Morgunblaðið - 25.01.1979, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 1979
3
Atök í FIM vegna Kjarvalsstaðadeilunnar:
Andstaða gegn banni
á Kiarvalsstaöi
ALLMIKIL átök urðu á fundi í
FÍM, Félagi íslenzkra mynd-
listarmanna. vegna ráðningar
listráðunauts að Kjarvalsstöð-
um en fundur þessi fór fram í
fyrrakvöld. Meirihiuti FÍM
kom fram með harða gagnrýni
á meirihluta stjórnar Kjarvals-
staða vegna ráðningar bóru
Kristjánsdóttur en minnihlut-
inn taldi slíka gagnrýni
ástæðulausa og styður ráðn-
ingu bóru. Baeði meiri- og
minnihlutinn hafa lýst yfir því,
að báðir umsækjendurnir, list-
fræðingarnir Ólafur Kvaran og
bóra Kristjánsdóttir, séu hæfir
að þeirra mati en meirihlutinn
hafði mælt með ráðningu hins
fyrrnefnda. Talsmcnn meiri-
hlutans hafa skýrt frá því
opinberlega að gagnrýni þeirra
beinist ekki gegn bóru
Kristjánsdóttur persónulega
enda þótt hann hafi lýst yfir
stuðningi við Ólaf.
Mcirihluti stjórnar Kjarvals-
staða, Davíð Oddsson og Sjöfn
Sigurbjörnsdóttir. standa að
ráningu bóru Kristjánsdóttur
en minnihlutinn, Guðrún
Ilclgadóttir fulltrúi Alþýðu-
handalagsins, greiddi Ólafi
Kvaran atkvæði og í borgar-
ráði héit Sigurjón Pétursson,
einnig fulltrúi Alþýðubanda-
lagsins, fast við afstöðu Guð-
rúnar Helgadóttur.
Á fundi FÍM munu hafa verið
samankomnir tæplega 40
myndlistarmenn og má sjá bilið
milli meiri- og minnihluta á
atkvæðatölunum 19 og 11, enda
þótt niðurstaðan hafi orðið sú
að 33 greiddu atkvæði með
þeirri tillögu, sem ofan á varð í
lokin.
Fundurinn
Morgunblaðið hafði samband
við Einar Hákonarson listmál-
ara og innti hann frétta af
fundinum.
Einar sagði að eftir for-
mannskjör hefði Hörður
Agústsson verið beðinn að taka
að sér fundarstjórn af fráfar-
andi formanni, Hjörleifi
Sigurðssyni, þar sem nýkjörinn
formaður, Sigrún Guðjónsdótt-
ir, óskaði eftir því að taka ekki
við stjórn fyrr en á framhalds-
aðalfundi. Hörður Ágústsson
reifaði deilumál FÍM og stjórn-
ar Kjarvalsstaða en að máli
hans loknu tóku til máls nokkrir
fundarmanna, sem stóðu nálægt
stjórninni og fóru fram á, að
aftur yrði lýst algeru banni á
Kjarvalsstaði, en það fékk ekki
hljómgrunn allra fundarmanna.
Var þá borin fram tillaga um að
víta meirihluta stjórnar Kjar-
valsstaða fyrir þessa manna-
ráðningu. Minnihlutinn mót-
mælti þessu og sagði að ekki
hafði verið lýðræðislega staðið
að þessum málum þar sem
félagsmönnum hefði ekki verið
gefinn kostur á því að fjalla um
umsækjendur eins og gert var
þegar Aðalsteinn Ingólfsson var
ráðinn á sínum tíma. Stjórnar-
menn sögðu þá, að þeir teldu sig
hafa umboð félagsmanna til
þess að fjalla um umsækjendur
og gefa upp álit á þeim til
stjórnar Kjarvalsstaða. Þessu
mótmæltu talsmenn minnihlut-
ans. Sögðu þeir að sú hefð hefði
skapast að ræða þetta á almenn-
um félagsfundi og því væri þetta
ekki rétt hjá stjórninni.
Kosið um tillögur
I framhaldi af þessu var borin
upp tillaga um að mótmæla
vinnubrögðum meirihlutans í
stjórn Kjarvalsstaða í sambandi
við ráðningu listráðunauts. Kom
þá fram breytingartillaga frá
Valtý Péturssyni og Einari
Hákonarsyni að ef svo væri, að
meirihiutinn hefði svikið ein-
hver loforð, sem hann hefði
gefið munnlega, ætti það ekki að
bitna á Þóru Kristjánsdóttur,
þ.e. þessar vítur væru ekki
dómur á hana sem slíka. Þessi
tillaga var felld með 19 atkvæð-
um gegn 11. Minnihlutinn
áskildi sér rétt til þess að gefa
út yfirlýsingu um það að þetta
ætti ekki við um Þóru. Var fyrri
tillagan því næst borin upp og
samþykkt með 33 atkvæðum
gegn 5. Helstu talsmenn meiri-
hlutans í þessum umræðum
voru Hjörleifur Sigurðsson, frá-
farandi formaður FÍM, Hörður
Ágústsson og Jón Reykdal en
talsmenn minnihlutans voru
Valtýr Pétursson og Einar
Hákonarson.
Tillagan, sem samþykkt var,
hljóðaði svona:
Aðalfundur FÍM mótmælir
harðlega vinnubrögðum meiri-
hluta hússtjórnar Kjarvalsstaða
í sambandi við ráðningu list-
ráðunauts. Telur fundurinn að
stjórnin hafi þar með rofið
munnlegt samkomulag við lista-
menn. Félagið áskilur sér rétt til
að gera viðeigandi ráðstafanir í
samræmi við þetta.
Þess má geta í sambandi við
þessa tillögu, að borgarfulltrú-
arnir Davíð Oddsson og Sjöfn
Sigurbjörnsdóttir hafa sksskýrt
frá því i blaðaviðtölum að slíkt
munnlegt samkomulag hafi ekki
verið gert, sem minnst er á í
tillögunni. Guðrún Helgadóttir,
borgarfulltrúi, sem einnig á sæti
í stjórn Kjarvalsstaða, segir
hins vegar í viðtali við Þjóðvilj-
ann sl. þriðjudag: „Ég vildi
aðeins standa við þau munnlegu
loforð sem gefin voru á þriggja
mánaða samningafundum með
listamönnum um að þeir hefðu
eitthvað um ráðningu listráðu-
nauts að segja, þó þeir hefðu
ekki hreinan atkvæðisrétt. Ég
mat tillögu þeirra gilda og
greiddi henni atkvæði mitt.“
Verður lýst banni
á Kjarvalsstaði?
„Stjórn FIM mun koma sam-
an til fundar í næsth viku og
fram að þeim fundi munum við
íhuga vel næsta leik okkar. Það
kemur vissulega til greina að
iýsa yfir sýningarbanni á Kjar-
valsstaði," sagði Sigríður
Björnsdóttir, ritari stjórnar
Félags íslenzkra myndlist-
armanna, í samtali við Mbl. í
gær.
„Þegar gengið var frá samn-
ingum milli okkar og stjórnar
Kjarvalsstaða nýverið vorum
við óánægð með það að hafa
ekki jafnan atkvæðisrétt á við
aðra, sem fara með málefni
hússins. Aftur á móti fengum
við munnlegt loforð um, að farið
yrði eftir áliti listamanna við
ráðningu listráðunauts en þegar
reynir í fyrsta skipti á þetta
samkomulag er það svikið. Þetta
getum við ekki fellt okkur við.
Stjórn FIM sendi bréf þar sem
eindregið var mælt með Ólafi
Kvaran en álit okkar var
hundsað. Ég vil taka það skýrt
fram, að það er ekkert persónu-
legt gegn Þóru Kristjánsdóttur,
sem veldur þessu mikla upp-
námi innan FÍM, heldur svikin
hjá meirihluta stjórnar Kjar-
valsstaða, sem ekkert tillit tók
til okkar vilja."
„Þóra nýtur
stuðnings okkar“
„Ég hef haft samskipti við
Þóru í fjöldamörg ár vegna
starfs hennar við Norræna
húsið. Það er mín skoðun og
margra fleiri í FIM að ekki sé
hægt að fá samstarfsbetri
manneskju. Því nýtur hún
stuðnings okkar,“ sagði Valtýr
Pétursson listmálari, þegar Mbl.
bar þetta mál undir hann í gær.
Valtýr kvaðst að öðru leyti ekki
vilja tjá sig um málið að svo
stöddu.
Fékk 4 atkvæði í borgarráði
Á borgarráðsfundi á þriðju-
daginn kom þetta mál til
afgreiðslu. Hlaut Þóra Kristj-
ánsdóttir fjögur atkvæði full-
trúa Sjálfstæðisflokks, Alþýðu-
flokks og Framsóknarflokks en
Sigurjón Pétursson fulltrúi Al-
þýðubandalagsins greiddi at-
kvæði á móti. Þar sem ekki var
eining um afgreiðslu málsins
verður það afgreitt á næsta
borgarstjórnarfundi, sem vænt-
anlega verður fimmtudaginn 1.
febrúar.
Ólafur vill ekkert segja á
þessu stigi
Morgunblaðið hafði í gær
samband við Ólaf Kvaran list-
fræðing. Hann kvaðst ekkert
vilja láta hafa eftir sér opinber-
lega um málið á þessu stigi.
Þóra Kristjánsdóttir.
Þóra Kristjánsdóttir listráðunautur:
„Þegar hús ber
nafn Kjarvals set-
ur það skyldur á
herðar þeim sem
um eiga að fjalla”
MORGUNBLAÐIÐ sneri sér í gær til Þóru Kristjánsdóttur
nýráðins listráðunauts Kjarvalsstaða vegna þeirra atburða sem
orðið hafa í samskiptum stjórnar hússins og samtaka listamanna
vegna ráðningar Þóru. Ilún hafði eftirfarandi að segjai
„Við skulum bara vona að
þessi stöðuga misklíð útaf
Kjarvalsstöðum verði ekki til
þess að gera almenning
fráhverfan staðnum. Þetta
fallega hús býður upp á svo
marga skemmtilega kosti ekki
aðeins myndlistum til fram-
dráttar heldur og öðrum listum
og ekki síst samspil ólíkra
listgreina, að það væru meiri-
háttar vandræði ef menn gætu
ekki sett niður deilur sínar í
þágu þess sem hlýtur að vera
aðalatriðið: Að Kjarvalsstaðir
nýtist sem bezt til eflingar
menningu í höfuðborginni. Að
vísu er þar einnig aðstaða til
margs konar annarrar athafna-
semi, ráðstefnuhalds, erlendra
farandsýninga og s. frv. en
þegar hús ber nafn meistara
Kjarvals þá setur það skyldur á
herðar þeim, sem um eiga að
fjalla og kveður líka ótvírætt á
um til hvers þetta hús er reist.
Það væri okkur til skammar ef
við bærum ekki gæfu til þeirrar
eindrægni, sem dygði til að láta
Kjarvalsstaði lifa með reisn."