Morgunblaðið - 13.02.1979, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 13.02.1979, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1979 11 Goðasteinn GOÐASTEINN. 17 árg. 120 bls. Skógum undir Eyjafjöllum, 1978. RITSTJÓRAR og útgefendur Goðasteins eru sem fyrr Jón R. Hjálmarsson og Þórður Tómasson. Samvinna þeirra er nú orðin langæ og árangursrík. A titilsíðu Goðasteins stendur: »Tímarit um menningarmáU. Það er náttúru- lega laukrétt. Báðir hafa rit- stjórarnir gerst menntaberar í héraði sínu og er útgáfa þessa rits aðeins einn þátturinn í margþættu starfi þeirra. En hér er naumast á ferðinni alhliða menningarmálarit því rangæsk og sunnlensk fræði sitja hér í fyrirrúmi sem von er. Rýrir það síður en svo gildi ritsins. Þjóðlegur fróðleikur heldur alltaf gildi sínu og eftirsókn eftir ritum um þau efni fer ekki þverrandi. Nokkru efni úr öðrum áttum er að vísu skotið inn í ritið, t.d. er héi- þáttur eftir Jón sem heitir A morgni bflaaldar. Er þar rakin forsaga bílaframleiðslu, það er að segja frá fyrstu hugmyndum manna um vélknúin ökutæki til frumstæðustu bílanna sem smíðaðir voru seint á öldinni sem leið og við teljum að fyrstir verðskuldi bílaheiti. Áhugi á göml- um bílum er víða geysimikill og gegnir í rauninni furðu hve lítið hefur verið ritað hér um bílasögu til þessa. Vitanlega hafa hér flest- ir áhuga á hinni íslensku bílasögu; en þættir af því tagi sem Jón ritar vekja eigi að síður forvitni. Meðal annars efnis í ritinu má nefna Minningar Heigu Skúladóttur eftir Sigfús M. Johnsen. Þórður Tómasson fylgir þeim úr hlaði með smáformála. Kveður hann Sigfús hafa skrifað þáttinn »upp eftir tengdamóður sinni frú Helgu Skúladóttur frá Kálfafellsstað í Suðursveit um 1943«. Helga var fædd á Sigríðar- stöðum í Fnjóskadal norður, ólst þar upp á þrifnaðar- og efnaheim- ili og segir frá heimilisbragnum þar. Er þátturinn gagnorður og fróðlegur fyrir margra hluta sakir. Jafnaldrar Helgu (hún vær fædd 1866) lifðu margir fram á ævisagnatímabilið sem hófst hér upp úr 1940 og eigum við því allnokkrar frásagnir annarra karla og kvenna frá þeim árum er hún var að vaxa úr grasi. En frásagnirnar eiga það flestar sam- eiginlegt að þær segja frá armóði, sulti og seyru — sem var auðvitað almennasti lifnaðarhátturinn á þeirri tíð. Helga lýsir heimili þar sem nóg var að bíta og brenna og telst þáttur hennar að því leyti til undantekninga. Til dæmis hefur hún þá sögu að segja af æskuheimili sínu að »matarvigt var góð allan ársins hring«. Jarðskjálftakippurinn mikli 6. maí 1912 heitir þáttur eftir Kristínu Skúladóttir frá Keldum. Hollt er að minna sunnlendinga á hvar þéir eiga heima því þess konar atburðir endurtaka sig þar að minnsta kosti með aldar milli- bili. Og fleiri eru það en mann- fólkið sem uggir að sér við jarð- skjálfta því »hrossin urðu skelf- ingu lostin,« segir Kristín. Margir smáþættir eru í þessu hefti Goðasteins, einnig kvæði, og hirði ég ekki um að telja eitt öðru fremur því allt er það efni greina- gott og merkilegt á sína vísu. Ég ætla þó að nefna þáttinn Horft um öxl eftir Guðrúnu Jakobsdóttur á Víkirrgavatni, sem er að forminu til afmæliskveðja en að öðru leyti endurminning um hið fábrotna en ljúfa líf fyrirstríðsáranna þegar ungir eyfellingar voru »að velja sér lífsförunautinn á Heimalandi undir tónfalli Dalselssystkin- anna.« Þáttur Guðrúnar lýsir því hvernig það er að sakna hvors tveggja í senn: heimahaga og liðinnar æsku. Bðkmenntir eftir ERLEND JÓNSSON Þjóðleg fræði eru jafnan tengd uppruna og staðfræði. Því höfða þau sterkast til þeirra sem kunnugir eru mannlífi og stað- háttum þar sem þau eiga sér uppruna; og svo er einnig hér. Þeir, sem rita í Goðastein, hafa flestir haft annað við tímann að gera en sitja við skriftir. En svo mjög er þessu fólki innblásin íslensk frásagnarhefð að það skrif- ar yfirhöfuð hnökra- og snurðu- laust, jafnvel ágætlega. Það hefur reynsluna til að miðla af, langa, stundum dýrkeypta. Það er vant að spara. Og því sparar það orðin, fleiprar ekki en segir það eitt sem vitað er sannast og réttast í hverju máli. Goðasteinn er því í tölu merkari rita sem hér eru gefin út þessi árin. Erlendur Jónsson. Búnaðarsambandi Suðurlands. „Til þess að ráða bót á þessu vandamáli væri ef til vill hag- kvæmast að skera af stóru búun- um og setja þau ríkisbú sem í byggingu eru ekki í ábúð. Einnig hefði það leyst töluverðan vanda ef kjarnfóðurskatturinn hefði verið kominn á fyrr en hve hár hann hefði átt að vera er aftur annað mál. Eitt er víst að við þurfum að minnka framleiðsluna þar sem hún selst ekki öll. Róttækar breyt- ingar eiga alls ekki heima í þessu máli, duttlungar náttúrunnar gera það að verkum. Það þarf ekki nema t.d. eldgos og jafnvel ekki nema kal til þess að eyðileggja slíkar breytingar og vinnuna að baki þeim. Það sem sérkennir okkur hér á suðurlandinu helst er rafmagns- skorturinn. Við erum mjög illa settir í rafmagnsmálum og kemur það illa niður á ýmsum greinum landbúnaðarins, t.d. súgþurrkun- inni,“ sagði Kristján. Um það sem hæst hefði borið á ráðstefnunni sagði Kristján að sér hefði þótt athyglisverðast erindi sem flutt var um beringsplöntur. „Það má ætla að þær verði gott nytjagras í framtíðinni, en ber- ingsplöntur eru hagstæðar fyrir harðbýlissvæði. Einnig fannst mér athyglisvert að heyra um rafgirðingarnar. Það voru gerðar nokkrar tilraunir á s.l. ári með háspenntar rafgirðingar fyrir sauðfé, um 5000 volt. Straumurinn er samt sem áður ekki lífshættulegur þar sem hann varir aðeins 3/10.000 úr sekúndu." Um stöðu landbúnaðarráðu- nauta sagði Kristján að mál þeirra væru í algjörum ólestri. „Við erum það fáir að við höfum tæplega tíma til þess að sinna leiðbeiningunum nema þeim allra nauðsynlegustu. Almennar leið- beiningar hafa því orðið allt of litlar. Það er líka mjög slæmt að ná sambandi við suma bændur, sérstaklega þar sem nokkrir þeirra mæta ekki á bændafundum og lesa ekki málgögn bændasamtakanna," sagði Ólafur að lokum. Er billinn þinn ryóvarinn og hefur þu látió endurryóverja hann meó reglulegu milli- bili eóa hefur þú gerst sekur um hiróu- leysi og látió reka á reióanum ? Góó ryóvörn er ein besta og ódýrasta trygging sem hver bileigandi getur haft til þess aó vióhalda góóu útliti og háu endursöluverói bilsins Þú ættir aó slá á þráóinn eóa koma og vió munum - aó sjálfsögu - veifa ber allar þær upplýsingar sem þu oskar eftir varó- andi ryóvörnina og þá ábyrgó sem henni fylgir ^ Ryóvarnarskálinn Sigtúni 5 — Simi 19400 — Pósthólf 220

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.