Morgunblaðið - 30.01.1979, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1979
13
Ricky einbeittur á svipinn og vandar sig við blásturinn.
Hér er Ricky búinn að snyrta plötusnúðinn og virðist vera hinn
ánægðasti með verkið.
Klippingin hafin. „Hvað er
maðurinn eiginlega að gera?“
Eitthvað virðast aðfarirnar kát-
legar a.m.k. finnst þeim félögum
það.
Átján skip í smíðum innan-
lands og
UM ÁRAMÓTIN voru í
smíðum erlendis sex skip
fyrir íslendinga og innan-
lands var samið um og í
smíðum 18 skip.
Skipin, sem eru í smíðum
erlendis, eru áætluð sam-
sex erlendis
tals 3311 brúttórúmlestir.
Þetta eru tveir skuttogarar,
innan við 500 og 300 lestir,
sem eru í smíðum í Noregi,
tveir skuttogarar innan við
500 lestir eru í smíðum í
Portúgal, 1500 brúttórúm-
lesta olíuflutningaskip er í
r. 7n
smíðum í V-Þýzkalandi, og
tólf brúttórúmlesta trefja-
platsbátur er í smíðum í
Noregi.
Skipin 18 sem í smíðum
eru og samið hefur verið um
smíði á innanlands eru
áætluð samtals 2605 brúttó-
rúmlestir. Af þessum
skipum eru átta stálfiski-
skip minni en 500 brúttó-
rúmlestir, sex tréfiskiskip
40 brúttórúmlestir og
minni, þrjú fiskiskip úr
trefjaplasti, sem eru innan
við 15 brúttórúmlestir og á
Seyðisfirði er í smíðum far-
þegaferja úr stáli um 45
hrn t.tórn m 1 est.i r.
„Eg mæli
W segir
Þorlákur Ásgeirsson
byggingameistari
í apríl 1974 keypti Þorlákur nýjan
Mazda 818 station og þann 10. janúar
síðastliöinn var hann búinn aó aka
bílnum 183.898 kólómetra. Þorlákur
segir:
„Ég tel það lán á við að fá stóra
vinninginn í haþþdrætti þegar ég fór á
bílasýningu hjá Bílaborg hf. árið 1974
og festi kaup á þessum bíl. Þaö er með
ólíkindum hvað bíllinn hefur staðið sig
vel. Ég hef notaö bílinn í starfi mínu sem
verktaki, meðal annars var ég með verk
austur á Kirkjubæjarklaustri í 2 ár og
var bílnum þá ekið viö mjög misjafnar
aðstæður. Bílnum hefur verið ekið af
mér og starfsmönnum mínum og
ennfremur hefur hann verið notaður
sem fjölskyldubíll af mér, konu minni og
2 börnum. Það er dálítið merkilegt að
þrátt fyrir að aörir bílar hafi verið á
heimilinu, þá hefur Mazda bíllinn alltaf
veriö tekinn fram yfir alla aðra vegna
þess hve lipur og skemmtilegur hann er
í akstri.
Enginn af þeim bílategundum sem ég
hef átt hefur enzt nálægt því eins og
þessi bíll. Einu viðgeröir og endurnýjan-
ir sem geröar hafa veriö á bílnum frá
uþþhafi eru: Skiþt 2svar um bremsu-
klossa að framan og einu sinni um
bremsuborða að aftan, einu sinni skipt
um höggdeyfa að framan, pústkerfi
2svar sinnum, tímakeöju í vél einu sinni
og kúplingsdisk einu sinni.
Ég vil sérstaklega taka fram aö aldrei
hefur þurft að skipta um slitfleti í
framvagni eða stýrisgangi og bíllinn
rann í gegnum síðustu skoöun hjá
bifreiðaeftirlitinu!
Þessa einstöku endingu bílsins vil ég
fyrst og fremst þakka vandaðri smíöi
bílsins, ennfremur hef ég reynt að koma
með bílinn í reglulegar skoðanir hjá
Bílaborg hf. eins og framleiöandi Mazda
mælir með. Það er ábyggilega mikil-
vægt atriði. Öll þjónusta og liþurð
starfsmanna Bílaborgar hf. hefur verið
til fyrirmyndar. Bílinn ætla ég að eiga
áfram, og er ég sannfæröur um aö ég
ek honum 100.000 kílómetra í viðbót án
nokkurra umtalsveröra viögeröa!“
Það má bæta því við aö vélin í bíl
Þorláks var þrýstiprófuð og var þrýst-
ingurinn 132/120/125/128 en þrýsting-
ur á nýjum bíl er 135. Þetta sýnir að
vélin er ennþá sáralítiö slitin.
Mazda — Gæöi — Öryggi — Þjónusta.
BÍLABORG HF
SMIDSHÖFDA 23 símar: 812 64 og 812 99