Morgunblaðið - 13.02.1979, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1979
17
Magnús Kjartansson:
Framlag Reykjávíkurborg-
ar til árs fatlaðra 1981?
Ginnungagap milli stjómsýslu og fatlaðra
Ss-U
Sjálfsbjörg, félag fatlaðra í
Reykjavík, efndi í fyrrahaust til
aðgerða til þess að vekja athygli á
vandamálum fatlaðra í höfuðborg
íslands og raunar um land allt.
Fór félagið fram á það að fá að
skiptast á skoðunum við fulltrúa
þeirra flokka sem aðild eiga að
borgarstjórn Reykjavíkur og var
ákveðið að sá fundur skyldi fara
fram á Kjarvalsstöðum. Jafnframt
ákvað Sjálfsbjörg að fundurinn
skyldi hafa aðdraganda, fatlaðir
færu í fylkingarbrjósti jafnréttis-
göngu frá Sjómannaskóla til Kjar-
valsstaða, en tilgangurinn var sá
að kanna undirtektir borgarbúa.
Þær reyndust jákvæðari en nokkur
hafði þorað að gera sér vonir um;
blöðin töldu að um tíu þúsundir
manna hefðu tekið þátt í göngunni
eða fylgst með henni og tekið
undir jafnréttiskröfuna; ég hef
ekki fregnir af hliðstæðum stuðn-
ingi við fatlað fólk í nokkru öðru
landi.
Inni á Kjarvalsstöðum blómgað-
ist þennan dag mikil bjartsýni
með skjótum hætti. Fulltrúar allra
flokka í borgarstjórn kepptu hver
við annan í yfirlýsingum um skiln-
ing á högum fatlaðra, stuðning við
málstað þeirra og mikla hlýju. Svo
mikil var bjartsýnin að ferlinefnd
fatlaðra, sem hefur það verkefni
að fylgjast með framkvæmdum
utan húsa og innan og kanna hvort
tekið sé tillit til fatlaðra við gerð
þeirra, bauðst til þess að festa upp
merki í anddyri Kjarvalsstaða sem
sönnun þess að húsið fullnægði
öllum þörfum fatlaðs fólks.
Borgarstjórn Reykjavíkur þáði
þessa viðurkenningu og tók þar
með á sig siðferðilega skuldbind-
ingu.
Eftir að Kjarvalsstaðir höfðu
tæmst að loknum fundinum, tóku
verkamenn til við að jafna mölina
fyrir framan húsið og afmá bráða-
birgðabrautina sem fatlað fólk í
hjólastólum hafði notað til þess að
komast inn, þó með hjálp ófatl-
aðra. Síðan hefur enginn fatlaður
maður, bundinn við hjólastól,
komist inn á Kjarvalsstaði til þess
að skoða merkið frá ferlinefndinni,
gera vettvangskönnun í bitbeini
skriffinna og listamanna, eða
ganga örna sinna á salerninu sem
lagfært var fyrir jafnréttisdaginn
í fágætum skilningi þess að fatlað
fólk í hjólastólum hefur melt-
ingarfæri og flest meira að segja
þvagblöðru.
„Leyfið börnunum
að koma til mín“
Jafnréttisdagurinn í fyrra kom
upp í huga minn á dögunum, þegar
ég las í blöðum að allir borgarfull-
trúar í Reykjavík virtust sammála
um að breyta Austurbæjarbarna-
skólanum í ráðhús. Hugmyndir um
ráðhús i Reykjavík hafa alla tíð
verið torskildar, og verða væntan-
lega ekki skýrðar nema með hlið-
sjón af kenningum Freuds; ég
minnist þess t.a.m. mjög vel þegar
borgarstjórn Reykjavíkur sam-
A leið í
skóla
gcetið að
væri einnig hægt að fara hina
leiðina. Ef hinn sameiginlegi
flokkameirihluti í Reykjavíkur-
borg og ríkisstjórn vildi, væri
sjálfsagt að breyta Hallgríms-
kirkju í sambýlishús handa barn-
mörgu ungu fólki. Síðan væri hægt
að skrá á stórhýsin bæði hin
fleygu orð Jesúsar Jósefssonar:
„Leyfið börnunum að koma til
Framlag til
árs fatlaðra?
Annars voru það ekki skipulags-
mál Reykjavíkur sem komu upp í
huga minn þegar ég las í blöðum
um sameiginlegan áhuga allra
borgarfulltrúa á ráðhúsi við
Skólavörðuholtið, heldur annað
vandamál sem hefur verið áleitn-
ara við mig síðustu árin. Þegar
Austurbæjarbarnaskólinn var
byggður var það viðhorf algerlega
ríkjandi að fatlað fólk væri utan-
garðsmenn í þjóðfélaginu og um
það ætti alls ekkert að hugsa. I
samræmi við það var skólabygg-
ingin teiknuð og byggð. I engu húsi
í Reykjavík af svipaðri stærð
hefur verið komið fyrir jafn
níðangurslegu t'röppukerfi, erfið
þrep sem teygja sig stall af stalli
með greinum upp í afkima í öllum
áttum. Þetta tröppukerfi er ærin
torfæra fyrir ófatlað fólk á öllum
aldri, enda hafa margir fatlast í
skólanum, þótt tölur um það séu
trúlega engar til. Ef stórnsýslu-
kerfi Reykjavíkurborgar yrði kom-
ið fyrir í þessari byggingu, væri
komið á algeru torleiði milli fatl-
aðs fólks og skrifinnskukerfis
borgarinnar, einnig þeirra stofn-
ana sem eiga að sinna fötluðum,
öldruðum, sjúkum og snauðum.
Magnús Kjaatansson
Ráðhús Reykjavíkur mundi þá
bætast í hóp sem ærinn er fyrir,
Alþingishús, Stjórnarráð, Þjóð-
leikhús, Tryggingastofnun ríkis-
ins, Norræna húsið og Þjóðminja-
safnið, svo að dæmi séu nefnd.
Þjóðminjasafnshúsið var gjöf
þjóðarinnar til sjálfrar sín í tilefni
lýðveldisstofnunar — en auðvitað
eru fatlaðir ekki hluti af þjóðinni.
Samkvæmt blöðunum eru þetta
þær hugmyndir sem nú eru í
fyrirrúmi hjá borgarfulltrúunum
sem héldu ræðurnar fögru á Kjar-
valsstöðum í fyrrahaust. Kannski
á þessi framkvæmd að verða fram-
lag Reykjavíkurborgar til árs
fatlaðra 1981.
Ef yður vantar rafritvél fyrir
heimilið eöa skrifstofuna er
AMEEIE rétta vélin.
Gott verð. Mikil gæði.
Skipholti 21. Reykjavlk,
slmi 23188.
þykkti einróma að byggja ráðhús
úti í Reykjavíkurtjörn, væntan-
lega við ljós draumsjóna um
Feneyjar á Italíu, og sætti færi að
dagsetja samþykktina á afmæli
borgarstjórans, sjálfs Gunnars
Thoroddsens. Nú virðist borgar-
stjórnin aftur vera sammála um
ráðhús þótt samþykkt hafi enn
ekki verið gerð formlega, enda veit
ég ekki hvort Egill Skúli á stór-
afmæli í bráð.
Astæðan til þess að hús Austur-
bæjarbarnaskólans virðist liggja á
lausu er sú stefna Reykjavíkur-
borgar að þenja byggðina út um
holt og grundir; einkanlega holt,
þar sem hægt er að hýsa fólk sem
hæst ofan sjávarmáls, þar sem
frost verða hörðust, rammastir
vindar gnauða og félagslegur
kostnaður reynist mestur. I slíkum
hverfum býr nú meginþorri ungra
foreldra í Reykjavík ásamt börn-
um sínum, en í hipni upphaflegu
Reykjavík býr aldrað fólk og
fatlað og fær fæst að sjá barna-
börnin sín nema endrum og eins. I
hverfi því sem Austurbæjarbarna-
skólinn átti að þjóna búa nú fá
börn, og er þá ekki tilvalið að
stugga þeim burt og breyta skóla-
byggingunni í ráðhús? En það
REPORT DE LUXE: LÚXUS FYRIR LÍTIÐ
Rafritvél meó fisléttum áslætti,
áferöafallegri skrift, dálkastilli
28 eóa 33 sm valsi.
Vél sem er peningana viröi
fyrir jafnt leikmenn sem
atvinnumenn.
Fullkomin viðgeröa- ■
og varahlutaþjónusta. I
Leitið nánari upplýsinga.
(ÍÍÍ
csmi
I.-.'TT
n vr r -w ?r t ft t » t n
' * * n t n nc í? æ « S'
5
Oiympia
Intemational
KJARAINI HF
skrifstofuvélar & verkstæði — Tryggvagötu 8, sími 24140
Ekki bara okkar stolt. .
heldur líka þitt.
‘ Þegar þú býður gestum þínum í Þingholt.
Leitaðu upplýsinga hjá okkur, ncest þegar þú þarft á
húsnœði að halda fyrir brúðkaup, fermingu,
árshátíð eða hverskonar mannfagnað. Síminn er 2 10 50.
BERGSTAÐASTRÆTI 37
SÍMI21011