Morgunblaðið - 25.01.1979, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 1979
23
Athugasemd
frá Æsku-
lýðsnefnd Al-
þýðubanda-
lags
MorKunblartinu hefur borizt
eftiríarandi athujíasemd frá
Eskulýösnefnd Alþýðubanda-
lansins.
Vegna greinar í blaði yðar í gær
þann 24/1 varðandi fræðslufyrir-
lestra Æskulýðsnefndar Alþýðu-
bandalagsins skal eftirfarandi
tekið fram:
1) Það gætir mikils misskilnings
i umræddri grein Morgunblaðsins
þegar aðger.ðir nefndarinnar eru
túlkaðar á þann veg að ÆnAb sé
að gerast einhver óvelkominn
gestur í viðkomandi skóla, eða með
öðrum orðum ætli sér að ryðjast
inn á nemendur með offorsi og án
allra heimildar skólayfirvalda.
Öðru nær. Ef Morgunblaðsmenn
hefðu lesið ögn meira af greininni
sem birtist t Þjóðviljanum sl.
laugardag (sem ég efast ekki um
að þeir hafa gert) hefðu þeir orðið
upplýstir að því, (svo!), að það eru
hópar nemenda í áðurnefndum
skólum sem hafa óskað eftir því
við ÆnAb að fá fræðslufyrirlestra
frá Abl. um hin ýmsu þjóðmál.
Fvrirlesarar ÆnAb munu því
mæta til móts við þessa hópa
vinstri sinnaðra nemenda sem
velkomnir gestir.
2) Fjölmargir framhaldsskóla-
nemendur hafa ntikinn áhuga á
pólitísku starfi, enda þekkir
Kristján Bersi Olafsson skóla-
meistari við Flensborgarskólann í
Hafnarfirði betur til þessara mála
en Morgunblaðsmenn virðast gera
en í umtalaðri grein Morgunblaðs-
ins er haft eftir Kristjáni Bersa:
„Hann kvaðst hafa tekið eftir
grein þjóðviljans á laugardag og
kvaðst hann ætla að einhverjir
hópar nemenda væru með ein-
hvers konar leshringi. Eg get ekki
ímyndað mér að átt sé við annað,
því að aðilar úti í bæ ráða ekki því
fræðslustarfi sem fer fram á
vegum skólans."
Það er vonandi í sjálfsvald
nemenda viðkomandi skóla sett
hvaða áhugamál þeir stunda utan
skólatíma.
3) Að lokum skal það ítrekað að
fræðslufyrirlestrar þessir eiga rót
að rekja til formlegrar beiðni
nemenda sjálfra. I flestum þessara
skóla sem um er rætt eru nú þegar
starfandi félög vinstri sinnaðra
nemenda, og að því er undirrituð-
um er tjáð hafa þessi félög hingað
til getað haldið fundi sína eftir
skólatíma í viðkomandi skóla með
fullu leyfi skólayfirvalda.
Það hlýtur síðan að vera þessum
félögum í sjálfsvald sett hverjir
eru gestir þeirra hverju sinni, og
sækja síðan um leyfi til slíks
fundar við viðkomandi skólayfir-
völd, eigi fundurinn á annað borð
að fara fram í skólahúsnæðinu.
ÆnAb hefur því með kynningu
á fyrirlestravalboði sínu aðeins
orðið við ósk áðurnefndra félaga
varðandi fræðsluefni. Með tilvísun
til þess sem hér áður hefur verið
nefnt er út í hött sú staðhæfing
Morgunblaðsins að Alþýðubanda-
lagið sé að brjóta einhverjar
reglur varðandi pólitísk fundahöld
í framhaldsskólum.
Með þökk fyrir birtinguna,
Lúðvík Geirsson.
Magnús laus úr
gæzluvarðhaldi
MAGNÚSI Magnússyni stjórnar-
formanni Hafskips hf. var sleppt
úr gæzluvarðhaldi klukkan 20 í
fyrrakvöld og hafði hann þá setið
inni í 5 vikur.
Að sögn Erlu Jónsdóttur deild-
arstjóra hjá Rannsóknarlögreglu
ríkisins hefur rannsókn Hafskips-
málsins miðað vel áfram að
undanförnu. Fjöldi manns hefur
komið í yfirheyrslu og hefur málið
skýrst verulega.
Nokkur fjöldi fólks notaöi blíðviðrið á sunnudaginn til að fara á skíði í hlíðinni fyrir ofan bæinn. sem sést í baksýn (Ljósm. Mhort Komp)
Már Ilallgrímsson formaður Lionsklúbbs Fáskrúðsfjarðar
afhendir Lars Gunnarssyni formanni Leiknis hina nýju togbraut.
Skídatogbraut
tekin í notkun
á Fáskrúðsfirði
Fáskrúðsfirði 23. janúar
SUNNUDAGINN 21. janúar var tekin í notkun ný
skíðatogbraut í hlíðinni oían við kauptúnið.
Togbrautin er frönsk af Chipper-gerð, flytur um 700
manns á klukkustund og er um 600 metrar á lengd.
Togbrautin er flutt inn af Eiríki Haraldssyni, sem
jafnframt kom hingað til Fáskrúðsfjarðar og sá um
uppsetningu á henni. Staðarval brautarinnar er
vísindalega upphugsað af Gunnari Ólafssyni
fyrrverandi skólastjóra í
Hallgrímssyni útibússtjóra.
Lionsklúbbur Fáskrúðsfjarð-
ar keypti togbrautina og afhenti
hana Ungmennafélaginu Leikni
síðastliðinn sunnudag. Formað-
ur klúbbsins, Már Hallgrímsson,
afhenti togbrautina formlega,
en við henni tók formaður
Leiknis, Lars Gunnarsson. Þær
kvaðir fylgja gjöfinni, að gjald-
töku af togbrautinni verði stillt
í hóf og notað til viðhalds og
rekstrar.
Togbraut kostar urn 10
milijónir króna og hafa félagar í
Lionsklúbbi Fáskrúðsfjarðar
aflað fjársins á ýrnsan hátt.
Margir hafa orðið til að styrkja
fjársöfnunina í sniáu og stóru,
en þess gat formaður Lions-
Neskaupsstað og Má
klúbhsins í ávarpi sínu er
brautin var afhent. Sérstaklega
gat hann Þorsteins Bjarnasonar
húsasmiðs og Guðmundar
Hallgrímssonar rafvirkja, sem
báðir sýndu þessu máli mikinn
áhuga og lögðu fram mikla
vinnu.
Ilann tók sérstaklega fram að
það væri ósk klúbbmeðlima að
tilkoma togbrautarinnar yki
áhuga bæjarbúa á útivist á
komandi árum. Nokkur hópur
manna fylgdist með athöfninni í
mjög fögru veðri og margir
reyndu togbrautina strax á
sunnudaginn.
- Albert.
ÚTGERÐAR-
MENN
m
SKIPSTJORNAR-
IVilCKIKI 1000 w Halogen Ijós-
IVIkZJMINI kastararnlr frá Philips
nú aftur fyrirliggjandi.
heimilistæki sf
Sætúni 8 — 24000