Morgunblaðið - 30.01.1979, Síða 36

Morgunblaðið - 30.01.1979, Síða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1979 Iðnaðrráðuneytið: Eitt yngsta ráðuneytið tekur 3,6% fjárlaganna Iönaðarráðuneytið er eitt hið yngsta í Stjórnarráðu- neytinu, en það var formlega stofnað hinn 1. janúar 1970. Áður hafði atvinnu- og sam- gönguráðuneytið með mál- efni iðnaðarins að gera, síðar samgönguráðuneytið og um eða upp úr 1956 var farið að nefna samgöngu- ráðuneytið samgöngu- og iðnaðarmálaráðuneytið. Sumarið 1957 ákvað ráð- herra er fór með iðnaðarmál að bréf og reglugerðir o.þ.h. sem frá ráðuneytinu fóru skyldu rituð í nafni iðnaðar- ráðuneytisins og var sá háttur hafður til ársloka 1969. Málefnin sem iðnaðarráðu- neytið fjallar um eru einkum iðnaðar- og orkumál svo og jarðefni, þ.e. rannsóknir á nýtingu fastra, fljótandi og loftkenndra jarðefna og ann- arra verðmæta lands og hafsbotns til iðnaðar og vinnslu á þessu sviði. Þau málefni er tilheyra orkumál- um eru rannsóknir, orkulind- ir, orkuver, orkuvinnsla og dreifing og ýmsar stofnanir á sviði orkumála. Þá hefur ráðuneytið að gera með mál- efni félaga, stofnana og rann- sókna á sviði iðnaðar, hann jafnframt sá fyrsti er gegnir eingöngu því ráðu- neyti. Aðstoðarmaður hans er Þorsteinn Ólafsson við- skiptafræðingur. í ráðuneyt- inu eru 9 stöðugildi. Páll Flygenring ráðuneyt- isstjóri og Árni Þ. Árnason skrifstofustjóri kynntu blaðamönnum starfsemi ráðuneytisins. Einn starfs- manna annast um skráningu einkaleyfa og vörumerkja, en það er Gunnar Guttormsson deildarstjóri. Sagðist hann einmitt vera að ganga frá 1000. einkaleyfinu, en jafnan væru skráð um 50 árlega og um 500 ný vörumerki á ári. Haft er samstarf við einka- leyfaskrifstofuna í Dan- mörku og annaðist hún rann- sóknir fyrir ísland. Sagði Gunnar að starf þetta væri allumfangsmikið og sögðu starfsmenn ráðuneytisins daglega afgreiðslu einkum vera vegna þessara erinda fólks í ráðuneytið. Að endingu var spjallað við iðnaðarráðherra og sagði hann að margt væri á verk- efnalista ráðuneytisins og ýmislegt á döfinni. Sagði hann að þrátt fyrir að ráðu- neytið væri liðfátt væri reynt að annast öll þau störf sem Iðnaðarráðherra, Hjörleifur Guttormsson, spjallar við blaða fræðslu- og kynningarstarf- semi, vernd eignaréttinda og lögvernd atvinnuheita. Undir þennan málaflokk falla t.d. Iðntæknistofnun íslands, Rannsóknastofnun bygging- ariðnaðarins, o.fl. Fara um 3.6% fjárlaga til verkefna iðnaðarráðuneytisins. Fyrsti iðnaðarráðherra var Jóhann Hafstein, síðan Magnús Kjartansson, þá Gunnar Thoroddsen og nú- verandi iðnaðarráðherra er Hjörleifur Guttormsson og er þyrfti, en sér fyndist sem að þess væri ekki nógu mikið gætt að fjölga starfsmönnum ráðuneyta eftir því sem vera þyrfti heldur væri fremur bætt við hinar ýmsu undir- stofnanir þeirra. Það áhuga- verða við starfið sagði ráð- herra vera samskipti við fólk sem jafnan væri margt í viðtalstíma og skipulagningu og stefnumótun, en af leiðin- legri verkefnum sínum nefndi hann að fjalla um gjaldskrár- málefni. Afgreiðsla iðnaðarráðuneytisins. Ljósm. Hjá launadeild er jafnan mikið um að vera við hver mánaðamót og líktu starfsmcnn hennar mánaðamótunum fyrrum við hátíðisdaga þegar menn komu f hópum að sækja laun sín, en nú væri farið að leggja þau á bankareikninga. Ljósm. Emilía. F j ármálar áðuney tið: Milli 50 og 60 skattategundir A ÞEIM 60 árum sem fjármálaráðuneyti hefur starfað hafa alls 22 ráðherr- ar gegnt embætti fjármála- ráðherra, og er Tómas Árnason hinn 22. í röðinni. Eysteinn Jónsson er sá maður sem lengst hefur gegnt því embætti og hefur hann þrisvar haft það starf með höndum. Undir stjórn fjármálaráðuneytisins heyra nú þrjú ráðuneyti, fjármálaráðuneytið, fjár- laga- og hagsýslustofnun og ríkisendurskoðun. Höskuldur Jónsson ráðu- neytisstjóri kynnti fyrir blaðamönnum ásamt deildarstjórum og fulltrúum ráðuneytisins störf þess og fara þau einkum fram í fimm deildum: Gjaldadeild annast fjár- lagaundirbúning, eftirlit með útborgunum úr ríkis- sjóði, greiðsluáætlanir og sér um að útstreymi fjár úr ríkissjóði sé sem næst í samræmi við fjárlög og aðrar greiðsluheimildir. Tekjudeild hefur umsjá með allri álagningu og inn- heimtum á tekjum ríkissjóðs öðrum en tolltekjum. Kom fram á blaðamannafundin- um að skattar eru nú milli 50 og 60 og höfðu starfsmenn það á orði að einfaldara væri að hafa tekjustofna stærri og færri. Með því myndi sparast mikið pappírsflóð og umstang, eftirlit og bókhald. Tolladeild annast mál er snerta aðflutningsgjöld, út- flutningsgjöld og tolleftirlit, samskipti við útlönd vegna samninga um fríverzlun og gagnkvæma aðstoð í tolla- málum. Berst deildinni fjöldi erinda um niðurfellingu tolla og eru afgreidd árlega milli 800 og 900 bréf og erindi varðandi þau mál. Ríkisbókhald hefur yfir- stjórn með öllu bókhaldi og reikningsskilum og sér um gerð ríkisreiknings og ann- ast auk þess bókhaldsþjón- ustu fyrir einstakar stofnan- ir ríkisins. Hefur það tekið Þröngt er orðið um fjármálaráðuneytið svo sem um önnur ráðuneyti og plássið því vel nýtt. Launadeild fjallar um öll launamál, þar á meðal fram- kvæmd samninga, bókhald og skráningu á réttindum og starfsmannaskrá. Málflutnings- og eigna- deild fjallar um hagsmuna- vörzlu í sambandi við kröfur á hendur ríkinu, semur eignaskrár ríkissjóðs, ríkisr- ábyrgðir og gerninga er fjalla um kaup og sölu fasteigna ríkissjóðs og ann- ast lögfræðileg úrlausnar- efni varðandi verksamninga á vegum stofnana ráðu- neytisins. að sér bókhald fyrir um 160 stofnanir sl. 4—5 ár. Ríkisfjárhirzlan annast allar inn- og útborganir ríkissjóðs og viðskipti við banka og geymir verðbréf og hlutabréf ríkissjóðs. Þá annast skrifstofustjóri gerð ýmissa tölfræðilegra yfirlita um launa- og líf- eyrisútgjöld, er formaður samninganefndar ríkisins í kjaramálum og sér um rekstur skrifstofu ráðu- neytisins. Nú eru starfsmenn þess um 40 og um 20 manns starfa hjá ríkisbókhaldi. Fræðslu- námskeið um þroska- heft börn Fræðslunámskeið um þroska- heft börn, verður haldið á vegum Námsflokka Reykjavíkur og Landssamtakanna Þroskahjálpar og hefst mánudaginn 5. febrúar 1979. Námskeiðið er til húsa í Mið- bæjarskólanum, Fríkirkjuvegi 1, og verður á hverju mánudags- kvöldi febrúar — apríl 20.30—22.30. Innritun fer fram í skólanum. Námskeiðið er í fyrirlestra- formi en jafnframt er gert ráð fyrir umraeðum og fyrirspurnum. af hálfu þátttakanda. Eftirtaldir munu fjalla um þessi efni. Mánudag 5. febrúar: Hörður Bergsteinsson læknir: Súrefnis- skortur hjá nýfæddum börnum; mánudag 12. febrúar: Haukur Þórðarson yfirlæknir: Hreyfi- hömlun hjá börnum; mánudag 19. febrúar: Hörður Þorleifsson augn- læknir: Sjóngallar er leiða til þroskahömlunar; Margrét Sigurðardóttir blindrakennari: Kennsla blindra og sjónskertra; mánudag 26. febrúar: Huldar Smári Ásmundsson sálfræðingur: Einhverf börn; mánudag 5. mars: Ólafur Bjarnason læknir: Heyrna- skerðing hjá börnum; Guðlaug Snorradóttir yfirkennari: Kennsla heyrnarskertra; mánudag 12. mars: Anna Þórarinsdóttir sjúkra- þjálfi: Sjúkraþjálfun þroskaheftra barna; mánudag 19. mars: Ólafur Höskuldsson tannlæknir: Tann- vernd; mánudag 26. mars: Ásta Sigurbjörnsdóttir fóstra: Leik- tækjasöfn; mánudag 2. apríl: Margrét Margeirsdóttir félagsráð- gjafi: Unglingsárin; og mánudag 9. apríl: Jón Sævar Alfonsson; vara- formaður Þroskahjálpar: Réttindi þroskaheftra; ný viðhorf. Námsmanna- handbókin er komin út ÚT ER KOMIN á vegum Mennta- málancfndar Stúdcntaráðs háskól- ans Námsmannahandbókin 1979. Fjögur ár eru liðin síðan þessi bók kom út síðast og hefur hún því að geyma nýjar upplýsingar um framhaldsnám bæði hér heima og erlendis. Bókinni er ætlað gefa nokkra mynd af námsmöguleikum sem til boða standa. Fjallað er um nám í einstökum námsgreinum innan háskólans og einnig við aðra innlenda skóla. I bókinni er líka fjallað um einstök lönd sem ís- lenskir námsmenn stunda nám í og einnig einstakar námsgreinar sem eingöngu er hægt að stunda nám í erlendis t.d. dýralækningar, kvik- myndagerð og veðurfræði. Bæjarstjórn Seyð- isfjarðar fagnar / samningum Islend- inga og Færeyinga BÆJARSTJÓRN Seyðisfjarðar samþykkti á fundi sínum 15. janúar s.l. eftirfarandii „Bæjarstjórn Seyðisfjarðar fagnar því að samningar um gagnkvæm fiskveiðiréttindi skuli hafa verið gerður við Færeyinga. Bæjarstjórn telur þetta eðlileg viðskipti tveggja nágranna og hvata að nánari samskiptum þessara frændþjóða."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.