Morgunblaðið - 25.01.1979, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 1979
7
Alþingi kemur
saman í dag
AlÞingi íslendinga, 100.
löggjafarÞingi, verður
fram haldíð í dag eftir
nokkurra vikna starfshlé.
Væntanlega verður Þá —
eða næstu daga — lögð
fram lánsfjáráætlun
stjórnvalda, sem fylgja
átti fjárlagafrumvarpi,
svo sem venja er, en varö
síðbúin. Efnahagsmálin
verða efalaust helzta við-
fangsefni píngsíns, a.m.k.
ef stjórnarflokkunum
tekst að berja saman
sameiginlega efnahags-
stefnu til lengri tíma —
fyrir 1. febrúar nk., en
formaður Alpýðuflokks-
ins hefur lýst pví yfir, að
slíkt samkomulag sé for-
senda pess að stjórnin
falli ekki pegar í byrjun
næsta mánaðar.
Annað stórt mál, tengt
efnahagsmálum, sem
hlýtur að koma til með-
ferðar í febrúarmánuði,
er vísitölumálið; hvern
veg skulí mæla veröbæt-
ur á laun, en flestir eru
sammála um, að núver-
andi kerfi sé úrelt og
frekar hvati en hemill á
Þá óðaveröbólgu, sem
hér hefur ríkt. Ekki eru
stjórnarflokkarnir Þó á
einu máli í Því efni,
fremur en i afstöðu til
vaxtamála, skattamála
eða annarra meginpátta í
stjórnarstefnunni.
Samkomulagiö á
stjórnarheimilinu hefur
veríð meö peim hætti allt
frá myndun ríkisstjórnar-
innar að meö ólíkindum
er. Engu er iíkara en aö
stjórnarflokkarnir, a.m.k.
Alpýðuflokkur og Al-
Þýðubandalag, líti á
stjórnarsamstarfið sem
nokkurs konar forspil að
nýjum kosningum. Meg-
inorka stjórnarflokkanna
fer Því í Það að gera hver
annan tortryggilegan í
augum almennings og
vandamálin hrannast upp
óleyst. Formaður eins
stjórnarflokksins sagöi
óráðlegt að spá í líf
stjórnarinnar lengur en til
tveggja sólarhringa í
senn! Það er Því aö
vonum að fólk leiði hug-
an aö pví Þessa dagana,
hvern veg stjórninni reiöi
af yfir mánaðamótin,
varðandi efnahagsstefn-
una og vísitölumálin, sem
aftur verða í brennipunkti
um mánaöamótin
febrúar-marz.
Sennilega gerist fátt á
ráðgerðum fundi Þings-
ins í dag. En búast má við
hitabylgju Þegar í næstu
viku.
Ullar- og
skinnaiðnaður
Hlutur iðnaðar í heild-
arútflutningi landsmanna
hefur vaxíö úr 18.4% árið
1970 i 21.9% árið 1977. Að
sjálfsögðu er verðmæta-
sköpun í iðnaöi mun
meiri en útflutníngur
hans segir til um. Verg
Þjóðarframleiðsla á
tekjuvirðí er talin hafa
veriö um 201 milljarður á
árinu 1976. Þar af var
hlutur iðnaðar 52'h millj-
arður eða 26.1% (fram-
leíðsluíðnaður, fisk-
vinnsla og Þjónustuiðn-
aður). Þá er ótalinn bygg-
ingariðnaður sem Þetta
ár nam 24.7 milljörðum
króna eða 12.3%.
Útfluttar iðnaðarvörur
á árinu 1977 námu sam-
tals 22.3 milljörðum
króna. Þar af var ál og
álmelmi stærst að verð-
mæti eða rétt tæpir 15
milljarðar króna. Næst
stærsti flokkurinn í út-
fluttum iðnaðarvörum er í
beinum tengslum við
landbúnað, tæpir 4.6
milljarðir króna, Þ.e.
prjóna- og ullarvörur
3.325 m.kr. og loðsútað
skinn 1.253 m.kr. Þar
næst koma niðursoðnar
og niöurlagðar sjávaraf-
urðir 1.206 m.kr., kisilgúr
831 m.kr. og aðrar
iðnaðarvörur 794 m.kr.
Eftírtektarvert er, hve
stór hlutur búvöru er í
iðnaðarútflutningi, eða
vara unninna úr hráefn-
um frá landbúnaði. Þetta
leiöir hugann að pví hve
margir hafi framfæri af
atvinnu tengdri landbún-
aði, úrvinnslu land-
búnaðarhráefna og Þjón-
ustu viö landbúnaðinn
sem atvinnugrein, bæði
varðandi viöhald og við-
gerðir húsakosts og véla
og hvers konar verzlun
og Þjónustu við fólkíð í
sveitum landsíns. Brezk-
ar skýrslur greína frá Því
að hver starfsmaður í
landbúnaðí skapi 2'h at-
vinnutækifæri í úrvinnslu
og Þjónustugreínum.
Allavega er Ijóst að
ullar- og skinnaiðnaður
er vaxandi Þáttur í út-
flutníngi okkar. Loðsútuð
skinn vóru flutt út fyrir
398 m.kr. 1973 en 1253
m.kr. 1977. Prjóna- og
ullarvörur vóru fluttar út
fyrir 430 m.kr. 1973 en
3.325 m.kr. 1977.
bregöiö ykkur frá hversdagsleikanum og komiö og lærið
nýjustu
Beat og Grease dansana
Gefur ykkur mjúkar og skemmtilegar hreifingar
Upplýsingar og
innritun í síma
84750
Kennslustaöir:
Reykjavík
Kópavogur
Hafnarfjörður
Mosfellssveit
og Akranes.
1x2
22. leikvika — leikir 20. jan. 1979.
Vinningsröð: 221— 112 — XX1 — 212
1. VINNINGUR: 12 réttir — kr. 941.500 -
42517(4/11)
2. VINNINGUR: 11 réttir — kr. 67.200,-
36855+ 40576
Kærufrestur er til 12. feb. kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera skriflegar.
Kærueyöublöö fást hjá umboösmönnum og aöalskrifstofunni. Vinnings-
upphæðir geta lækkaö, ef kærur veröa teknar til greina.
Handhafi nafnlauss seöils (+) veröur aö framvísa stofni eöa senda stofninn og
fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir greiösludag
vinninga.
ATH. leikir á seðli nr. 23:
Arsenal g. Sheffield Wednesday fer fram 22. janúar Hartlepools g. Leeds fer
einnig fram 22. janúar. Strika skal út þaö liðiö, sem tapar, og einnig skal strika
út Derby (verður Preston — Southampton) og Stoke (verður Oldham —
Leicester).
GETRAUNIR — íþróttamiðstöðinni — REYKJAVÍK
Galia
Erum fluttir
í Noróurver viö Nóatún.
Nýtt símanúmer
”Þetta kcúla ég drýkk”
Sgjls Hvítöl
sem kostar AÐEINS 175 kr. lítrinn og fæst ískalt og
freyðandi í afgreiðslu okkar í Þverholti.
HF. ÖLGERÐIN
EGILL SKALLAGRÍMSSON
Þverholti 22