Morgunblaðið - 30.01.1979, Page 25
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1979
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1979
25
!
Enn tapa IR-ingar
með einu marki
ÍR-INGUM ætlar að ganga illa að ná sér í stig í 1. deildinni í
handknattleik. Á laugardaginn töpuðu þeir enn einum leik, nú íyrir
liði Fram, 16 — 15. Framan af leiknum voru ÍRingar betri aðilinn í
leiknum, og um miðjan fyrri hálfleik var staðan 8—4 ÍR í hag, en
Fram náði að minnka muninn niður í eitt mark fyrir lok hálfleiksins,
10—9. f síðari hálfleik var svo mun meirir kraftur og ákveðni í
Frömurum, og þeir sigldu fram úr og sigruðu þó að naumlega væri, og
litlu munaði að ÍR-liðið næði að jafna rétt í lokin.
Gangur leiksins
Guðjón Marteinsson var svo
sannarlega í essinu sínu í byrjun
leiksins og raðaði inn mörkum
fyrir ÍR. Skoraði hann fyrstu
fjögur mörk liðs síns en af 10 í
fyrri hálfleiknum hafði hann skor-
að sjö. Þrátt fyrir góða byrjun
tókst ÍR-liðinu ekki að fylgja
henni eftir. Með baráttu og seiglu
tókst Frömurum að vinna upp
forskot ÍR og skildi eitt mark í
leikhléi.
Það voru svo ákveðnir framarar
sem mættu til leiks í síðari hálf-
leiknum. Skoruðu þeir fimm mörk
án þess að IR-ingar gætu svarað.
Staðan hafði heldur betur breyst.
Um tíma í fyrri hálfleiknum stóðu
leikar 9—5 ÍR í hag en eftir 10
mínútna leik í síðari hálfleik var
staðan 14—10. Var það fyrst og
fremst þessi góða byrjun í síðari
hálfleik sem skóp sigur Framara.
Seinni hluta síðari hálfleiks
minnkuðu ÍR-ingar svo muninn
jafnt og þétt og lokamínúturnar
var mikil spenna. ÍR-liðið átti
tvisvar góða möguleika í lokin á að
jafna leikinn en bæði tækifærin
fóru forgörðum.
Liðin.
Það er mikil seigla í liði Fram-
ara, ungu mennirnir fylgdu Sigur-
bergi og Pétri Jóhannssyni vel
eftir í baráttunni og tóku vel á í
varnarleiknum. Þá átti Gissur
Ágústsson markvörður Fram sinn
besta leik á keppnistímabilinu.
Gerði Gissur sér lítið fyrir og
varði þrjú vítaköst í síðari hálf-
leiknum þegar mikið lá við. Þá
varði hann mjög vel skot af línu og
fyrir utan. Gústaf Björnsson var
frískur og skoraði lagleg mörk Atli
Hilmarsson var fullbráður í leikn-
um, hefði hann gjarnan mátt láta
boltann ganga betur, hann stakk
of mikið niður og stöðvaði það spil
Fram fullmikið. Theodór
Guðfinnsson er mjög skotfastur
leikmaður sem á eftir að ná langt.
Skoraði hann fjögur gullfalleg
mörk fyrir Fram; Réð Jens Einars-
son markvörður ÍR ekkert við skot
hans. Sigurbergur og Pétur
börðust báðir vel allan tímann og
sýndu seiglu sem átti ekki lítinn
þátt í því að sigur vannst.
í liði ÍR bar Guðjón Marteinsson
nokkuð af, í fyrri hálfleik átti
hann stórgóðan leik og skoraði 7
mörk, þar af voru tvö hrein snilld.
Aðrir en Guðjón risu ekki upp úr
meðalmennskunni, þyngsli voru
yfir leik ÍR og á leikfléttum þeim,
sem brugðið hefur fyrir hjá liðinu
í vetur, bar lítið. Landsliðsmark-
vörðurinn Jens Einarsson náði sér
aldrei á strik. Það eina sem hann
sýndi var þegar honum tókst að
verja þau þrjú vítaköst sem hann
varði í leiknum, þess á milli fékk
hann á sig slök mörk.
Lið IR verður nú að fara að taka
á honum stóra sínum ef ekki á illa
að fara. Staða liðsins í 1. deild er
ekki sterk um þessar mundir. En
það er eins og liðið vanti bara
herslumuninn.
í stuttu máli: Laugardalshöll 27.
jan. íslandsmótið 1. deild,
ÍR - Fram 15-16 (10-9)
Mörk ÍR: Guðjón Marteinsson 9,
Brynjólfur Markússon 2, Sigurður
Svavarsson 1, Ólafur Tómasson 1,
Ársæll Hafsteinsson 1, Hafliði
Halldórsson 1.
Mörk Fram: Gústaf Björnsson 6
(2v), Atli Hilmarsson 3, Theodór
Guðfinnsson 4, Birgir Jóhannsson
R i 2x2 mínútur, og Pétri Jóhanns-
syni í 2 mín. og Erlendi Davíðssyni
í 2 mín.
Misheppnuð vítaköst: Gissur
Ágústsson varði frá Sigurði
Svavarssyni á 37. mín., Guðjóni
Marteinssyni á 49. mín. og Bjarna
Hákonarsyni á 52. mín. Jens
Einarsson varði frá Atla Hilmars-
syni á 11. mín., og Gústafi Björns-
syni á 41. og 51. mín.
Dómarar voru þeir Björn
Kristjánsson og Ólafur Stein-
grímsson og dæmdu þeir leikinn
allvel, þó svo að einstaka sinnum
brygði fyrir ónákvæmni í dómum
þeirra. þr
STAÐAN
1. DEILD
Eftir leiki helgarinnar, er
staðan í 1. deild karla nú þessi:
Fram — ÍR
HK — Haukar
Fylkir —
Valur
Víkingur
FH
Haukar
Fram
Fylkir
ÍR
HK
FH
7
8
9
9
9
9
9
8
16:15
20:20
25:25
1 0 137:111 13
189:162 13
178:170 11
185:178 10
172:184
164:175
159:173
147:172
9
5
5
4
Markhæstu
leikmenn
1 deildar
MARKIIÆSTU LEIKMENN
ERU:
Geir Hallsteinss. FH 58
Atli Ililmarss. Fram 49
Hörður Harðars. Haukum 48
Gústaf Björnss. Fram 47
Guðjón Marteinss. ÍR 41
Gunnar Baldurss. Fylki 37
Stefán Halldórss. HK 35
Brynjólfur Markúss. ÍR 34
Páll Björgvinss. Vík. 32
Viggó Sigurðss. Vík. 32
Jón P. Jónsson Val 30
Hilmar Sigurgíslas. HK 28
Björn Blöndal HK 27
Bjarni Guðmundss. Val 27
Einar Einarss. Fylki 26
Ólafur Jónss. Vík. 26
Þorbjörn Guðmundss. Val 25
Erlendur Hermannss. Vík. 24
Þórir Gíslas. Haukum 24
Jón Karlsson Val 23
Guðm. Á. Stefánss. FH 22
Árni Indriðas. Vík. 22
Ólafur Einarss. Vík. 22
Andrés Kristjánss. Haukum 21
Sigurður Svavarss. ÍR 21
Birgir Jóhanness. Fram 20
Stefán Jónsson Ilaukum 20
■
• Steíán Halldórsson þrumar knettinum ylir varnarvegg Hauka og
rakleiðis í netið, tilþrifin eru mikil. Ljósm. Mbl.: Emilía.
Stigahæstir í einkunnagjöf
Morgunbladsins
Stigahæstu menn í einkunna-
gjöf Mbl. eru nú:
Jens Einarsson ÍR 26
Geir Hallsteinsson FH 26
Atli Hilmarsson Fram 26
Hörður Harðarson Haukum 25
Andrés Kristjánss. Haukum 24
Árni Indriðason Vík. 23
Sigurbergur Sigsts. Fram 23
Jón Gunnarsson Fylki 23
Guðjón Marteinsson ÍR 23
Páll Björgvinsson Vík. 22
Birgir Jóhannesson Fram 22
Ólafur Benediktsson Val 22
Erlendur Hermannsson Vík. 21
Sæmundur Stefánsson FII 21
Gústaf Björnsson Fram 20
Einar Ágústsson Fylki 20
ólafur Jónsson Vík. 20
Þórir Gislason Haukum 20
Brynjólfur Markússon ÍR 20
Bjarni Guðmundsson Val 20
0 Jón Gunnarsson markvörður Fylkis ver hér skot Guðmundar Magnússonar FH sem kominn er írír inn á línu. Jón átti stórleik með liði sínu
á móti FH á sunnudag.
Geir jafnaði eftir
venjulegan leiktíma!
LOKAMÍNÚTURNAR og sekúndurnar í leik Fylkis og FH í Höllinni voru eftirminnilegar. Eftirminnilegar
vegna þess að Fylkismenn höfðu breytt nánast tapaðri stöðu í sigurvon, náð forystu þegar aðeins 23
sekúndur voru til leiksloka. Markvörður Fylkis, Jón Gunnarsson, sem átt hafði frekar erfitt uppdráttar
allan leikinn, tók að verja eins og brjálaður maður og í lokaatlögu FH-inga á síðustu sekúndunum varði
hann hvert skotið af öðru. Loks hrökk knötturinn út í hornið til Guðmundar Árna Stefánssonar sem stökk
inn í vítatciginn, en færið var afar þröngt, enda varði Jón auðveldlega. En varnarmaður hafði stjakað
eitthvað við Guðmundi og því var dæmt vítakast. Það var síðasta kast leiksins og Geir Hallsteinsson brást
ekki félögum sínum og skoraði örugglega. Lokastaðan 25—25, en FH hafði yfir í hálfleik, 14—11.
Fylkismenn hófu leikinn af slæmur kafli hjá Fylki og í kjöl- FH-ingar fengu nú knöttinn og
firnakrafti og komust í 2—0.
FH-ingar jöfnuðu snarlega með
vítaköstum Geirs og Viðars, en
Fylkismenn hættu ekki og komust
í 5—3. Þeir Ögmundur Kristinsson
og Gunnar Baldursson skoruðu
þessi mörk Fylkis og voru þau öll
sérlega falleg. En síðan hrundi
leikur Fylkis um tíma og af næstu
8 mörkum sem skoruð voru, skor-
uðu FH-ingar 7. Breyttist staðan í
10—6 fyrir FH. Það sem eftir lifði
hálfleiksins var hins vegar jafn-
ræði með liðunum, en þá tók
Kristinn Sigurðsson mikla rispu
fyrir FH og skoraði 3 mörk í röð úr
hægra horninu. Staðan í hálfleik
var því 14—11 fyrir FH eins og
áður kemur fram.
Fylkismenn náðu að minnka
muninn í 2 mörk snemma í síðari
hálfleik, 14—16, en þá kom annar
farið 3 FH-mörk í röð. Staðan var
nú 19—14 og ekki nema um stund-
arfjórðungur til leiksloka. Sigur
FH virtist ekki vera í hættu, því að
nokkru siðar stóð 21—17. En þá
fór að syrta í álinn hjá FH. 3 mörk
í röð frá Fylkismönnum breyttu
stöðunni í 21—20. Geir skoraði,
22—20, en Fylkismenn hleyptu
FH-ingum ekki lengra frá sér.
Virtist sem Fylkismönnum ætlaði
að vanta herslumuninn eins og
komið hefur fyrir í vetur. Staðan
var 24 — 22 fyrir FH, þegar Magn-
ús Sigurðsson skoraði fyrir Fylki
úr víti. I næstu sókn var dæmdur
ruðningur á FH. Fylkir misnotaði
sína sókn, Janus brunaði einn upp,
en skaut í stöngina. Fylkismenn
fengu því annað tækifæri og nú
var það notfært, Ögmundur skor-
aði og jafnaði. Voru nú aðeins
rúmar 2 mínútur til leiksloka.
fengu auk þess tvö dauðafæri á
línunni. Jón Gunnarsson varði
hins vegar snilldarlega bæði skot-
in og þegar aðeins um 23 sekúndur
voru til leiksloka náði Ögmundur
fnrvstunni fyrir Fylki.
Leikur Fylkis var afar sveiflu-
kenndur, mikil barátta og þokka-
legur handbolti þegar best lét, en
alger meðalmennska þess á milli.
Ögmundur Kristinsson lék vafalít-
ið sinn besta leik í vetur, skoraði
mikið af gullfallegum mörkum.
Mörk Gunnars Baldurssonar voru
einnig hreinustu perlur, en kapp-
inn var frekar óheppinn með skot
sín, hæfði fulloft stangirnar. Auk
þeirra áttu góða spretti þeir
Sigurður Símonarson og Kristinn
Sigurðsson, að ógleymdum Jóni
Gunnarssyni, sem varði af snilld
lokakaflann.
Geir nokkur Hallsteinsson sann-
aði það einu sinni enn, nokkuð sem
hann þarf ekki að vera að sanna,
að hann er snillingur í handbolta.
Hann var að vísu fremur rólegur í
fyrri hálfleik, en í þeim síðari
sýndi hann gamla góða takta. Auk
þess áttu þeir Sverrir Kristinsson,
Guðmundur Magnússon og Guð-
mundur Árni góðan leik.
1 stuttu máli:
Laugardalshöll, 1. deild: Fylkir—FH
25:25(11:14).
MÖRK FYLKIS: Ögmundur Kristins-
son 6, Sigurður Símonarson 5,
Magnús Sigurðsson 4, Gunnar Bald-
ursson og Kristinn Sig. 3, Einar
Einarsson 2, Halldór Sigurðsson og
Einar Ágústsson eitt hvor.
MÖRK FH: Geir Hallsteinsson 8 (4 v),
Viðar Símonarson 4 (2 v), Guðmund-
ur Árni, Guömundur Magnússon og
Janus Guölaugsson 3 (1 v) hver,
Kristján Arason 2, Sæmundur
Stefánsson og Hans Guðmundsson 1
mark hvor.
MISNOTUÐ VÍTI: Sverrir Kristinsson
varði frá Gunnari Baldurssyni í fyrri
hálfleik.
BROTTREKSTRAR: Guömundur
Magnússon og Sæmundur Stefáns-
son (FH) í 2 mínútur hvor og Einar
Einarsson Fylki í 2 mínútur. — gg.
Haukar stálu stigi
LIÐ HK og Hauka skildu jöfn að Varmá á sunnudaginn, bæði lið skoruðu 20 mörk, eftir að HK hafði haft 2
mörk yfir í hálfleik, 12:10. En lið HK var átakanlega nærri því að vinna annan sigur sinn í mótinu, því að
þegar aðeins um hálf mi'núta var til leiksloka, var staðan 20:19 fyrir HK og knötturinn f höndum þeirra. En
þá kom ótímabært skot, Hilmar Sigurgíslason var rekinn af leikvelli og Hörður Harðarson skoraði eina
markið sem hann gerði ekki úr víti þegar hann fann smugu í vörn HK. Jafntefli 20:20.
Liðin fylgdust svo rækilega að í örskammt var til leiksloka, en þá netið. Stefán er mikil skytta.
markaskoruninni framan af leikn-
um, að varla hefði mátt troða
hnífsblaði á milli þeirra, þannig
var nærri jafnt á öllum tölum upp
í 7—7. Tóku þá HK-menn mikinn
sjjrett og góðan og komust í 12:8.
Oðagot í sókninni síðustu mínút-
urnar varð síðan til þess, að
Haukar náðu tvívegis í knöttinn og
tókst þeim að nýta það til hins
ýtrasta. 12:10 í hálfleik.
Fyrstu 10 til 15 mínútur síðari
hálfleiks skoruðu Haukarnir 6
mörk gegn 2 hjá HK og komust
þannig yfir í fyrsta skiptið síðan
snemma í fyrri hálfleik. Hélt liðið
síðan 1—2 marka forystu þar til
komst Kópavogsliðið yfir á nýjan
leik með 2 þrumumörkum Stefáns
Haildórssonar. Var staðan þá
20:19 fyrir HK, en lokakaflanum
hefur þegar verið lýst.
I lið HK vantaði enn þá Ragnar
Ólafsson, sem er á hröðum bata-
vegi af meiðslum sínum, og Björn
Blöndal, Liðið hefur hins vegar
endurheimt Hilmar Sigurgíslason
og munar um hálfan slíkan leik-
mann. Hilmar átti stórleik og
skoraði 9 mörk. Stefán Halldórs-
son klæddist yfirfrakka í fyrri
hálfleik, en þegar honum hlotnað-
ist dálítið meira frjálsræði í síðari
hálfleik fór knötturinn að rata í
c* ""nannef^-f ram an UHnnarsson ryIki 24 Hrynjóllur Markusson 1K 20 snemma í fyrri hálfleik. Hélt liðið ist dálítið meira frjálsræði í siðari síðari hálfleik og komst mjög vel HK, í 2 mínútur hvor. Guðmundsson 1 Valaarður Valaarösson 1. Sigb G
Stefan Jonsson Ilaukum 20 Guðjon Marteinsson IR 23 Bjarni Guðmundsson Val 20 síðan 1—2 marka forystu þar til hálfleik fór knötturinn að rata í frá hlutverki sínu. Þá voru þeir _ gg. _____________________\____________________‘ _____________________________‘
Friðjón skoraði og falleg mörk
með langskotum. Jón Einarsson
var mjög ógnandi í vinstra horn-
inu, en ólánið elti hann á röndum,
þannig skaut hann í stangir, steig
á línu og allt hvað eina. Hann
skoraði aðeins eitt mark í leiknum,
en skóp sér fjölda færa með hraða
sínum, sem er með ólíkindum.
Hjá Haukum kom nokkuð á
óvart, hve daufir þeir Hörður
Harðarson, Ólafur Jóhannesson og
Stefán Jónsson voru, en þetta hafa
verið máttarstólpar liðsins í vetur.
Jón Hauksson var mikið inn á í
síðari hálfleik og komst mjög vel
frá hlutverki sínu. Þá voru þeir
Ingimar og Andrés mjög frískir á
línunni. Breiddin í Haukaliðinu
virðist vera mjög mikil, þannig
skoruðu 8 leikmenn 20 mörk liðs-
í STUTTU MÁLI:
VARMÁ 1. deild: HK — Haukar 20:20
(12:10).
MÖRK HK: Hilmar Sigurgíslason 9,
Stefán Halldórsson 5 (2 víti), Friðjón
Jónsson 3, Kristinn Olafsson 2 og
Jón Einarsson 1 mark.
MÖRK HAUKA: Jón Hauksson 4 (2
víti), Andrés Kristjánsson, Ingimar
Haraldsson, Hörður Harðarson og
Þórir Gíslason 3 hvor, Sigurður
Aðalsteinsson 2, Stefán Jónsson og
Ólafur Jóhannesson eitt hvor.
MISNOTUÐ VÍTI: engin.
BROTTREKSTRAR: Erling Sigurðs-
son og Hilmar Sigurgíslason, báðir úr
HK, í 2 mínútur hvor.
Atta unglingar
Leiknis töpuðu
stórt fyrir Þrótti
EINS og við mátti búast burstuðu
Þróttarar lið Leiknis í 2. deild
íslandsmótsins í handknattleik á
laugardag í Laugardalshöllinni.
Sautján mörk skildu liðin I leiks-
lok. 29:12.
Það er þó rétt að benda á, að lið
er þó rétt að benda á, að lið
Leiknis var ólöglegt, og vekur
það furðu undirritaðs að móta-
nefnd HSÍ skuli ekki gera neina
athugasemd við að í liðinu eru
ekki ncinir meistaraflokksmenn
heldur eingöngu piltar úr 2.
flokki. „Við erum að reyna að
hjarga því sem bjargað verður,“
sagði einn þeirra við blaðamann
Mbl., er hann spurði hverju það
sætti, að enginn þjálfari væri með
liðinu, enginn liðstjóri, svo og
enginn mcistaraflokksmaður.
Piltarnir í Leikni reyndu svo
sannarlega allt hvað þeir gátu til
að standa í Þrótturum, og á
stundum var hreint furðulegt hvað
þeir seigluðust áfram. Þeir gáfust
aldrei upp þótt á móti blési, og
náðu þó nokkrum sinnum að skora
lagleg mörk í leiknum, jafnframt
því sem þeir reyndu eftir mætti að
hindra stóra og stæðilega leik-
menn Þróttar í sókninni.
Rétt er að geta þess að Leiknis-
piltarnir votu aðeins átta og léku
því aðeins með einn skiptimann.
Þeir 14 áhorfendur sem mættir
voru í Laugardalshöllina fengu
ekki mikla skemmtun. Yfirburðir
Þróttar voru algerir og svo miklir
að maður hafði á tilfinningunni að
þeir tækju aldrei á. Staðan í
hálfleik var 14:5, og um tíma í
síðari hálfleiknum var staðan
orðin 24:7.
Mörk Þróttar: Konráð Jónsson
10 (jv), Páll Ólafsson 5, Einar
Sveinsson 5, Oddur Jakobsson 1,
Ari Einarsson 3, Sveinn Tómasson
3, Halldór Harðarson 1, Sveinlaug-
ur Kristjánsson 1.
Mörk Leiknis: Skafti Jóhanns-
son 3, Sveinbjörn Sigurðsson 3,
Friðrik Kristjánsson 3, Gunnar
Gunnarsson 2, Rúnar Vilhjálms-
son 1.
- þr.
Eyjaþór fatast flugid
KA sigraði Þór, Vestmannaeyj-
um, örugglega i 2. deild handbolt-
ans á föstudag með 21 marki
gegn 19. Með þessum sigri forðar
KA sér af mesta hættusvæðinu í
deildinni og raunar virðist liðið
til muna sterkara nú eftir ára-
mótin en fyrir svo reikna má með
að KA geti tekið stig af hvaða liði
sem er frá Eyjum gerir hins
vegar að verkum að von um að
vinna sæti í 1. deild að ári virðist
nú fremur fjarlæg. Liðinu hefir
mjög fatast flugið og aðeins
hlotið eitt stig út úr síðustu
fjórum leikjum.
KA hafði forystu frá upphafi í
leiknum á föstudag og leiddi lengst
af með tveimur til fjórum mörk-
um. í hálfleik var staðan 13 mörk
gegn 9, en í síðari hálfleiknum
tókst Þórsurum heldur að brúa
bilið, þó svo munurinn yrði aidrei
minni en tvö mörk.
Eins og fyrr segir má merkja
talsverðar framfarir í liði KA frá
því fyrir áramót. Einkum og sér í
lagi er varnarleikurinn sterkari en
áður, baráttan er mun meiri. Besti
maður KA og vailarinsí leiknum á
föstudag var Jóhann Einarsson,
sterkur og mikill baráttujaxl. Þá
átti Alfreð Gíslason og góðan dag
og ekki má gleyma Guðbirni Gísla-
syni sem skoraði mörk á örlaga-
stundum fyrir KA.
Lið Þórsara olli nokkrum von-
brigðum eftir góða frammistöðu í
byrjun móts. Engum blandast þó
hugur um að þar eru margir góðir
handknattleiksmenn á ferð, þó svo
mest beri á „útlendingunum"
Hannesi og Andrési. Þá er gaman
að sjá baráttuna og kraftinn í
Ásmundi Friðrikssyni.
MÖRK KA: AlfrcA Císlawm 7(3), Jóhann
Kinarsson 4, GuAbjbrn Gíslaaon 3, Jón Árni
Uónarason 3(1), Gunnar Gfelason, Þorleifur
Ananíaason, ilaratdur Haraldsson og
GuAmundur Lárusson eitt mark hver.
MÖRK ÞÓRS: Hannes Leiísson 6(1),
Ásmundur Frióriksson 4(2), Andrós Bridde
3, Ragnar Hilmarsson 2, Þórarinn Ingi
Ólafsson. Herbert Þorleifsson, BöAvar Berg-
þórsson og Þór Valtýsaon eitt mark hver.
Gunnar Kjartansson og Árni Tómasson
dæmdu þennan leik og að mat) undirritaAs
hefir þeim oftast tekist betur upp.
Sigt.G.
ÞÓRSARAR úr Eyjum sigruðu
Þórsara frá Akureyri í 2. deild
handboltans á laugardag með 22
mörkum gegn 20, og fór
leikurinn fram norður á
Akureyri. Þar með dvínuðu mögu-
leikar Þórsaranna á Akureyri
verulega um sæti í 1. deild að ári.
Raunar virðist lið Akureyrar-Þórs
alls ekki eins sterkt og fyrr í vetur,
hvað sem veidur.
Akureyringarnir leiddu allt
fram í miðjan fyrri hálfleikinn
þegar Vestmannaeyingar tóku for-
ystuna, forystu sem þeir héldu
leikinn út. í leikhléi var staðan 13
mörk gegn 10 fyrir Þór Ve. Um
miðjan síðari hálfleikinn hafði
Akureyringunum tekist að minnka
muninn í eitt mark, 18 gegn 17, en
Eyjamennirnir skoruðu þá þrjú
næstu mörk, 21 gegn 17, og aðeins
níu mín. til leiksloka. Akureyring-
ÍR. Jens Einarsson 2, Bjarni Hákonarson 2, Guðjón Marteinsson 4, Ólafur
Tómasson 2, Sigurður Svavarsson 2, Guðmundur Þórðarson 2, Ársæll
Hafsteinsson 1, Hafliði Halldórsson 1, Brynjólfur Markússon 2, Bjarni
Bjarnason 1, Siguröur Gíslason 2.
Fram. Guðjón Erlendsson 2, Gissur Ágústsson 4, Birgir Jóhannsson 2, Björn
Eiríksson 1, Gústaf Björnsson 3, Sigurbergur Slgsteinsson 2, Pétur
Jóhannsson 2, Atli Hilmarsson 2, Theodór Guðfinnsson 3, Jens Jensson 2,
Rúnar Guölaugsson 2, Erlendur Davíösson 1.
HK. Einar Þorvarðarson 2, Friðjón Jónsson 2, Hilmar Sigurgíslason 4, Kristinn
Ólafsson 3, Jón Einarsson 3, Gissur Kristinsson 1, Vignir Baldursson 2, Erling
Sigurðsson 2, Stefán Halldórsson 2, Þórir Halldórsson 1, Gunnar Eiríksson 1,
Kolbeinn Andrésson 1.
Haukar. Gunnlaugur Gunnlaugsson 2, Þorlákur Kjartansson 2, Ingimar
Haraldsson 3, Ólafur Jóhannesson 1, Hörður Harðarson 2, Stefán Jónsson 1,
Sigurður Aðalsteinsson 2, Árni Sverrisson 1, Andrés Kristjánsson 3, Þórir
Gfslason 2, Jón Hauksson 3, Árni Hermannsson 1.
Fylkir: Jón Gunnarsson 2, Halldór Sigurðsson 2, Gunnar Baldursson 2, Örn
Hafsteinsson 1, Einar Einarsson 1, Kristinn Sigurðsson 3, Einar Ágústsson 2,
Sigurður Símonarson 3, Magnús Sigurösson 2, Ögmundur Kristinsson 3,
Guöni Hauksson 1, Arnþór Óskarsson 1.
FH: Magnús Ólafsson 1, Sverrir Kristinsson 3, Sæmundur Stefánsson 2,
Guðmundur Árni Stefánsson 3, Guðmundur Magnússon 3, Kristján Arason 2,
Geir Hallsteinsson 4, Viöar Símonarson 2, Janus Guðiaugsson 2, Hans
Guðmundsson 1, Valgaröur Valgarðsson 1.
arnir sýndu þá af sér harðfylgi, Og
þegar þrjár mínútur voru til leiks-
loka var staðan orðin 21 gegn 20
Vestmanneyingum í hag og allt
gat gerst. En fyrir einbera fávísi,
sífellt nöldur út í dómara, var
einum Þórsara vikið af velli og það
voru Vestmanneyingar sem áttu
síðasta orðið í leiknum og sigruðu
því með 22 mörkum gegn 20.
Sigur Vestmannaeyinganna í
leiknum á laugardag verður að
teljast sanngjarn eirts og ieikurinn
þróaðist. Hitt er svo annað mál að
hefðu Þórsararnir frá Akureyri
beitt ofurlítið meiri skynsemi
hefði sigurinn átt aö geta fallið
þeim í skaut. Dómgæslan fór
ákaflega mikið í taugar Akureyr-
inganna, svo mikið að þrívegis var
mönnum vikið af velli fyrir að
mótmæla dómum, og varð það
liðinu dýrt spaug. Slíkt ætti ekki
að henda hjá liði sem hefir yfir
jafn reyndum mannskap að ráða
og Þórsarar hafa. Hinu er ekki að
leyna að mikils ósamræmis gætti í
dómum Árna Tómassonar og
Gunnars Kjartanssonar, en menn
ættu að vera farnir að læra að
nudd í garð dómara hefir aldrei
fært liði sigur.
Andrés Bridde var langbesti
maður Þórsara í þessum leik, og
verður fróðlegt að vita hvort
Andrés heldur tryggð við Vest-
mannaeyingana, eða leikur á
næsta ári með sínu gamla félagi,
Fram. Böðvar Bergþórsson átti og
ágætan ieik, skoraði fallega úr
horninu og gætti Arnars Guð-
laugssonar mjög vel í síðari hálf-
leik.
Sigurður Sigurðsson og Árni
Stefánsson voru bestu menn Þórs-
ara að þessu sinni. Það er annars
synd hversu lítið kemur út úr
Sigtryggi Guðlaugs nú i síðustu
leikjum. Sigtryggur, sem hefir um
árabil verið langmestur marka-
skorari í liði Þórs, virðist alls ekki
finna sig nú. Sigtryggur hrökklast
úr sínum uppáhalds skotstöðum út
í horn, meðan minni spámenn
leggja undir sig svæði þar sem
hann hefir verið að skora 5 til 8
mörk í leik. Þarna virðist -vera
brotalöm í leikskipulagi Þórsara.
MÖRK ÞÓRS: Akureyri: Arnar GuAlauip*-
8on 6. SiuurAur SigurAsson 6(2). SigtrygR-
ur GuAlaugs 3(1), AAalsteinn SigurgeirsNon,
J n n SigurAsNon. Árni Stelánsson,
GuAmundur SkarphéAinsNon og Gunnar
Gunnarsson eitt hver.
MÖRK ÞÓRS Vestmannaeyjum: Andrés
Bridde 6, Hannes Leiísson 4, Ásmundur
FriAriksson 4(2), BöAvar Bergþórsson og
Herbert Þorleifsson 3 hvor, Ragnar Hilm-
arsson 2.
Sigb. G
!