Morgunblaðið - 25.01.1979, Side 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 1979
Fréttamenn sem hafa verið
á ferð í Indlandi síðustu
mánuði hafa gert sér tíð-
rætt um nýja hreinsunar-
herferð Desais forsætisráðherra:
meðan milljónir svelta, hafa enga
atvinnu hvaö þá hýbýli, skólakerfið
upp og ofan og framleiöslan hefur
ekki vaxið — hefur Desai ákveðið
að hann vill þurrka Indland upp í
þeim skilningi að þar verði áfengis-
neyzla bönnuð í eitt skipti fyrir öll.
Það er kaldhæðnislegt að á
þessum síðustu tímum í Indlandi,
þegar verðugt væri aö sinna
félagslegri sem atvinnulegri upp-
byggingu, skuli þetta vera hug-
sjónamál ríkisstjórnarinnar. Desai
hefur haft þann háttinn á að skella
á „þurrum dögum" til skiptis á
hinum ýmsu stöðum í landinu.
Framan af voru þessir þurru dagar
ekki nema einu sinni eða tvisvar í
viku, en nú hefur hann fært sig upp
á skaftið og síðustu mánuðina
hefur verið þurrt lungann úr viku
hverri. Á sl. ári voru í Dehli samtals
158 þurrir dagar — og þætti víða
hart.
meinlætamaður fyrir sjálfan sig
heldur telur hann köllun sína að
siðbæta landa sína líka. Sjálfur
hefur hann aldrei bragöað tóbak
né vín farið inn fyrir hans varir.
Hann er mikill hófsmaður í matar-
æði og hann hefur að eigin sögn
ekki kennt konu síðan 1925 er
honum fannst nóg að gert í því efni
eftir að kona hans hafði alið
honum fimm börn.
Hann segist færa þau rök fyrir
áfengisbanni að hann sé ekki aö
ræna Indverja neinu sem hafi veriö
allar stundir, heldur sé hann að
losa þjóðina við hvimleiðan að-
skotahlut. Áfengisbann sé mikil-
vægt fyrir heilbrigði þjóðarinnar og
framfarir. Þá bendá aftur aðrir á
að kannski væri um hríð viturlegra
aö nota peningana sem varið er til
að fylgjast með að þurru dögunum
sé framfylgt til dæmis í að byggja
skólahús eða koma upp heilbrigö-
isþjónustu á einhverjum þeirra
hundraða staða um landiö þvert
og endilangt. Aðir segja að sé
einhvers staðar tæknilega gerlegt
að setja á áfengisbann sé það á
Ind-
verskur
bar-
Þjónn
á
stóru
hóteli
í
borginni
Jaipur.
Sums
staöar
voru
bar-
irnir
ekki
ólíkir
pessum
°9
úrvalið
ekki
meira.
Ðesai keppir að því
að „þurrka ”Indland
Frá Jan Paath sem er ein helzta markaðsverzlunargata Delhi,
minnismerki um níutiu púsund indverska hermenn sem létust í fyrri
heímsstyrjöldinni. Það er einkennandi fyrir Delhi að par feröast fólk
mikiö á hjólum og sáralítið er um einkabíla.
Stefnt að algeru áfengisbanni
eftir tvö ár en með pukri
og plati má fara kringum bannið
Desai hefur sett sér það mark að
árið 1981 verði ekki dropi áfengis
lengur í landinu, og flest bendir til
að honum takist það og nú síðast
hefur hann lagt fyrir að í sendiráö-
um Indlands verði alls ekki veitt
vín.
Samkvæmt stjórnarskrá Ind-
lands hefur hverju ríki verið í
sjálfsvald sett hvaða afstaöa er
tekin til áfengis og áfengisnotkun-
ar. Tvö ríki, Tamil Nadu og
Gujarat, hafa verið „þurr“ í tvö ár
og tuttugu önnur hafa tekið mjög
hressilega í bannskipanir Desais
og framfylgt þeim samviskusam-
lega. Um það bil hálft ríki Rajasth-
an, fjallahéruðin í Uttar Pradesh,
svo og hluti af nokkrum fylkjum
hafa þegar lýst yfir banni og æ
erfiöara hefur orðið að kaupa sér
drykk í ríkjum sem enn hafa ekki
komið á banninu.
í sjálfu sér er það jákvætt
þjóðþrifamál að berjast gegn
misnotkun áfengis. En fari maöur
um þetta land og skynji brot af
þeirri eymd sem ríkir á flestum
sviðum þjóðlifsins, finnst manni
allt að því afkáralegt aö obbinn af
orkunni skuli fara í slíka baráttu
nú. Þegar þar við bætist aö
drykkja Indverja á vestrænan
mælikvarða að minnsta kosti er
mjög í hófi. Um þaö bil tíu prósent
þjóðarinnar bera við að bragða
áfengi en ekki nema stöku sinnum
og tiltölulega lítið. Áfengisvanda-
mál eins og hjá okkur fyrirfinnst
alls ekki. En Desai er ekki bara
Indlandi. Ofnotkun víns stríði gegn
Hindu og er samkvæmt Múhamm-
eðstrú auðvitað fullkomlega ólög-
leg, en mikill fjöldi Múhammeös-
trúarmanna býr víða í Indlandi.
Önnur ástæða sem er tilgreind
fyrir því að bannið geti blessast í
framkvæmd er sú hefð sjálfsafneit-
unar sem Indverjar hafa lengi haft.
Þegar Janatabandalagið tók við
stjórnartaumunum í Indlandi hafði
mikið verið talað um þær umbætur
sem nú skyldu gerðar, indverskt
þjóðfélag átti að reisa úr rústum
með glæsibrag, umbylta spilltu
embættismannakerfi, efla fram-
leiðslu með það fyrir augum að
ögn meiri matur yrði til skiptanna
fyrir allar þessar milljónir. .. En nú
tæpum tveimur árum síöar er hver
höndin upp á móti annarrí innan
stjórnarinnar, ýmsir ráöherrar hafa
sagt af sér, svik og spilling hafa
komiö upp í innstu hringum og háð
er mikil og æsispennandi barátta
gegn Indiru Gandhi. Það er í senn
grátlegt og afkáralegt að horfa
upp á árangurinn.
Ekki er til þess vitaö að Indverji
hafi á heiðarlegan hátt fengið
afgreitt vín á bar í Indlandi síðan
bandalagið komst til valda. Út-
lendingar mega kaupa sér vín á
stærstu hótelunum, en ef þeir
bjóða Indverja upp á lögg aö
drekka brýtur það gegn lögum
Desais, jafnvel þótt ekki sé þurr
dagur. Þar til fyrir skömmu muriu
frjálsari reglur hafa gilt um dipló-
mata.
Þegar ég var í Indlandi í haust
las ég í blaði um aðstoöarskrif-
stofustjóra í einhverju ráðuneyti
sem hafði veriö handtekinn hvar
hann var að keyra í bílnum sínum
og dæmdur í háa sekt. Hann hafði
sem sé haft í bílnum flösku af
áfengi og lék grunur á að hann
hefði haft í hyggju að drekka hana.
Síðan rákum við okkur líka á þurru
dagana. Auðvitað lærðum við
fljótlega að fara í kringum þá og
með fullum stuðningi indverskra
vina okkar. Á hótelunum eru
þjónarnir til í að láta mann fá tojór
— svo fremi manni sé sama þótt
drukkið sé úr bolla, því aö þá lítur
þetta ekki ósvipað út og te. Þeir
eru einnig allir af vilja gerðir að
blanda ákveðna drykki sem felur
vínið eins og til dæmis með
appelsínusafa og tómatsafa frekar
en að bera fram óblandaöa drykki
sem gætu komið upp um sig. Auk
þess var bent á það á þurru
dögunum að hægt væri að fá borið
fram hvaða vín sem væri á
herbergin; þaö var sem sagt ekki
útilokaö að fá bjór eða vín, bara ef
ákveðiö pukur og plat var viöhaft.
Einu sinni fórum við á sjávar-
réttahátíð á Hotel Mauryia í Dehli.
Þaö er í sjálfu sér harla kostulegt,
þegar maður gerir sér grein fyrir
fjarlægö Delhi frá sjó. Þetta var að
kvöldi og dagurinn þurr, en það
hafði fengizt undanþága fyrir
léttum vínum handa útlendingum
til að bera með sjávarréttunum.
Eftir málsverðinn létum við í Ijós
ósk um að fá kóníakstár og líkjör
með kaffinu. Þá varð uppi fótur og
fit og viðstaddir skutu á ráðstefnu
og yfirþjónninn var kvaddur á
vettvang, gott ef ekki hótelstjórinn
líka. Þeim fannst sú tilhugsun
óbærileg að geta ekki geðjast
gestum sínum. Loks kom yfir-
þjónninn, Ijómandi af stolti með
umbeðin glös á bakka. Á undan
honum gekk annar — hallaöi sér
yfir borðið hjá okkur, slökkti á
lampanum á veggnum og blés á
kertið. Svo sátum við í myrkrinu á
sjávarréttahátíðinni og gátum eftir
aö þessi ágæta feluleiksaðferð var
fundin — fengið eins mörg glös af
þessum veigum og okkur lysti.
h.k.
27750
Vf
■]
I
rFA.STEIGNA
Ingótfsstræti 18 s. 27150
Úrvals 2ja herb.
íbúðarhæð í Neðra-Breið-
holti ca. 70 fm. Laus 1. júlí
Sala eða skipti á 3ja herb.
Snotur 2ja herb.
íbúð við Asparfell á 3. hæð.
Útborgun 8—9 millj. Góð
sameign m.a. heilsugæzla.
Vönduö 3ja herb.
íbúð á jarðhæð í
Neðra-breiöholti.
Viö fellsmúla
Vorum að fá í sölu sérlega
skemmtilega íbúð á 2. hæð
ca. 91 fm. 2 svefnherb. góð
stofa, eldhús, bað m.m.
Leigutekjur af sameign.
Suðursvalir. Sérhiti. Góð
útborgun nauðsynleg.
Nánari uppl. í skrifstofunni
(ekki í síma). Einkasala.
Góöar 4ra herb. íbúöir
á 1. og 2. hæð við Kóngs-
bakka. Þvottahús inn af
eldhúsi. Lausar eftir 6—12
mán.
Iðnaðarhúsnæði,
verslunarhúsnæöi, Hús og
ibúðir óskast á söluskrá
sem fyrst.
Benedikt Halldórsson sölustj.
Hjalti Steinþórsson hdl.
Gústaf Þór Tryggvason hdl.
816688
Hraunbær
Góð 2ja herb. íbúð á jarðhæð.
Laus fljótlega.
Asparfell
3ja herb. 100 fm. skemmtileg
íbúð á 1. hæð. Mikil sameign.
Hraunbær
Falleg 3ja herb. íbúð á 3. hæð.
Ásendi, sérhæö
4ra herb. 110 fm. falleg sérhæð
með sér inngangi.
Raöhús tilbúiö undir
tréverk
á tveimur hæðum við Fljótasel.
Seljabraut
Raðhús á þremur hæðum
fullfrágengið að utan og glerj-
að. Fokhelt að innan.
Hamraborg
3ja herb. falleg íbúð á 5. hæð.
Bílskýli. Verð 16 mijlj. Útb. 12
millj.
Skipbolt, sérhæö
Til sölu 164 fm. sérhæð. Eldhús
með búri og þvottahús innaf. 4
svefnherb. Stór stofa. Bílskúr.
Einkasala.
Raöhús
Höfum til sölu þrjár gerðir af
fokheldum raðhúsum í
Garðabæ.
3ja herb. íbúð óskast í
Háaleitishverfi á 1. eða 2. hæð.
4ra—5 herb. ca. 120 fm. nýleg
íbúö í vesturbæ óskast. Fjár-
sterkur kaupandi.
LAUGAVEGI 87, S: 13837 //Cif JPjP
Heimír Lárusson s. 10399 'Wl'00
Ingileifur Einarsson s. 31361
•ngotfur Hjartarson hdi Asgeir Thoroddssen hdl
Lítið barn
hefur
lítið sjónsvið