Morgunblaðið - 25.01.1979, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JANUAR 1979
Látum ekkí klár-
ínn „hlaupa upp”
RÉTT í þann mund er jólahátfdin
Kekk í tjarð eða nánar tiltekið 23.
descmher sl. birtist í í Morgun-
hlaóinu Krcin eftir Sigurjón
Valdimarsson undir fyrirsö>;n-
inni „Hvers ve«na mismuna
fjölmiólar íþróttum?4*. Efni
grcinarinnar var umfjöllun um
meó hvaóa ha-tti fjölmiólar gerðu
hestamennsku skil og einnig var
fjallaó um fjárveitinjjar opin-
berra aóila til íþróttastarfsemi
ok taldi Kreinarhiifundur hesta-
menn og hestamennsku bera
skaróan hlut frá borói í háóum
þessum tilvikum. bví mióur hafa
sl,...rii.n Valdimarssme
af hestaíþróttum, sem Sjónvarpiö
hefur sýnt í íþróttaþáttum sínum í
haust 0« vetur. Se«ir Sigurjón aö
þessi mynd hafi sýnt það „sem
öðru fremur hefur verið einkennt
með nafnjriftinni hestaíþróttir, en
það er sá þáttur hestamennskunn-
ar, sem' að mestu er sniðinn að
útlendri fyrirmynd <>)( á minnstu
fyljíi að faj;na meðal Islendinna."
Við jretum tæple«a vænst þess
að menn hlaupi upp til handa o«
fóta til að sinna huKÖarefnum
okkar hestamanna, þej;ar við
jjetum ekki einu sinni verið
sjálfum okkur samkvæmir. A
Hvers vegna mismuna
fiölmiðlar íþróttum?
J L ., verri vitleysa en aórar iþrottirf
Kr hestamennska verri
annir undirritaðs við nám oróió
þess valdandi, að ekki hefur verið
kostur aó fjalla um efni þessarar
jjreinar fyrr.
Éjí held að allir hestamenn j;eti
verið Sijíurjóni sammála um, að
vissulepa vildum við fá að sjá
meira efni um hesta oj; hesta-
mennsku í fjölmiðlum landsins og
einnij; hitt, að við vildum að
hestamennskan nyti jafnræðis á
við aðrar íþróttaj;reinar hvað
snertir fjárframlög frá opinberum
aðilum. Fln éj; er líka jafn viss um,
að við hestamenn kjósum að mál
okkar sé sótt með sannjþrni oj;
þakkað sé fyrir það sem vel er
j;ert. Það er ekki málstað okkar tii
framdráttar að slá um okkur oj;
sjá djöfulinn í hverju horni og
sýna þeim mönnum, sem unnið
hafa málum okkar hestamanna
gagn, ekkert annað en vanþakk-
læti.
Tilefni þessara orða minna er,
að í grein sinni víkur Sigurjón að
mínum dómi á miður skemmtileg-
an hátt að þremur aðilum, sem ég
veit með vissu, og ég vonast til að
margir hestamann geti verið mér
sammála um það, að hafa eftir
megni reynt að styðja við bakið á
okkur hestamönnum.
Fyrst er að nefna, að þegar
Sigurjón gerir að umtalsefni skrif
Morgunblaðsins segir hann: „Það
vekur nokkra furðu að fram-
kvæmdastjóri Árvakurs (útgáfu-
fyrirtækis Mbl.), sem á sæti í
stjórn L.H., skuli ekki beita
áhrifum sínum til betri þjónustu
við hestaunnendur á síðum blaðs-
ins.“ Það veit ég af eigin reynslu
að Haraldur Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri Árvakurs, hefur
ekki látið sitt eftir ligfaa til að
efni um hesta og hestamennsku
hafi birst í Morgunblaðinu. Það er
því í hæsta máta ósanngjarnt að
saka hann um slíkt. Það má líka
vera hverjum og einum ljóst að
einu dagblaði verður ekki stjórnað
með því að yfirmenn þess hugsi
um það eitt að í blaðinu birtist
efni um áhugamál þeirra.
Haraldur hefur líka með margvís-
legum hætti stutt við bakið á
útgáfustarfsemí LH dg þá sérstak-
lega er varðar tímarit þess,
Hestinn okkar. Þá má í því
sambandi nefna það hér, að
Morgunblaðið hefur jafnan staðið
straum af kostnaði við ferðir
ritstjóra Hestsins okkar eða eigin
starfsmanns, sem aflað hefur
efnis fyrir Hestinn okkar á
Evrópumóti eigenda íslenskra
hesta. Eg veit að þessi stuðningur
verður ekki talinn eftir af
Morgunblaðinu en mér finnst að
við hestamenn getum líka þakkað
það, sem fyrir okkur og samtök
okkar hefur verið gert.
I grein sinni gerir Sigurjón
einnig að umtalsefni þær myndir
vegum hestamannaféiaganna
hefur verið staðið fyrir sérstökum
íþróttamótum þar sem keppt
hefur verið í svonefndum hesta-
íþróttum. í sumar var líka haldið
fyrsta íslandsmeistaramótið í
hestaíþróttum. Hverjar voru svo
keppnisgreinar á þessum mótum?
Það voru þær greinar, sem Sjón-
varpið hefur einmitt verið að sýna
í þessum myndum. Samtök hesta-
manna hafa valið þann kostinn að
skipa vissum greinum í flokk
Fræðslufund-
ir hjá Fáki
Fra‘ðslunefnd Fáks hefur
ákveóió aó halda fra'óslufundi
mánaóarlega fram til vors og
veróa allir fundirnir haldnir í
Félagsheimili Fáks og hefjast
hverju sinni kl. 20.30.
Sl. fimmtudagskvöld ræddi Sig-
urður Haraldsson í Kirkjubæ um
reiðhestinn í ræktun, uppeldi og
umhirðu. Þann 15. febrúar n.k.
ræðir Árni Þórðarson, fyrrverandi
skólastjóri, um sumarferðalög á
hestum, útbúnað og reiðleiðir og
sýnir litskuggamyndir með erindi
sínu. Næsti fundur verður helgað-
ur Landsmótinu á Þinj^öllum í
sumar og verður hann 15. marz en
sýndar verða litskuggamyndir og
kvikmynd. Þann 5. apríl stendur
nefndin fyrir almennum umræðu-
fundi um mótahald og hesta-
mennsku.
hestaíþrótta og með þær hefur
verið sótt á um inngöngu í
íþróttasamtök landsins. Hesta-
menn mega vera þakklátir fyrir að
keppnisgreinum þeirra hefur í
Sjónvarpinu verið skipað á bekk
með öðrum íþróttum og ég sé ekki
tilgang í því að væna þá menn,
sem lagt hafa fram vilja og vinnu
til þess að því marki yrði náð fyrir
hönd hestamanna, um að vera
„fámennur hópur ötulla aug-
lýsingamanna".
Eg hnaut líka allhastarlega við
eftirfarandi setninjpj: „Gleggsta
dæmið er milljarða fjárfesting
Reykjavíkurborgar í Laugardal
fyrir óskabörnin, en borgin lagði
enga krónu í gerð æfinga- og
keppnisvallar fyrir hestamenn."
Það veit ég af kynnum mínum af
málefnum hestamanna í Reykja-
vík að þarna er farið nokkuð
langan veg frá sannleikanum.
Reykjavíkurborg hefur veitt
Hestamannafélaginu Fáki og
hestamönnum í Reykjavík marg-
víslega aðstoð við uppbyggingu
svæðisins á Víðivöllum, flutning á
hesthúsum félagsins og nú síðast
hefur Reykjavíkurborg staðið
fyrir því að allur skeiðvöilurinn og
götur á Víðivöllum hafa verið
raflýstar. Hestamenn hafa ekki
efni á að fúlsa við þessari aðstoð
með hortugheitum heldur ber að
þakka hana og óska eftir áfram-
haldandi góðri samvinnu við
ráðamenn Reykjavíkurborgar.
Orð mín um þetta efni verða
ekki fleiri að þessu sinni en um
þetta efni mætti sjálfsagt skrifa
margar og langar greinar. Megin-
atriðið er þó, að hestamenn óska
eftir jafnræði á við aðrar íþrótta-
greinar. Vegna orða Sigurjóns um
skrif mín um hesta og hestamenn
fyrir Morgunblaðið er það rétt, að
þau hafa ekki verið regluleg,
heldur fremur ráðist af þeim tíma,
sem gefist hefur frá námi og
öðrum störfum. Ég hef hins vegar
reynt eftir megni að sjá til þess að
lesendur Morgunblaðsins fengju
jafnan fréttir af helstu viðburðum
af vettvangi hestamanna. Því
miður hefur ekki fjölgað þeim
mönnum sem að staðaldri skrifa
um hesta og hestamennsku í
dagblöð. Stundum hafa menn
byrjað að skrifa um þessi efni,
bæði í dagblöð og tímarit, en ekki
hefur orðið framhald þar á vegna
ýmissa ástæðna. Þeir, sem slík
skrif taka að sér verða vitanlega
að uppfylla þær kröfur, sem
Útgefendur blaðanna gera til
starfsfólks síns. Við hestamenn
eigum enn fyrir höndum harða
baráttu fyrir málefnum okkar en
við ættum þó að gæta þess klárinn
„hlaupi ekki upp“ einungis vegna
þess, að við höfum farið of geyst
og ekki hlítt sjálfsögðum leikregl-
um. — t.g.
Síðustu vikur hafa verið hrossum á útigangi
erfiðar vegna snjóa en sem betur fer er það nú
orðið næsta fátítt að hrossum sé beitt úti yfir
vetrarmánuðina án þess að þeim sé gefið, þegar
jarðbönn eru.
Iþróttadeild FÁKS
með ískappreiðar og
námskeið í jámingum
ÍÞRÓTTADEILD Fáks
hélt nýverið aðalfund
sinn og voru eftirtaldir
kjörnir í stjórn deildar-
innar: Viðar Halldórsson,
formaður og meðstjórn-
endur Fjóla Ingþórsdótt-
ir, Gísli B. Björnsson,
Ragnar Tómasson og
Svanborg Magnúsdóttir.
Af starfi deildarinnar er
það hins vegar helst tíðinda,
að dagana 26., 27. og 28.
janúar n.k. ætlar félagið að
gangast fyrir námskeiði fyrir
Fáksfélaga í jarningum
hrossa. Kennari á námskeið-
inu verður Sigurður
Sæmundsson og kennir hann
þá aðferð að járna best einn
þ.e. að sami maður járnar og
heldur fæti hestsins. Fjöldi
þátttakenda er takmarkaður
við 16.
Deildin ætlar einnig að
efna til svokallaðra ískapp-
reiða þann 18. febrúar n.k. ef
veðurguðirnir verða hagstæð-
ir — nú er víst ekki beðið um
hlýindi heldur frost. Verða
kappreiðarnar haldnar á
Rauðavatni og eingöngu
keppt í 150 metra skeiði.
Verða fyrstu 50 metrarnir
frjálsir.
Hestar
Umsjónt Tryggvi
Gunnarsson
Handbókin loks á lokastigi...
STJÓIÍN I^andssambands
hestamannafélaga ræddi á
fundi sínum í vikunni sérstak-
lega um útgáfumál LH og að
siign Alberts Jóhannssonar.
formanns LH. eru það einkum
þrjú mál; sem nú eru á
lokastigi. I byrjun na'stu viku
verður hafist handa við að
prenta fyrra bindið af Hand-
bók hestamanna. sem LII gefur
út í tilefni afmælis síns. búið er
að setja kennslubók fyrir nem-
endur reiðskólanna og á aðeins
eftir að brjóta bókina um og
raða í hana myndum en þessu
til viðbótar er nú á lokastigi
undirhúningur útgáfu á liigum
og reglugerðum LH og verður
það efni gefið út í lausblaða-
möppu.
Aðspurður um hvers vegna
ekki hefði tekist að koma
Handbókinni út fyrir jól eins og
hann hefði látið orð falla um á
ársþingi LH, sagði Albert, að
búið væri að brjóta bókina um í
síður en á ýmsu hefði strandað
og því hefði bókin ekki komið út
fyrir jól. „Við þurftum að ná tali
af höfundum þrigjya þátta í
bókinni áður en hún fór í
prentun og bera undir þá
nokkur atriði. Við erum nú
búnir að ná í þessa þrjá höfunda
og búið er að lesa síðustu
próförk. I byrjun næstu viku
verður síðan byrjað að prenta
bókina. Við höfum vilyrði prent-
smiðjunnar fyrir því að ekki eigi
að líða mjög langur tími þar til
bókin verður tilbúin," sagði
Albert.
Aðspurður um hvernig fyrir-
hugað væri að dreifa bókinni,
sagði Albert, að það væri ekki
enn ráðið en helst væri á döfinni
að láta hana ekki til sölu í
bókaverzlanir heldur gefa
áskrifendum Hestsins okkar
kost á að kaupa hana á bók-
hlöðuverði. Albert sagði að ekki
væri enn ljóst hvert verð
bókarinnar yrði en ekki væri
ósennilegt að það yrði um
helmingur af verði bókar í sama
broti.
Búið er að setja allt efni í
kennslubók fyrir nemendur
reiðskólanna og verður nú hafist
handa við að brjóta hana um í
síður og raða inn myndum á
viðeigandi staði. Allar myndir í
bókinni eru teknar af Friðþjófi
Þorkelssyni af nemendum í
Reiðskóla Rosemarie Þorleifs-
dóttur í Vestra-Geldingaholti.
Eru þetta skýringarmyndir við
efni bókarinnar. Gert er ráð
fyrir að þessi bók verði tilbúin
áður en kennsla hefst almennt í
reiðskólum hestamannafélag-
anna í vor. Bók þessi verður um
100 blaðsíður.
Þá gat Albert þess, að ákveðið
væri að gefa út lög og reglugerð-
ir Landssambandsins í laus-
blaðamöppu. Ættu að verða í
þessari möppu allar reglugerðir,
sem LH hefur sett en þar á
meðal eru reglugerðir um kapp-
reiðar, gæðingadóma, ræktun
íslenska hestsins, unglinga-
keppnir, íþróttaráð, skipulags-
skrár fyrir verðlaunagripi o.fl.
Handrit að efni möppunnar
væri þegar tilbúið og færi það í
prentun um miðjan næsta mán-
uð. Sagði Albert að rætt hefði
verið um að láta hestamannafé-
lögin fá ákveðinn fjölda af
þessum möppum endurgjalds-
laust fyrir helstu trúnaðarmenn
félagsins en auk þess yrðu þær
til sölu á skrifstofu LH.