Morgunblaðið - 25.01.1979, Page 40
* JL
Tillitssemi J'JjA
kostar
ekkert
FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 1979
Bilanirnar á sæsímastrengjunum:
Scotice kominn í lag
en Icecan enn bilaður
í fyrrinótt tók.st viðgerða-
skipinu Northern að gera við
aðra af tveimur hilunum sem
voru á sæsimastrengnun
Scotice. Um var að ræða alvar-
legri hilunina af tveimur, þann-
ig að strengurinn er nú í fullum
gangi. Hin bilunin er mun
minni, þó hún skapi visst
öryggisleysi, og verður hafist
handa við að gera við hana eins
fljótt og unnt er, að því er Jón
Kr. Valdimarsson deildartækni-
fræðingur tjáði Morgunblaðinu
í gær. Hinn sæsímastrengurinn,
Icecan, er enn hilaður.
Bilunin á Scotice sem búið er að
Björgvin
áfrýjar til
Hæstaréttar
DOMI bæjarþings Reykjavíkur um
ógildingu á samþykkt verðlags-
nefndar um verzlunarálagningu
20. febrúar 1978 var í gær áfrýjað
til Hæstaréttar. Það var formaður
verðlagsnefndar, Björgvin
Guðmundsson, sem áfrýjaði
dóminum en Gísli Isleifsson lög-
fræðingur verðlagsskrifstofunnar
gekk frá áfrýjuninni.
gera við var um 70 mílur vestur af
Færeyjum, en hin er nær Færeyj-
um, um það bil 50 mílur frá landi.
Þegar strengurinn komst í lag í
fyrrinótt hafði hann verið bilaður
í röska viku, því hann bilaði
klukkan 10 árdegis á þriðjudaginn
í síðustu viku, þann 16. janúar.
Viðgerðaskipið Northern er nú í
höfn í Þórshöfn í Færeyjum, bæði
vegna þess að veður var orðið
slæmt, og svo þurfti einnig að gera
við lítilsháttar bilun í skipinu. Þá
var einnig ætlunin að taka vatn og
vistir og nýja áhöfn um borð.
Skipið mun síðan halda út aftur
um leið og veður leyfir til að gera
að fullu við strenginn. það verður
þó ekki fyrr en um helgi, þar sem
nauðsynlegt verður að taka hann
úr sambandi á meðan.
Viðgerðaskipið John Cabott er
nú á leið að biluninni á Icecan, og
var gert ráð fyrir því að það yrði
þar um tíuleytið í dag. Þar var
slæmt veður í gær, en spáð
batnandi veðri. Ef vel gengur mun
viðgerðin þar taka tæpan sólar-
hring að sögn Jóns Kr. Valdimars-
sonar. Nauðsynlegt er þó að veðrið
verði gott, því að bilunun er á um
2000 metra dýpi, í um það bil 130
mílur austur af Grænlandi.
Sem fyrr segir skilar Scotice nú
fullum afköstum, og í gær voru
allar talsíma- og telexrásir til
Evrópu í lagi.
Vetrarvertiðm stendur nú sem hæst, og hefur afli víða verið ágætur, meðal annars
hefur aflast þokkalega á línu Suðvestanlands og á Austfjörðum. Hér er verið að
blóðga þann gula á dekki eins Eyjahátsins. Ljósmynd. sígurgeir í Eyjum.
Hækkanir framundan
á rafmagni og hita
MJÖG margar hækkunar-
beiðnir liggja nú fyrir frá
Víkingasýning í London og New York:
Munir frá I>jóðminja-
safni á sýninguna
GRIPIR frá Þjóðminjasafni ís-
lands verða meðal sýningargripa
á mikilli „Víkingasýningu“ sem
efnt verður til í London og New
York á næsta ári. A sýningunni
verða einnig gripir frá þjóð-
minjasöfnunum í Kaupmanna-
höfn, Ilelsinki, Stokkhóimi og
Ósló, auk þess sem munir koma
frá York (Jórvík) í Englandi og
Dyflinni á írlandi, merkustu
stöðum landnáms vikinga á
Bretlandseyjum.
Sýningin er haldin á vegum
British Museum og Metropolitan-
safnsins í New York. Verður hún
fyrst sett upp í London en síðan
flutt til Bandaríkjanna. Sýningin
verður opnuð í febrúar 1980 og
síðan flutt sex mánuðum síðar til
Metropolitan-safnsins í New York.
Þór M^gnússon þjóðminjavörð-
ur sagði í samtali við Morgunblað-
ið í gærkvöldi, að meðal gripa sem
yrðu lánaðir héðan væri silfur-
næla frá Tröllaskógi á Rangár-
völlum, svokölluð Urnesnæla, og
svo ýmsir fremur algengir hlutir,
einkum skartgripir. Ekki væri
unnt að verða við beiðni um að
senda á sýninguna gripi á borð við
Þórslíkneskið sem væri ef til vill
þekktasti hluturinn hér frá vík-
ingaöldinni. Slíkir hlutir væru of
einstæðir til að unnt væri að taka
þá áhættu sem slíkum sendingum
fylgdi.
Þá sneri Morgunblaðið sér
einnig til Ólafs Halldórssonar
handritafræðings og spurðist fyrir
um hvort einhver handrit yrðu
lánuð á fyrrnefnda sýningu. Ólaf-
ur kvað það ekki verða, engar
handritasendingar færu á milli
jslands og Stóra-Bretlands. Þeir
vildu ekki lána slíka hluti og á
meðan fengju þeir ekkert frá -
okkur.
Talsmaður British Museum
sagði í London í gær, að tilgangur
sýningarinnar væri að varpa nýju
ljósi á víkingatímabilið og að sýna
fram á að víkingar hafi gert annað
en ræna, nauðga og drepa á
ferðum sínum. Þeir hafi einnig
stofnað samfélög, stundað
viðskipti og lifað fjölskyldulífi.
Sýningin verður meðal annars
kostuð af fé frá Norðurlandaráði
og af styrk frá norræna flugfélag-
inu S.A.S.
opinberum og hálfopinber-
um fyrirtækjum og stofn-
unum en þær þurfa að
samþykkjast síðustu 10
dagana í janúar ef þær
eiga að koma til útreikn-
ings í vísitölunni, sem
reiknuð verður 1. febrúar
n.k. og tekur gildi 1. marz.
Mbl. fékk þær upplýsingar hjá
Guðmundi Agústssyni formanni
gjaldskrárnefndar í gær, að m.a.
lægi fyrir beiðni frá Landsvirkjun
um 35% hækkun heildsöluverðs á
raforku. Landsvirkjun hefur
ennfremur farið fram á meiri
hækkanir síðar á árinu. Þá liggja
fyrir beiðnir frá fjölmörgum
rafveitum vítt og breitt um landið
um hækkun á raforkutöxtum. M.a.
liggur fyrir beiðni frá Rafmagns-
veitu Reykjavíkur, sem fer fram á
22% hækkun, og er þar ekki tekin
með í reikninginn hækkun Lands-
virkjunar.
Þá liggja til afgreiðslu fjölmarg-
ar umsóknir frá hitaveitum á
landinu og eru þær á bilinu
15—50% en hærri tölurnar eru á
aðra liði en sjálfa vatnssöluna.
Hitaveita Reykjavíkur, sem er
stærst slíkra fyrirtækja, hefur
óskað eftir 20% hækkun á taxta
fyrir heitt vatn.
Loks er þess að geta, að fyrir
liggur gömul hækkunarbeiðni frá
Pósti og síma og sömuleiðis liggur
fyrir gömul beiðni frá Strætis-
vögnum Reykjavíkur um 50%
hækkun fargjalds, úr 100 í 150
krónur fullorðinsmiðinn.
Sáttafund-
ur í dag
SÁTTASEMJARI ríkisins, Torfi
Iljartarson, hefur boðað fulltrúa
verzlunarmanna og viðsemjenda
þeirra til samningafundar í dag.
Er þá vika liðin frá því er siðast
var haldinn fundur í kjaradeilu
verzlunarmanna. Á fundinum
fyrir viku óskuðu vinnuveitend-
ur eftir viku fresti á viðræðum á
meðan þeir könnuðu gaumgæfi-
legar stöðu málsins.
Færð góð nema
á Austf jörðum
FÆRÐ á vegum landsins er
yfirleitt góð nema á Aust-
fjörðum, en þar geysaði
versta veður í gær, og
einnig var færð erfið á
Breiðamerkursandi og
víðar á Suðausturlandi að
sögn Sigurðar Haukssonar
vegaeftirlitsmanns hjá
Vegagerð ríkisins í
gærkvöldi.
Það var einkum hvassviðri sem
tálmaði umferð á Suðausturlandi
en snjór var til trafala á Aust-
fjörðum og var meðal annars
ófært bæði um Fjarðarheiði og
Oddsskarð í gær og eins i Fagradal
og suður með fjörðum frá Reyðar-
firði.
Að öðru leyti kvað Sigurður vera
fært um alla helstu vegi landsins.