Morgunblaðið - 25.01.1979, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 1979
39
Veita getraunanna næstum helm-
ingi meiri en síðasta vetur
Getraunastarfsemin á íslandi hefur verið í miklum upjtgangi á
síðustu misserum. Mbl. þótti því ekki úr vegi að líta inn hjá Islenskum
getraunum og kynna sér starfið sem þar fer fram. Fastir starfsmenn
eru þar aðeins 3, framkvæmdastjórinn Sigurgeir Guðmannsson,
skrifstofustúlkan Anna Guðmundsdóttir, en Olafur Jónsson, sem að
sögn Sigurgeirs er allt í öllu. var með þursabit og hafðist við heima.
Mbl. rabbaði við Sigurgeir.
80 aðilar selja sedla
— Það eru um 80 aðilar, félög og
deildir innan þeirra, sem selja
getraunaseðlana. Það eru allt upp í
5 deildir í sama félaginu Ármanni,
sem selja. Fyrir félög í stærri
kaupstöðunum er þetta prýðileg
fjáröflunarleið, en hæpið er að
þetta svari kostnaði á strjálbýlli
stöðum. Það eru um 30 aðilar sem
selja seðla í Reykjavík og 50
annars staðar á landinu sagði
Sigurgeir, er hann var inntur eftir
því hversu víða og hve margir hafi
með sölu seðla að gera.
Hvernig er tekjuskiptingin og
hvaða félög eru duglegust að selja
og afla sér þannig tekna?
— Fjórðungur upphæðarinnar,
sem hvert félag fær fyrir söluna
hverja viku, rennur til þess sjálfs.
50% fara í vinninga. 20% fara
síðan í ýmsan kostnað, svo sem
laun, prentun seðla o.fl. Ef
kostnaðurinn er minni en nemur
þessum 20% rennur mismunurinn
til ÍSÍ og UMFÍ. Af þeim 5
prósentum, sem eftir eru, renna
3% til viðkomandi héraðssam-
bands, 1,5% til KSÍ og 0,5% í
varasjóð getrauna.
— KR er duglegasta félagið í
sölunni, en 3 deildir innan þess
afla sér tekna á þennan hátt. Sem
dæmi má taka, að knattspyrnu-
deild félagsins hefur í vetur selt
seðla fyrir um 2,5 milljónir.
Framarar eru einnig duglegir, en
knattspyrnudeild félagsins tók að
selja seðla í haust og hefur þegar
selt fyrir um 1.5 milljónir.
Salan næstum tvöfaldast
— Sala getraunaseðla er að rífa
sig upp úr lægð frá vetrinum
1976—77. Sú lægð stafaði aðallega
af því, að við fengum ekkert inni í
dagblöðunum, en það hefur breyst.
Salan síðastliðinn vetur jókst um
75%, en hefur dregist dálítið
saman síðustu vikurnar vegna
snjókomunnar í Englandi. Þá
verðum við að grípa til teninganna
og þess vegna halda margir
kerfismenn að sér höndunum. Til
gamans má geta þess, að velta
Getraunanna var síðastliðinn vet-
ur 35.095.200 krónur, en er í vetur
62.557.200 krónur. Ef ekki hefði
dregið dálítið úr sölunni síðustu
vikurnar, munaði helmingi. Og
mesti fjöldi seldra raða frá
upphafi var 16. desember síðast
liðinn, en þá voru í umferð 84.100
raðir.
Veltumunurinn gífurlegur
Nú var sú spurning lögð fyrir
Sigurgeir, hvort Islenskar
getraunir væru smáar í sniðum
miðað við aðstæður. Og hann
svaraði: — Nú, við erum þrjú
fastráðin, en á mánudögum fáum
við nokkrar stelpur til að hjálpa
okkur að telja saman. Flest erum
við 7. Danir, sem eru með minnstu
getraunastarfsemina á Norður-
löndum fyrir utan okkur, eru hins
vegar með 46 fasta starfsmenn og
210 lausráðna á mánudögum.
Þetta eru eins og sandkorn í
sandkassa miðað ví starfsemina á
Bretlandseyjum, þar eru fyrirtæk-
in fleiri en eitt, en hjá Warners i
Liverpool eru t.d. 1200 stelpur að
telja á mánudögum og eru þá ekki
taldir með föstu starfsmennirnir
hjá félaginu.
„Islensku leik-
irnir vonlausir“
Við spurðum nú Sigurgeir um
upphaf getraunastarfsemi á
íslandi. — Veturinn 1968—69 voru
Víkingar, KR-ingar og Þróttarar
að myndast viö að halda getraunir
upp á eigin spýtur og það varð
kveikjan að því að IBR, KSÍ og ÍSÍ
ákváðu að steypa starfseminni
saman. Hef ég verið í þessu frá
byrjun. Saman gáfum við út okkar
fyrstu seðla sumarið 1969 og voru
á þeim íslenskir, sænskir og
danskir leikir. Þessir íslensku voru
alveg vonlausir, þeir voru svo
margir fyrir fram öruggir. Og þeir
sænsku og dönsku vöktu heldur
ekki neina hrifningu og er þetta
eina skiptið sem seðlar hafa verið
gefnir út að sumarlagi. Síðan
höfum við einbeitt starfi okkar að
vetrinum og ensku knattspyrn-
unni.
„Unnu ekkert þrátt
fyrir aöstoð tölvu“
Hverjir vinna helst í getraunum,
eru það kerfismennirnir, teninga-
varparar eða einhverjir aðrir?
— Á því er engin regla að
sjálfsögðu, svaraði Sigurgeir, — ég
veit dæmi þess, að hópur manna
setti 6—800 raðir í gegn um tölvu
án þess að hafa nokkuð upp úr
krafsinu. Svo koma bændur utan
af landi með 12 rétta með einni
röð, svo ekki sé minnst á hús-
mæðurnar sem kasta teningum.
Það geta allir unnið, en kerfis-
mennirnir geta farið illa út úr
þessu þegar við neyðumst til að
kasta tening fyrir fjölda leikja
sem verður að fresta vegna veðurs.
Sigurgeir tippar ekki
Mbl. þótti Sigurgeir vera í
ákjósanlegri aðstöðu til að tippa
arðvænlega og spurði hann hvort
hann tippaði ekki.
— Nei, ég læt það vera, það
kynni að valda grunsemdum ef ég
færi að troða upp með tólf rétta.
En í rauninni er enginn möguleiki
fyrir mig að svindla. Á laugar-
dagsmorgninum eru allir seðlarnir
festir á filmu og þær filmur
geymir Axel Einarsson vandlega.
Þeir seðlar sem ekki eru á
fiftrðiiir
>us.
IRbiR
fc
7S
7 6
ÍSLENZKAR /GETRAUNIR
/
7 / \ V
7 / i * X
/ 1 4 1 1
( 1 \
/ « í \
T 1 1 V
f r \ \
1 L .. L...L.. J
7 \ % \ 1
J ■ > \ \\ . /
L / 7 l\r- ^ i 1 / n
• Tippari vikunnart.h.. Sigurgeir
Guðmannsson. framkvæmdastjóri
íslenskra getrauna.
filmunum koma ekki til álita, því
að ljóst er, að þeir hafa borist of
seint.
Knattspyrnuaðdáandi
síöan fyrir stríð
— Ég byrjaði aö fylgjast með
ensku knattspyrnunni fyrir seinna
stríðið, en þá skrifaði Árni M.
Jónsson um hana í Vísi. Upp úr
1950 skrifaði ég síðan sjálfur um
ensku knattspyrnuna í Morgun-
blaðið og reyndar um íslenska
knattspyrnu einnig. Liverpool er
eftirlætislið mitt á Englandi, síðan
ég fór til Englands sem fararstjóri
hjá KR, en árið 1964 lék KR gegn
Liverpool í Evrópukeppni
meistaraliða. I Liverpool var ég
tiltaður „manager" KR-liðsins og
dreginn á sjónvarpsstöð í viðtal
vegna leiksins. Þar lentum við í
því að bíða langa lengi, því að allt
var þarna á öðrum endanum,
Douglas Houme hafði rift þinginu
og breskur togari hafði verið
tekinn í íslenskri landhelgi. Meðan
ég beið stytti ég mér stundir með
því að kenna breskum fréttaþul að
bera fram orðið Seyðisfjörður.
Sá 11 leiki á HM 1966
— Ég hef margoft séð leiki ytra,
m.a. sá ég 11 leiki á HM í
Englandi. Þar bar hæst sjálfan
úrslitaleikinn milli Englendinga
og Vestur-Þjóðverja. Englending-
ar unnu 4—2 eftir framlengingu.
Nú þótti bæði Sigurgeiri og
blaðamanni mál til komið að láta
þann fyrrnefnda tippa og fylgir
hér spá hans um leiki helgarinnar,
en þá fer fram 4. umferðin í ensku
bikarkeppninni. Ef veður leyfir
auðvitað.
gíf.
Spá Sigurgeirs:
Arsenal-Notth. County 1
Bristol Rov. — Charlton 1
Burnlcy-Sunderland x
Cr. Palace-Bristol City 1
Fulham-Man.Utd. x
Preston-Southampton 2
Leeds-West Bromwich x
Notth. Forest York 1
Newport-Colchester x
Ipswich-Orient 1
Oldham-Leicester 1
AldershotSwindon 2
• Línurit þetta er á skrifstofu getrauna. en eins og sjá má. hefur söluaukning á getraunaseðlum orðið svo
mikil. að línuritið gamla nægir engan veginn. Viðbót hefur verið fest fyrir ofan línuritið. Toppurinn á
linuritinu sýnir söluna 16. desember, en hrapið eftir það er vegna hinna mörgu frestuðu leikja á Englandi
að undanförnu. Halda þá margir kerfistipparar að sér höndunum. Ljósm. Mbl..
KK.
Jón setti nýtt
íslandsmet
JÓN Diðriksson. UMSB. sem
nú stundar nám við íþrótta-
háskólann í Köln í Vest-
ur-Þýzkalandi. stóð sig mjög
vel á innanhússmóti í frjáls-
íþróttum sem hann tók þátt í
Diisseldorf um helgina. en það
er fyrst nú að hægt er að segja
frá því vegna sambandsleysis
íslands við umheiminn að
undanförnu.
Jón setti nýtt íslandsmet í
1500 metrum. hljóp á 3.52.5
mínútum og sló þar með met
Ágústs Ásgeirssonar frá 1974.
en það var 3.55,2 mín. íslands-
vinurinn Hanno Rheineck
tjáði Mbl. í samtali í gær. að
Jón hefði sigrað í sínum riðli
og unnið sér rétt til þátttöku í
úrslitum. en hann gat ekki
verið með þá þar sem félag
hans þurfti á honum að halda í
3x1000 metra boðhlaupi, sem
fram fór á svipuðum tíma og
úrslitin í 1500 m.
í boðhlaupinu sigraði félag
Jóns. LG Jagermeister Bonn-
Troisdorf. á tímanum 7.33,6
mínútum. og þar með urðu Jón
og félagar hans héraðsmeist-
Mile med
Leikni
JÚGÓSLAVNESKI knatt-
spyrnuþjálfarinn Mile mun
þjálfa 3. deildarlið Leiknis
næsta keppnistímahil. en þann
starfa hafði hann einnig
síðastliðið sumar. Mile hefur
áður starfað sem þjálfari hjá
Breiðabliki. á Seyðisfirði og í
Siglufirði.
arar á Nord Rhein meistara-
mótinu.
Um næstkomandi helgi
keppir Jón á öðru frjáls-
íþróttamóti í Dilsseldorf,
meistaramóti vestari hluta
Vestur-Þýzkalands. Ef Jóni
tekst sæmilega upp ætti ekki
að vera loku fyrir það skotið
að nýtt met sjái dagsins ljós
þá. því að Jón hefur æft betur í
vetur en nokkru sinni fyrr.
Valur — ÍS
í kvöld
í KVÖLD fer fram einn leikur
í úrvalsdeildinni í körfuknatt-
leik. V'alsmenn leika gegn ÍS
og fer leikurinn fram í Haga-
skóla og hefst kl. 20.00. Má
búast við skemmtilegri viður
eign þessara liða. Valsmenn
eru þó sigurstranglegri. en
takist stúdentum vel upp
getur allt gerst. Vajsmenn
setja nú stefnuna á íslands-
meistaratitilinn og ætli þeir
sér sigur í mótinu verða þeir
að sigra í kvöld.
1
!
!