Morgunblaðið - 25.01.1979, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 1979
5
Sparis jóður Haf nar-
f jarðar opnar útibú
Annad útibú sparisjóðs hérlendis
SPARISJÓÐUR Hafnarfjarðar opnar á morgun nýtt útibú við Reykjavíkurveg.
Þetta er annað útibú sem sparisjóður opnar hér á landi en jafnframt það fyrsta
sem sparisjóður opnar í sama byggðarlagi og aðalútibúið.
Um þessar mundir hefur Sparisjóður Hafnarfjarðar starfað í rúm 76 ár og hefur
velta hans farið sivaxandi. Um síðastliðin áramót voru heildarinnstæður í
Sparisjóðnum 3.148 milljónir króna og höfðu aukist um 1.000 milljónir á árinu eða
tæp 47%. Útlán jukust um tæpar 700 milljónir og námu í árslok 2.175 milljónum
króna. Ljóst er að rekstrarafkoman á síðasta ári hefur verið góð og
eiginf járstaðan aukist.
peningastofnun forstöðu. Hún
hefur verið skrifstofustjóri hjá
Sparisjóðnum í 6—7 ár.
„Mér líst ágætlega á nýju
stöðuna. Ég hef fengið þjálfun í
mínu fyrra starfi og ég á von á
því að hér verði mikil viðskipti
en við munum fyrst og fremst
þjóna fyrirtækjunum og íbúum
Norðurbæjarins," sagði Hildur.
Varðandi afstöðu viðskipta-
vina til þess að útibússtjórinn er
kvenmaður sagði Hildur:
„Ég ætla að vona að þeir taki
því eins og það er og tali við mig
eins og hvern annan útibús-
stjóra."
Er blaðamönnum var kynnt
nýja útibúið sagði Guðmundur
Guðmundsson sparisjóðsstjóri
m.a.:
„Það hefur verið krafist ýmis-
legs af Sparisjóðnum og við
höfum reynt að koma til móts
við þær kröfur m.a. með því að
stofnsetja þetta útibú. Við
vonumst til þess að Hafnfirðing-
ar notfæri sér þá þjónustu sem á
Hinn 4. mars 1977 sótti
Sparisjóður Hafnarfjarðar um
leyfi til að opna útibú í „Norður-
bænum“ og fékkst það leyfi 30.
maí 1978. Var þá tekið á leigu
175 fermetra húsnæði að
Reykjavíkurvegi 66. Síðan hefur
verið unnið við frágang hússins
og innréttingar útibúsins.
Starfsmenn í útibúinu verða
þrír. Forstöðumaður þess verður
Hildur Haraldsdóttir en aðrir
starfsmenn eru Elín Jakobsdótt-
ir og Ebba Skarphéðinsdóttir.
Hildur sem er 26 ára er ein
fárra kvenna á Islandi sem veita
Elín Jakobsdóttir. Ebba Skarphéðinsdóttir, Ilildur Haralds-
dóttir útibústjóri. Þór Gunnarsson aðstoðarsparisjóðsstjóri og
Guðmundur Guðmundsson sparisjóðsstjóri í húsakynnum hins
nýja útibús.
Ilildur Ilaraldsdóttir. Þór Gunnarsson. Matthías Á. Mathicsen
stjórnarformaður Sparisjóðsins og Guðmundur Guðmundsson
sparisjóðsstjóri við borð þar sem börn geta hlustað á tónlist og
skoðað Andrés-blöð meðan foreldrarnir útrétta í sparisjóðnum.
boðstólum verður, sem er öll
almenn þjónusta sem sparisjóð-
ur veitir."
Innréttingar á hinu nýja
húsnæði annaðist Litla teikni-
stofan í Hafnarfirði. Dvergur
h.f. sá um smíðar en Svavar
Guðjónsson og Hörður Jónsson
önnuðust raflagnir. Eyþór og
Þorkell Júlíussynir unnu alla
málaravinnu en dúk- og teppa-
lögn annaðist Hermann Sig-
urðsson.
Stjórn Sparisjóðs Hafnar-
fjarðar skipa: Matthías Á.
Mathiesen alþm. stjórnarfor-
maður, Guðmundur Guðmunds-
son sparisjóðsstjóri, Ólafur Tr.
Einarsson framkvæmdastjóri,
Stefán Gunnlaugsson deildar-
stjóri og Stefán Jónsson for-
stjóri.
Ilúsnæði útibús Sparisjóðs Hafnarfjarðar við Reykjavíkurveg.
Myndir Emilía.
Rabbfundir Vöku
um hugmyndafræði
lýðræðisflokkanna
Gylfi Þ. Gíslason verður
gestur á rabbfundi hjá
Vöku, félagi lýðræðissinn-
aðra stúdenta, í Hótel Vík í
kvöld. Umræðuefni fundar-
ins verður „Jafnaðarstefn-
an“, en Gylfi hefur nýlega
skrifað bók með sama heiti.
Þessi rabbfundur er fyrstur
í röð þriggja funda þar sem
kynntar verða hugmyndir
þær sem liggja að baki
ólafur Gylfi Þ.
Björnsson Gíslason
lýðræðisflokkanna, Alþ.fl.,
Frams.fl. og Sj.st.fl.
Næsti rabbfundur verður
þannig að viku liðinni um
frjálshyggju og verður gest-
ur þess fundar Ólafur
Björnsson, sem einnig hefur
nýverið sent frá sér bókina
„Frjálshyggja — alræðis-
hyggja". Síðasti fundurinn
verður síðan eftir hálfan
mánuð og verður þá rætt
um samvinnustefnuna.
Með fundahaldi þessu vill
Vaka leggja áherslu á hlut-
verk sitt sem félag allra
lýðræðissinnaðra stúdenta
hvar í flokki sem þeir
standa.
Athugasemd
frá Davíð
Ólafssyni
í framhaldi af frétt í blaðinu í
gær um hið nýja fyrirkomulag
afurðalána, hefur Davíð Ólafsson
óskað eftir að taka fram eftirfar-
andi:
Upphaf málsins var það, að á sl.
hausti settu framleiðendur fram
óskir við ríkisstjórnina um, að sá
háttur yrði hafður á með afurða-
lán út á sjávarafurðir, að þau yrðu
með lágum vöxtum en gengis-
tryggð. Eftir að ríkisstjórnin
hafði rætt málið óskaði hún eftir
því við bankastjórn Seðlabankans,
að komið yrði til móts við þessar
óskir og að breytingin kæmi til
framkvæmda við veitingu afurða-
lána út á þessa árs framleiðslu.
Þegar beiðnin kom fram um
frestun á framkvæmd, hafði þetta
fyrirkomulag þegar verið auglýst
og í samráði við viðskiptaráðherra
og sjávarútvegsráðherra var
ákveðið að fresta ekki fram-
kvæmd málsins.
Lítið barn hefur
-II' lítið sjónsvið
RAUN ER AF
ÞURRU LOFTI
rakatœkió sem gefur
hinn rétta andblœ!
Verð kr. 30.225.-
FÁLKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
SENDUM
BÆKLINGA