Morgunblaðið - 13.02.1979, Page 10

Morgunblaðið - 13.02.1979, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1979 Efnisskrá: Mosart Linz-sinfónian Haydn Hornkonsert nr. 2 Hallgrímur Helgason Helgistef, sinfónísk tilbrigði og fúga. R. Strauss Ilornkonsert nr. 1, op. 11. Einleikari: Hermann Baumann Stjórnandi: Walter Gillesen Smfóníutónleíkar Það hefur mjög einkennt starf Sinfóníuhljómsveitar íslands á undanförnum árum, að með nýjum hljómsveitarstjóra hefur sveitin leikið sem ný væri, þ.e.a.s. eins og skipt hefði verið um hljóðfæraleik- ara. Þessu kenna margir leikleiða, sem stafi af of miklu vinnuálagi, sem auðvitað er rétt, en ekki að öllu leyti. Leiðinn stafar einnig af ófullnægju í starfi, ef til vill vegna mismunar á hæfni einstaklinga og að ekki eru sífellt gerðar ýtrustu kröfur um frammistöðu. Þegar svo stendur á pallinum hljómsveitar- stjóri, sem gerir miklar kröfur og hefur vilja og orku til að ganga á hólm við vanaþreytuna, er sem hljómsveitin rísi upp úr öskustó og kveðji sér hljóðs, svo allir undrast hversu það má til bera, að kolbít- urinn kunni svo vel að kveða. Það hlýtur að vera mjög mikilvægt fyrir Sinfóníuhljómsveit íslands að fá til landsins unga, áhugasama og vel menntaða hljómsveitar- stjóra til endurreisa hljómsveitina og brýna hana til átaka, sem hæfir framvarðasveit íslenskrar tón- menntar. Walter Gillesen fékk hljómsveitina með sér og mátti heyra óvenjulega fínlegar og nett- ar leiksveiflur í Linz-sinfóníunni eftir Mozart. Það væri ekki ónýtt fyrir hljómsveitina að fá svolítið meiri leiðsögn í nettri og vikri túlkun á Mozart, undir stjórn hljómsveitarstjóra eins Walter Gillesen. Þrátt fyrir góða stjórn var aðalviðburður kvöldsins leikur Hermanns Baumanns, sem í fáum orðum sagt er hreinn galdramaður á horn og listamaður hinn mesti í túlkun tónlistar. Meða! fyrstu tónskálda til að nota horn í hljóm- sveit voru Scarlatti og Hándel á fyrstu áratugum 18. aldarinnar. Sú tækni, sem nefnd hefur verið „stoppað" horn, var fyrst notuð 1760 af hornleikara, sem starfaði í hljómsveítinni í Dresden og hét Anton Joseph Hampel (d. 1771). Þessi uppgötvun leiddi til þess að hljóðfærin þurfti bæði að minnka Herntann Baumann Tónlist eftir JÓN ÁSGEIRSSON og móta á þann hátt að auðvelt væri að „stoppa" hornið. Með því að loka mismunandi mikið fyrir hljóðopið er hægt að hafa áhrif á blæ tónsins og með verulegri lokun má lækka tóninn um hálftón, sem þýddi það, að þar sem stutt var milli náttúrutónanna, var mögu- legt að leika óbrotinn tónstiga á takmörkuðu svæði. Samhliða þessu var farið að framleiða auka- hringi svo stilla mætti hljóðfærið í fleiri tóntegundum. Upprunalegu veiðihornunum (Corno da Caccia) Walter Gillesen var haldið svo að „bjallan" sneri upp og er vitað til, að svo var gert í Englandi um 1773. Stoppaða horn- ið er að gerð allt annað en veiði- hornið þó þau tilheyri bæði sömu hljóðfærafjölskyldu, enda voru deildar meiningar um gildi þess vegna mikils blæmunar á náttúru- tónunum og þeim „stoppuðu". Með „stopp“ aðferðinni breyttist nafn hljóðfærisins úr Corno de Caccia í Franskt- eða Hand-horn. Her- mann Baumann er stórfenglegur blásari og flutti Hornkonsertinn eftir Haydn ekki aðeins tæknilega vel, heldur og af mikilli tilfinningu fyrir formi og lagrænu innihaldi verksins. Það mátti svo sem heyra mun á tóngæðum þegar Baumann lék á „loftloka" hornið í konsertin- um eftir R. Strauss. Það er talið að ein fyrsta tilraun til að setja loftloka (ventla) á horn hafi verið framin af irskum manni að nafni Charles Clagget er hann sam- tengdi (1788) tvo trompetta í d og es við eitt munnstykki. Ventla-að- ferðin er þó nefnd eftir manni að nafni Blúhmel, en hann er talinn hafa (1813) smíðað loftlokann og síðan selt þessa uppgötvun Hein- rich Stölzel (1780—1844), er fram- leiddi svo málmblásturshljóðfæri með tveimur loftlokum, bæði fyrir heila og hálfa tónlækkun. Baum- ann er án efa einn mesti hornleik- ari nútímans ekki aðeins fyrir tækni sína, heldur og flutning sem er gegnumsýrður af sannri söng- gleði. Á þessum tónleikum var frumflutt hljómsveitarverk eftir dr. Hallgrím Helgason, er hann nefnir Helgistef, sinfónísk til- brigði og fúga. Verkið er allt mjög vandað að gerð en þó bregður fyrir þeirri áráttu að ofhlaða tónbálk- inn svo að eiginleg tónhugsun verksins verður á köflum ógreini- leg eða týnist með öllu. Sá rithátt- ur að fylla mjög mikið út með sjálfstæðum aukaröddum getur blátt áfram truflað framvindu verksins í stað þess að vera hluti af samvirku átaki. I verki dr. Hallgríms var margt vel gert en ljósari og samvirkari ritháttur gæfi honum meira svigrúm til að nýta betur hratt tónferli og kyrr- stæð blæbrigði. Þá má og finna að því hversu mjög hann leggur áherzlu á forn form eins fúguna, sem vart gefur svigrúm til skáld- legra tilþrifa en er miklu fremur tæknilegt útfærsluform og verður í höndum nútímamanns varla meira en endurtekning á form- gerðum, sem þekkjast vel útfærðar af J.S. Bach. I bezta falli heppnast slíkar tilraunir þegar reynt er að samhæfa nútímatónferlishug- myndir og gömul form. Það gæti orðið listviðburður að heyra tón- skáldið Hallgrím Helgason kveðja lærdóms- og fræðimanninn dr. Hallgrím Helgason og yrkja af tilfinningu en ekki lærdómi einum saman. Jón Ásgeirsson. „Fjölþætt efni og mikið um nýjar niðurstöður tilrauna” Rætt vid þrjá fulltrúa á rádunautafundi Bændasamtakanna Ráðunautafundur Búnaðarsambands íslands var haldinn að Hótel Sögu frá mánudeginum 5. febrúar til föstudagsins 9. febrúar. Búnaðarfélag íslands og Rannóknastofnun Landbúnaðarins halda ráðstefnuna. Fundinn sóttu einnig menn frá öðrum samtökum sem þátt eiga að landbúnaðarmálum svo sem Bændaskólakennarar, nemendur búvísindadeildar og starfsmenn landgræðsl- unnar, tilraunastöðvarinnar að Keldum og veiðmálastofnunarinnar auk fleiri. Alls sátu fundinn hátt á annað hundrað manns. Morgunblaðið hafði samband við þrjá fundarmenn: Ólaf Dýr- mundsson sem sæti hefur átt í undirbúningsnefnd fundarins ásamt 5 öðrum, Ara Teitsson héraðsráðunaut hjá Búnaðarsam- bandi Suður-Þingeyinga og Kristján B. Jónsson héraðsráðu- naut hjá Búnaðarsambandi Suður- lands. „Efnið á þessum fundi er mjög fjölþætt og mikið um nýjar niður- stöður og tilraunir sem talað hefur verið um hér,“ sagði Ólafur Dýr- mundsson landnýtingarráðunaut- ur hjá Búnaðarfélagi íslands en hann á sæti í undirbúningsnefnd ráðunautafundarins. „Fyrsta daginn sem fundurinn stóð, mánudaginn 5. febrúar var rætt um stefnuna í .landbúnaðar- málum og flutti landbúnaðarráð- herra, Steingrimur Hermannsson, framsöguerindi en síðan voru þessi mál rædd. Þriðjudaginn fyrir hádegið var talað um vistfræði og vistfræði- rannsóknir en eftir hádegið um fiskeldi og veiðirannsóknir og einnig var nokkuð rætt um plöntu- sjúkdóma. Á. miðvikudag varu kynntar ýmsar tilraunaniðurstöður og nýj- ungar varðandi sauðfé fyrir há- degið en seinni partinn var meira rætt um jarðræktina. Á fimmtudaginn töluðum við um búfjárkynbætur og hvort eitt- hvað samband kunni að vera milli þeirra og sauðfjársjúkdóma. Einn- ig ræddum við um nýjungar í nautgriparækt, heyverkun og fleira. Síðasta daginn, í gær, töluðum Kristján B. Jónsson, héraðsráðu- nautur hjá Búnaðarfélagi Suður- lands. við síðan um starfsemi búnaðar- samtakanna. Ræddum við þá ýmsa þætti í starfi þeirra, starfssvið ráðunautanna og starfsaðferðir, hvernig koma á nýjungum til bændanna. Einnig fjölluðum við um húsagerðarsamninga fyrir sveitir. Þá var og endurmenntun ráðunauta á dagskrá og fleira sem snertir ráðunautaþjónustuna. Þeir Ari Teitsson héraðsráðunautur hjá Búnaðarfélagi Suður-Þingey- inga. sem framsöguerindi fluttu í gær voru allir héraðsráðunautar. Eftir hvert erindi voru umræður og sagði Ólafur að fyrsta daginn hefðu umræður um landbúnaðar- stefnuna verið áberandi. Þar var rætt um breytta stefnu í landbún- aðarmálum og hvert stefndi í þeim efnum. í því sambandi var rætt um erfiðleika landbúnaðarins, sölumöguleika og framleiðslumál- in í framtíðinni og hvað gera megi til þess að bæta núverandi ástand. í gær var líka komið inn á þessi mál og þá helst í sambandi við hugsanlegar breytingar á starfs- háttum ráðunauta í sambandi við breytt viðhorf í búnaðarmálum. Ólafur Dýrmundsson landnýting- arráðunautur hjá Búnaðarfélagi íslands. „Mér finnst margt fróðlegt hafa komið hér fram,“ sagði Ólafur. „Við höfðum hér talað um ýmsar gagnlegar nýjungar og niðurstöð- ur tilrauna. Umræðusviðið hefur verið mjög vítt. Að vísu eru alltaf sömu málin sem koma fyrir ár eftir ár á þessum fundum en nú hafa verið tekin fyrir ýmis efni sem við höfum ekki rætt um áður, t.d. vistfræðin og búfjársjúkdómar og kynbætur," sagði Ólafur að lokum. „Fjárhagsleg staða bænda með besta móti“ „Þar sem síðasta ár var mjög gott er fjárhagsleg staða bænda nú með besta móti,“ sagði Ari Teitsson héraðsráðunautur hjá Búnaðarsambandi Suður-Þingeyj- arsýslu. „Það sem skapar okkur verstu vandræðin núna er hve illa gengur að selja framleiðsluvöruna. Verðlækkanirnar á næsta ári munu nema um 1 milljón á meðal bónda og eru það um 30% af hans árstekjum. Ef það fer svo sem horfir að samtök bænda klofni og leysist upp vegna verðlagsmálanna standa þeir sem eru fjær aðal- markaðssvæðunum verst að vígi. Það felst því nokkur hætta í því fyrir þessi svæði." sagði Ari. í sambandi við stöðu ráðunaut- anna í þessu máli sagði Ari að meðan ekkert væri vitað hvað gerðist næst í landbúnaðarmálum væri staða leiðbeinandans ákaf- lega erfið. Ari sagði að það sem sér hefði þótt merkast á ráðstefnunni væru þær tilraunir sem rætt var um á grasi sem flutt er frá Alaska og virðist geta komið að gagni þar sem hætta er á kali. „Helsta vandamálið að framleiðslan selst ekki“ „Helsta vandamálið serh við eigum við að stríða er að fram- leiðslan selst ekki,“ sagði Kristján B. Jónsson héraðsráðunautur hjá

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.