjár-
festingarmál, en síðan yrði skipan
mála fest á Alþingi til eins árs í
senn.
Samningafundur
á fimmtudaginn
Samningafundur með undir-
nefndum í kjaradeilu verzlunar-
manna og verzlunarinnar hefur
verið boðaður næstkomandi
fimmtudag, en síðasti fundur með
fullskipuðum samninganefndum
var haldinn síðastliðinn föstudag.
Varð þá samkomulag um undir-
nefndirnar, sem nú eru boðaðar til
fundar.
Rafmagnslaust 1 sól-
arhring í Grindavik
RAFMAGNSLAUST var í sólarhring í Grindavík um helgina er bilun
varð á rafstreng að morgni laugardagsins og um leið bilaði hitaveita
Suðurnesja og varð því einnig hitalaust þar og í öðrum bæjum á
Reykjanesi.
Sólarhringur leið áður en raf-
magn komst á að nýju og að sögn
Guðfinns Bergssonar fréttaritara
Mbl. í Grindavík voru miklir
erfiðleikar með að komast að
biluninni og fá varahluti, en sakir
ófærðar gekk viðgerð seint. Komst
rafmagnið á að nýju á sunnudags-
morgni, en hitaveitan komst í lag
síðdegis á laugardag. Flest hús í
Grindavík fá hita frá hitaveitunni,
en 40 hús eru enn ótengd og eru
hituð með rafmagni.
Var því orðið
kalt í þeim að morgni sunnudags-
ins, en aö sögn Guðfinns urðu
nokkrir erfiðleikar við rafmagns-
og hitaleysið og' lögreglan var
mikið á ferli við að aðstoða fólk er
átti í erfiðleikum.
Fimm áhafnir til
þjálfunar á DC-10
FIMM flugáhafnir úr Félagi Loftleiðaflugmanna héldu í
gærkvöldi til Bandarikjanna til þjálfunar á DC-10 brciðþotu
félagsins. en alls eiga níu áhafnir að fara í þjálfun. Ekki var unnt
að fá inni til þjálfunar fyrir fleiri áhafnir að sinni.
Fulltrúar frá Douglas-verksmiðjunum voru hérlendis fyrir
helgina til viðræðna við forráðamenn Flugleiða og að sögn Sveins
Sæmundssonar blaðafulltrúa Flugleiða var ekki gott útlit fyrir að
þjálfun fengist í bráð, en skyndilega leystist úr því um helgina.
Þjálfunin tekur um 6 vikur og gert er ráð fyrir að áhafnirnar hefji
flug um leið og þjálfun lýkur og er vænst til þess að þær 4 áhafnir
sem þjálfa á til viðbótar komist að innan tíðar, en þjálfunin fer
fram í Kalíforníu.
Hassdómur í Þýzkal.:
íslendingur í
1 árs fangelsi
UNGUR Islendingur, sem tekinn
var með 200 grömm af hassolíu í
Vestur-Þýzkalandi s.l. haust, hefur
verið dæmdur í 1 árs fangelsi af
þýzkum dómstól. 200 grömm af
hassolíu samsvar^ um 1 kg af
hassi.
Fyrsta loðnan
á Norðfjörð
Neskaupstað, 15. janúar. —
Börkur kom hingað til Neskaup-
staðar í gær með 750 tonn af
loðnu. Er það fyrsta loðnan, sem
kemur hingað á þessu ári. —
Ásgeir.
Tafir í innanlands-
og millilandaflugi
— VEÐRIÐ setti áætlunarflug
Flugleiða verulega úr skorðum
um og fyrir hclgina og átti það
bæði við um innanlands- og
millilandaflug, sagði Sveinn
Sæmundsson blaðafulltrúi f sam-
tali við Mbl. í gær.
— Lítið var flogið innanlands á
föstudag, en á laugardag var hins
vegar hægt að fljúga mestallt
nema 2 ferðir til Akureyrar og á
sunnudag var aftur orðið verra og
var aðeins hægt að fara 2 ferðir til
Isafjarðar og eina til Færeyja, en
veður versnaði mjög er á daginn
leið.
í gær var innanlandsflugið með
eðlilegum hætti að mestu leyti en
óvissa var um flug til Egilsstaða
vegna rafmagnstruflana.
— Millilandaflugið hefur gengið
misjafnlega þessa daga, á föstudag
urðu vélar á leið til Bandaríkjanna
að halda áfram frá Luxemborg án
viðkomu á Islandi, og á sunnudag
urðu þær að fljúga yfir á leiðinni
frá Bandaríkjunum, en gátu lent í
Keflavík síðdegis. Þá urðu
seinkanir á flugi til Norðurlanda,
vél tafðist í Glasgow yfir nótt og
vél á leið frá Kanaríeyjum var
látin bíða í London á laugardags-
kvöld fram á sunnudag og tók þá
einnig farþega þar á leið til
Islands.
Sveinn sagði að tíðarfarið í
vetur hefði verið mjög erfitt og
ætti það bæði við hérlendis og
erlendis og nefndi að vél er átti að
fara til Chicago var látin bíða í
New York og farþegum komið
áleiðis eftir öðrum leiðum, en
snjór var mikill í Chicago.
Mjög fjölmenn
útför Jóns H.
Þorbergssonar
IIÚSAVÍK, 15. jan. - Bænda-
höfðinginn Jón II. Þorbergsson á
Laxamýri var til moldar borinn
S.I. laugardag frá sóknarkirkju
sinni á Húsavik. í sóknarnefnd
Húsavíkur hefur Jón verið um
áratugi og var til dauðadags.
Útfararræðuna flutti sr.
Sigurður Guðmundsson prófastur
að Grenjaðarstað en sr. Björn H.
Jónsson jarðsöng. Kirkjukór
Húsavíkur annaðist söng og
Jóhann Konráðsson söng einsöng.
Blómsveigar bárust m.a. frá
Búnaðarfélagi íslands, Búnaðar-
sambandi Suður-Þingeyinga,
sóknarnefnd Húsavíkur og Laxár-
félaginu.
Útförin var mjög fjölmenn og
margt aðkomumanna var viðstatt
hana, vinir Jóns víða af landinu,
alþingismenn og meira en
helmingur þingeyskra bænda úr
nærsveitum fylgdi þessum aldna
héraðshöfðingja til grafar. —
Fréttaritari.
Deilumar í hreppsnefnd Ólafevíkur:
Málið er til athugunar hjá
sýslumanni í Stykkishólmi
Oddviti vill ekkert um málið segja
Gudný leikur Brahms og
Sólglit Skúla Halldórssonar
N/ESTU TÓNLEIKAR Sinfóníuhljómsveitar íslands verða á fimmtudagskvöld kl. 20>30 og er efnisskráin
sem hér segiri Svíta nr. 3. Sólglit eftir Skúla Halldórsson. fiðlukonsert eftir Brahms og konsert fyrir
hljómsveit eftir Bela Bartók. Illjómsveitarstjóri er Gilbert Levine frá New York og hefur hann stjórnað
hljómsveitum í Þýzkalandi. og Frakklandi og á Norðurlöndum.
Einleikari er Guðrún Guð-
mundsdóttir konsertmeistari. Hún
hóf nám í fiðluleik við Tónlistar-
skóla Hafnarfjarðar 6 ára að aldri
og lauk síðan einleikaraprófi frá
Eastman-tónlistarskólanum í New
York árið 1971.
Guðný hefur leikið
einleik með Eastman-Rochester
hljómsveitinni og fleiri hljóm-
sveitum í Svíþjóð og Englandi.
Guðný var ráðin konsertmeistari
Sinfóníuhljómsveitar íslands árið
1975 og einnig kennir hún við
Tónlistarskólann í Reykjavík.
Deilurnar um fundarsköp og
boðun hrcppsncfndarfunda í
hreppsnefnd Ólafsvíkurhrepps
eru nú til athugunar hjá embætti
sýslumannsins í Stykkishólmi en
engin ákvörðun hefur verið tekin
um hvernig á málinu verður tekið
að því er Andrés Valdimarsson
sýslumaður tjáði Morgunblaðinu
ígær.
Eins og skýrt var frá í Morgun-
blaðinu síðastliðinn laugardag
hefur fulltrúi Sjálfstæðisflokksins
í hreppsnefnd Ólafsvíkur beðið
sýslumann að hlutast til um að
oddviti hreppsins hafi í heiðri
almennar reglur um fundarsköp
og meðferð mála á fundum hrepps-
nefndar Ólafsvíkurhrepps. Telur
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins,
Helgi Kristjánsson, að oddvitinn,
Alexander Stefánsson alþingis-
maður, hafi þverbrotið allar al-
mennar reglur um þessi mál, og að
geðþóttaákvarðanir hans ráði því
hvort eða hvenær mál séu tekin
fyrir í hreppsnefndinni, og einnig
að fundarboðun sé mjög ábóta-
vant.
Andrés Valdimarsson sýslumað-
ur sagðist vonast til að mál þetta
fengi farsælan endi þannig að ekki
kæmi til neinna leiðinda, en
sýslumanni bæri vissulega að
kanna málið, og að sýslunefnd ætti
að sjá til þess að farið væri að
settum reglum. Vildi sýslumaður
ekki að öðru leyti tjá sig um málið
á þessu stigi, enda hefði hann enn
ekki rætt við aðra en Helga
Kristjánsson. ítrekaði hann að
lokum þá von sína að málið mætti
leysa án mikilla leiðinda.
Þá hafði Morgunblaðið einnig
samband við Alexander Stefáns-
son, oddvita Ólafsvíkurhrepps, en
hann kvaðst.ekkert um málið vilja
segja. Hann væri nýbúinn að sjá
ummæli Helga Kristjánssonar í
Morgunblaðinu, og hefði ekki gert
upp við sig hvort hann vildi svara
þeim efnislega.
Flugmenn F.Í.A. í
verkfall á laugardag
Guðný Guðmundsdóttir
Skúli Halldórsson
Félag íslenskra atvinnuílug-
manna hefur hoðað verkfall frá
og með kl. 19 næstkomandi
laugardag er standa á til kl. 8 á
mánudagsmorgni 22. janúar.
Samningaviðræður standa nú
yfir milli F.I.A. og forráðamanna
Flugleiða og hafa verið haldnir
þrír fundir, sá síðasti síðdegis í
gær og að sögn Björns Guðmunds-
sonar formanns F.Í.A. hefur ekki
miðað í samkomulagsátt. Verkfall
þetta er boðað til að leggja áherzlu
á kröfur um launajöfnun og
leiðaskiptingu á áætlunarflugleið-
um Flugleiða. Nýr samningafund-
ur hafði ekki verið boðaður í
gærkvöldi.